Morgunblaðið - 05.11.1994, Page 28
28 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
-|
Pltrgmiilílalii
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf„ Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AÐ VELJA
ÍSLENSKT
HERFERÐ, þar sem neytendur eru hvattir til að velja
. íslenskar vörur frekar en erlendar, með kjörorðinu
„íslenskt, já takk“, fer nú fram annað árið í röð. Að átak-
inu standa í sameiningu, líkt og á síðasta ári, Alþýðusam-
bandið, BSRB, íslenskur landbúnaður, Samtök iðnaðarins
og Vinnuveitendasamband íslands.
í samtali við Harald Sumarliðason, formann Samtaka
iðnaðarins, í Morgunblaðinu um síðustu helgi kemur fram
að átakið „íslenskt, já takk“ á síðasta ári skilaði 12%
heildarsöluaukningu á neytendavörumarkaðnum fyrstu
sex mánuði ársins.
Nefnir hann sem dæmi að 21,1% aukning hafi orðið í
matvælaiðnaði og 18,3% í sápu- og þvottaefnagerð.
Það er jákvætt að fulltrúar íslensks atvinnulífs standi
með þessum hætti saman að kynningu á innlendri fram-
leiðslu. Islensk fyrirtæki eru mun smærri í sniðum en
erlend samkeppnisfyrirtæki þeirra á markaðnum og því
getur oft reynst erfitt fyrir þau að heyja samkeppni við
þekkt erlend vörumerki.
íslensk fyrirtæki mega hins vegar ekki falla í þá gryfju
að ætlast til þess af neytendum að þeir taki innlenda
vöru fram yfir erlenda á þeirri forsendu einvörðungu að
hún sé framleidd á íslandi. Slíkt skilar engum árangri
til lengri tíma litið.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, lagði
á það áherslu, á blaðamannafundinum þar sem átakið
var kynnt, að herferðin væri farin vegna samkeppnis-
hæfni íslenskrar vöru en ekki uppruna. Islendingar væru
betur samkeppnisfærir en áður, hvað varðaði verð og
gæði, þar sem framleiðslukostnaður væri sá sami nú og
fyrir ári.
Ef herferð af þessu tagi á að skila árangri verða ís-
lensk framleiðslufyrirtæki að nýta sér þessa bættu sam-
keppnisstöðu. Kynningarátak sem þetta vekur tímabund-
ið athygli neytenda á íslenskum vörum og kann að gera
það að verkum að þeir taki þær fram yfir erlendar. Til
lengri tíma ræðst hins vegar val neytenda af samspili
verðs og gæða. Það á ekki að vera kvöð að velja íslenskt
heldur fýsilegur kostur.
Takist íslenskum framleiðendum að uppfylla kröfur
markaðarins kemur það öllum til góða; fyrirtækjum, neyt-
endum og þjóðfélaginu í heild.
„VERSLUM HEIMA“
KAUPMANNASAMTÖK íslands hafa einnig hafið her-
ferð, sem beint er gegn erlendri samkeppni. Kjörorð
hennar er „verslum heima“ og er ætlunin að varpa ljósi
á mikilvægi verslunar sem atvinnugreinar.
í ávarpi, sem Bjarni Finnsson, formaður Kaupmanna-
samtakanna, flutti við upphaf herferðarinnar, kom fram
að verslun er fjölmennasta atvinnugrein á íslandi. Tæp-
lega 20 þúsund íslendingar starfa við verslun eða um
14% af vinnuaflinu og er heildarvelta hennar um 250
milljarðar króna.
Sömu rök eiga við um innlenda verslun og innlenda
framleiðslu: Hún verður að standast hina erlendu sam-
keppni.
Það verður að segjast íslenskum kaupmönnum til hróss
að þeir hafa unnið mikið starf í þeim efnum á undanförn-
um árum. Vöruúrval hefur aukist og verðlag færst nær
því sem gengur og gerist érlendis. A mörgum sviðum er
verðlag jafnvel orðið síst óhagstæðara hér en erlendis.
Það er þó langt frá því altækt. Nýleg dæmi af raftækjum
og heimilistækjum sýna svo ekki verður um villst að enn
er svigrúm til að lækka vöruverð á mörgum sviðum.
Það sem helst háir innlendri verslun í samkeppninni
við svokallaðar „verslunarferðir" til útlanda er sá kostur,
sem býðst ferðamönnum, að fá virðisaukaskatt endur-
greiddan.
Það er Islandi mikilvægt að hér haldi áfram að byggj-
ast upp öflug verslun og öflugur framleiðsluiðnaður.
Auðvitað verður slík atvinnustarfsemi að standast erlenda
samkeppni á eigin fótum, en þá verður einnig að búa
henni sambærileg skilyrði og gengur og gerist annars
staðar.
EVRÓF
OVISS
FRAMTÍÐ
EES
Ýmsar efasemdir hafa komið fram í EFTA-
ríkjunum um gagnsemi EES-samningsins fyr-
ir þau ríki, sem standa munu utan Evrópusam-
bandsins. Steingrímur Sigurgeirsson og
Olafur Þ. Stephensen segja að það, sem
- —-----------------------^------------
hins vegar snúi nú einkum að Islandi, sem
ekki hefur stefnt að ESB-aðild, sé hvemig
breyta megi stofnunum EES ef flest hin
EFTA-ríkin ganga í sambandið.
FRAMTÍÐ samningsins um
Evrópska efnahagssvæðið
(EES) er þessa stundina
mikið til umræðu í þeim
ríkjum Fríverslunarsam-
taka Evrópu (EFTA), sem enn hafa
ekki gert upp hug sinn varðandi aðild
að Evrópusambandinu (ESB).
Svíar og Norðmenn taka afstöðu
til ESB-aðildar í þjóðaratkvæða-
greiðslum síðar í mánuðinum en ís-
lendingar hafa kosið að sækja ekki
um aðild að sinni. Tvær EFTA-þjóðir,
Austurríkismenn og Finnar, hafa þeg-
ar ákveðið að ganga í Evrópusam-
bandið frá og með næstu áramótum.
Það er því þegar ljóst að EFTA-ríkj-
unum, sem aðild eiga að EES-samn-
ingnum, mun fækka 1. janúar 1995.
Þau verða í mesta lagi þijú, ef Svíar
og Norðmenn fella aðild, en ef þessar
þjóðir greiða atkvæði með aðiid munu
Islendingar standa einir eft-______
ir EFTA-megin. Hugsan-
lega mun Liechtenstein svo
bætast við á næsta ári.
Skipta má umræðunni
um framtíð EES í tvennt.
EFTA-ríkin
verða enn
háðari ESB
í fyrsta lagi er rætt um hvernig samn-
ingurinn muni efnislega þjóna hags-
munum þeirra EFTA-ríkja, sem munu
standa áfram utan ESB. Þessi um-
ræða er mjög áberandi í Noregi og
Svíþjóð en síður hér á landi. Eru það
ekki síst stuðningsmenn ESB-aðildar,
sem benda á ókosti EES-samnmgsins
í samanburði við ESB-aðild. í öðru
lagi er um það rætt hvernig aðiaga
megi stofnanaþátt EES-samningsins
að fækkun EFTA-ríkjanna. Það
vandamál, sem er fyrst og fremst
tæknilegs eðlis, snýr kannski einkum
að íslendingum, enda erum við eina
EES-þjóðin sem ljóst er að ekki verð-
ur gengin í Evrópusambandið um ára-
mótin.
Uppbygging EES
Til að gera sér grein fyrir þeim
eðlisbreytingum, sem verða á EES-
samstarfinu þegar ElTA-rikjunum
fækkar, er nauðsynlegt að rifja upp
grundvallaruppbyggingu EES. Helstu
stofnanirnar, sem settar voru á fót
vegna samningsins, eru fjórar.
• í fyrsta lagi EES-ráðið, sem er
skipað ráðherrum ríkisstjóma ESB-
og EFTA-ríkjanna. Ráðið á að vera
„pólitískur aflvaki" varðandi fram-
kvæmd samningsins og setja almenn-
ar viðmiðunarreglur fyrir sameigin-
legu EES-nefndina.
• í öðru lagi er sameiginlega EES-
nefndin, sem skipuð er fulltrúum
EFTA-ríkjanna og framkvæmda-
stjórnar ESB. Hún fjallar um upptöku
nýrra reglna Evrópusambandsins í
EES-samninginn, auk þess sem hún
reynir að Ieysa úr erfiðleikum í sam-
skiptum EFI’A og ESB og vandamál-
um, sem koma upp í. framkvæmd eða
túlkun EES-samningsins. EFTA-ríkin
taia einum rómi í nefndinni og hefur
sérhvert ríki því neitunarvald.
• í þriðja lagi er Eftirlitsstofnun
EFTA (ESA), en hlutverk hennar er
að sjá um eftirlit með því að EFTA-rík-
in taki reglur EES-samningsins upp
í löggjöf sína og að opinberir aðilar
og fyrirtæki í ríkjunum fari eftir þeim.
Einkum gegnir stofnunin mikilvægu
hlutverki við að tryggja framkvæmd
samkeppnisreglna. Eftirlitsstofnun-
inni stjórna fimm eftirlitsfulltrúar
EFTA, sem starfa sjálfstætt og er
ekki heimiit að taka við skipunum frá
EFTA-ríkjunum.
• í ijórða lagi er EFTA-dómstóllinn,
sem er skipaður dómurum frá EFTA-
ríkjunum fimm, sem eru aðilar að
EES, og úrskurðar í deilumálum sem
rísa vegna meintra brota á reglum
EES.
• Auk þessara fjögurra
stofnana eru fáeinar létt-
vægari, til dæmis sameig-
inleg þingmannanefnd ESB
og EFTA, sem skipuð er
66 þingmönnum, og sameiginleg ráð-
gjafarnefnd, sem einkum er skipuð
aðilum vinnumarkaðarins, og fasta-
nefnd EFTA.
Með samningnum var ríkjum EFTA
veitt aðild að innri markaði ESB og
fjórfrelsinu sem þar ríkir: Fijálst flæði
vöru, þjónustu, fjármagns og vinnu-
afls gildir á ölíu Evrópska efnahags-
svæðinu.
EFTA-ríkin samþykktu að taka upp
óbreyttan ESB-rétt á þessum sviðum,
gegn því að. þau mættu hafa áhrif á
þær reglur er bætast myndu við í
framtíðinni.
Takmörkuð áhrif
Það, sem að mati margra EFTA-
megin er helsti ókostur samningsins,
er hversu takmörkuð þau áhrif eru í
raun. Sérfræðingar EFTA hafa tæki-
færi til að koma sínu áliti á framfæri
við undirbúning draga að tillögum,
sem fara síðan fyrir nefndir fram-
kvæmdastjórnar ESB. Framkvæmda-
stjórninni ber að ráðgast við sérfræð-
inga EFTA-ríkjanna á sama grund-
velli og sína eigin sérfræðinga. Á
þessu stigi, þ.e. við ákvarðanamótun,
hafa EFTA-ríkin best tækifæri til að
hafa áhrif á nýja löggjöf.
EFTA-ríkin geta einnig mótað sam-
eiginlega afstöðu til tillagna sem í
undirbúningi eru og komið athuga-
semdum á framfæri við ESB í sameig-
inlegu EES-nefndinni. Framkvæmda-
stjórnin á jafnframt að tryggja að við
ákvarðanir í ráðherraráði ESB sé sjón-
armiðum EFTA komið á framfæri, en
efasemdir hafa komið upp um að hún
geti gegnt því hlutverki sem skyldi
án nærveru fulltrúa EFT’A-ríkjanna á
ráðherraráðsfundum. Eftir að tilskip-
un eða reglugerð ESB hefur verið
gefin út, geta EFTA-ríkin ekki breytt
henni, heldur einungis tekið afstöðu
til þess hvort þau taki hana upp eður
ei.
EFTA-ríkin hafa því engin áhrif á
sjálfa ákvörðanatökuna heldur ein-
ungis ákvarðanamótunina, og ESB
hefur alltaf síðasta orðið. Taki ESB
upp nýjar reglur, sem EFTA-ríkin
hafna að taka upp í EES-samninginn
(nóg er að eitt þeirra segi nei), falla
samsvarandi eldri reglur út úr samn-
ingnum og þá er markmiðið um sam-
einað markaðssvæði með sameiginleg-
um reglum í rauninni fyrir bí. EFTA-
ríkin eiga því fáa kosti, þegar á annað
borð er búið að samþykkja löggjöf
ESB á þeim sviðum, sem snúa að innri
markaðnum.
Nic Grönvall, framkvæmdastjóri
ESA, segir að óvæntir gallar í sam-
ráðsferlinu hafi komið í ljós og nefnir
að togstreita Evrópuþingsins og ráð-
herraráðsins um nýja löggjöf hafi gert
EFTA-ríkjunum enn erfiðara að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri.
EFTA þarf nægan styrk
Ulf Bernitz, prófessor í Evrópurétti
við Stokkhólmsháskóla, segir í blaða-
grein að forsenda þess að fram-
angreint samráðsferli þjóni tilgangi
sínum í raun sé að EFTA-ríkin hafi
nægan styrk til að ESB telji þess virði
að taka tillit til sjónarmiða þeirra.
„Efnahagslegur og pólitískur styrk-
ur EFTA-hliðarinnar er því grundvall-
aratriði EES-kerfísins,“ segir Bernitz.
Bendir hann á að úr þessum styrk
hafi verulega dregið er Sviss, efna-
hagslega mikilvægasta EFTA-ríkið,
hafnaði EES. Nú hafi Finnar og Aust-
urríkismenn að auki ákveðið að yfír-
gefa hópinn.
„Ef Svíar segja nei mun því EFTA-
stoðin innan EES líklega samanstanda
í raun af Svíum og Norðmönnum þar
sem íslendingar eru mjög lítil þjóð og
90% af útflutningi þeirra er fiskur og
sjávarafurðir," segir Bemitz.
Háðari ESB í framtíðinni?
Hann segir þegar bera á þeirri
skoðun innan ESB að samráðskerfíð
við EFTA-ríkin sé of þungt í vöfum
og þó að því yrði formlega viðhaldið
myndu tvíhliða samskipti við ríkin lík-
lega verða niðurstaðan í raun. „Við
fyrstu sýn kann það að virðast mjög
þægilegt fyrirkomulag. Menn verða
hins vegar að gera sér grein fyrir því
að Svíþjóð sem EFTA-ríki mun aldrei
fá að taka þátt í ákvarðanatöku innan
ESB og við munum ekki lengur geta
beitt fyrir okkur sameiginlegri EFTA-
afstöðu. Niðurstaðan getur varla orðið
önnur en sú að við verðum mun háð-
ari ESB í framtíðinni en við erum
innan EES í dag.“
Sambærilega skoðun er að finna í
skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
íslands um kosti og galla ESB-aðild-
ar. Þar segir meðal annars að missi
eftirlitsstofnanir EES áhrif með inn-
göngu hinna ElTA-ríkjanna skerðist
möguleikar íslendinga til að koma í
veg fyrir tæknilegar viðskiptahindran-
ir ESB-ríkjanna, til dæmis í formi
uppruna- og heilbrigðisreglna.
Hagfræðistofnun segir einnig:
„Meira en 70% af viðskiptum íslands
verða við ríki ESB ef hin EFTA-ríkin
samþykkja aðild að ESB. Þar af leið-
andi mun ESB þafa töluverð áhrif á
efnahagsstjórn íslendinga hvort sem
af aðild verður eða ekki. Það gæti
orðið óhjákvæmilegt að lúta kröfum