Morgunblaðið - 08.02.1995, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Fasteignamiðlun
Sigurður Óskarsson lögg.fasteigna- og sldpasali
Suðurlandsbraut 16,108 Reykjavík
SÍMAR 588-0150
OG 588-0140
Kaupendur athugið!
Til sölu
Seltjarnarnes
Falleg og vel búin 94 fm jarðhæð. 3-4
herb. Parket. Áhv. veödeild 4,5 millj.
Verð 7,9 millj.
Hólmgarður
- frábær eign
Til sölu 96 fm gullfalleg og vönduð suð-
uríb. í 17 ára fjórb. íb. og sameign í
sérfl. m.a. sauna. Nýl. hús í grónu
hverfi. Ákv. sala. Verð 9,5 millj.
Vesturgata
- nærri miðbæ
Falleg 80 fm 3ja herb. íb. á tveimur
hæðum í 3ja íb. húsi. Nýjar innr. Stór
lóð. Hagst. verð 6,6 millj.
Urðarholt - Mos.
Glæsil. íb. 91 fm á 2. hæð í verðlaun-
uðu 10 ára fjórbýli. Parket. Fráb. innr.
Áhv. byggsjlán 1,5 millj. Verð 8,5 millj.
Melhagi - sérhæð
Falleg rúml. 103 fm sérhæð í velbyggðu
húsi. Suðursv. Áhv. byggsj. og hagst.
lán 4,6 millj. Gott verð 7,9 millj.
Lundarbrekka
- Kóp.
Rúmg. 93 fm parketlögð íb. á 2. hæð
í góðu fjölb. Sérinng. af útisvölum. Áhv.
húsbr. 4,2 millj. Verð 6,9-7,5 millj.
SÍMI 588-0150
- kjarni málsins!
Vélsleð-
amir
viðraðir
FJÖLMARGIR nota góðviðrið
þessa dagana til að viðra vél-
sleða sína. í gær var ljósmynd-
ari Morgunblaðsins á ferð í
Hveradölum og hitti þá fyrir
nokkra vélsleðamenn. Benedikt
Bragason rekur vélsleðaleigu í
Hveradölum og hér sést einn
af sleðum hans þjóta hjá. Veð-
urspáin í dag og næstu daga
bendir til þess að áfram verði
gott veður til útivistar, ekki síst
fyrir vélsleðamenn og skíða-
fólk.
EIGIMASALAIM
REYKJAVIK
INGÓLFSSTRÆTI 12 - 101 REYKJAVÍK.
Símar 19540 - 19191 - 619191
Skrifstofuhúsnæði ósk-
ast. Höfum fjársterkan kaupanda að
ca 150-200 fm skrifsthúsn., gjarnan á
góðum stað í Austurborginni. Fleiri
staðir koma til greina.
Höfum kaupanda að góðri
sérh., helst í Vesturborginni. Fleiri stað-
ir koma þó til greina, t.d. Þingholtin.
Mjög góðar greiðslur í boði fyrir rétta
eign.
í Fossvogi óskast. Höfum
kaupanda að góðri 3ja-4ra herb. íb.
helst í Fossvogshverfi. Fleiri staðir
koma til greina. Góö útb.
Höfum kaupanda að góðri
3ja herb. íb. í Árbæjarhverfi, gjarnan
með áhv. gömlum húsnsstjlánum.
Höfum kaupanda að 2ja-5
herb. ris- og kjíbúðum. Mega þarfn.
stands. Góö útb. getur verið í boði.
Höfum kaupanda að ýmsum
gerðum fasteigna víðsvegar um borgina.
Athugið: Mikið um fyrirspurnir!
EIGIMASALAIM
REYKJAVIK
Magnús Einarsson, lögg. fastsali.
' .................. .............. '
Miðvangur 8 - Hafnarfirði
Nýkomin í einkasölu falleg 3ja herb. íbúð á efstu hæð
(3. hæð) á eftirsóttum útsýnisstað í Norðurbænum.
Sérþvottahús. Gufubað og frystiklefi. Suðursvalir.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
011 Kfl 01 07A LÁRUS Þ. VALDIMARSSON, framkvæmdastjori
L I I I 01 U KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, löggiltur fasteignasali
Til sýnls og sölu m.a. eigna:
Glæsileg eign - úrvalsstaður
rétt við íþróttamiðstöðina í Árbæjarhverfi nýl. raðhús, grunnfl. 90 fm
m. 6 herb. íb. á tveimur hæðum. í kj./jarðh. er næstum fullg. 2ja herb.
góð séríb. Sérb. bílsk. Ræktuð lóð. Mikið útsýni.
Við Eiðistorg - mikið útsýni
Sólrík mjög góð 4ra herb. íb. um 100 fm. Stórar stofur. Tvennar sval-
ir. Ágæt sameign. Stæði í bilgeymslu. Fráb. útsýni. Tilboð óskast.
Tvíbýli - allt sér - ódýrt
í gamla góða vesturbænum 3ja herb. íb. á efri hæð um 60 fm nettó.
Vinsæll staður. Mikið útsýni. Tilboð óskast.
Glæsileg eign í Skjólunum
Nýl. raðhús m. innb. bílsk. næstum fullg. 4 stór svefnherb., snyrting
á báðum hæðum. Vinsæll staður. Tilboð óskast.
Meistaravellir - Hjarðarhagi
Góðar 3ja og 4ra herb. fb. Vinsaml. leitið nánari uppl.
Vogar - Heimar - Sund
Leitum að góðri neðri hæð m. sérinng. og helst m. bílsk. Skipti mögul.
á glæsil. eign í Vogunum. Nánari uppl. veitir Lárus á skrifst.
Afföll af húsbréfum
voru í gærmorgun 11,11%. Af hámarksláni kr. 5.330,- þús, gera þessi
afföll kr. 592.163,-. Sérhæfður Dagsþrúnarverkamaöur í fiskvinnslu fær
eftir 5 ára starf kr. 48.755,- í mánaöarlaun. Öll árslaun þessa Dagsbrún-
armanns duga því ekki fyrir afföllunum.
• • •
Viðskiptum hjá okkurfylgir
ráðgjöf og traustar uppl.
Fjöldi góðra eigna í skiptum. __________,______________
LAUGAVEGI18 SÍMAR 21150 - 21370
ALMENNA
FAST EIG N AS AL AN
[
\
Morgunblaðið/RAX
FRÉTTIR
Umræðuefni í ferð viðskiptaráðherra til Bretlands
A
Utfliitningnr á raf-
orku til Bretlands
SIGHVATUR Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og ráðherra
heilbrigðismála, dvaldi í Bretlandi í boði iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
isins þar dagana 15. janúar til 19. janúar. í för með ráðherra voru
ráðuneytisstjóramir Páll Sigurðsson og Þorkell Helgason, aðstoðarmað-
ur ráðherra, Margrét S. Björnsdóttir, og frú Björk Melax.
Tilgangur fararinnar voru við-
ræður við bresk stjómvöld, fyrirtæki
og stofnanir á sviði málefna ráðherr-
ans. Þess er vænst að í kjölfar ferð-
arinnar skapist aukin tengsl milli
ráðuneyta landanna. Jafnframt
væntir ráðherrann og föruneyti hans
að geta lært af Bretum á viðkom-
andi sviðum.
Að ósk gestgjafanna var megin-
viðræðuefnið í þessari för hugsan-
legur útflutningur á raforku frá ís-
landi um sæstreng til Bretlandseyja.
Ráðherrann og fylgdarlið hans áttu
í því sambandi fundi með forsvars-
mönnum þeirra fyrirtækja og stofn-
ana sem sýnt hafa áhuga á málinu.
Hér er um að ræða Scottish Hydro,
sem hefur lengi unnið að könnun
málsins í samvinnu við Landsvirkj-
un; Nationa! Grid Company, en það
fyrirtæki sér um raforkuflutning
innan Bretlands; rafkaplaframleið-
andann Pirelli Cables Ltd., en það
fyrirtæki hefur gert tænilegar at-
huganir á lagningu sækapals til Is-
lands, og GEC Alsthom sem fram-
leiðir m.a. afriðlunarstöðvar eins og
nauðsynlegar em við báða enda
hugsanlegs sækapals. Auk þess ósk-
aði fyrirtækið Western Electric eftir
viðræðum við ráðherrann um hugs-
anleg kaup á orku frá íslandi, en
þetta fyrirtæki hefur nýverið haslað
sér völl sem sjálfstæður orkusali í
kjölfar aukins fijálsræðis á breska
raforkumarkaðinum.
í ferðinni ræddi Sighvatur Björg-
vinsson við Tim Eggar, ráðherra
iðnaðar- og orkumála í Bretlandi.
Ráðherrann lýsti yfir samúð sinni
vegna hinna hörmulegu atburða á
Vestfjörðum, sem dundu yfir á þess-
um tíma. Viðræður ráðherranna
snerust að öðru leyti um forsendur
þess að lagning sæstrengs geti ver-
ið hagkvæmur kostur fyrir báða
aðila. I því sambandi var rætt um
orkuspár og hugsanlega sameigin-
lega skattlagningu Evrópusam-
bandsins á brennsluorku í því skyni
að ýta undir notkun endumýjan-
legra orkugjafa.
í breska ráðuneytinu var auk
þess rætt við yfirmann verkefnaút-
flutningsdeildar ráðuneytisins svo
og yfírmann þeirrar deildar sem fer
með málefni smáfyrirtækja og fyrir-
tækjaneta.
í förinni var heimsóttur Cranfield
University, en sá háskóli hefur get-
ið sér gott orð fyrir árangursíkt
rannsóknarsamstarf við atvinnufyr-
irtæki. Einnig hitti Sighvatur hóp
breskra ráðgjafa á sviði orku-, iðn-
aðar- og heilbrigðismála.
Gestunum frá íslandi var kynnt
hvemig Bretar búa að öldruðum og
fótluðum. M.a. var heimsótt miðstöð
fýrir hvers kyns hjálpartæki aldraðra
og fatlaðra í Manchester. Aðstoðar-
borgarstjórinn þar tók á móti ráð-
herra ásamt ræðumanni íslands þar
í borg, en hann er jafnframt yfirmað-
ur heilbrigðismála í Manchester. Þá
var farið til Amersham Intemati-
onal, sem em samtök er framleiða
og selja ýmiss konar lyfja- og há-
tæknibúnað fyrir sjúkrahús.
Opinberri heimsókn ráðherrans
átti að ljúka í Skotlandi laugardaginn
21. janúar. Vegna atburðanna í kjör-
dæmi Sighvats Björgvinssonar stytti
hann för sína, sleppti Skotlandsheim-
sókninni og hélt heimleiðis ásamt
konu sinni strax eftir að viðræðum
við hinn breska kollega hans var
lokið, en annað fömneyti ráðherra
tók þátt í Skotlandshluta ferðarinnar
og var miðstöð flugbjörgunarmála í
Skotlandi m.a. skoðuð.
Skipulagning þessarar ráðherra-
ferðar af hálfu Breta var í hvívetna
eins og best verður á kosið, en
breska sendiráðið í Reykjavík und-
irbjó ferðina í samráði við iðnaðar-
og viðskiptamálaráðuneytið í Lond-
on, segir í frétt frá viðskiptaráðu-
neytinu.
Athugasemdir Amnesty International um
stjórnarskrárfrumvarpið
ÍSLANDSDEILD Amnesty Inter-
national hefur sent stjórnarskrár-
nefnd Alþingis umsögn um fmmvarp
til stjómskipunariaga um breytingu
á stjórnarskránni. Eins og segir í
frétt frá félaginu er því frumkvæði
Alþingis fagnað að stjórnarskránni
sé breytt í þá átt að styrkja mann-
réttindaákvæði hennar.
í athugasemdum samtakanna er
bent á að frumvarpið standist ekki
alþjóðlegar kröfur í veigamiklum
atriðum og sé ekki í samræmi við
skyldur sem ísland hafi tekið á sig
við fullgildingu alþjóðlegra mann-
réttindasáttmála.
Banni við dauða-
refsingn fagnað
Hvað einstaka ákvæði varðar er
því fagnað að tekið sé upp afdrátt-
arlaust bann við dauðarefsingu og
Stenst ekki
alþjóðlegar
kröfur
muni slíkt ákvæði hafa fordæmis-
gildi á alþjóðlegum vettvangi. Hins
vegar er vakin athygli á því að
ákvæði vanti þess efnis að ekki
megi meina útlendingum landgöngu
eða vísa úr landi ef hætta sé á að
þeir verði teknir af lífi, pyntaðir eða
ofsóttir í öðru landi.
Einnig er áhyggjum lýst yfir því
að hvergi sé kveðið á um að ekki
sé heimilt að skerða viss grundvall-
arréttindi á tímum neyðarástands,
svo sem réttinn til lífs, bann við
pyntingum og illri meðferð svo dæmi
séu tekin.
Samtökin benda ennfremur á að
tryggingu vanti fyrir sanngjarnri og
tafarlausri málsmeðferð og að játn-
ingar sem fengnar eru fram með
þvingunum séu útilokaðar sem sönn-
unargögn. Amnesty International
lýsir einnig áhyggjum yfir því að
fullnægjandi tryggingar vanti fyrir
frelsi til tjáningar, hugsana, sann-
færingar og trúar.
Fleiri athugasemdir er að finna í
umsögninni og er lögð áhersla á að
breytingar á stjórnarskránni verði
kynntar ítarlega. Alþingi sjái til þess
að fram fari í þjóðfélaginu full um-
ræða sem leiði til þess að gerðar séu
breytingar sem tryggi grundvallar-
mannréttindi sem viðurkennd eru í
alþjóðasamningi um borgaraleg og
stjórnmálaleg réttindi.
f
*
\
\
\
í
\
\
\