Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 2
2 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrstu tvær skákirnar
á mótinu voru erfiðastar
Dómsmálaráðherra á dómaraþingi
Vísbendingar um
aukinn hraða
í málsmeðferð
Siglufjarðar-
kaupstaður
Samningar
umkröfur
nást við Is-
landsbanka
Siglufirði. Morgunblaðið.
SIGLUFJARÐARKAUPSTAÐUR
þarf að greiða íslandsbanka tæp-
lega níu og hálfa milljón vegna
ábyrgðar, sem bærinn var í, vegna
Dýpkunarfélagsins hf. Bæjar-
ábyrgð þessi var veitt í apríl 1988.
Dýpkunarfélagið hf. var lýst
gjaldþrota fyrir um J)að bil ári.
Framreiknuð krafa Islandsbanka
var um 18 milljónir kr. og var
málið á leið fyrir dómstól er samn-
ingar náðust milli Sigluijarðarkaup-
staðar og bankans um að bærinn
greiði 9.418.000 kr. Að sögn Bjöms
Valdimarssonar, bæjarstjóra á
Siglufirði, var gert ráð fyrir að bær-
inn þyrfti að Jeggja fram fé fyrir
ábyrgðinni. „Á þessum árum var
algengt að sveitarfélög gengju í
ábyrgðir fyrir fyrirtæki, en reynslan
hefur sýnt að þetta hefur komið
mörgum sveitarfélögum í koll og því
hefur Siglufjarðarkaupstaður ekki
gengið í ábyrgðir fyrir fyrirtæki síð-
astliðin fimm ár,“ segir Bjöm.
♦ ♦ «-----
Fluttur á
slysadeild
úr reykjar-
mekki
MAÐUR á fímmtudagsaldri var
fluttur á slysadeild síðdegis í gær
eftir að íbúð hans fylltist af reyk
vegna þess að pottur hafði gleymst
á heitri hellu.
Slökkviliðið var kallað að húsi
við ofanverðan Laugaveg þar sem
allir gangar þess höfðu fyllst af
brælu og reyk.
Reykkafarar fóm inn í íbúð
mannsins og fundu hann og var
þá mjög af honum dregið. Var
hann því fluttur á slysadeild til
aðhlynningar.
Að sögn slökkviliðs urðu ekki
teljandi skemmdir á öðm en pottin-
um og þeim ókunna rétti sem verið
hafði á hlóðunum.
„ÉG HAFÐI ekki teflt lengi og
var alls ekki viss um að vinna.
Sérstaklega eftir fyrstu skák-
irnar á móti Hörpu og Svövu.
Hinar voru léttari,“ sagði Ás-
laug Kristinsdóttir skákkona
eftir sigur sinn á íslandsmóti
kvenna í skák í gærkvöldi. Ás-
laug hefur teflt með hléum síð-
ustu níu ár og hampað íslands-
meistaratitli tvisvar áður, 1979
og 1983.
Aðspurð sagði Áslaug að
hléin í skákinni mætti rekja til
þess að hún hefði undanfarin
ár sinnt uppeldi tvíburadætra
sinna sem nú eru 8 ára. Hún
sagðist reikna með að snúa sér
frekar að skákinni á næstunni
og sagði að báðar hefðu dætur
hennar sýnt skákinni áhuga.
Þær eru með móður sinni á
myndinni, Hulda vinstra megin
og Bima hægra megin.
Áslaug vann allar sjö skákir
sínar. Anna Björg Þorgríms-
dóttir varð önnur, Harpa Ing-
ólfsdóttir og Svava Bjamey
Sigbertsdóttir í 3.-4. sæti,
Helga Guðrún Eiríksdóttir í því
5., Rut Guðmundsdóttir í 6.,
Ingibjörg Edda Birgisdóttir og
Aldís Rún Lárusdóttir 17.-8.
sæti, Bergrún íris Sævarsdóttir
í 9. og Þorbjörg Elsa Ingólfs-
dóttir í 10. sæti.
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra sagði í ávarpi við setn-
ingu dómaraþings í gær að vís-
bendingar væru fyrir hendi um að
náðst hefði árangur við að bæta
úr því ófremdarástandi sem
Hæstiréttur hefði staðið frammi
fyrir vegna gríðarlegrar fjölgunar
áfrýjaðra mála og lenging biðtíma
á afgreiðslu þeirra. „í síðustu viku
kvað Hæstiréttur upp dóma í
tveimur áfrýjuðum refsimálum,
sem risu af brotum sem framin
voru í júlí á þessu ári. Þarna liðu
því þrír mánuðir frá broti til
hæstaréttardóms, sem er ákaflega
athyglisvert og ber gott vitni þeim
áhuga sem lögregla, ákæruvald
og dómstólar hafa á að hraða
meðferð mála,“ sagði Þorsteinn
Pálsson.
Ráðherra bar lof á frumkvæði
dómara á þessum málum og sagði
ákaflega brýnt að halda áfram á
þeirri braut að reyna að auka skil-
virkni og stytta málatíma, sérstak-
lega varðandi einkamál þar sem
enn virtist töluvert í land og vék
í því sambandi að tilmælum ráð-
herranefndar Evrópuráðsins um
sjálfstæði, skilvirkni og hlutverk
dómara þar sem lögð væri áhersla
á skilvirkni dómskerfisins.
Breytt mat á hæfni
hæstaréttardómara
Hann sagði einnig að í fram-
haldi af fyrrgreindum tilmælum
ráðþerranefndarinnar mætti fall-
ast á að í ljósi breyttra viðhorfa
væri ástæða til að taka upp um-
ræðu um hvort ástæða væri til að
viðhafa svipað fyrirkomulag við
val hæstaréttardómara og tekið
var upp við val héraðsdómara rtieð
aðskilnaðarlögunum, sem tóku
gildi 1. júlí 1992, þ.e. að dómnefnd
fjalli um hæfni umsækjenda. „Mitt
mat er að það komi vel til álita,“
sagði Þorsteinn Pálsson. „Það þarf
hins vegar að ígrunda vel hveijir
ættu að éiga sæti í slíkri nefnd
og hver ætti að skipa hana. Það
getur orkað tvímælis að dómar-
arnir sjálfir velji slíka nefnd,
a.m.k. eingöngu."
Sjómannasamband íslands
Þingið harmar
ákvörðun SVFÍ
Á ÞINGI Sjómannasambands ís-
lands var einróma samþykkt
ályktun þar sem hörmuð er _sú
ákvörðun Slysavarnafélags ís-
lands að víkja Hálfdani Hemys-
syni, deildarstjóra leitar- og björg-
unar, úr starfi og ekki síst hin
harkalega aðför sem þar var höfð
í frammi.
Tíu björguunarsveitir hafa nú
mótmælt harðlega uppsögn Hálf-
dans, þær eru Sigurvon í Sand-
gerði, Kyndill á Kirkjubæjar-
klaustri, Stjarnan í Skaftártung-
um, Lífgjöf í Álftaveri í Skaftár-
hreppi, Víkveiji í Vík í Mýrdal,
Garðar á Húsavík, Björg á Eyrar-
bakka og Ægir í Garði. Auk þess
ályktuðu björgunarsveitin Strákar
og slysavarnardeildinn Vörn á
Siglufirði sameiginlega og hluti
af stjóm björgunarsveitarinnar
Ingólfs í Reykjavík mótmælti upp-
sögninni. Um tíu sveitir aðrar
hafa óskað eftir sáttum við Hálf-
dan eða harmað uppsögnina og
óskað frekari skýringa, sem stjórn
SVFÍ telur að hafi komið fram í
yfirlýsingu varaforseta félagsins
L fjölmiðlum í gær. MikiH meiri-
hluti starfsmanna SVFÍ hefur
jafnframt mótmælt uppsögninni.
Niðurstaða embættismanna Hafnarfjarðar um fjármál listahátíðar
Stjóm listahátíðar
ber ábyrgð á
bókhaldsóreiðuimi
STJÓRN hlutafélagsins Listahátíð-
ar í Hafnarfirði hf. ber fulla ábyrgð
á bókhaldsóreiðu við uppgjör Iista-
hátíðar í Hafnarfirði á síðasta ári.
Bókhald félagsins var ekki í sam-
ræmi við hlutafélagalög sem kveða
á um eftirlit með bókhaldi og með-
ferð fjármuna félags. Rökstuddur
grunur leikur á að launagreiðslur
til stjórnarmanna komi ekki fram í
bókhaldinu og hafi þannig farið
fram hjá skatti. Stjómin tók einnig
ákvarðanir um útgjöld vegna hátíð-
arinnar. Þetta kemur meðal annars
fram í skýrslu bæjarlögmanns og
bæjarendurskoðanda Hafnarfjarðar
sem leggja á fram á aukafundi
bæjarráðs Hafnarfjarðar á mánu-
dag-
Skýrslan liggur ekki fyrir í end-
anlegri gerð en Magnús Jón Árna-
son bæjarstjóri gerði bæjarráði
Hafnarfjarðar munnlega grein fyrir
helstu atriðum hennar á fundi á
fimmtudag.
Samkvæmt áreiðanlegum upp-
lýsingum Morgunblaðsins kemur
fram í skýrslunni að rökstuddur
grunur leiki á um að nærri 900
þúsund króna gat á uppgjöri lista-
hátíðarinnar skýrist að miklu leyti
af því að einn stjórnarmaður hluta-
félagsins sem hafi tekið 550 þúsund
krónur af samningsbundnum Iaun-
um sínum vegna vinnu við hátíðina,
út úr veltunni án þess að skjöl séu
fyrir því í bókhaldi.
• Einnig kemur fram að annar
stjórnarmaður hafi skrifað launa-
greiðslur á son sinn undir lögaldri
vegna vinnu við listahátíðina að því
er virðist til að losna við skatt-
greiðslur.
Enginn getur firrt sig ábyrgð
Gunnar Gunnarsson, stjórnarfor-
maður Listahátíðar í Hafnarfirði,
hf. afhenti bæjarlögmanni gerða-
bók stjórnarinnar í gær en þar eru
skráðar fundargerðir funda sem
stjórnin átti með Arnóri Benónýs-
syni fjármálastjóra hátíðarinnar.
Fól bæjarstjóri bæjarlögmanni jafn-
framt að hafa upp á Sverri Ólafs-
syni, framkvæmdastjóra félagsins,
svo hann gæti komið fram með þær
skýringar sem hann hefði fram að
færa en Sverrir hefur verið fjarver-
andi undanfarið.
Magnús Jón Árnason vildi í sam-
tali við Morgunblaðið ekki tjá sig
um innihald embættismannaskýrsl-
unnar. „En það stendur sem ég
bókaði í bæjarráði fyrr í haust að
enginn geti firrt sig ábyrgð sem
hefur komið að rekstri þessarar
hátíðar."
Stjórn Listahátíðar í Hafnarfirði
hefur hingað til ekki viljað taka á
sig ábyrgð á framkvæmd listahátíð-
arinnar og lýsti því yfir bréflega
fyrir nokkru að eftir að Arnór Ben-
ónýsson var ráðinn fjármálastjóri
hátíðarinnar af bæjaryfirvöldum í
Hafnarfirði í febrúar 1993 hafi þeir
ekki lengur haft möguleika á að
fylgjast með íjármálum hátíðarinn-
ar. Túlkun bæjarlögmanns mun
hins vegar vera sú að með samn-
ingi Hafnarfjarðarbæjar og Lista-
hátíðar í Hafnarfirði hf. um fram-
kvæmd hátíðarinnar frá mars 1993,
þar sem samþykkt var að skipta
launagreiðslum til Amórs Benónýs-
sonar á milli bæjarins og félagsins,
hafi félagið yfírtekið Amór sem
starfsmann.
Skattarannsókn
Samkvæmt ömggum heimildum
Morgunblaðsins hefur bókhald
Listáhátíðar í Hafnarfirði hf. verið
til skoðunar hjá skattayfirvöldum •
Hafnarfirði. Þar hefur meðal annars
komið í ljós að launamiðum, sem
Listahátíð í Hafnarfirði hf. hefur
sent frá sér, ber ekki saman við
fmmrit launamiðanna sem Hafnar-
fjarðarbær gaf út.
Meirihluti bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar kemur saman í dag vegna
undirbúnings fjárhagsáætlunar
bæjarins en listahátíðarmálið verð-
ur þar einnig til umfjöllunar. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins er lögð áhersla á að Ijúka mál-
inu með einhverjum hætti á mánu-
dag en ekki liggur fyrir hvort lagð-
ar verða fram kærur til rannsóknar-
lögreglu, eða ef svo fer hveijir verði
kærðir og fyrir hvaða sakir.