Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 23
Chirac í
forseta-
framboð
JACQUES Chirac, borgar-
stjóri Parísar og leiðtogi gaull-
ista, varð í gær fyrstur til að
tilkynna framboð í forseta-
kosningunum í Frakklandi á
næsta ári. Chirac hefur tvisvar
tapað í forsetakosningum, á
árunum 1981
og 1988, og
samkvæmt
skoðana-
könnunum
nýtur hann
mun minna
fylgis en
Edouard
Balladur,
flokksbróðir
hans og for-
sætisráðherra, og Jacques
Delors, fyrrverandi forseti
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins og líklegur fram-
bjóðandi Sósíalistaflokksins.
Balladur og Dellors standa
jafnir að vígi, en Chirac virð-
ist hafa dregist aftur úr sam-
kvæmt nýjustu könnunum.
Mál Mielke
fellt niður
ÞÝSKUR dómstóll ákvað á
fimmtudag að hætta réttar-
höldum yfir Erich Mielke,
fyrrverandi yfirmanni austur-
þýsku öryggislögreglunnar
Stasi, vegna slæmrar heilsu
hans. Mielke er 86 ára að aldri
og þegar réttarhöldin hófust
fyrir tveimur mánuðum átti
hann við hjartasjúkdóm að
stríða og síðan virtist hann
daufur og þjást af minnis-
leysi. Sálfræðingar úrskurð-
uðu að hann skildi ekki lengur
hvað færi fram í réttarhöldun-
um.
Stríð gegn
umbótum
KOMMÚNISTAR og banda-
menn þeirra í Úkraínu lýstu í
gær yfir stríði á hendur um-
bótastefnu Leoníds Kútsjma
forseta eftir miklar værð-
hækkanir að undanförnu. Þeir
hvöttu til fjöldafunda út um
allt land í næstu viku til að
mótmæla versnandi lífskjör-
um.
Prandini gef-
ur sig fram
GIOVANNI Prandini, fyrrver-
andi ráðherra á Ítalíu, kvaðst
í gær ætla að gefa sig fram
við lögreglu eftir að hún hafði
reynt að hafa uppi á honum
í viku. Prandini gaf út yfirlýs-
ingu þar sem hann kvaðst
ekki vera á flótta undan rétt-
vísinni. Hann fór með opinber-
ar framkvæmdir í stjórn
Kristilegra demókrata fyrir
nokkrum árum og er sakaður
um að hafa þegið mútur fyrir
verksamninga.
Rússneskt
geimfar lendir
RÚSSNESKA geimfarið Soy-
uz TM-19 lenti í Kazakhstan
í gær með geimfara frá Rúss-
landi, Þýskalandi og Kaz-
akhstan innanborðs. Evrópska
geimvísindastofnunin fjár-
magnaði geimferðina að hluta.
ERLEIMT
Stj órnarkreppa í Slóvakíu og áhrif Meciars aukast
Þingið ógildir cinkavæðingu
Bratislava. Reuter.
VLADIMIR Meciar, fyrrverandi forsætisráðherra
Slóvakíu, virtist nálægt því að komast aftur til
valda í gær eftir að þingið ógilti sölu stjórnarinn-
ar á hlutabréfum og fyrirtækjum í eigu ríkisins.
Áður en tillagan var samþykkt lagði Jozef
Moravcik forsætisráðherra fram afsagnarbeiðni
sína en forsetinn bað hann að gegna embættinu
áfram þar til ný stjórn yrði mynduð.
Flokkur Meciars, Hreyfing fyrir lýðræðislegri
Slóvakíu, fór með sigur af hólmi í þingkosningum
fyrir fimm vikum, fékk 35% atkvæða, en honum
hefur ekki enn tekist að mynda nýja samsteypu-
stjórn. Flokkurinn greiddi atkvæði með ógilding-
unni ásamt tveimur vinstriflokkum, Þjóðarflokkn-
um og Verkamannaflokknum, en sá síðarnefndi
er undir forystu Jans Luptaks sem þykir fara
sínar eigin leiðir í stjórnmálum. Talið er líklegt
að Meciar myndi nýja samsteypustjórn með þess-
um flokkum, með 83 þingsæti af 150 á bak við
sig.
Meciar er þjóðernissinni og höfðar einkum til
fátækra Króata. Fyrri stjóm hans var alltaf völt
í sessi og varð að segja af sér í mars eftir að
þingið samþykkti vantraust á hana. Miðjumaður-
inn Jozef Moravcik myndaði þá nýja stjórn sem
hóf sölu á fyrirtækjum í eigu ríkisins, en stjórn
Meciars hafði nánast hætt allri einkavæðingu.
Þingið samþykkti að ógilda sölu hlutabréfa og
fyrirtækja sem seld vom eftir 6. september. Sam-
þykktin nær ekki til margra fyrirtækja en hún
þykir til marks um að Meeiar sé staðráðinn í að
hægja á einkavæðingunni komist hann til valda.
Vicil heigj franiufid^
laugardag kl. 10-16
sunnudag kl. 13-17
um helgina
ERRO
j dag verður opnuð i Kringlunni syning á
gr iðarstórum verkum eftír Erro
Á sunnudaginn kl. 13.30 - 16.00 verður
Erro i Krínglunni og áritar nyutkomna
bók um list sina.
Islensk fyrirtæki, handverks- og
listafólk kynnir vörur sínar.
Matvörur, bækur, værðarvoðir,
hákarlalýsi, handunninn pappír, keramik,
angorufatnaður, tískufatnaður o.fl.
heil helgi framundan