Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 13
LANDIÐ
Grj ótvarnarg’arð-
ur endurbyggður
við Jaðarsbakka
Akranesi - Nú er verið að vinna við
frágang brimvamargarðs við Jaðars-
bakka í framhaldi af þeirri vinnu sem
unnin var í sumar neðan við íþrótta-
völlinn.
Að sögn Gísla Gíslasonar, bæjar-
stjóra á Akranesi, er hér um að ræða
um 300 m varnargarð frá íþróttavell-
inum að Jaðarsbraut og fékkst auk-
afjárveiting til að vinna þetta verk.
Þama var áður gijótvamargarður
sem var nær sokkinn í sandinn og
skapaði það nokkuð landbrot á svæð-
inu. Gísli segir að fyrir liggi að halda
áfram gerð gijótvarnargarðs frá
íþróttavellinum að Sólmundarhöfða
og sé unnið að því að fá fjármagn
til. Þama sé vonast til að verði öflug
brimvöm sem eigi eftir að duga vel
sé til framtíðar litið. Gísli telur að
þegar þessari framkvæmd sé lokið
verði hægt að fara að gera ýmislegt
á Langasandi sem ekki hefur áður
verið mögulegt.
Komið upp vísi að baðströnd
Á efsta hluta sandsins næst Sól-
mundarhöfða hefur orðið mikil breyt-
ing á undanförnum ámm, m.a. mikil-
ir sandflutningar. Þarna hefur verið
rætt um að koma fyrir útivistarað-
stöðu og m.a. komið til tals að leiða
lagnir fyrir heitt affallsvatn niður í
sjóinn og byggja þar upp vísir að
baðströnd.
Þegar þessum framkvæmum verð-
ur lokið við Jaðarsbakka má segja
að nánast allur sjávarbakkinn innan
bæjarmarkanna sé nú varinn. Mest
hefur verið framkvæmt á síðustu tíu
árum eða frá þeim tíma sem mikið
eignartjón varð þegar sjór gekk á
land á stórum kafla strandlengjunnar
við Akranes, að sögn Gísla bæjar-
stjóra. „Aðeins eru nú minniháttar
svæði eftir sem þarf að sinna, t.d.
Krókalón og síðan utan byggðarlags-
ins við Innsta-Vog,“ sagði Gísli.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
UNNIÐ að gerð brimvarnargarðs við Jaðarsbakka á Akrane'si.
Bj örgunar sveitin
Lónfell í nýtt húsnæði
Barðaströnd - Björgunarsveitin
Lónfell á Barðaströnd tók í notkun
nýtt húsnæði 29. október sl.
Þetta er 100 fm hús á tveimur
hæðum. Uppi er góður fundarsalur
og eldunaraðstaða en niðri eru
geymslur undir tæki.
Formenn flestra aðildarfélaga
Landsbjargar voru viðstaddir. At-
höfnin hófst með ávarpi formanns
Lónfells, Jóhanns Péturs Ágústsson-
ar frá Bijánslæk. Því næst vígði sr.
Hannes Björnsson húsið og að því
loknu fluttu ávörp fulltrúar margra
hjálparsveita og gáfu gjafir. Enn-
fremur færði Bjarni Hákonarson,
bæjarfulltrúi, kveðju og árnaðaróskir
frá Vesturbyggð.
Við athöfnina voru 120 manns og
var öllum boðið í kaffisamsæti í
Birkimel eftir vígslu.
POTTAPLÖNTUR
SKYNDISALA
í dag og á morgun
Míkíð magn
af
pottaplöntum
50%
afsláttur
Brennheit pólitík
Morgunblaðið/Ágúst. Blöndal
STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR þrír sem starfa í Nes-
kaupstað eru nú allir komnir undir sama þak. Ný-
lega festu sjálfstæðismenn kaup á jarðhæð hússins
Brennu, en fyrir voru framsóknarmenn á miðhæð-
inni og Austurland, málgagn Alþýðubandalagsins,
er með skrifstofur á efstu hæðinni. Myndin sýnir
húsið Brennu og á eflaust eftir að verða þar heitt
í kolunum svona af og til í kringum kosningar.
tryggjum
C atvinnu
ÆlM vet
4*
Æ
TU
verslum I
heima
Skyrfrá KEA er sannkcdL
rááherraskyr oý fæstnú í
flestum ))iatvöriL50riilimm
l>aó er eina skynð sem er
uátturu legá fi tusnautt
£dV6'