Morgunblaðið - 05.11.1994, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 39
j lega lagði sitt af mörkum til heimilis-
| haldsins, en ég tel, að Guðrún hafi
sýnt það bæði í orði og á borði, að
hún mat tengdamóður sína mikils.
A milli þeirra ríkti gagnkvæm virð-
ing og vinátta.
Þó svo Guðrún hafi aðeins eignast
eina dóttur þá hygg ég að þeir séu
ekki margir sem hafa átt jafn mik-
inn þátt í að koma jafn mörgum
. einstaklingum, bæði konum og köri-
' um tii manns. Ég er viss um að það
| eru einhverjir tugir ungmenna sem
| urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
tækifæri til að dvelja sumarlangt,
sumir ár eftir ár undir verndarvæng
Guðrúnar í austurbænum í Stóru-
Mörk. Undirritaður var svo lánsmur
að fá að fylla þann flokk. Fyrstu
árin nokkrar vikur í senn en þau
seinni alveg frá byijun júni til loka
september. Það var bæði gaman og
. g'ott að vera í Mörk. Maður hefði
vart sótt jafnmikið í sveitina hefði
svo ekki verið. Alltaf fór um mann
| einhver sælutilfinning þegar komið
var upp á Langhólinn og séð varð
heim að Mörk og svo er reyndar
enn. Þegar ég nú hugsa til baka er
það einkum tvennt sem upp úr stend-
ur. Maður lærði að taka til hend-
inni, ekkert gerist af sjálfu sér. Til
að skapa verðmæti þarf að vinna.
E.t.v. mættu þeir sem nú eru milli
■ tektar og tvítugs skilja það betur.
Hitt sem flýtur ofan á er að þar
öðlaðist maður hæfileika til að tala
■ og skilja kjarnyrt íslenskt mál. Ég
' minnist þess að eitt sinn kom kona
að Mörk í þeim erindum að afla sér
fróðleiks um íslenska hesta og ef
ég man rétt þá taldi hún sig ekki
koma að tómum kofunum.
Fyrir utan að stýra og stjórna á
annasömu búi og farast það vel úr
hendi hafði Guðrún hæfileika til að
setja saman orð í bundið mál. Þó
ekki gæfist mikill tími til þeirrar
iðju liggja eftir hana tvær ljóðabæk-
I ur. í föðurgarði fyrrum, safn af
' þulum sem út kom 1956, og Við
fjöllin blá, ljóðasafn sem út kom
1982. Sr. Sigurður Einarsson í Holti
var sveitungi og sóknarprestur Guð-
rúnar um árabii. Enginn lýsir kveð-
skap hennar betur.
„Ég tek stundum þulur Guðrúnar
Auðunsdóttur og les þær á sama
hátt og ég hlusta á sönglist. Les þær
til að láta sýnirnar, sem hún sér,
verða mér lifandi fyrir augum,
skynja með hennar innileik og nær-
gætni það líf, sem hún er að lýsa,
láta sfðan klið þessara látlausu hend-
inga síast inn í hugarin eins og suð
í lind eða lækjarnið."
Vart er hægt að hugsa sér já-
kvæðari ritdóm. Ég tek undir orð
Sigurðar af heilum hug. Að vísu
þekki ég sögusviðið og margar af
þeim persónum sem Guðrún yrkir
um en mitt mat er að það breyti
engu. Ljóð hennar túlka vel hug
hennar til sinna nánustu, náttúrunn-
ar og lífsins yfirleitt. Þau eru í mörg-
um tilfellum rómantísk en þó laus
við alla væmni. Það er kúnst að
skilja þar á milli.
Svo bið ég Guð að blessa þig og mig
þó blási kalt um lífsins ókunn svæði.
Ég þrái að lifa lengi fyrir þig
og litla bamið sem við eigum bæði.
Þessi vísa er úr kvæði sem Guð-
rún kallar Til bónda míns. Ákaflega
hugljúfur og einlægur kveðskapur.
Vonandi ert þú sammála mér les-
andi góður.
Nú er Guðrún horfin á bakvið
móðuna miklu þangað sem leið okk-
ar allra liggur fyrr eða síðar. Minn-
ingin um góða konu og húsmóður
lifir. Það var lán hveijum þeim sem
fékk tækifæri til að dvelja undir
verndarvæng Guðrúnar í Stóru-
Mörk.
Leifur Þorsteinsson.
Með Guðrúnu Auðunsdóttur frá
Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum er
gengin úr garði sú kona sem sló
einna fegurstan tón í garði íslenskr-
ar Ijóðadísar á tímabili þessarar ald-
ar. Við fráfall hennar vakna upp
margar bjartar minningar. Hún ólst
upp á miklu menningarheimili hjá
foreldrum sínum, Auðuni Ingvars-
syui bónda og kaupmanni í Dalsseli
og Guðlaugu Hafliðadóttur frá Fjós-
um í Mýrdal, á heimili sem var um
áratugi nokkurskonar miðstöð
mannlífs um austanvert Rangár-
þing. Systkinahópurinn var fjöl-
mennur. Margan glaðan gest bar
að garði og við margt unað fram
yfir það að eija fyrir daglegu brauði.
Ást á ljóðum cg söng var einkenni
fjölskyldunnar, húsbóndinn hagorð-
ur vel og börnin mörg snemma lið-
tæk við ljóðagerð. Guðrún menntað-
ist vel heima og heiman. Örlögin
hösluðu henni völl handan Markar-
fljóts, uppi í Stóru-Mörk. Hún gift-
ist 1939 Ólafi Sveinssyni, sem þá
var tvímælalaust glæsilegastur allra
ungra manna undir Eyjafjöllum.
„Aldrei var mér greitt við Galtará
en garpur bar mig yfir Markarfljót"
sagði Guðrún í ljóðperlu. Heimili
þeirra í Stóru-Mörk þekkti ég vel.
Þar voru gestrisni og glaðværð í
öndvegi og öilum fagnað hressum
huga. Heimilið prýddi ógleymanleg
kona, vitur og merk, Guðleif Guð-
mundsdóttir móðir Ólafs, að ég
gleymi ekki Eymundi bróður hans
sem vann öllum stundum að hag
fjölskyldunnar á sinn hlýja og hljóðl-
áta_ hátt.
Ólafur var um margt forystumað-
ur í sveit sinni, kvaddur til margra
mála, lengi i sýslunefnd Rangár-
vallasýslu. Hugstætt er mér hve vel
hann studdi þar að málefnum
byggðasafnsins i Skógum og lét sér
engu síður annt um velferð safn-
varðar en safns. Þar er enn ein af
ógreiddum þakkarskuldum mínum.
Ekkert værðárstarf beið Guðrún-
ar í Stóru-Mörk. Þar var unnið hörð-
um höndum allan ársins hring við
búsýslu og ærin önn oft í móttöku
gesta. í starfi og stopulum tóm-
stundum krafðist svo ljóðlist síns
hlutar og árangurinn vakti þjóðar-
athygli er á prenti birtist árið 1956
myndskreytt Jiulusafn Guðrúnar
undir heitinu „I föðurgarði fyrrum".
Útgefandinn var bókaforlagið
Norðri. íslenskar skáldkonur á þess-
ari öld, eigi síst Theódóra Thorodd-
sen, höfðu vakið þuluformið til nýs
lífs með list og prýði og Guðrún í
Mörk reyndist í öllu jafnoki þeirra
að eigi sé meira sagt. Líklega er
þó kveikjan að þessum hætti í skáld-
skap hennar fólgin í þulu dr. Sigurð-
ar Nordal, „Gekk ég upp á hamar-
inn“. Árið 1982 gaf Goðasteinsút-
gáfan í Skógum út ljóðabók Guðrún-
ar, Við fjöllin blá. Má líta á hana
sem nokkurs konar úrval áður
óprentaðra ljóða og sýndi svo að
ekki varð um villst að höfundurinn
var skáld en ekki hagyrðingur en
raunar er oft erfitt að gera upp á
milli þessara tveggja hugtaka.
Hjá Guðrúnu fór saman í ljóði
látleysi og fegurð, sönn tilfinning
og djúpt mannvit, tungutak og kveð-
andi af bestu kostum. Rangæingar
mega vera stoltir af framlagi henn-
ar til ljóðlistar og ljóð hennar ættu
að vera um hönd höfð í öllum skól-
um héraðsins. Oft er þörf en nú er
nauðsyn ef arfur aldanna á ekki að
fara forgörðum hjá menningarþjóð.
En hvers er von ef við gleymum
Þorsteini Erlingssyni og Guðmundi
skólaskáldi?
Ég sé Guðrúnu enn fyrir mér á
verðlaunapalli á landnámshátíð
Rangæinga 1974 við Merkjá í
Fljótshlíð, tígulega sýnum, klædda
hátíðabúningi. Þar tók hún við við-
urkenningu fyrir hátíðarljóð helgað
landnámi Rangárþings. Hún var
mér þar líkt og tákn þeirra kvenna
sem um aldir hafa glætt og haldið
í loga ást á ljóðlist og menningu og
gefið æsku landsins í arf.
Best greinargerð um skáldskap
Guðrúnar Auðunsdóttur er ritgerð
þjóðskáldsins sr. Sigurðar Einars-
sonar í Holti í tímaritinu „Heima
er bezt“ 1963, endurprentuð í ljóða-
bók hennar 1982.
Þeir bræður Ólafur og Eymundur
brugðu búi í Stóru-Mörk og flutt
var í dvalapheimilið Kirkjuhvol í
Hvolsvelli. Ólafur andaðist 1986.
Að honum var mikill sjónarsviptir
og Guðrúnu skilnaðurinn þungbær.
Hljóðlát voru síðustu æviárin með
þverrandi krafta en andinn alltaf
samur við sig. Ég ann Guðrúnu vel
hvíldarinnar eftir langan og anna-
saman æviferil. Áslaugu dóttur
hennar, fjölskyldu og Eymundi
Sveinssyni sendi ég samúðarkveðj-
ur.
Þórður Tómasson.
MESSUR
Allra heilagra messa
ÁSKIRKJA: Allra heilagra messa.
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Friðrik
Hjartar þrédikar. Kaffisala Safnað-
arfélags Ásprestakalls eftir messu.
Kirkjubíllinn ekur. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11.00. Guðsþjónusta ki. 14.00. Allra
heilagra messa - látinna minnst.
Einsöngur: Þórður Búason. Prestur
sr. Ingólfur Guðmundsson. Organ-
isti Guðni Þ. Guðmundsson.
DÓMKIRKJAN: Allra heilagra
messa kl. 11.00. Minning látinna.
Flutt verður tónlag dagsins. Prestur
sr. Hjalti Guðmundsson. Kammer-
kór Dómkirkjunnar syngur. Organ-
isti Marteinn H. Friðriksson. Barna-
starf í safnaðarheimilinu á sama
tíma. Skírnarguðsþjónusta kl.
14.00. Kl. 17.00Tónleikar Dómkórs-
ins í Landakotskirkju.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10.00. Sr. Gylfi Jónsson.
Organisti Kjartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA:Barnasamkoma
kl. 11.00. Barnakór Grensáskirkju
syngur, stjórnandi Margrét Pálma-
dóttir. Messa kl. 14.00. Prestur sr.
Halldór S. Gröndal. Organisti Árni
Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
stund kl. 10.00. Sr. Karl Sigur-
björnsson flytur erindi um engla og
þátt þeirra í trúarlífi kristinna
manna. Messa og barnasamkoma
kl. 11.00. Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngur. Organisti Hörður
Áskelsson. Sr. Ragnar Fjalar Lárus-
son. Orgeltónleikar kl. 17.00. Minn-
ingar- og þakkarguðsþjónusta kl.
20.30. Félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti Hörð-
ur Áskelsson. Karl Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Sigrún Óskarsdóttir.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Messa kl. 14.00.
Organisti Pavel Manasek. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11.00. Allra heilaga
messa. Minnst látinna. Ræðuefni:
Látinn lifir. Ekki trú aðeins, heldur
vissa. Tónlistarflutningur á vegum
Minningarsjóðs Guðlaugar Bjargar
Pálsdóttur. Einsöngur: Guðrún
María Finnbogadóttir. Blásarakvint-
ett Reykjavíkur leikur á undan mess-
unni. Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson. Organisti Jón Stefáns-
son. Kór Langholtskirkju syngur.
Barnastarf á sama tíma. Skátar
annast gæslu yngstu barnanna.
Molasopi að messu lokinni.
LAUGARNESKIRKJA: Messa á allra
heilagra messu kl. 11.00. Fermdar
verða Guðlaug Pálmarsdóttir, Hof-
teigi 21, og Halla Margrétardóttir,
Hofteigi 20. Organisti Jónas Þórir.
Barnastarf á sama tíma. Að lokinni
messu og léttum málsverði, um kl.
12.30 flytur dr. Einar Sigurbjörns-
son erindi: „Hvar eru hinir látnu?"
Eins og yfirskriftin bendir til verða
ræddar kenningar kristinnar trúar
um upprisu og eilíft líf. Barnagæsla
á meðan. Sr. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11.00. Munið kirkjubílinn. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Sr. Frank M. F-lall-
dórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Organisti Viera Gulasciova.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Barnastarf á sama tíma í
umsjá Elínborgar Sturludóttur og
Sigurlínar ívarsdóttur. Fundur með
foreldrum fermingarbarna eftir
messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Allra heilagra messa. Organleikari
Sigrún Steingrímsdóttir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altar-
isganga. Kaffisala kirkjukórsins eftir
messu. Organisti Daníel Jónasson.
Samkoma Ungs fólks með hlutverk
kl. 20.30. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Barnasam-
koma í Digraneskirkju kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Þorbergur Kristj-
ánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
Guðspjall dagsins:
(Matt. 5.). Jesús prédik-
ar um sælu.
mundur Karl Ágústsson. Barnakór
kirkjunnar syngur við guðsþjón-
ustuna. Organisti Lenka Mátéová.
Barnaguðsþjónusta á sama tíma.
Umsjón Ragnar og Ágúst. Prestarn-
ir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Valgerður, Hjörtur
og Rúna aðstoða. Guðsþjónusta kl.
14. Elín Ósk Óskarsdóttir syngur
einsöng. Kaffisala eftir guðsþjón-
ustuna. Allur ágóði rennur í Líknar-
sjóð kirkjunnar. Guðsþjónusta á
Hjúkrunarheimilinu Eirlaugardag kl.
13. Vigfús Þór Árnason.
HJALLAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Prestur og kór kirkjunn-
ar taka þátt í guðsþjónustu að
Melstað í Miðfirði kl. 14. Kristján
Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. 12-13
ára börn úr skólakór Kársness
syngja undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur kórstjóra, ásamt
börnum úr barnastarfi. Helgistund
kl. 14 með heimilismönnum á Land-
spítalanum, Kópavogi. Umsjón
María Eiríksdóttir. Organisti Orn
Falkner. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
FRÍKIRKJAN, Rvík: í dag verður
basar kvenfélagsins í safnaðar-
heimilinu kl. 14. Sunnudag guðs-
þjónusta kl. 14. Organisti Pavel
Smid. Sr. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14 og ensk messa kl. 20.
Aðra rúmhelga daga messur kl. 8
og kl. 18.
KFUM og KFUK, Holtavegi: Sam-
koma á morgun kl. 16.30. Líf mitt
með Jesú. Vitnisburðir: Helga
Magnúsdóttir og Ragnar Baldurs-
son. Hugleiðing: Ástríður Haralds-
dóttir. Stundin er komin: Kynning
á samkomuröð Billy Graham í mars
nk. Barnastundir á sama tíma. Eftir
samkomuna verða pylsur á boð-
stólum gegn vægu verði.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Alla rúmhelga daga messa
kl 18 30
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Hreinn Bernharðsson. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður
Daníel Óskarsson frá Hjálpræðis-
hernum. Gospelkórinn syngur.
Barnasamkoma og barnagæsla á
sama tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Ann Merethe og
Sven stjórna og tala. Hjálpræðis-
samkoma kl. 20. Ingibjörg og Óskar
Jónsson stjórna og tala.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17.
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa
í Lágafellskirkju kl. 14. Allra heil-
agra messa. Kirkjukaffi í safnaðar-
heimilinu eftir messu. Sigurður Jó-
hannsson, viðskiptafræðingur,
ræðir um sorg og sorgarviðbrögð.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Bíll frá Mosfellsleið fer venjuleg-
an hring. Sr. Jón Þorsteinsson.
GARÐASÓKN: Messa í Garðakirkju
kl. 14. Allra heilagra messa. Lótinna
ástvina minnst. Dr. Gunnar Kristj-
ánsson prédikar. Bílferð verður far-
in frá safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
kl. 13.30. Sunnudagaskóli í safnað-
arheimilinu Kirkjuhvoli „kl. 13. Sr.
Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Allra heilagra messa. Látinna
minnst. Flutt verður verkið: Heill
þér himneska orð eftir Gabriel
Fauré. Einsöngur: Sigurður Skag-
fjörð Steingrímsson. Selló: Ólöf
Sesselja Óskarsdóttir. Orgelleikari:
Elías Davíðsson. Kór Víðistaða-
sóknar syngur. Stjórnandi: Úlrik
Ólason. Sr. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Alt-
arisganga. Látinna minnst. Organ-
isti Helgi Bragason. Báðir prestarn-
ir þjóna. Sr. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Sr. Einar Eyjólfs-
son.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
St. JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðs-
þjónusta kí. 14. Barn boriðtil skírn-
ar. Fermingarbörn lesa ritningar-
lestra. Organisti Steinar Guð-
mundsson. Sr. Baldur Rafn Sig-
urðsson.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli
í dag kl. 11 í Stóru-Vogaskóla. Sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Messa kl. 14
í Kálfatjarnarkirkju.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barna-
starfið kl. 11. Messa kl. 14. Altaris-
ganga. Minnst látinna.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Guðsþjónusta kl. 14. Látinna
minnst. Prestur sr. Ólafur Oddur
Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju syng-
ur, einsöngvari María Guðmunds-
dóttir, Litanía Bjarna Þorsteinsson-
ar sungin. Organisti Einar Örn Ein-
arsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVALSNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Fermingarbörn lesa ritning-
arlestra og syngja. Organisti Ester
Ólafsdóttir. Sunnudagaskóli í
grunnskólanum Sandgerði kl.
12.30. Nýtt efni kynnt. Sr. Baldur
Rafn Sigurðsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Bar-
naguðsþjónusta kl. 11. Foreldrar,
afar og ömmur eru hvött til að
mæta með börn og barnabörn og
taka þátt í kirkjustarfinu. Björg, Sig-
rún og Tómas. Messa kl. 14. Gíde-
onfélagar koma í heimsókn. Sr.
Tómas Guðmundsson.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta verður í báðum kirkj-
unum í prestakallinu. Kl. 14 verður
messað í Stóra-Núpskirkju og kl.
16 í Ólafsvallakirkju á Skeiðum.
Allra heilagra messa er sungin
þennan dag en hún er minning-
ardagur kirkjunnar um þá sem dán-
ir eru í Kristi og vitnisburður henn-
ar um lífið eftir dauðann. Minnst
verður sérstaklega þeirra sem látist
hafa í prestakallinu á síðasta ári
og boðið verður upp á að kveikja á
kertum fyrir hinum látnu og þannig
að gera bæn sína að verki. Vilji
menn að nöfn séu nefnd við fyrir-
bæn má koma þeim til prests í síma
66057 eða á annan hátt.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA, Hvols-
velli: Kirkjuskóli laugardag kl. 11.
Kvöldmessa sunnudag kl. 21. Aðal-
safnaðarfundur að messu lokinni.
Sr. Sigurður Jónsson.
ODDASÓKN: Sunnudagaskóli í
Grunnskólanum á Hellu kl. 11. Sr.
Sigurður Jónsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Sunnudagaskóli kl. 11. Sunnudaga-
skóli á Hraunbúðum kl. 13.15. Al-
menn guðsþjónusta kl. 14. Altaris-
ganga. Prédikun: Haukur Ingi
Jónasson, guðfræðingur: „Leyfið
börnunum að koma til mín.“ Barna-
samvera í safnaðarheimili meðan á
prédikun stendur. Boðið til um-
ræðna í messukaffi um efni prédik-
unarinnar. Unglingafundur KFUM &
K kl. 20.30.
BORGARPREST AKALL: Bar-
naguðsþjónusta verður í Borg-
arneskirkju kl. 11.15. Guðsþjónusta
kl. 14. Seljasókn í Reykjavík kemur
í heimsókn og annast guðsþjón-
ustuna. Árni Pálsson.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í dag kl. 11. Stjórnandi
Sigurður Grétar Sigurðsson. Kirkju-
skóli yngstu barnanna í safnaðar-
heimilinu kl. 13. Stjórnandi Axel
Gústafsson. Hátíðarguðsþjónusta í
kirkjunni kl. 14. Kirkjudagur safnað-
arins. Kirkjunefnd kvenna býður til
kaffidrykkju í safnaðarheimilinu að
messu lokinni. Sr. Björn Jónsson.