Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 37 MINNINGAR SVAVA BENEDIKTSDÓTTIR + Svava Bene- diktsdóttir var fædd á Kambshóli í Víðidal 14. apríl 1911. Hún lést á heimili sínu i Kolu- gili i Víðidal 26. október síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Sig- ríður Friðriksdótt- ir og Benedikt Benónýsson. Svava var elsta dóttir þeirra, en auk hennar áttu þau hjónin Unni, f. 1912, d. 1968, Elísabetu, f. 1914, d. 1991, Friðrik, f. 1915, d. 1973, Benóný, f. 1917, d. 1991, og Jóhann, f. 1919, og er hann einn eftirlifandi systk- inanna. Svava réðst sem ráðs- kona að Dæli til Jónasar Björnssonar bónda þar. Þau eignuðust tvær dætur, Helgu Birnu, f. 1932, d. 1979, og Sig- ríði Benný, f. 1933. Helga gift- ÞEGAR við kveðjum ömmu okkar, Svövu Benediktsdóttur frá Kolugili, hrannast upp yndislegar minningar frá liðnum árum. Sem börn dvöld- umst við flest sumur hjá ömmu og Bjössa. Þar vorum við mest við leik en fengum líka að aðstoða við ýmis störf þegar við vorum nógu gömul til að gera gagn. Amma var um margt sérstæð kona. Hún var mjög víðlesin og mátti furðu gegna hve fróð hún var um hin ólíkustu efni. Eitt sem ein- 'kenndi hana var hve óbifanleg hún var í skoðunum sínum. í samskipt- um við aðra var hún mjög hreinskil- in og sagði ætíð það sem henni bjó í brjósti. Margar minningar eru úr eldhúsinu hjá henni ömmu. Þar var oft setið lengi dags og rætt um allt milli himins og jarðar. Amma hafði gaman af að segja sögur af ýmsu sem fyrir hana hafði borið á lífsleiðinni. Enginn hló hærra né innilegar en hún þegar sagt var frá einhveiju skondnu, láku þá tárin oft niður kinnarnar, svo innilega var hlegið. Frá unga aldri var amma sér- stakur náttúruunnandi og dýravin- ur. Engin dýr, hvorki stór né smá, voru henni óviðkomandi en hestar voru þó í sérstöku uppáhaldi. Seinni árin þegar hún hafði ekki heilsu lengur til að fara á hestbak var það hennar yndi að tala um hesta og fylgjast með heimahestunum eða öðrum hestum sem leið áttu um. Sem dæmi um hve glögg hún var á hesta var þegar hún fór í stóð- hestaréttirnar í Víðida! í fyrra. Smá ráðstefna var í gangi vegna hests sem ekki var markaður. Kallað var til bónda eins, sem þótti líklegur eigandi og hann spurður hvort hest- urinn væri úr hans stóði. Bóndinn virti hestinn fyrir sér en var ekki viss í sinni sök. Þá kallaði amma hátt og skýrt: (Víst áttu hestinn, ég held ég þekki hann nú á svipn- um.) Auðvitað hafði hún á réttu að standa. Lífsförunautur ömmu, Björn Ax- Sóiira*ðingar i»lóui»>k*r?*y(iní:'ifin ví-» nli i.rkiiirr' inavördustíg 12, ö Beru'stadastrætis. mihÍ ) ist Ágústi Frankel og eiga þau fimm börn: Dagbjörtu Kristínu, Jónas Inga, Unni Svövu, Svölu og Hörpu Hrönn. Sigríður á tvo syni með fyrri eiginmanni: Pétur og Svavar Jóhann- essyni. Seinni maður hennar er Hreinn Kristjáns- son og eiga þau eina dóttur saman, Aðalheiði. Árið 1943 hófu Svava og Björn Axel Gunnlaugsson búskap á Kolugili. Þau eignuð- ust tvo syni, Gunnlaug, sem lést barn að aldri, og Sigurð, f. 1951, bónda á Kolugili. Hans kona er Jónína Sigurðardóttir. Börn þeirra eru: Gunnlaugur Agnar, Ásdís Olga, Björn Vign- ir og Gerður Rósa. Útför Svövu fer fram frá Víðidalskirkju í dag. el Gunnlaugsson, eða Bjössi eins og við kölluðum hann alltaf, lést 7. maí síðastliðinn. Amma hafði alltaf verið mjög ern andlega, en augljóst var að þessi missir reyndi mjög á hana. Samband þeirra hafði alla tíð verið einstaklega gott og máttu þau vart hvort af öðru sjá. Við þökkum þeim hjartanlega fyrir samfylgdina og óskum þeim alls góðs í nýjum heimkynnum. Við látum hér fylgja með kvæði sem amma hélt mjög mikið upp á og er eftir bróður hennar Benoný heitinn Benediktsson, sem var þekktur skákmeistari á sinni tíð. Logn er og kyrrð, ei kvikar alda á sæ, kðgrað er loft og gyllt af morganroða, reykimir hefjast hátt frá hveijum bæ, í haffleti skyggðum Qöilin blá sig skoða. í fjarska þau rísa glæst af sólarglóð, glitrar á snjó í fjalla efstu brúnum, fuglarnir syngja fagran sumaróð, foldin er letruð björtum geislarúnum. Við vottum eftirlifandi syni og dóttur Svövu, Sigurði Björnssyni og Sigríði Jónasdóttur, og þeirra fjölskyldum, okkar dýpstu samúð. Krístín, Unnur, Svala og Harpa Ágústsdætur, Jónas Ágústsson og fjölskyldur. Amma er farin til horfinna ást- vina sinna en skilur eftir sig meira en orð fá tjáð. Minningarnar eru margar en þó eru nokkrar sem eru mér að nokkru kærari en aðrar. í barnæsku dvaldist ég stundum á sumrin hjá henni og Bjössa bónda hennar og lærði þær stundir fleira en upplýsingaþjóðfélagið i dag get- ur gefið af hreinskilni. Amma gat ekki með orðum lýst til dæmis hversu mjög það fór fyrir brjóstið á henni að ég kunni ekki Faðirvorið sjö ára gömul og lét mig hafa það yfir hvert kvöld fyrir svefninn. Eftir það talaði hún ekki um trúmál en órð þurfti ekki til skilnings á því sem að baki bjó. Þannig var allt. Hlutimir voru gerðir af fullri virðingu og af alúð. Hver hönd sem eitthváð megnaði lagði sig fram. Viðhorf hennar og Bjössa til hlutanna voru svo ein- staklega raunsæ, skynsamleg og hreinskilin að ekki þurfti orðagjálf- ur til að skilja kærleikann til lífsins og gjafa þess, hann var þeim í blóð borinn. Allt einkenndist af því að gera sem best við allt og alla menn og skepnur hvenær sem á þurfti að halda. Þau verða mér ætíð skýr fyrirmynd í fortíð sem framtíð. Blessuð sé minning þeirra. Aðalheiður. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður míns, tengdaföður, afa og langafa, SOFFAIMÍASAR GUÐMUNDSSONAR, Akranesl. Sigurlaug Soffanfasdóttir, Sverrir Sigurjónsson, Anna Sverrisdóttir, Valgeir Einarsson, Rafn Sverrisson, Heiðrún Björnsdóttir, Áslaug Sverrisdóttir, Sigurður Kristjánsson og barnabarnabörn. t Elskulegur vinur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ANDRÉSPÁLSSON, andaðist 3. nóvember í Landspítalanum. Valdfs Pálsdóttir, Pétur Jóhannsson, Harpa Hansen, Jón Páll Andrésson, Olgeir Andrésson, Ágústína Andrésdóttir, Steinþór Gunnarsson, Elías Birgir Andrésson, Kristín Erla Einarsdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ARÍNU ÞÓRLAUGAR (BSENSDÓTTUR, Seljabraut 14, Reykjavfk. Hulda Guðmundsdóttir, Einar Sigurgeirsson, íbsen Angantýsson, Bára Angantýsdóttir, Auður Angantýsdóttir, Haukur Angantýsson, Ólafur Angantýsson, Guðrún Angantýsdóttir, Viðar Már Matthíasson og barnabörn. t Móðir okkar, ÞURÍÐUR JÓNASDÓTTIR, andaðist þann 4. nóvember á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Hera Karlsdóttir, Hilmar Karlsson, Guðrún Þorvarðardóttir Dyer. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐRÚNARJÓNSDÓTTUR þjóns Drottins. Drottinn blessi ykkur öll. Vinir og aðstandendur. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, BALDURS S. PÁLSSONAR. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnheiður Baldursdóttir, Edda Jóhanna Baldursdóttir, Erna Marín Baldursdóttir. t Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu samúð, vináttu og virðingu við andlát og jarðarför systur minnar, ÁSLAUGAR HELGADÓTTUR, Rauðarárstíg 24, Reykjavík. Sérstakar þakkir til fyrrverandi og núverandi starfsfólks Apóteks Austurbæjar fyrir ómetanlega aðstoð. Guð blessi ykkur öll. Fyrir mína hönd og annarra ættingja, Unnur Helgadóttir. t Alúðarþakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföð- ur, afa og bróður, HALLDÓRS GUÐMUNDSSONAR húsasmíðameístara. Sérstakar þakkir viljum við færa séra Kjartani Erni Sigurbjörnssyni og lækn- um og hjúkrunarfólki deildar 1-A Landakotsspítala. Börn, tengdabörn, barnabörn og systkini hins látna. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð vegna andláts föður okkar, tengdaföð- ur, afa, langafa og bróður, BRANDS JÓNS STEFÁNSSONAR, Kirkjuvegi 3, Vík í Mýrdal. Jóhannes Brandsson, Þuríður Halldórs, Hrönn Brandsdóttir, Guðjón Þorsteinsson, Birgir Brandsson, Jóhanna Þórhallsdóttir, Hörður Brandsson, Gréta Sigurjónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systkini. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför elsku- legs bróður okkar, mágs og móður bróður, GUÐMUNDAR YNGVA HALLDÓRSSONAR, Boðagranda 7, áður Blómvallagötu 10. Sérstakar þakkir til starfsfólks é deild 6-E, Borgarspítalanum. Guð blessi ykkur öll. Margrét Halldórsdóttir, Soffía Vala Tryggvadóttir, Dóra Halidórsdóttir, Bragi Brynjólfsson Alda Bragadóttir, HaHdór Bragason, Elin Sigríður Bragadóttir, Brynjólfur Bragason og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.