Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 19 URVERINU Sævar Gunnarsson kjörinn formaður Sjómannasambandsins Kemur ekki til greina að líða slíka kjarasamninga Morgunblaðið/Sverrir ÓSKAR Vigfússon fráfarandi formaður Sjómannasambands Is- lands árnar Sævari Gunnarssyni nýkjörnum formanni heilla í nýju starfi. SÆVAR Gunnarsson var í gær kjörinn formaður Sjómannasam- bands íslands. Tveir voru í kjöri til formanns, -Sævar sem kjörnefnd gerði tillögu um og Sigurður Ólafs- son frá ísafirði og hlaut Sævar 40 atkvæði en Sigurður 18. Konráð Alfreðsson var kjörinn varaformður sambandsins, Elías Björnsson frá Vestmannaeyjum ritari og Jónas Garðarson, Reykjavík, gjaldkeri. Ályktanir þings Sjómannasambands íslands Útgerð og vinnsla aðskilin ÞING Sjómannasambands Islands hefur samþykkt ályktun þess efnis að beina því til samtaka útvegs- manna að sameinast samtökum sjó- manna í kröfu á hendur stjórnvöld- um um að aðskilja með lögum tengsl útgerðar og fiskvinnslu með því að gera að skuyldu að allur afli sem seldur er innanlands verði seldur á uppboðsmarkaði. Slík krafa sé í sam- ræmi við núgildandi ákvæði kjara- samninga milli útvegsmanna og sjó- manna þar sem segir að útgerðar- maður skuli tryggja sjómönnum hæsta gangverð fyrir aflann. í upphaflegri tillögu sagði að til- raun til að koma á fijálsu fiskverði hafi mistekist vegna þess að í 80% tilvika er seljandi og kaupandi einn og sami aðilinn. Þar sagði ennfrem- ur að það sé óraunhæf krafa að all- ur afli sé seldur á markaði nema með beinum stjómvaldsaðgerðum, vegna þess að fiskkaupendur eigi og séu enn að eignast fiskveiðikvóta þann sem gefinn er út fyrir hvert fiskveiðiár. Það stefni í óefni hvað þetta varðar þar sem kvótinn sé að færast á færri og færri hendur. Einföldun skattstigans Þá styður þingið ákvörðun fjár- málaráðherra um einföldun skatt- stigans með afnámi hátekjuskatts. Þingið telur að auknar áherslur þurfi að leggja á skattaeftirlit og inn- heimtu þannig að allir greiði til sam- félagsins það sem þeim ber. Sjómannasambandið beinir því til sjómanna sem ráða sig á hentifána- skip að kynna sér vel launakjör, trygginga og öryggismái, „því þau eru ekki mönnum bjóðandi," segir í ályktuninni. Þingið hvetur stjórnvöld til að leyfa hvalveiðar eigi síðar en næsta vor. Allar rannsóknir bendi til þess að hvalastofnar hér við land þoli að veiðar verði hafnar að nýju. U ppsagnarf r estur sjómanna Sambandið beinir einnig ein- dregnum tilmælum til Alþingis að breyta 9. grein sjómannalaga um uppsagnarfrest sjómanna á íslensk- um fiskiskipum. Uppsagnarfrestur nú er sjö dagar en þingið krefst þess að hann sé minnst einn mánuð- ur. Sjómannasamband íslands telur brýna nauðsyn til að þyrla sé stað- sett úti á landsbyggðinni með tilliti til þess hvei-su langt flug getur orð- ið verði sjóslys eða annars konar slys á þeim slóðum. Þingið hvetur hagsmunaaðila til að taka höndum samn svo hægt verði að taka tilboði Grönlandsfly umk þyrlu á Egilsstöð- um nú í vetur til reynslu. Nokkur gagnrýni kom fram á upp- stillingu kjörnefndar í stjórn sam- bandsins og gáfu þrír kost á sér í stjórnina auk þeirra ellefu sem kjörnefnd hafði stillt upp. Þó fór svo í atkvæðagreiðslu að allir á lista kjörnefndar voru kjörnir. Sævar sagði að ekki kæmi til greina að líða það að starfskjarasamningar áhafnir hentifánaskipa verði boðnir til frambúðar Sævar Gunnarsson nýkjörinn formaður sagði í samtali við Morg- unblaðið að með nýjum mönnum kæmu nýir siðir. „En það er vandr- atað í spor fyrrverandi formanns, Óskars Vigfússonar, en ég vona að okkur beri gæfa til að feta á margan hátt í spor hans. Það eru miklar breytingar á forystu sam- bandsins og við getum áttum von á breytingum í starfsháttum þess,“ sagði Sævar. Afnema á hátekjuskatt Hann sagði að sér sýndist að helstu baráttumálin framundan myndu snúast um fiskverð og þátt- töku sjómanna í kvótakaupum. „Við bindum reyndar vonir við sam- , starfsnefnd sjómanna og útgerðar- manna í því máli,- Síðan verða þau skelfílegu mál sem hér hafa verið til umræðu um starfskjör á útflögg- unarskipum á döfinni. Við verðum að taka á því máli með öllum tiltæk- um ráðum. Við vitum að það eru íslenskir útgerðarmenn sem standa að útgerð þessara skipa og munum leita ráða m.a. í samvinnu við verkalýðshreyfinguna og önnur sjó- mannasamtök og hugsanlega al- þjóðasamtök," sagði Sævar. Hann kvaðst taka undir allar hugmyndir til að sporna við þess- ari þróun, þ.á.m. tillögu Óskar Vig- fússonar fráfarandi formanns sam- bandsins um hafnbann á hentifána- skipin. „Þetta verður mál stjórnar Sjó- mannasambandsins og það verður tekið á því af fullum þunga. Það kemur ekki til greina að líða það að slíkir starfskjarasamningar verði boðnir til frambúðar, það er útilokað mál.“ Sævar sagði það skoðun Sjó- mannasambandsins að afnema ætti hátekjuskatt því hann bitnaði að verulegu leyti á ungu fólki sem er að byggja. „Sjómenn vinna gríðar- lega mikið og lenda sumir þeirra óhjákvæmilega í þessari skatt- heimtu en þó eru aðrir afar lágir í launastiganum. Við teljum ein- faldlega hátekjuskatt óréttmætan skatt,“ sagði Sævar. Þeir sem kjörnir voru í stjórn Sjómannasambands Islands eru Hafþór Rósmundsson frá Siglu- firði, Hervar Gunnarsson frá Akra- nesi, Jón Ingi Kristjánsson Ne- kaupsstað, Kristinn Pálsson Kefla- vík, Oddur Magnússon Reykjavík, Óskar Vigfússon Hafnarfirði, Rafn Ólafsson Reykjavík, Sigurður Ólafsson ísafirði, Sveinn Kristins- son Akureyri, Þorsteinn Guð- mundsson Vestmannaeyjum og Þórður Ólafsson Þorlákshöfn. versl íh * % II m Opnunrllml fram tll jóla Mánud. til Fimmtud. kl. 9 -18 Föstud. 9 -19, Laugard. 9 -16 Þu finnur jólagjafirnar örugglega hjá okkur ijjumgar Gjafavara - húsbúnaður, lampar - silkiblóm - myndir, rammar - leikföng og úrval af smávöru á frábæru verði. Verið velkomin í fallega og hlýlega verslun. Magasin Cy Hiísgagnahöltínnl Bíldshöfða 20-112 Reykjavík - Sími 91-871199
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.