Morgunblaðið - 19.01.1995, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gætum við Nonni fengið að vera skaupstjórar næst hr. útvarpsstjóri?
Bókun Sjálfstæðisflokks við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
Framkvæmdir og að-
hald án nýrra skatta
FYRRI umræða um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1995
fer fram á fundi borgarstjórnar í
dag. Ámi Sigfússon oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, segir að Sjálfstæð-
isflokkurinn treysti sér til að leggja
fram áætlun um framkvæmdir og
aukið aðhald í rekstri án þess að
leggja á nýja skatta, eins og tillög-
ur R-listans geri ráð fyrir.
Svik við borgarbúa
„í bókun okkar, sem lögð verður
fram á fundinum, mun koma fram
að við treystum okkur til að leggja
fram myndarlega uppbyggingar-
áætlun í borgarmálum með auknu
aðhaldi í rekstri og raunhæfri fram-
kvæmdaáætlun, án þess að til komi
ný skattheimta R-lista flokkanna,“
sagði Árni. „Þeir hafa í raun búið
sér til tekjur með 550 milljón króna
Nótt frá
Kröggólfs-
stöðum lifir
LJÓST er nú samkvæmt áreiðan-
legum fregnum sem Búnaðarfé-
lagi íslands hefur borist að hryssa
sú sem Grétar H. Harðarson hér-
aðsdýralæknir á Hellu tók blóð-
sýni úr skömmu fyrir jól er hin
eina og sanna Nótt frá Kröggólfs-
stöðum.
Má því ljóst vera að sögusagnir
um að Nótt væri fallin fyrir
nokkrum árum séu ekki á rökum
reistar. Meðal þeirra sem töldu
að svo væri er starfandi kynbóta-
dómari og sagði Kristinn Hugason
hrossaræktarráðunautur með öllu
ólíðandi að menn i slíkri stöðu
væru að gefa svona sögusögnum
byr í seglin án þess að um form-
holræsaskatti, sem augljóslega fer
aðeins að hluta til í holræsafram-
kvæmdir. Þetta eru svik við borg-
arbúa.“
Lækkun með pennastriki
Árni benti á að R-listinn hafí
ákveðið að hækka framlag veitu-
stofnana til borgarsjóðs um 600
milljónir á árinu. Það fjármagn
hefði annars augljóslega verið lagt
til framkvæmda og viðhalds á veg-
um veitustofnana. „Þá eru rekstrar-
útgjöld borgarinnar lækkuð um 519
milljónir króna með einu penna-
striki með því að minnka framlög
til atvinnuátaksverkefna sem því
nemur,“ sagði hann. „R-listinn ger-
ir nánast ekkert í sparnaði, en legg-
ur fram áætlun um framkvæmdir
sem hafa þá helstu galla að fram-
kvæmdatími er mjög skammur, þar
Iega kæru væri að ræða.
Sagði Kristinn að þvi miður
væri það svo að ýmsir menn sem
valist hefðu til dómstarfa gegnum
sem undirbúningstíminn hefur ekki
verið nýttur sem skyldi, eins og til
dæmis í skólamálum. Það þýðir að
framkvæmdir verða óhagkvæmar
og álitamál hvort tekst að taka þær
byggingar í notkun sem R-listinn
ætlar sér á réttum tíma án mikils
aukakostnaðar."
Sérkennilegur undirbúningur
Árni sagði að allur undirbúningur
að fjárhagsáætluninni hafi verið
sérkennilegur. „Það hefur verið
mjög takmörkuð umræða og undir-
búningsvinna í nefndum borgarinn-
ar,“ sagði hann. „Venjulega voru
lagðar línur af fagnefndum og í
framhaldi lagðar fram tillögur til
borgarráðs, en nú hefúr vinna nán-
ast farið fram í borgarráði og treyst
á rekstrartillögur borgarhagfræð-
ings.“
árin væru á stundum með óviðeig-
andi óg óábyrgar yfirlýsingar um
ýmislegt er varðar kynbótahross
og kynbótadóma.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
BÆRING Sigurbjörnsson með hryssuna Nótt.
Italskt menningarfélag á íslandi
Mikilvægt að
rækta menn-
ingarsérkenni
ANTONIO Badini var
viðstaddur stofnun
íslandsdeildar al-
þjóðlegs ítalsks menningar-
félags 15. janúar síðastlið-
inn sem sett er á fót í sam-
vinnu við Stofnun Dante
Alighieri. En félagið er
nefnt í höfuðið á ítalska
skáldinu Dante Alighieri
(1265-1321).
- Hvers vegrta er félag-
ið stofnað hér?
„íslendingar hafa sýnt
ítölsku tungumáli og' ít-
alskri menningu mikinn
áhuga og félagið leggur
áherslu á mikilvægi menn-
ingar fyrir sérhvetja þjóð.
Dante var talsmaður menn-
ingarlegs fjölbýlis, ef svo
má að orði komast, og við
erum þeirrar skoðunar að
vináttufélög fólksins auki á
gagnkvæman skilning milli þjóða."
- Hvað mættu margir á stofn-
fundinn?
„Það mættu um 130 manns,
bæði ítalir og íslendingar. Það
kom mér á óvart hversu miklar
vináttutilfinningar Itala eru í garð
íslendinga og við eigum margt
sammerkt. Fólk heldur að mikill
munur sé á þjóðunum vegna þess
hversu langt er á milli þeirra.
Auðvitað erum við ólík en það er
bara hrífandi. íslendingar eru opn-
ir fyrir nýjungum líkt og við. Við
erum ennfremur stoltir af því að
svo þekktur rithöfundur sem Thor
Vilhjálmsson skuli vera formaður
íslandsdeildar félagsins og munum
koma bókum hans á framfæri á
Ítalíu.“
Badini segir ennfremur að ítölsk
stjórnvöld leggi sérstaka áherslu
á starfsemi Stofnunar Dante Al-
ighieri, sem er sjálfseignarstofn-
un. „Við ætlum að bregðast við
og styðja íslenska félagið því ís-
lendingar vilja nánari tengsl við
Italíu. Sem stendur starfar ítalsk-
ur sendikennari í viðskiptadeild
Háskóla íslands og við höfum á
pijónunum að manna kennara-
stöðu við Háskóla til að kenna
viðskiptaítölsku. Á þann hátt geta
íslendingar og ÍLalir átt samstarf
á viðskiptasviðinu líka.“
- Hvað annað er á pijónunum?
„í október verður ítölsk vika í
Perlunni, þar sem kynnt verður
ítölsk menning, listir, matargerð
og framleiðsla. Haldin verður kvik-
myndahátíð í samvinnu við Kvik-
myndasjóð og við munum í sam-
vinnu við Ferðamálaráð velja eitt
til tvö héruð sem best eru til þess
fallin að kynna á ís-
landi.“
„Við viljum sýna að
við erum þess meðvit-
andi hvað ítölsk menn-
ing á mikil ítök hér á
landi og viljum bregðast við þess-
um áhuga. Það er grundvallarat-
riði að hver þjóð leggi rækt við
menningarsérkenni sín. Ef Evrópa
viðurkennir niarbreytileika hverr-
ar menningar og tungumáls er
jafnrétti smærri og stærri þjóða
tryggt. Þetta er mikilvægt."
Sendiherrann segir ennfremur
í þessu samhengi að bókasöfnun
vegna Þjóðarbókhlöðu hafi mætt
miklum skilningi á Ítalíu af þess-
um sökum. „Við sjáum hana sem
mikilvægt innlegg til þess að
styrkja menningarlega sérstöðu
landsins. Við höfum gefið fjölda
vandaðra bóka til marks um þá
virðingu sem við berum fyrir þessu
framtaki. Auk þess mun ég heim-
sækja safnið til þess að skoða
► ANTONIO Badini er sendi-
herra ítala á íslandi með aðset-
ur í Ósló. Hann afhenti emb-
ættisbréf sitt í febrúar síðast-
liðnum og hefur komið til ís-
lands nokkrum sinnum, meðal
annars í tilefni af lýðveldisaf-
mælinu, útkomu íslensk-ítal-
skrar orðabókar og nýjum há-
þrýstiklefa á Borgarspítala.
bókakostinn, kynna mér hvað
safnið vantar og og koma á sam-
bandi við ítalska landsbókasafnið."
Badini segir að einkum hafí ver-
ið gefnar listaverka-, sögu-, landa-
fræðibækur og vísindarit. „Þjóð-
bókasafnið vekur athygli á þörf
íslendinga fyrir að leggja áherslu
á menningarhefðina. Og að okkar
mati eruð þið dæmi um þjóð sem
vill njóta sannmælis í menningar-
legu tilliti og dæmi um það sem
við eigum við þegar við tölum um
Evrópu þar sem menningararfleifð
allra ríkja er jafn rétthá. Hver þjóð
gerir sér grein íyrir menningarleg-
um uppruna sínum en blandar geði
við menningu annarra þjóða á jafn-
réttisgrundvelli. Við viljum ekki
Evrópu þar sem áherslan er öll á
einn möndul. Við viljum Evrópu
sem er að sönnu lýðræðisleg; Evr-
ópu sem öllum líkar. Þess vegna
viljum við leggja aukna áherslu á
starfið hér.“
Antonio Badini segir ennfremur
að þjóðirnar eigi skap saman sem
gefí góð fyrirheit um annars konar
samstarf. „Við höfum þegar átt
samstarf í sambandi við háþrýsti-
klefann á Borgarspítala og það
gefur góða vísbendingu um góða
samvinnu okkar í milli
á öðrum sviðum. Menn-
ingarsamstarf er mikil-
vægt því það opnar
möguleika á samvinnu
á öðrum sviðum. Einnig
má geta útgáfu, orðabókarinnar
sem leggur grunninn að sterkari
menningarböndum og við höfum
auk þess hug á að opna sendiráð
hér. Þótt það verði ekki gert um
sinn vegna niðurskurðar.“
„Þrátt fyrir það höfum við
ákveðið að veija helmingi meiri
fjármunum en áður til að styrkja
menningartengslin við ísland, sem
segir mikið um hversu mikla
áherslu við leggjum á þau. Loks
má nefna að við höfum fengið góð
viðbrögð frá þeim stofnunum sem
við höfum leitað til á ítalíu með
samstarf við íslendinga. Það kem-
ur á óvart og gefur góða vísbend-
ingu. Vonandi verður sett á fót
íslensk skrifstofa fyrir menningar-
tengsl á ftalíu."
íslendingar
hafa mikinn
áhuga á Ítalíu