Morgunblaðið - 08.02.1995, Síða 1
64 SIÐUR B/C/D
32. TBL. 83. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Nemendur í verkfalli
NEMENDUR og kennarar í
frönskum skólum efndu til
verkfalls í gær til að mótmæla
aðbúnaði þeirra i skólum. Að
mati stéttarfélaga kennara
lagði rúmlega helmingur hinna
milljón kennara landsins niður
vinnu og í höfuðborginni París
var hlutfallið 70%. Fjölmennar
mótmælagöngur voru haldnar
í flestum borgum Frakklands
þar sem nemendur og kennarar
kröfðust þess að fleiri kennarar
yrðu.ráðnir, laun þeirra hækk-
uð og aðbúnaður allur í skólum
bættur.
Uppstokkun í pólsku stjórninni yfirvofandi
Stj órnarflokkai' frið-
mælast við Walesa
Varsjá. Reuter.
STJÓRNARFLOKKARNIR í Pól-
landi náðu í gær samkomulagi um
breytingar á ríkisstjóminni, sem
Lech Walesa, forseti landsins, á
að geta sætt sig við, en hann hafði
krafist þess, að Waldemar Pawlak
viki úr forsætisráðherraembætti.
Greindu fulltrúar stjórnarflokk-
anna tveggja, Bændaflokksins og
Vinstrisinnaða lýðræðisbandalags-
ins, frá því í gærkvöldi að þeir
hefðu orðið ásáttir um að Jozef
Oleksy, frá lýðræðisbandalaginu,
tæki við forsætisráðherraembætt-
inu af Pawlak.
Frá þessu var greint eftir að leið-
togar flokkanna höfðu setið á
tveggja klukkustunda fundi en talið
er að fulltrúi frá Bændaflokknum
muni í staðinn verða forseti þings-
ins. Einungis er ár liðið frá því að
ríkisstjórn Pawlaks, sem er úr
Bændaflokknum, tók við völdum.
Walesa sagði Pawlak vera Þránd í
Götu efnahagslegra umbóta en
margir telja, að hann hafi fyrst og
fremst verið að reyna að styrkja
stöðu sína.
Walesa viðrar flokksstofnun
Með hótunum um að leysa upp
þingið ef ekki yrði orðið við kröfum
hans hafi Walesa verið að búa í
haginn fyrir sig vegna forsetakosn-
inganna seint á þessu ári. Sigri
frambjóðandi vinstrimanna þá hafa
arftakar gömlu kommúnistanna
náð völdunum í Póllandi í sínar
hendur. Walesa sagði í fyrradag,
að fengist ekki botn í þessi mál
fyrir mánaðarlok myndi hann hugs-
anlega hætta við forsetaframboð
Lech Walesa
og stofna nýjan stjómmálaflokk.
Talsmaður Walesa sagði í gær,
að forsetinn gæti fallist á, að nýr
maður tæki við forsætisráðherra-
embættinu eða að skipuð yrði sér-
fræðingastjóm. Að því búnu myndi
Walesa undirrita fjárlögin en hann
hefur neitað því til þessa.
Rússneskí herinn undirbýr brottflutning sveita frá Tsjetsjníju
Fyrsta
„guðmóðirin“
handtekin
Maria Filippa
Messina
Róm. The Daily Telegraph.
ÍTALSKA lögreglan handtók um
helgina konu sem fullyrt er að
sé fyrsta sikileyska „guðmóðir-
in“. Konan, Maria Filippa Mess-
ina, 26 ára, tók við virðingar-
stöðu manns síns innan mafíufjöl-
skyldu hans er
hann var dæmd-
ur Í2I ársfang-
elsi fyrir tveim-
ur árum. Er fjöl-
skyldan sögð
standa að eitur-
lyfjasmygli og
-sölu, fjárkúgun
og vændi og að
Maria stýri þess-
ari starfsemi.
Maria Messina var handtekin
ásamt sjö körlum eftir að ítalska
leyniþjónustan hafði komið fyrir
hlerunartælgum og komist að
áætlunum hópsins um að myrða
sex félaga í annarri mafíufjöl-
skyldu. Skjóta átti mennina um
hábjartan dag á aðaltorginu í
Catania með afsöguðum hagla-
byssum keyptum í einu lýðvelda
fyrrum Júgóslavíu. Áttu drápin
að vera hefnd fyrir morð á bíl-
stjóra Maríu og móður hans, auk
þess sem Maria vildi styrkja
stöðu sína innan sikileysku maf-
íunnar. Blóðug átök geisa á milli
fjölskyldnanna og hafa að
minnsta kosti tiu fallið í valinn á
síðustu mánuðum.
Þar til fyrir fáum mánuðum
hafa konur haldið sig til hlés í
ítölsku mafíunni en vegna hertra
aðgerða yfirvalda gegn skipu-
Iagðri glæpastarfsemi hefur ver-
ið þrýst á konur að taka við af
þeim körlum sem sitja nú á bak
við lás og slá. Mun lengra er síð-
an konur mörkuðu sér sess í
mafíunni í Napóli, sem þykir mun
óhefðbundnari en sú á Sikiley.
Tsjetsjenar
íhuga að yfir-
gefa Grosní
Moskvu, Grosní. Reuter.
RÚSSAR héldu uppi stórskotahríð á Grosní, höfuðstað Tsjetsjníju,
í gær, en að sögn leiðtoga tsjesjenskra uppreisnarsveita var skot-
hríðin þó ekki eins hörð og undanfarna daga. Uppreisnarmenn
ráða nú ráðum sínum um hvort þeir yfirgefí borgina.
„Leiðtogar okkar sitja á rökstól-
um þessa stundina og ætla að taka
afstöðu til þess hvort við gefum
borgina eftir,“ sagði Súlman, 22
ára liðsmaður uppreisnarsveit-
anna, í samtali við fréttamann
Reuters í útborginni Tsjernor-
etsjíje.
Fréttamaðurinn varð sjálfur
vitni að því er fjöldi vörubifreiða
með fullan pall af bardagamönnum
Tsjetsjena ók inn í Grosní í gær.
Þess sáust engin merki, að bardög-
um væri að ljúka í borginni og
uppreisnarsveitirnar héldu enn
nokkrum hverfum.
Að sögn talsmanns vamarmála-
ráðuneytisins í Moskvu undirbýr
rússneski herinn nú brottflutning
fótgöngusveita frá Grosní. Ætlun-
in er að þar verði einungis eftir
sveitir innanríkisráðuneytisins til
þess að halda uppi löggæslu.
Rússar sögðust í fyrradag hafa
brotið alla skipulega mótspymu á
bak aftur í Grosní er þeir náðu
síðasta vígi uppreisnarmanna,
torginu Mínútka og nágrenni þess.
Erfitt er að henda reiður á áreið-
anleika þessara fullyrðinga því í
Hikavið
Rússalán
MICHAEL Camdessus, yfírmaður
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sagði í
gær að Rússum hefði ekki enn tek-
ist að sannfæra sjóðinn um að rétt
væri að greiða út þau lán, sem
Rússar hafa fengið vilyrði fyrir. Er
alls um 6,2 milljarða dollara að
ræða.
Sjóðurinn hefur þegar lánað
Rússum fjóra milljarða dollara og
hefur sett það sem skilyrði fyrir
frekari lánveitingum að Rússar
leggi fram traustvekjandi fjárlög
fyrir þetta ár, sem líkleg em til að
draga verulega úr verðbólgu.
Camdessus sagðist vona að hægt
yrði að finna lausn á málinu en
aðstæður væru mjög erfiðar. Hann
benti á blaðamannafundi á að efna-
hagsástand í Rússlandi hefði hrak-
að verulega á síðari hluta síðasta
árs. Hinar kostnaðarsömu aðgerðir
í Tsjetsjníju torvelda efnahags-
ástandið enn frekar.
Reuter
RÚSSNESKAR leyniskyttur úr Alfa-sérsveitunum
búa sig undir aðgerðir í Grosní.
gær héldu yfirmenn uppreisnar-
sveitanna því fram við Interfax-
fréttastofuna, að torgið væri ekki
fallið.
Leiðtogar uppreisnarmanna
játtu því í gær, að útilokað væri
að veijast til langframa. Jafnvel
þótt Grosní falli er óvíst að stríðsá-
tökum linni í Tsjetsjníju því upp-
reisnarmenn hafa hótað að halda
skæruhernaði áfram frá fjöllum
umhverfis byggðir og bæi. Búist
er við að þeir safni liði suður af
Grosní og geri strandhögg þaðan.