Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 26

Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 26
26 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Lýðveldisafmælið o g landkynning í SUMAR fylgdist Miðlun hf. með umfjöllun erlendra fjölmiðla í 14 þjóðlöndum um 50 ára afmæli lýðveldis á íslandi. Nýlega voru niðurstöður úr þessari könnun kynntar opinberlega og ótrúlegar tölur komu í ijós. I þessum löndum voru birtar 663 fréttir í 364 fjöl- miðlum af lýðveldisafmælinu. Reyndar er þessi tala Miðlunar hf. hvergi tæmandi, því að önnur lönd sem samantektin tók ekki til fjöll- uðu einnig um afmæli lýðveldisins, eins og t.d. japanska ríkissjónvarp- ið, sem m.a. sendi beint til Japans frá Þingvöllum á þjóðhátíðardag- inn. Ég hef sjálfur lesið samantekt Miðlunar hf. og kynnt mér inni- hald skrifa erlendra fjölmiðla um lýðveldisafmælið. Það vakti strax athygli mína hve umfjöllunin var umfangsmikil og jákvæð og greint bæði frá sögu og atvinnuháttum þjóðarinnar, auk þess sem fjallað var um hátíðina sjálfa. Á sama tíma og ís- lenskir fjölmiðlar ein- blíndu á hinar nei- kvæðu hliðar lýðveld- isafmælisins, svo sem brest á salemisaðstöðu og umferðarvanda á vegum, einbeittu er- lendir fjölmiðlar sér að hátíðinni sjálfri og kynningu á landi og þjóð. Ég tel að of fáir geri sér grein fyrir mikilvægi hinnar geysilegu landkynn- ingar sem jafn viða- mikilli umfjöllun fylgir. Það er þekkt staðreynd að fréttaskrif hafa miklu meiri áhrif en beinar auglýs- ingar. Mikil og jákvæð fréttaskrif um land og þjóð í útbreiddustu fjöl- miðlum heims eru margfalt áhrifa- meiri en landkynning í formi auglýsinga. Það væri skemmtilegt verkefni að reikna út dálksentimetra dag- blaða og tímarita og mínútur í ljósvökum þeirra tæplega 700 íjölmiðla sem fjölluðu um lýðveldisafmælið erlendis. Umreikna síðan þá tölu yfir í auglýsingaverð sömu fjölmiðla. Ég leyfi mér að fullyrða að sú tala yrði stjarnfræðilega há. Lýðveldisafmælið var því ekki aðeins góð fjárfesting sem landkynning á er- lendri grundu, það var fjárfesting sem skilar sér margfalt og er hvergi séð fyrir endann á þeim skilum. íslendingar sjá ekki alltaf hlut- Jón Ásbergsson Lýðveldisafmælið var ekki aðeins góð fjárfest- ing sem landkynning á erlendri grundu, segir Jón Asbergsson, það var fjárfesting sem skil- aði sér margfalt. ina í samhengi og e.t.v. allra síst í alþjóðlegu samhengi. Lýðveldis- afmælið er gott dæmi um þetta. Fjölmiðlar blása upp neikvæða stemmningu í landinu að loknu afmæli og almenningur kemur ekki auga á það sem vel er gert eða sem skiiar hreinum hagnaði fyrir land og þjóð. Hin hugarfarslega einangrun ríkir alltof oft og víða í okkar ágæta samfélagi. Góð og mikil landkynning er undirstaða þess að íslenskt atvinnulíf geti brotist fram á erlendum mörkuð- um. Markaðssetning íslenskrar framleiðslu og sérþekkingar verður öll auðveldari ef landið og hinar jákvæðu hliðar þess eru þekktar fyrir erlendis. Þess vegna er hin mikla umfjöllun erlendra fjölmiðla um lýðveldisafmælið sögulegur at- burður sem íslenskir ráðamenn ættu að taka til alvarlegrar íhug- unar. Nefna má tvo atburði sem kom- ið hafa íslandi á heimskortið í síð- ari tíð. Sá fyrri er skákeinvígi Fis- hers og Spasskys í upphafi áttunda áratugarins og sá síðari leiðtoga- fundur Reagans og Gorbatsjovs í Höfða á níunda áratugnum. Mér þykir líklegt að viðamikil umfjöllun um 50 ára afmæli lýðveldisins skapi lýðveldisafmælinu varanleg- an sess sem þriðja stóra landkynn- ingarviðburðinum, ekki síst fyrir þá sök að nú var athyglinni beint að landinu sjálfu og fólkinu sem hér býr. Ef hægt er að fjárfesta í atburð- um, sem kalla á erlenda frétta- menn frá öllum heimsins hornum, sem síðan skilar mikilli og já- kvæðri landkynningu, þá er það fjárfesting til framtíðar. Það er í þessu stóra alþjóðlega samhengi sem íslendingar verða að hugsa ef þeir eiga ekki að eignangrast í samfélagi þjóða. Höfundur er framkvæmdastjóri Útflutningsráðs íslands. „Eg bið um stuðning þinn í eitt qfþremur efstu sætunum í prófkjöri Sjúlfstæðisfiokksins í Reykjaneskjördæmi í dogS' ÁRNI 1 M 1. MATHIESEN í E 1 T T A F ÞREMUR EFSTU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.