Morgunblaðið - 05.11.1994, Page 24
24 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Til eru fræ ...
Hvert flyst
Kópavogshæli?
í ÁRATUGI hefur
Kópavogshæli verið
öruggt skjól margra
vangefinna einstakl-
inga á íslandi og um
leið veitt aðstandend-
um þeirra ómetanlega
hjálp við vandasamar
aðstæður. í áranna rás
hefur rekstur Kópa-
vogshælis tekið stór-
tækum breytingum
hvað varðar mannúð-
leg sjónarmið og um-
hverfí hinna fötluðu,
og reyndar er samfélagið í heild
ekki lengur haldið fordómum og
þekkingarleysi í garð vangefíns
fólks. I dag eru 120 vistmenn með
fasta búsetu á Kópavogshæli og
af þeim hafa 106 vinnu á vinnu-
stofu hælisins, að auki hafa 10
vangefnir einstaklingar sótt vinnu
sína þangað, þótt þeir búi ýmist
áfram í foreldrahúsum, í leigu-
íbúðum eða sambýli.
Nú hefur það borið til
tíðinda að flytja á
þennan griðastað inn-
an nokkurra ára, en
hvert er ekki vitað. í
augum aðstandenda
mætti líkja þessu við
„von, sem hefir vængi
sína misst“, þegar
ekkert er vitað hvað
á að taka við.
Að eignast
þroskaheft barn
Þeir sem aldrei
hafa umgengist
þroskahefta eiga oft
erfitt með að setja sig í spor að-
standenda þeirra: Þeir eiga heldur
ekki möguleika á að skynja hið
gífurlega álag og vinnu sem fylgir
því að eignast barn, sem aldrei
mun geta náð þroska fullorðins
manns og sífellt mun þarfnast
umönnunar. Eins og gefur að
skilja er vart hægt að hugsa sér
meira bindandi og krefjandi hlut-
Hvaða ráðstafariir hafa
veríð gerðar, segir Páll
Björgvinsson, í sam-
bandi við framtíð vist-
manna Kópavogshælis?
skipti sem aðstandandi en einmitt
þetta. Það er því alls ekki of sterkt
til orða tekið að fullyrða að Kópa-
vogshæli hafi verið bjargvættur
margra fjölskyldna á íslandi og
án starfsemi þess hefði verið fokið
í flest skjól hjá þessum fjölskyld-
um. Til þess að skýra vandann
örlítið betur er vert að geta þess
að 2.000 manns eru á örorkuskrá
á Reykjanesi einu saman og þar
af eru 900 á skrá Svæðisskrifstofu
Reykjaness í Kópavogi. Vitað er
að 62 af þessum 900 eru í búsetu
á vegum Svæðisskrifstofunnar en
ekki hve margir eru í eigin hús-
næði eða í búsetu á vegum ann-
Páll Björgvinsson
arra aðila s.s. hagsmunasamtaka.
Það er hins vegar deginum ljósara
að 144 manns skipa nú þegar bið-
lista eftir búsetu á vegum Svæðis-
skrifstofunnar og má þannig
reikna með 250 manns á biðlista
vegna vistunar við lokun Kópa-
vogshælis. Biðtími hinna 144 get-
ur orðið langur því húsnæði virðist
síður en svo liggja á lausu hjá
Svæðisskrifstofunni í Kópavogi.
Breyting á rekstri
- Kópavogshælis
Starfsmenn Kópavogshælis
hafa unnið tillögur um framtíð
vistmannanna 120 sem eru til
umijöllunar í, Heilbrigðisráðuneyt-
inu. Fyrir dyrum stendur að rekstri
hælisins verði breytt í endurhæf-
ingardeild fyrir Landspítalann og
þar verði einnig aðstaða fyrir 30
sjúka fatlaða. Hinum 10 fötluðu
sem ekki búa á hælinu og sótt
hafa þangað vinnu á daginn hefur
þegar verið tilkynnt um breyting-
í prófkjörinu.
Erindi mitt við þig, ágæti kjósandi, er að óska eftir stuðningi þínum. Ég keppi að því ná góðri kosningu í
1. sæti listans.
Á kjörtímabilinu hef ég gegnt ráðherraembætti í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Þannig hef ég fengið
tækifæri til að vinna að umfangsmiklum endurbótum á flestum sviðum þjóðlífsins.
Verðbólga er í lágmarki, viðskiptajöfnuður hagstæður þriðja árið í röð og vextir hafa farið lækkandi. Á
sama tíma hafa ríkisútgjöld verið lækkuð, kaupmáttur farið vaxandi og erlendar skuldir verið greiddar
niður um 23 miiljarða. Ekkert af þessu er sjálfsagt. Með setu minni í ríkisstjóm hef ég lagt mitt af
mörkum til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar til framtíðar.
Góð þátttaka í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins markar upphaf öflugrar kosningabaráttu. Mjög mikilvægt er
að Sjálfstæðisflokkurinn fái góðan stuðning í kosningum á komandi vori, svo að unnt verði að halda
áfram því starfi sem unnið hefur verið á kjörtímabilinu.
Með sterkum lista í næstu Alþingiskosningum verður sigurinn okkar.
Með bestu kveðju,
Kosningaskrifstofa Kirkjulundi 19. Símar 659022, 659023 og 659026.
una og reynt verður að útvega
þeim störf annars staðar. Stóru
spumingarnar eru hins vegar:
Hvaða ráðstafanir hafa verið gerð-
ar í sambandi við framtíð vist-
manna Kópavogshælis? Ennfrem-
ur, hvað verður um vangefna fólk-
ið sem bíður nú þegar eftir vistun
þegar skriðan verður meira en
tvöfölduð fyrir árið 2000, eins og
tillögur starfsmanna gera ráð fyr-
ir? Er einnig gert ráð fyrir störfum
til handa hinum 106 vistmönnun-
um eftir flutningana?
Starfsmenn
Kópavogshæli hefur 183 stöðu-
gildi og heyrir undir Heilbrigðis-
ráðuneytið. Svæðisskrifstofa
Reykjaness í Kópavogi hefur hins
vegar 117 stöðugildi, en 150-60
starfsmenn, þar sem margir eru í
hlutastarfi. Svæðisskrifstofan
heyrir undir Félagsmálaráðuneyt-
ið. Samtals gerir þetta 300 stöðu-
gildi, en þá er eftir að geta fjölda
starfsmanna á vegum ráðuneyta
eða annarra. Einhver samvinna er
á milli Kópavogshælis og Svæð-
isskrifstofu, en á hvaða sviðum
eða í hve miklum mæli er ekki
ljóst. Það hlýtur hins vegar að
hafa torveldað samvinnu og flækt
óþarflega sameiginleg markmið
þegar stofnanimar tilheyra sitt
hvoru ráðuneytinu.
Fjárveitingar ríkisins
Framlag ríkisins til Kópavogs-
hælis á síðustu 2 árum var kr. 358
milljónir 1993 og kr. 339 milljónir
1994. Þessar upphæðir fékk hælið
í gegnum heilbrigðisgeirann, þ.e.
fjárveitingu ríkisins til ríkisspitala
- í þessu tilviki Landspítala, sem
svo úthlutar af sínu fjármagni til
Kópavogshælis. Svæðisskrifstofa
Reykjaness í Kópavogi fékk hins
vegar kr. 175,3 milljónir árið 1993
og kr. 184,2 milljónir árið 1994,
en Svæðisskrifstofa Reykjavíkur
kr. 215 milljónir árið 1993 og kr.
225 milljónir árið 1994.
Nú þegar virðist búið að leggja
niður nafnið „Kópavogshæli“, því
þegar hringt er þangað er svarað-
„Landspítali" eða „Endurhæfing-
ardeild Landspítalans í Kópavogi"!
Spurningin er, hvenær var nafnið
á stofnuninni lagt niður og hvem-
ig er það mögulegt á meðan hún
heldur áfram að hýsa vangefna
vistmenn? Þrátt fyrir þessa stað-
reynd hafa alls kr. 52 milljónir af
fjárveitingum Kópavogshælis farið
í framkvæmdir á áranum 1993-94
eða 44 milljónir ’93 og 8 milljónir
’94. Ótrúlegar framkvæmdir hjá
stofnun sem á að leggja niður inn-
an skamms.
Framtíð á nýjum stað
Sé gert ráð fyrir að Kópavogs-
hæli flytji innan 5-6 ára er eins
gott að bæði starfsmenn hælis og
skrifstofu sem og ráðamenn þjóð-
arinnar leggist á eitt um að hraða
fyrirgreiðslu þessa viðkvæma
málaflokks og hafi þá aðstandend-
ur og sérfræðinga með í ráðum.
Vangefið fólk er lítið fyrir breyt-
ingar og þarf langan tíma til að-
lögunar. Breyting af þessu tagi
getur samt verið af hinu góða, sé
rétt að henni staðið. Til þess að
starfsmenn, vistmenn og aðstand-
endur þeirra þurfi ekki að kvíða
þessari stórtæku breytingu og búa
við sífellda óvissu næstu árin er
nauðsynlegt að taka strax ákvarð-
anir um framtíðina, sem allir hlut-
aðeigandi eru sammála um og
geta sætt sig við að séu af hinu
góða. Með því móti væri kvíða og
óróleika snúið upp í eftirvæntingu
og gleði, og þannig e.t.v. hægt að
virkja vistmenn og vandamenn
þeirra til þess að taka að ein-
hveiju leyti þátt í framkvæmdun-
um og fylgjast með þróun málsins
frá byijun til enda. Lykilorðin hér
era samstaða og samvinna gegn
sundrungu.
Lokaorð
Fram hefur komið að í dag bíða
144 fatlaðir eftir vistun á Reykja-