Morgunblaðið - 05.11.1994, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Velta Skinnaiðnaðar hf. orðin 500 milljónir
Hagnaðurinn
80 milljónir
HAGNAÐUR af rekstri Skinna-
iðnaðar hf. á Akureyri var rúmar
80 milljónir króna skv. milliupp-
gjöri fyrstu 9 mánuði ársins. Velta
fyrirtækisins á tímabilinu nam rúm-
um 500 milljónum.
Að sögn Bjama Jónassonar, fram-
kvæmdastjóra Skinnaiðnaðar, eru
menn vel sáttir við niðurstöður milli-
uppgjörs félagsins. Þá bendi allt til
áframhaldandi hagnaðar á rekstri
fyrirtækisins það sem af er árinu,
þó of snemmt sé að nefna tölur í
því sambandi. Mikil eftirspum sé
eftir framleiðsluvörum fyrirtækisins
og horfur fyrir árið 1995 góðar.
Hlutafélagið Skinnaiðnaður hf.
var stofnað 15. október 1993 í kjöl-
far gjaldþrots íslensks skinnaiðnað-
ur hf. um miðjan júní 1993. Frá
þeim tíma til 15. október var rekst-
urinn í höndum Rekstrarfélags ÍSI
hf.
Línur að skýrast
Eins og Morgunblaðið hefur
skýrt frá hefur stjórn Skinnaiðnað-
ar leitað til stjórnar Loðskinns hf.
á Sauðárkróki um viðræður með
sameiningu félaganna í huga. Ekk-
ert hefur enn komið út úr þeim við-
ræðum, en að sögn Bjarna Jónas-
sonar standa vonir til að málin skýr-
ist frekar í næstu viku.
Makaskiptin um
Holidayhm skýrast
EKKI verður endanlega ljóst fyrr
en í næstu viku hvort samningar
takast milli Samvinnulífeyrissjóðs-
ins og íslandsbanka um makaskipti
á fyrram húsi Sambands íslenskra
samvinnufélaga við Kirkjusand
annars vegar og hótel Holliday Inn
ogtveimur hæðum i Húsi verslunar-
innar hins vegar. Stjórn Samvinnu-
lífeyrissjóðsins hefur ákveðið að
taka tilboði Þróunarfélagsins í hót-
elið verði af makaskiptunum, en
fleiri sýndu einnig áhuga.
Margeir Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnulífeyris-
sjóðsins, sagði að enn ætti eftir að
ganga frá nokkrum atriðum varð-
andi makaskiptin sem enn ætti eft-
ir að ganga frá, þó menn hefðu hug
á að ná saman.
Sjóðurinn á fjórar hæðir af fímm
í húsinu. íslenskar sjávarafurðir eiga
fímmtu hæðina og verðpur hún
keypt ef samningar um makaskiptin
takast. Samvinnulífeyrissjóðurinn
átti í upphafí bara eina hæð í hús-
inu, en eignaðist þijár til viðbótar
vegna skuldaskila við Sambandsins.
er vel menntuð kona með mikla reynslu af sveitar-
stjórnarmálum. Hún hefur reynst dugandi og traustur
þingmaður og einarður málsvari sjálfstæðisstefnunnar. Hún
er dugnaðarforkur - hún er heiðarleg og samviskusöm.
Tryggjum henni glæsilega kosningu í prófkjörinu
á laugardaginn með því að velja hana
í eitt af efstu sætunum
Veljum forystukonu
í fremstu röð
Stuðningsfólk
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins f Reykjaneskjördæmi 5. nóv.
Komur erlendra g
ferðamanna til
landsins frá 1985 g
160 þús. -------7^1
140
120
100 =
80
60
40
20
Með skemmti-
ferðaskipum
A.
85 86 87
89 90 91 92 93 94
Erlendir ferðamenn í janúar-október 1 QQd Brcyt. frá Fjöldi % fyrraári
1. Þýskaland 32.431 19,7 +9,7%
2. Bandaríkin 22.545 13,8 +3,7%
3. Danmörk 18.464 11,2 +38,7%
4. Svíþjóð 18.169 11,0 +33,0%
5. Bretland 16.098 9,8 +16,3%
6. Noregur 13.850 8,4 +17,7%
7. Frakkland 8.921 5,4 +21,0%
8. Holland 6.453 3,9 +31,7%
9. Sviss 4.622 2,8 •7,3%
10. Finnland 3.541 2,1 +10,6%
Önnur lönd 18.725 11,4 +2,H
ERLENDIR ferðamenn sem komið hafa til íslands á þessu ári eru þegar
orðnir mun fleiri en allt síðasta ár. Fyrstu tíu mánuði þessa árs komu til
landsins 164.903 erlendir ferðamenn en þeir voru 157.326 allt árið 1993.
Það er því Ijóst að á þessu ári verður um töluverða fjölgun ferðamanna
að ræða annað árið í röð, en á milli áranna 1992 og 1993 fjölgaði
erlendum ferðamönnum hér á landi um 15 þúsund eða rúmlega 10%.
Fyrstu 10 mánuði þessa árs fjölgaði erlendum ferðamönnum um 14%
miðað við sama tímabil í fyrra, en þegar október sl. er borinn saman við
október 1993 var um að ræða 2% fækkun erlendra ferðamanna á milli
mánuðanna.
Tölvur
NýjarlBM
og Apple
einkatölvur
New York. Reuter.
IBM, Apple og Motorola munu
bráðlega skýra frá nýjum staðli
fyrir einkatölvur sem byggist á
PowerPC-kubbnum að sögn New
York Times. Þar kemur einnig fram
að fyrirtæki eins og Canon, Toshiba
o. fl. munu tengjast þessu banda-
lagi tölvuframleiðanda. Tölvurnar
verða ekki fáanlegar fyrr en 1996.
Stýrikerfi IBM og Apple hafa
verið ólík og ósamhæfð. Fyrirtækin
eru gamlir keppinautar, en tóku
höndum saman með Motorola fyrir
þremur árum um að þróa PowerPC-
kubbinn. Sameiginlegur staðall fyr-
ir IBM og Apple einkatölvur eykur
áhrif fyrirtækjanna á hugbúnaðar-
framleiðendur og -kaupendur, en
meirihluti fyrirtækja hefur notað
tölvur sem byggjast á Intel.
Stýrikerfíð nýja verður ólíkt þeim
eldri, en þarf sérstakan tölvukubb
til að hægt sé nota Microsoft
Windows 95 stýrikerfi að einhveiju
gagni.
Fyrirtækjaráðgjöfin Gerum gott betur
Litið á vaxtarmöguleika
fremur en fjárhagsstöðu
TILGANGUR samstarfssamnings Iðntæknistofnunar og þriggja ráð-
gjafarfyrirtækja um ráðgjöf til 20 framleiðslufyrirtækja, sem greint
var frá í síðasta viðskiptablaði, er ekki sí?t að kynna nýjungar í stjórn-
un og nýja tækni til að bæta samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja.
Þetta kom fram í máli Hallgríms Jónassonar forstjóra Iðntæknistofnun-
ar þegar samningur fyrirtækjanna var undirritaður.
Sagði Hallgrímur við það tæki-
færi að ekki væru gerðar stífar
kröfur hvað snerti fjárhagsstöðu
fyrirtækis sem sækti um, heldur
væri litið til vaxtarmöguleika þess.
Styrkt starfsskilyrði
Ráðgjöfin, sem er hluti af Sprint
tækniáætlun Evrópusambandsins,
hefur sex milljónir tii ráðstöfunar
frá ESB og segir Hallgrímur til-
ganginn ekki síst þann að styrkja
innri starfsskilyrði fyrirtækjanna.
En fram kom í skýrslu um starfs-
skilyrði iðnaðar, sem gefin var út
í haust, að nauðsynlegt væri að
efla rannsóknar- og þrcunarstarf
auk framleiðni og nýsköpunar.
Mat og framkvæmdaáætlun
Ráðgjafarfyrirtækin eru Hag-
vangur, Ráðgarður og Nýsir og
hefur Þórleifur Jónsson hjá Sam-
tökum iðnaðarins verið fenginn
til eftirlits á vegum ESB.
Vinnulagið verður þannig að
sögn Hallgríms að farið er yfír
stöðu fyrirtækjanna, síðan lögð
fram framkvæmdaáætlun auk
þess sem eftirlit er haft með starf-
semi þeirra í hálft ár til að fylgja
henni eftir. Sótt er um styrkinn
til Iðntæknistofnunar og fást
eyðublöð þar og hjá atvinnuráðg-
jöfum víðs vegar um land. Greidd
verða 70% af kostnaði vegna ráð-
gjafarinnar, eða 170 þúsund krón-
ur að hámarki en skipting fram-
lags ESB fer til undirbúnings,
kynningar og eftirlits. Til beinnar
ráðgjafar fara um 3,4 milljónir að
því er fram kom á kynningarfund-
inum.
Bílaiðnaður
íJapan eflist
London. Reuter.
BILAIÐNAÐUR Japana verður lík-
legra öflugri en fyrr eftir samdrátt
þann sem hefur ríkt hefur og gæti
minnkað kostnað um 20-30% á næstu
tveimur árum samkvæmt könnun
Andersen-ráðgjafafyrirtækisins, há-
skólans í Cambridge og verzlunar-
skólans í Cardiff.
Gæði í evrópskum bílaverksmiðj-
um era enn rýr samanborið við bíla-
iðnað Japana. Framleiðni í Frakk-
landi og á Spáni er nánast tvöfalt
meiri en í Bretlandi, en afkastageta
í öðram Evrópulöndum er mjög mis-
munandi.
Framleiðslan í Bretlandi hefur
ekki batnað nógu fljótt til þess að
Bretar geti keppt við Japana, Banda-
ríkjamenn og Evrópubúa, þrátt fyrir
kostnaðaryfírburði og raunveralega
framleiðniaukningu.
Að sögn eins þeirra sem unnu að
könnuninni þurfa brezkir framleið-
endur að gera róttækar ráðstafanir
til þess að gera bílaiðnaðinn sam-
keppnihæfan á næstu öld. „En
ástandið má bæta,“ sagði hann.
„Framleiðni eykst í mörgum brezkum
verksmiðjum og aukin afköst japan-
skra framleiðenda bæta stöðuna."
Toyota, Nissan og Honda hafa
nýlega opnað bílaverksmiðjur í Bret-
landi og sterk staða jensins hefur
hvatt Japönum til þess að flytja stærri
hluta framleiðslunnar til Bretlands.
Að sögn prófessors Dan Jones í
Cardiff ætti skýrslan að vekja alla
bílaframleiðendur til umhugsunar
um gífurlegan sparnað, sem megi
koma til leiðar með endurbótum í
rekstrinum.
Gallar tíðari í Evrópu
Af öðrum niðurstöðum könnunar-
innar má nefna:
- í Evrópu er framleiðni minnst í
Bretlandi og gæðum mest ábótavant
á Ítalíu. - Gallar á framleiðslunni
í Evrópu era rúmlega sjö sinnum
meiri en í Japan.
- Framleiðni í Japan er um 35%
meiri en í Evrópu. Framleiðni í
Bandaríkjunum er um 15% meiri en
í Evrópu.
- Japanskar verksmiðjur juku
framleiðni um 38% á árunum 1992-
1994, þótt sölumagn minnkaði um
16% vegna samdráttarins.
Spá hækk-
un dollars
New York. Reuter.
DOLLARINN mun hækka
smátt og smátt á næstu mán-
uðum samkvæmt skoðana-
könnun Reuters. Könnunin var
gerð áður en bandaríski seðla-
bankinn kom til stuðnings doll-
aranum og náði til 45 sérfræð-
inga víða um heim.
Ef trúa má könnuninni verð-
ur dollarinn stöðugur gagnvart
marki og jeni eftir einn mán-
uð. Eftir þijá mánuði mun
hann komast í 1.5250 mörk
og um 98.80 jen.
Eftir sex mánuði búast sér-
fræðingarnir við að dollarinn
hafi hækkað í 1.5540 mörk
og um 101.70 jen, en eftir eitt
ár í 1.5760 mörk og um 104.70
jen.
Á fimmtudag kom banda-
ríski seðlabankinn dollaranum
til hjálpar í annað skipti á
tveimur dögum og mun hafa
greitt 1.5155 þýzk mörk og
97.90 japönsk jen fyrir hvern
dollar sem hann keypti.
Sérfræðingar benda á að
m.a. vaki fyrir bandaríska
seðlabankanum sé að stuðla
að stöðugleika á innlendum
hluta- og skuldabréfamarkaði.