Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK StMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 TVÖFALDUR1. vinningur LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK 18 mánaða fangelsisdómur yfir 37 ára gömlum manni Nauðgaði konu sinni að bömuniun ásjáandi HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt 37 ára garnlan mann í 18 mánaða fangelsi fyrir að hafa nauðg- að eiginkonu sinni, sem hann hafði skilið við að borði og sæng. í dómin- um kemur fram að ung börn fólksins hafi orðið vitni að atburðinum. Brotið var framið á heimili kon- unnar í apríl sl. en hjónin höfðu skil- ið að borði og sæng nokkrum mánuð- um áður. í framburði konunnar, sem var samhljóða framburði mannsins hjá lögreglu, kemur fram að maðurinn ífefi komið á heimilið síðdegis þennan dag og konan, sem hafði talið hann vera úti á landi, hafði opnað fyrir honum. Konan vildi ekki þýðast hann og kom til átaka í stofunni, sem bárust inn í svefnherbergi. Fjögurra ára sonur þeirra og dóttir vöknuðu og höfðu fylgt foreldrum sínum inn í svefnherbergið. Neitaði, játaði og neitaði aftur Meðan maðurinn var á heimilinu hafði vinkona konunnar hringt þang- að en maðurinn þá svarað og skellt á eftir að hafa haft í hótunum við hana. Vinkonan taldi ástæðu til að óttast að maðurinn gerði konunni fnein og hringdi á lögreglu. Maðurinn hafði við yfirheyrslur neitað sakargiftum, en breytt þeim framburði og játað og borið í megin- atriðum á sama veg og konan. Fyrir dómi neitaði hann á ný. í niðurstöðum Guðjóns St. Mar- teinssonar héraðsdómara segir með framburði mannsins hjá lögreglu og með samhljóða framburði konunnar hjá lögreglu og fyrir dómi, sem fái stoð af öðrum gögnum málsins, þ.á m. niðurstöðum læknisrannsóknar, var talið sannað að maðurinn væri sekur. Hann var dæmdur í 18 mánaða óskil- orðsbundið fangelsi og til að greiða konunni 400 þúsund krónur í skaða- bætur auk málsvamarlauna og sakar- kostnaðar. Maðurinn lýsti yfir áfrýjun dómsins til Hæstaréttar. Morgunblaðið/Kristinn DAGUR Sigurðsson stjórnaði sóknarleik Islendinga og lék að auki vel í vörninni. * Island o g Svíþjóð í úrslitum ÍSLAND vann Spán, 22:19, á Al- þjóðlega Reykjavíkurmótinu í handknattleik í gærkvöldi. ís- lenska liðið tryggði sér þar með sigur í B-riðli, tapaði ekki leik og er með 15 mörk í plús. Liðið leik- ur til úrslita í dag gegn Evrópu- meisturum Svía sem fengu fullt hús stiga í A-riðli og eru með 21 mark í plús. Urslitaleikurinn verður í Laugardalshöll og hefst kl. 18 en keppnin um bronsið byij- ar kl. 16. Athygli vekur að Sviss- lendingar og Spánveijar urðu neðstir í sínum riðlum, töpuðu öllum sínum leikjum. ■ íslendingar og.../Cl Rey nslus veitarfélög Fundi frestað vegna ágreinings FUNDI, sem félagsmálaráðu- neytið hafði boðað í gær með fulltrúum sveitarféiaganna sem ætla að taka þátt í reynslusveit- arfélagaverkefninu, var frestað til 25. nóvember. Fulltrúar sveitarfélaganna óskuðu eftir frestun þar til ágreiningur við ríkið um greiðslur sveitarfélag- anna í Atvinnuleysistrygginga- sjóð hefði verið íeystur. Sigfús Jónsson, formaður verkefnisstjórnar reynslusveit- arfélaga, sagðist vonast eftir að ágreiningurinn yrði úr sög- unni fyrir þann fund. Ósk sveitarfélaganna kom í kjölfar yfirlýsingar Guðrúnar Agústsdóttur, forseta borgar- stjómar, um að hún myndi ekki mæta á fundinn. Viðræður standa nú yfir milli félagsmála- ráðherra og forystumanna Sambands islenskra sveitarfé- iaga um ágreininginn. Andey í slipp Morgunblaðið/RAX VETUR konungur hefur barið hraustlega á dyr. Færð hefur valdið tjóni í umferðinni og ís skráveifum á hafi úti. Hér gera vaskir menn við ísskemmdir á Andeynni í slippnum í Reykjavík. Ráðstefna um nám og kennslu í lagadeild Hugmyndir um BA- próf í lögfræði SVEINBJÖRN Björnsson háskóla- rektor varpaði fram þeirri hugmynd á ráðstefnu laganema um nám og kennslu í lagadeild Háskóla íslands í gær að tekið yrði upp styttra nám í lögfræði en til embættisprófs sem gæti til dæmis tekið þijú ár og lok- ið með BA-prófi. Lagadeild Há- skóla íslands væri óþarflega lokað- ur heimur og þyrfti hún að bjóða upp á námskeið fyrir fólk úr öðrum deildum og styttra nám sem gæti til dæmis mætt þörfum allra þeirra sem falla ár hvert í almennri lög- fræði og bíða þar skipbrot en það eru þrír af hveijum fjórum sem prófíð þreyta. Laganemar og kennarar við deildina troðfylltu Norræna húsið í gær og fékk hugmynd rektors misjafnar undirtektir. Þorgeiri Ör- lygssyni prófessor fannst hug- myndin athyglisverð og gæti styttra nám til dæmis hentað þeim sem vildu leggja fyrir sig fasteigna- sölu og störf hjá sveitarfélögum. Arnljótur Björnsson prófessor kvað þetta framkvæmanlegt_ en myndi kosta mikla peninga. Ýmsir aðrir tóku aftur á móti ilia í að draga úr kröfum til nemenda í lögfræði með nokkrum hætti. Hvað mæla prófin? Hjá laganemum kom fram gagnrýni á fyrirlestraformið í lagadeild og prófin, sem væru þannig samin að utanbókarlær- dómur skipti mestu. í erindi sál- fræðinganna Friðriks Jónssonar og Guðmundar Arhkelssonar kom fram, að athugun á prófum í laga- deild undanfarin ár sýndi að óljóst væri um hvað væri verið að spyija og að einstakar spurningar hefðu of mikið vægi. Loks reyndi drjúgur hluti spurninga á lagaprófum fremur á upprifjun námsefnis en að próftakar sýndu skilning á fræðunum. Talið að EES-samningurinn geti staðið óbreyttur þótt fækki í EFTA Innri samningi EFTA um stofnanir breytt SÉRFRÆÐINGAR EFTA-ríkjanna og fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandsins telja, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins, að samning- urinn um Evrópskt efnahagssvæði geti staðið óbreyttur, þótt aðlaga verði stofnanir svæðisins vegna fækkunar í EFTA. Nægilegt sé að breyta innri samningi EFTA um dómstól og eftirlitsstofn- un samtakanna. Þannig yrði komizt hjá flóknu staðfestingarferii og nýjum samningaviðræðum, þar sem ESB-ríki kynnu að setja fram nýjar kröfur. íslendingar rækju stofnanir með sömu nöfnum Morgunbiaðið hefur upplýsingar um að íslenzk- ir fulltrúar hafi rætt óformlega við embættismenn framkvæmdastjórnar ESB í Brussel um það hvernig aðlaga megi stofnanir þær, sem settar voru á fót með EES-samningnum, að því að Is- lánd verði hugsanlega eitt eftir í EFTA. í þessu sambandi er rætt um að íslendingar myndu áfram reka Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og EFTA-dómstólinn og stofnanirnar myndu áfram bera sömu nöfn. Rætt um fækkun í starfsliði ESA Rætt hefur verið um að fækka í starfsliði ESA niður í u.þ.b. sjö manns. Yfirmaður stofnunarinn- ar yrði íslenzkur, en starfaði algerlega sjálfstætt og ESB yrði að samþykkja tilnefningu hans. í EFTA-dómstólnum myndi aðeins sitja einn fastráðinn, íslenzkur dómari, en dómstóllinn hefði lista meðdómenda frá ESB-ríkjunum og íslandi, sem dæma myndu með honum í sérhveiju máli, þannig að tryggt væri að dómarnir hölluðust ekki að íslenzkum hagsmunum. Kæmi hins vegar upp að EFTA-dómstóllinn túlkaði reglur Evrópska efnahagssvæðisins á annan hátt en Evrópudóm- stóliinn, yrði að taka það upp í sameiginlegu EES-nefndinni, en hún myndi einnig starfa áfram, í raun sem tvíhliða nefnd íslands og Evrópusam- bandsins. Ekki liggur fyrir hver gæti orðið kostnaðar- auki íslendinga af því að standa éinir undir stofn- unum EFTA, en slegið hefur verið á að kostnað- urinn gæti farið úr um 70 milljónum á ári í tvö- falda þá upphæð. ■ Óviss framtíð EES/28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.