Morgunblaðið - 21.02.1995, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 15
VIÐSKIPTI
Saatchi fær nafnið Cordiant
Reynt að bæta ímynd gamla fyrirtækisins
London. Reuter.
Intel kynn-
ir arftaka
Pentium
San Francisco. Reuter
NÝR P6 kubbur Intels, sem á
að taka við af Pentium, er
hannaður á annan hátt en fyrri
kubbar Intels til þess að ná
fram því markmiði fyrirtækis-
ins að tvöfalda vinnuhraðann,
að því er sagt var þegar kub-
burinn var kynntur á fimmtu-
daginn.
Að sögn Intels á breytingin
að gera P6 tvisvar sinnnum
kröftugri en Pentium, stolt fyr-
irtækisins. En nokkuð af því
sem einkennir breytinguna má
fínna hjá helztu keppinautum
Intels, sem framleiða PowerPC
og RISC, það er bandalagi
Motorola, IBM og Apple.
Bæði Intel og IBM benda
þó á að P6 sé ekki RlSC-kub-
bur, þótt bryddað sé upp á
svipuðum nýjungum.
Tvisvar sinnum hraðvirkari
kubbur en Pentium á að geta
gert einmenningstölvu kleift
að leysa verkefni, sem venju-
lega eru falin vinnustöð, að
sögn starfsmanna Intels.
Stora AB
eykur hagnað
um 500%
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKA tijávörufyrirtækið
Stora AB hefur skýrt frá því
að hagnaður fyrirtækisins
1994 hafi aukizt um rúmlega
500% i 3.21 milljarð sænskra
króna.
Hagnaðurinn nam 529 millj-
ónum sænskra króna 1993 og
aukningin stafar aðallega af
mikilli hækkun á verði tiják-
voðu og pappírs 1994.
Að sögn Stora fékkst um
40% árshagnaðarins — eða 1.2
milljarðar sænskra króna — á
síðasta ársfjórðungi 1994.
Stora hefur spáð því að
hlutabréf í öðrum tijávöru-
fyrirtækjum kunni að hækka
um 50% og sérfræðingur í
Stokkhólmi telur að hlutabréf
í Stora kunni að hækka ennþá
meir.
NYR SJALFVIRKUR
OFNHITASTILLIR
Kiörhiti í
hverju
herbergi.
= HEÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
BREZKA - auglýsingafyrirtækið Sa-
atchi & Saatchi, sem bræðumir
Maurice og Charles stofnuðu á sínum
tíma og hafa nú báðir snúið baki
við, hyggst taka upp nýtt nafn, Cor-
diant, sem á að bera vott um ein-
drægni og samkomulag.
Ný nafngift var talin nauðsynleg
til þess að bæta ímynd fyrirtækisins
eftir brottrekstur Maurice Saatchi í
desember, afsagnir þriggja yfir-
manna og missi óanægðra viðskipta-
vina.
Fyrirtæki í eigu Saatchi, sem sér-
hæfir sig í að bæta ímynd fyrir-
tækja, stakk upp á nafninu Cor-
diant. Nafnið var talið bezt 17 hug-
mynda, sem komu fram.
Ýmsum finnst nafnið hins vegar
einkennilegt og jafnvel hjákátlegt.
Auðvelt sé að snúa út úr því og hafa
fyrirtækið að háði og spotti, til dæm-
is með því að kalla það „Discor-
diant“ í staðinn fyrir Cordiant.
Maurice stal senunni
Saatchi hefur átt við ramman reip
að draga og Maurice og vanir menn,
sem fóm með honum, hafa stolið
senunni með hinu nýja auglýsinga-
fyrirtæki „New Saatchi Agency,“
sem hann hefur sett á fót.
Þegar Charles Saatchi lét af starfi
forstjóra í síðustu viku boðaði hann
málsókn gegn Saatchi & Saatchi,
sem hann sakaði um að hafa gert
stöðu sína óþolandi.
Skömmu áður vísaði dómstóll frá
einu af mörgum málum, sem Saatchi
& Saatchi hefur höfðað gegn Maurice
og Charles.
Síðan var tilkynnt að tveir þekktir
viðskiptavinir Saatchi & Saatchi
hefðu ákveðið að auglýsa hjá nýja
fyrirtækinu. Það mun því taka við
auglýsingum á Silk Cut-sígarettum
fyrir Gallaher-fyrirtækið í júlí og
kynningu á blöðum Mirror-samsteyp-
unnae 15. mars.
Salgætisfyrirtækið Mars íhugar
að flytja viðskipti sín frá Sáatchi &
Saatchi og British Airways hefur
boðið gamla fyrirtækinu og því nýja
að keppa um viðskipti við félagið upp
á 94 miUjóna dollara á ári.
Tölvukaup • Skeifunni 17 • Reykjavík • Sími 568 7220 • Fax 588 7260