Morgunblaðið - 05.11.1994, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.11.1994, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Forystan fyllor sér um Jiang Seoul. Reuter. FORYSTUMENN Kína fylkja sér nú um Jiang Zemin forseta sem eftir- mann Dengs Xiaopings, leiðtoga landsins, eftir að hann fellur frá, að sögn Lis Pengs forsætisráðherra í gær. - Li sagði á blaðamannafundi áður en hann hélt til Kína eftir opinbera heimsókn í Suður-Kóreu að kenning- ar Dengs um sósíalíska þróun hefðu fest djúpar rætur í Kína og myndu halda velli eftir andlát hans. Deng, sem er níræður, er talinn við slæma heilsu og orðrómur hefur margoft komist á kreik í Kína um að hann sé að deyja. „Þriðja forystukynslóðin er að styrkja sig í sessi, með Jiang Zemin aðalritara flokksins í fylkingar- bijósti," sagði Li Peng aðspurður um hver tæki við af leiðtoganum. Hann vísaði til Maós Tsetungs og Dengs sem leiðtoga tveggja fyrstu forystu- kynslóða Kína. Li kvaðst sannfærður um að Jiang myndi hvergi hvika frá umbótastefnu Dengs. .....♦ ♦ ■ Reuter SÉÐ yfir svæðið þar sem flugvöllurinn verður byggður. Myndin er tekin af Tsing Ma-brúnni, einni stáerstu brú í heimi, sem nú er verið að reisa. „Kommún- isminn sigrar U Tókýó. Reuter. DAGBLÖÐ í Norður-Kóreu birtu í gær fræðilega ritgerð eftir nýjan leiðtoga landsins, Kim Jong-il, og þar bendir ekkert til þess að hann falli frá harðlínukommúnismanum. Ritgerðin var birt undir fyrirsögn- inni: „Sósíalisminn er vísindi". Kim segir þar að þrátt fyrir hrun kom- múnismans í öðrum löndum haldi norður-kóresk útgáfa hans velli og beri sigurorð af kapítalismanum. Ritgerðin þykir í aðalatriðum end- urtekning á kenningum föður leið- togans, Kims II-sungs, „leiðtogans mikla", sem lést 8. júlí. Fimm ára deila Breta og Kínverja um flugvöll í Hong Kong Víðtækt samkomulag næst en deilunni er ekki lokið Hong Kong, Peking. Reuter. KÍNVERJAR og Bretar undirrituðu í gær drög að víðtæku samkomulagi um fjármögnun flugvallar í Hong Kong og er litið á það sem kaflaskipti í fimm ára deilu ríkjanna. „Sögunni er alls ekki lokið,“ sagði þó Sir Ham- ish MacLeod, fjármálaráðherra bresku nýlendunnar. Samningamaður Breta, Hugh Davies, og Guo Fengmin, fulltrúi Kínverja, undirrituðu sam- komulagsdrögin, sem kveða á um að stjórn Hong Kong veiti að minnsta kosti jafnvirði 500 milljarða króna í flugvöllinn og að tekin verði lán upp á tæplega 200 milljarða. . Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi 5. nóvember 1994 Vjð Vestfirðingar styðjum Arna Ragnar Arnason til áframhaldadni þingsetu - tryggjum þingsetu - tryggjum honum góða kosningu - Albert K Sanders, deildarstjóri, Njarðvík. Jóhann Iindal Jóhannsson, rekstrarstjóri, Njarðvík. Erling Þór Hermannsson, raívélavirki, Hafnarfirði. Salome Guðmundsdóttir, húsmóðir, Garðabæ. Guðrún Guðmundsdóttir, læknaritari, Keflavík. Sigríður Friðriksson, kennari, Hafiiarfirði. Jónas Guðmundsson, pípul.m., Keflavík. Halldór íbsen, framkvæmdastjóri, Keflavík. Helga Hermannsdóttir, deildarstjóri, Kópavogi. Kristmundur Gíslason, Garðabæ. Ása Helgadóttir, húsmóðir, Garðabæ. Benedikt E. Guðbjartsson, hdl., Hafiiarfriði. Sturla Haraldsson, byggingameistari, Hafnarfirði. Kosnlngaskrlfstofurnar eru opnar meðan kosnlng fer fram: Hafnargata 32, Keflavík, 3. hæð. Símar: 92-15733 og 92-15723 Hamraborg 10, Kópavogi. Símar: 91-644664 og 91-644664 „Þetta er ekkert „sesam, opnist þú“,“ sagði Davies og vitnaði til töfraþulunnar sem opnaði helli ræn- ingja fyrir Ali Baba í Þúsund og einni nótt. „Við erum ekki að ganga inn í einhvem töfrahelli vegna þessa samkomulags. En hvert skref fram . ár við er auðvitað í rétta átt.“ Sigur fyrir Hong Kong? Deilan um flugvöllinn hefur yerið til marks um þá tortryggni sem rík- ir nú milli Kínveija og Breta, rúm- um tveimur árum áður en nýlendan verður færð undir stjóm Kínveija. Enn á eftir að semja um ýmsa lausa enda, einkum um ábyrgðir og end- urgreiðslur lánanna, og stefnt er að því að ganga frá þeim í næstu viku. Athyglin beinist síðan að öll- um líkindum að deilum ríkjanna um höfn og fyrirhugaða flotastöð Kín- veija í Hong Kong. Það tók samningamennina næst- um fimm mánuði að ganga frá sam- komulagsdrögunum og lýðræðis- sinnar í Hong Kong sökuðu Breta um undanlátsemi. „Bretar létu und- an öllum kröfum Kínveija," sagði Albert Chan, talsmaður Lýðræðis- flokksins. Bretar vísuðu þessu á bug. „Þetta er ekki ósigur fyrir Breta, þessi árangur er sigur fyrir bæði ríkin og í gmndvallaratriðum einnig fyrir Hong Kong,“ sagði Davies. Kínverjar eignuðu sér heiðurinn af samkomulaginu og sögðu að þessi árangur hefði náðst vegna þrautseigju kínversku samninga- mannanna. Þeir hefðu fengið því framgengt að lántökumar vegna flugvallarins yrðu miklu minni en gert var ráð fyrir í fyrstu fjármögn- unaráætlunum stjómarinnar í Hong Kong. Ný kosningalög samþykkt í Japan Tókýó. Reutcr. NEÐRI deild japanska þingsins samþykkti á miðvikudag róttækar breytingar á kosningalöggjöfinni sem marka tímamót í stjórnmála- sögu landsins og auðvelda stjórnar- andstöðunni að knýja fram þing- kosningar í desember. Stjórn Morihiros Hosokawa, sem er nú í stjómarandstöðu, boðaði breytingarnar í janúar og þetta em mestu kosningaumbætur í Japan frá árinu 1925. Kjördæmum er breytt og tekið upp kerfi þar sem 300 þingmenn em kjörnir í ein- menningskjördæmum og 200 í hlut- fallskosningum. Ennfremur eru settar strangari reglur um fjármögnun framboða og stjómmálaflokka og viðurlög við brotum á þeim hert til að stemma stigu við spillingu sem hefur tröll- riðið japönskum stjórnmálum. Rík- isstyrkir verða veittir flokkum sem hafa að minnsta kosti fimm þing- sæti og 2% heildaratkvæða í þing- kosningum. Kosninga krafist Búist er við að efri deildin sam- þykki umbæturnar síðar í mánuðin- um og þær öðlast gildi mánuði síð- ar eftir að stjórnin hefur kynnt þær fyrir þjóðinni. Stjómarandstaðan, undir forystu Tsutomu Hata, fyrr- verandi forsætisráðherra, hefur krafist þess að stjórnin boði til kosn- inga um miðjan desember, eða um leið og lögin öðlast gildi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.