Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 45
BREF TIL BLAÐSINS
Ekkert mál!
- Samt er íslenskt mál stórmál
Frá Örlygi Sigurjónssyni:
RÖNG notkun óákveðinna for-
nafna í mæltu máli og rituðu er
býsna algeng. Ástæðan er eflaust
sú að þekking á beitingu þeirra
er óljós. Aðhald frá viðtakendum
eða þeim sem hlusta er lítið sem
ekkert, en það er athyglisvert því
á öðrum sviðum veita viðtakend-
urnir sterkt aðhald og gera kröfur
um rétt málfar. Hver kannast ekki
við það að hafa snúið umræðum
almenns efnis út i vangaveltur um
tiltekið málfarslegt vafaatriði. Ég
hef t.a.m. heyrt útlendinga minn-
ast á hvað íslendingar ræði mikið
um hvernig eigi að segja e-ð og
það stundum á kostnað innihalds-
ins. Glöggt er gests augað, eða
öllu heldur eyrað.
Allt um það. Kröfur viðtakenda
málsins lúta að þekkingu þeirra á
réttu málfari. Það er t.d. sjaldan
leiðrétt þegar sagt er „þeim þykir
vænt um hvort annað“* eða „þeir
stútuðu hvorum öðrum“* eða „þau
ætla að fara til hvors annars“*
eða „þeir buffa hvorn annan“*.
Mér virðist að oft sé það andlag
setningar sem ráði falli fornafns-
ins sbr. „...til hvors annars(ef.)“
..hvorum öðrum(þgf.)“ og
„...hvort annað(nf.)“
Það leynir sér heldur ekki að
málnotendur hneigjast til að
steypa andlag og fornafn í sama
mót, svo að segja, e.t.v. vegna
þess að þau standa oft hlið við
hlið í setningu og í stað þess að
reyna á minnið og muna í hvaða
falli frumlagið var (sem oft er
gleymt þegar tognar úr setning-
unni) er gripið í næsta hálmstrá
sem andlagið er, og fornafnið
beygt í samræmi við það. Til að
forðast slíkar vitleysur þarf ekki
annað en að gefa meiri gaum að
falli frumlagsins og beygja for-
nöfnin í samræmi við það. Dæmi:
„Þeim (þgf.) þykir vænt hvoru
(þgf.) um annað“; „þeir (nf.) stút-
uðu hvor (nf.) öðrum“; „þau (nf.)
ætla að fara hvort (nf.) til ann-
ars“; „þeir (nf.) buffa livor (nf.)
annan“.
Ruglingur
Hver og hvor vilja líka ruglast
saman en munurinn þar á milli er
í raun sáraeinfaldur. Þegar sagt
er hvor þá er átt við annan af
tveimur. Dæmi: „Báðar stelpurn-
ar (nf.) hældu hvor (fn.) ann-
arri.“ En þegar sagt er hver þá
er átt við einn af þremur eða fleir-
um. Dæmi: „Allir strákarnir (nf.)
hældu hver (nf.) öðrum.“ Þetta á
við um einstaklinga. Þá yfir í hóp-
ana. Það er mæta líkt því þegar
átt er við annan hóp af tveimur
þá er sagt hvorir. Dæmi: „Báðir
flokkarnir (nf.) saka hvorir (nf.)
aðra um e-ð.“ En séu hóparnir
þrír eða fleiri er talað um hverjir.
Dæmi: „Allir flokkarnir (nf.) saka
hverjir (nf.) aðra um e-ð.“ Þá er
ósagt um samband afturbeygðra
eignarfornafna og óákveðinna for-
nafna. Þau eru stundum óþægileg
saman. Dæmi: „Þeir eiga sinn
hvorn hestinn.“* „Þau fóru í sitt
hvorum bátnum.“* „Þeir fóru sitt
í hvoru lagi.“* I þessum tilfellum
er svipað vandamál og áður, þ.e.
að ending andlagsins „smitar“
óákveðna fornafnið. Fall aftur-
beygða eignarfornafnsins á hins
vegar að fylgja falli andlagsins.
Dæmi: „Þeir eiga sinn (þf.) hest-
inn (þf.) hvor.“ Og: „Þau fóru
hvort með sínum (þgf.) báti
Dg: „Þeir fóru hvor í sínu
,gi (þgf.).“
Lestur
vil ég benda á gagnsemi
) lesa skáldsögu Gunnars
•ssonar Ströndina í þýð-
iinars H. Kvarans til að
kynnast beitingu fornafna, því
stundum er auðveldara að læra
ýmis málfræðiatriði af samfelldum
texta í meðförum reyndra manna
í stað þess að kynna sér einangruð
dæmi á sama hátt og maður nýtur
gómsætra rétta betur með því að
bragða þá en að lesa um þá í
matreiðslukveri, þó ekki sé þeim
það láandi sem vel líkar.
ÖRLYGUR SIGURJÓNSSON
íslenskunemi við HI,
Dragavegi 7, Reykjavík.
Siðleysi og skortur á dómgreind
Frá Arna Ferdinandsyni:
ÉG HEF undanfarið lesið í
Morgunblaðinu um margsköttun
lífeyrisgreiðslna og núna síðast 2.
nóvember sl., þar sem lífeyrisþeg-
ar eru hvattir til þess að tjá sig
um þessi mál.
Ég ætla ekki að láta mitt eftir
liggja og tek undir það sem þegar
hefur verið bent á.
Að mínu mati hafa þessir bless-
aðir menn, sem við höfum stutt
til þingsetu, ekki sinnt'þessari rétt-
lætiskröfu okkar. Þess vegna ættu
lífeyrissjóðirnir okkar að leysa
þessi mál í eitt skipti fyrir öll með
þeim einfalda hætti að kaupa ekki
ríkisskuldabréf, húsbréf eða fjár-
festa fyrir krónu í einu eða neinu,
sem ríkisvaldið bíður upp á, á
meðan þessi ósómi viðgengst.
Ef þetta dugar ekki má benda
á að Island hefur viðurkennt Al-
þjóðadómstólinn og lýtur úrskurði
hans. Þess vegna ætti Félagsskap-
ur eldri borgara að gera út eld-
hressan félagsmann til þess að fá
felldan dóm yfir þessari margs-
köttun, jafnvel þótt ein lögleysan
enn bætist við þá hneisu, sem lög-
gjafarvaldið íslenska hefur beðið.
Nú á dögum er hægt að ávaxta
sjóði lífeyrisþega á marga vegu,
t.d. í ýmsum rekstri hérna heima
eða erlendis. Það yrði ekki ama- ,
legt fyrir lífeyrisþega að fá lífeyr-
inn lagðan inn á erlendan banka
— kannski yrði hann ekki skatt-
skyldur þar.
Að öllu gamni slepptu á þessi
stóri hópur lífeyrisþega ekki að
styðja lengur til valda þá menn
sem skortir dómgreind og viðhafa
slíkt siðleysi.
Með samúðarkveðjum til allra,
sem eru beittir ranglæti og þeirra
sem beita því.
ÁRNI FERDINANDSSON,
Skipasundi 53, Reykjavík.
Tilkynnmg fra
Fyrsti jólagámurinn er í höfn
Nú erum við búnir að lækka verð á bleyjum um land allt!
Nú flytjum við inn og seljum Mackintosh á lægra verði
en fríhöfnin i Kelflavik!
ÁRÍÐANDI! Kaupum innanlands!
■ Af hverri Mackintoshdós sem keypt er innanlands fara 41% af verðinu í
ríkissjóð. Slíkt gerist ekki ef keypt er erlendis og fríhafnir greiða hvorki
virðisaukaskatt né tollgjöld. Kaup innanlands skapa auk þess störf við verslun,
þjónustu, dreifingu, tollgæslu o.fl. fyrir utan þann óbeina skatt sem kemur öllum
landsmönnum til góða.
■ Það er styttra upp á Höfða þar sem við erum en til Glasgow eða Dublin.
Við flytjum okkar vörur milliliðalaust inn og erum þess vegna samkeppnisfærir í
verði við útlönd. Þeir einu sem fá frið fyrir okkur eru íslenskir bændur enda
þurfum við á þeim að halda.
■ í fyrsta jólagámnum eru margvíslegar vörur, allar samkeppnisfærar við
erlendar verslanir, sem dæmi má nefna:
Margvíslegar jóladósir með súkkulaðikexi t.d. Crawford rover 1 kg. kr. 649.
Mackintosh og lúxuskonfekt frá Sviss, Belgíu og fleiri löndum.
Hlýir ullarfrakkar kr. 9.992, herrajakkaföt úr ullarblöndu kr. 9.990.
Stakir jakkar úr ullarblöndu kr. 6.975, spariskyrta kr. 1.330,
Ódýrustu leikföng landsins frá heimsþekktum framleiðendum eins og Fisher Price,
Playmobil, Matchbox, Barbie, Little tikes o.fl. Einnig fengum við Disneymyndbönd,
risaúrval t.d. Mjallhvíti og Dvergana sjö kr. 1.748 og Goofy á kr. 1.188.
Rafmagnsvörur t.d. Black & decker gufustraujárn kr. 2.959. Mulinex gufustraujárn
kr. 2.436. Rowenta hraðsuðukanna kr. 2.435. Hinari samlokugrill kr. 2.435.
og margt fleira . . .
Matvara er á lágmarksverði, t.d. lítri af mjólk kr. 60 og 5% afsláttur af öllum ostum.
Pöntunarþjónusta er á virkum dögum rnilli kl. 10 og 12 f.h.
Versluni^ er opin öllum landsmönnum 16 ára og eldri.
Allt verð sem gefið er upp í þessari kynningu er staðgreiðsluverð.
. ■
Birgðaverslun F&A,
Fosshálsi 27,
110 Reykjavík,
sími 873211, fax 873501.
Við erum sunnan við Olgerðarhus Egils
og norðan við Osta- og smjörsöiuna.
Athugiö breyttan opnunartíma
um helgar (vetraropnunartími)
Laugardagar kl. 12 til 18.
Sunnudagar kl. 13 tii 18.
Virka daga eins og
venjulega kl. 12 til 19.