Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 4

Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 4
4 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vanskil á meðlagi gætu bitnað á sveitarfélögum SVO gæti farið að einungis verði hægt að greiða til sveitarfélaga innan við helming af þjónustu- framlögum til þeirra úr Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga. Ástæðan er erfið fjárhagsstaða sjóðsins vegna vanskila meðiagsgreiðenda, sem eru áætluð um 530 milljónir á þessu ári. Félagsmálaráðuneytið sendi. í fyrradag bréf til sveitarstjóma þar sem kemur fram að undanfarið hafí verið ljóst, að kröfur Inn- heimtustofnunar sveitarfélaga á hendur Jöfnunarsjóði, vegna óinn- heimtra barnsmeðlaga, yrðu mun hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Leitað hafí verið leiða í viðræðum milli félagsmálaráðuneytis, fjár- málaráðuneytis og forsvarsmanna Sambands íslenskra sveitarfélaga til að tryggja innheimtustofnun- inni viðbótarfjármagn, svo ekki þurfí að skerða þjónustuframlögin til sveitarfélaganna. En dragist lausnin á langinn, verði sveitarfé- lögunum greiddur sá hluti fram- laganna sem fjárhagur sjóðsins leyfir, eða um 40% þeirra, en frek- ari greiðslur ráðist af því hvort viðbótarfé fæst. Þjónustuframlög- in voru áætluð 267 milljónir alls, þannig að greiðslur gætu sam- kvæmt þessu numið um 107 millj- ónum. 230 milljónir vantar Jón Kristjánsson þingmaður Framsóknarflokks tók erfíða fjár- hagsstöðu Jöfnunarsjóðs vegna vanskila meðlagsgreiðslna upp utan dagskrár á Alþingi í fyrradag og sagði að um 230 milljóna króna aukafjárveiting væri nauðsynleg svo Jöfnunarsjóður sveitarfélaga geti sinnt hlutverki sínu. „Ef ekkert verður að gert mun þetta ganga á þjónustuframlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem greiðast áttu út í þessum mánuði. Þetta mun bitna á 44% sveitarfé- lögum í landinu, einkum þeim sem hafa unfíir 3.000 íbúa. Þessi fram- lög nema um 270 milljónum króna og sveitarfélögin hafa reiknað með framlögunum í fjárhagsáætlunum sínum,“ sagði Jón. Fram kom hjá Guðmundi Áma Stefánssyni félagsmálaráðherra að í viðræðum fulltrúa ráðuneyta og sveitarfélaga, sem getið var um hér að ofan, væri einnig verið að ræða fleiri mál varðandi sam- skipti þessara aðila, svo sem fram- hald átaksverkefna vegna at- vinnuleysis. Kristinn H. Gunnars- son þingmaður Alþýðubandalags sagði að stjórnvöld vildu greinilega nota þetta mál til að ná peningum frá sveitarfélögunum í Atvinnu- leysistryggingasjóð, en um það hafa ríki og sveitarfélög deilt und- anfarið. Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra sagði að verið væri að ræða við forsvarsmenn sveitarfélaganna um aðgerðir til að tryggja að Jöfnunarsjóður geti sinnt hlutverki sínu. Það væri í fullu samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélaga fyrir ári. Sjaldséður gestur í heimsókn GRASTÍTA er sjaldséður gestur á íslandi. Tegundin er upprunin í Norður- Ameríku og hafði aðeins sést fimm sinnum hér á landi þegar vart varð við þrjá fugla á Suðurnesjum I haust. Fuglinn er ekki ósvipaður stelknum í útliti en fæturnir eru styttri og algulir. Grastíta heldur sig oftast á snöggslegnu grasi eða niðri í fjöru þar sern henni finnst gott að tína ýmis smádýr í gogginn. Dómsmálaráðherra um ummæli utan- ríkisráðherra á þingi Barnaheilla Hefðbundin Telur fráleitt að lögin um umgengnisí rétt stríði gegn mannréttindasáttmálá DÓMSMÁLARÁÐHERRA kveðst telja alveg fráleitt að núgildandi lög um umgengnisrétt stríði gegn mann- réttindasáttmálum, en utanríkisráð- herra sagði á þingi Bamaheilla um seinustu helgi að svo kynni að vera. Þorsteinn Pálsson dómamálaráð- herra segir að utanríkisráðherra hefði átt að taka málið upp við dóms- málaráðuneytið um leið og hann fékk lagalegar skýringar með ákvörðun ráðuneytisins, stríddi ákvörðunin gegn ákvæðum mann- réttindasáttmála, en ekki mörgum mánuðum síðar á öðrum vettvangi. Þorsteinn segist þó áhugasamur um breytingar á lögunum í þá veru að símtöl og bréfaskipti flokkist undir umgengnisrétt. Venjuleg vinnubrögð Þorsteinn segir það vekja sér- staka athygli sína að utanríkisráð- herra hafi haft upplýsingar um ákvörðunina mánuðum saman án þess að hafa „gert minnstu athuga- semdir um margra mánaða skeið gagnvart ráðuneytinu, heldur kaus að draga málið upp á samkomu Barnaheilla. Þetta eru bara venjuleg vinnubrögð utanríkisráðherrans og ekki mikið um þau að segja. Ég lít svo á að hefðbundin pólítísk átök af hans hálfu sé að ræða,“ segir Þorsteinn. Ummæli utanríkisráðherra féllu vegna máls James Brians Graysons, sem óskaði þess að mega hafa sam- band við dóttur sína tvisvar til þrisv- ar í viku símleiðis, en ráðuneyti dómsmála staðfesti þá ákvörðun sýslumannsembættisins í Reykjavík að símtöl og .bréfaskipti féllu ekki undir hugtakið umgengnisréttur. „Margir mánuðir eru síðan utan- ríkisráðherra var gerð grein fyrir lagalegri stöðu málsins og þeirri staðreynd að ekkert fínnst í íslensk- um lögum sem skilgreinir símhring- ingar sem hluti af umgengnisrétti," segir Þorsteinn. „Honum var líká bent á að ef stjórnvöld úrskurðuðu að símhringingar væru hluti af því sem skilgreint er sem umgengnis- réttur, þyrftu þau að hafa einhver úrræði til að knýja á um að þeim úrskurði yrði framfýlgt, en fá ef nokkur úrræði eru til þess í lögum “ Ekkert bannar símtöl „Mat dómsmálaráðuneytisins hefur því verið að þetta standi fyrir utan skilgreiningu á því hugtaki, hvort heldur er eftir íslenskum lög- um eða ákvæðum mannréttindá- sáttmála. Ekkert bannar rnönnum í raun að hafa samband í gegnum síma og engin stjórnvöld hafa lagt stein í götu þess að Grayson hafi slíkt samband, þannig að rangt er að stjórnvöld hafi meinað einhveij- um þessa. Hins vegar hafa lögin ekki falið í sér úrræði til úrskurða um skyldu til þess að rúma þettp innan umgengnisréttar, og um það snýst málið. Það sér hver maðúr að verulegur munur er hefðbundintíi umgengni og rétt til samskipta ef|- ir tæknilegum leiðum, en ég t^l mjög áhugavert að reyna að tryggja slíka heimild í löggjöf. í því sarn- bandi má benda á að um nokkurh tíma hefur verið í athugun í þeirri deild ráðuneytisins sem um þessi mál fjallar, hvort að við ættum að hafa frumkvæði að setningu slíkra lagaheimildá, sem flokki símhring- ingar og bréfaskipti undir um- gengngisrétt. Ekki er einfalt að gera slíka breytingu, ekki síst vegna þess að hún hefur lítið gildi ef ekki eru til úrræði til að fylgja henni eftir og við komum fljótt að þeim vanda.“ Forstöðumaður Vinnumiðlunar Hafnarfjarðar Þekkt að bætur séu þáðar á móti færri vinnustundum Bótaþegar flestir hjá fyrirtækjum í verslunargreinum og fiskvinnslu FORSTÖÐUMAÐUR Vinnu- miðlunar Hafnarfjarðar, Theresía Viggósdóttir, segist þekkja til þess að fyrirtæki séu að fækka vinnu- stundum hjá starfsmönnum sem Ieiti síðan til bæjaryfirvalda til að bæta sér það upp. Haft var eftir framkvæmdastjóra Atvinnuleysis- tryggingasjóðs, Margréti Tómas- dóttur, í Morgunblaðinu í gær að slíkt væri farið að tíðkast. Segir Theresía einkum um að ræða fyrir- tæki í verslunargreinum. Theresía sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að starfsfólk Vinnumiðlunar Hafnarfjarðar yrði vart við tilvik á borð við þau sem getið var í upphafí. „Það er dálítið um þetta. Ég get nefnt eitt tilvik sem ég var að afgreiða í gær [fyrradag]. Það var hérna kona sem var í fullri vinnu en hafði misst tvo tíma á dag og fær bara sex tíma hjá fyrirtækinu." Hún vildi ekki tilgreina nöfn en sagði að þetta vekti undrun hjá Vinnu- miðluninni því viðkomandi fyrir- tæki væru í fullum rekstri. Aðspurð í hvaða starfsgreinum þetta væri helst áberandi sagði Theresía að aðallega væri um að ræða verslunargreinar. „En það er líka áberandi með fiskvinnsl- una því þeir eru hættir að fastr- áða. Þeir vilja geta kallað í fólk þegar fiskast og sent það á bætur inn á milli.“ Stór hluti í íhlaupavinnu Aðspurð hvort fiskvinnslufyrir- tæki hefðu ekki heimild til þess að senda fólk heim vegna hrá- efnisskorts sagði hún að þegar starfsfólkið hefði fastráðningar- samninga yrði að tilkynna það með fyrirvara og einungis væri leyfilegt að loka 6 vikur á ári. Þá sendu fyrirtækin Atvinnuleys- istryggingasjóði lista með nöfnum viðkomandi starfsmanna og þeir þyrftu ekki að „standa í því að sækja alls kyns pappíra og skrá sig en það virðist vera liðin tíð. Fólkið er skráð atvinnulaust en stór hluti þess er í íhlaupavinnu í fiskvinnslu eða uppskipun, þar sem menn eru kannski skráðir atvinnulausir í þijá til fjóra daga og vinna í tvo daga,“ segir Ther- esía og segir jafnframt að á þessu hafi borið síðastliðin tvö ár. Minni launakostnaður Aðspurð hvort hún teldi að fyrirtæki væru að spara sér launa- kostnað með þessu fyrirkomulagi sagði Theresía: „Það er til í því. Við þurfum ekki annað en að líta á fiskvinnsluna,“ segir hún og bendir á fyrirtæki á Suðurnesjum. „Það var til dæmis verið að biðja um fólk í ígulker í Vogunum og fullt af fólki á atvinnuleysiskrá en þegar á reyndi var það í vinnu hjá öðrum fiskvinnslustöðvum og gat ekki ráðið sig í ígulkerin á meðan, virtist vera.“ Theresía segir ekki mögulegt í einni svipan að átta sig á því hversu hátt hlutfall atvinnulausra sé í þessum sporum. En fram kom í samtali við Margréti Tómasdótt- ur að tekið hefði verið í notkun nýtt tölvukerfí hjá Atvinnuleysis- tryggingasjóði sem síðar yrði tek- ið upp hjá úthlutunarnefndum verkalýðsfélaganna og vinnumiðl- unum sveitarfélaganna og væru áramótin nefnd í því sambandi. Sem stæði væru upplýsingar af þessu tagi hvergi á einum stað því verkalýðsfélögin hefðu sitt eigið kerfi eða ynnu bótaumsókn- ir í höndunum. Skrúfu- blöð flug- véla verði sýnilegri LOFTFERÐAEFTIRLIT Flugmálastjómar hefur ákveðið að skrúfublöð ákveð- inna tegunda flugvéla skuli gerð sýnilegri þegar hreyfill er í gangi, en ástæðan er sú að skrúfublöðin verða þá nán- ast ósýnileg við ýmis birtu- skilyrði og geta valdið slysum. Eiga skrúfublöðin að vera máluð hvítum og svörtum borðum þannig að um það bil fjórir borðar séu á hveriu blaði. Breyta skal sem fyrst Þær flugvélategundir sem 1 fyrst og fremst er um að ræða eru Fokker F27, Fokker 50, Fairchild Metro, Domier 228, DHC& og Partenavia P-68. Breyta á öllum loftskrúfum í samræmi við reglur loftferða- eftirlitsins eins fljótt og unnt er, en þó eigi síðar en 1. febr- úar næstkomandi eða fyrir endurnýjun loftferðaskírteinis viðkomandi flugvélar, hvort heldur er síðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.