Morgunblaðið - 05.03.1995, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Eftirlæti
íhaldsins
Barátta bandarískra republíkana fyrír for-
setakosningamar 1996 er hafín. Asgeir
Sverrisson segir frá öldungadeildarþing-
manninum Phil Gramm, sem hefur fullar
hendur fjár en er um margt óhefðbundinn
frambjóðandi
BANDARÍSKIR repúblík-
anar hyggjast fullgera
byltinguna í bandarísk-
um stjómmálum á næsta
ári þegar fram fara forsetakosning-
ar. Baráttan um útnefninguna er
þegar hafin og repúblíkanar era
sigurvissir eftir háðuglega og sögu-
Iega útreið Demókrataflokksins í
þingkosningunum í nóvembermán-
uði. Bob Dole, leiðtogi repúblíkana
í öldungadeildinni og hetja úr síð-
ari heimsstyrjöldinni, þykir standa
vel að vígi. En að undanfömu hef-
ur athygli manna beinst að Phil
nokkrum Gramm, öldungadeildar-
þingmanni frá Texas, sem uppfyllir
fyrsta skilyrðið í bandarískum
stjómmálum, fuliar hendur fjár, en
þykir öldungis laus við allt sem
kalla má persónutöfra.
Gramm hefur sjálfur sagt að
eiginkona hans hafi fyllst mikilli
undrun er hún barði þennan ófríða
mann fyrst augum. Hljóðið sem
hún hafí gefíð frá sér hafí líkst því
þegar menn meðtaka sérlega
bragðvonda fæðu. „Nú mun koma
í ljós hvort Bandaríkjamenn eru
tilbúnir til að kjósa jafn ófríðan
mann og mig í embætti forseta,"
sagði Gramm þegar hann tilkynnti
að hann hygðist sækjast eftir því
að verða útnefndur frambjóðandi
Repúblíkanaflokksins í forseta-
kosningunum haustið 1996.
Því fer fjarri að Gramm komi
heim og saman við sjónvarpsí-
myndina af bandarískum stjórn-
málamanni. Hann er kringluleitur,
sköllóttur og það verður seint um
hann sagt að hann sé maður skjá-
vænn. Hann er ekki hetja, kvæntur
konu af kóreskum ættum og þykir
á engan hátt hrífandi ræðumaður.
Gramm á hins vegar áhrifamikla
vini og fjölmarga aðdáendur. Hon-
um hefur tekist að ná til margra
með hinni gamansömu sjálfsgagn-
rýni sinni og náð að skapa þá
mynd að þar fari óhefðbundinn
stjómmálmaður, sem hugsar um
annað en að buna út úr sér tíu
sekúndna langri, grípandi setningu
í fréttatíma sjónvarpsstöðva (í
Bandaríkjunum er slíkt jafnan
nefnt „sound bite“ og segir það
allt um innihaldið).
í fótspor Reagans og Perots
Þessi stíll Gramms er hvorki nýr
né byltingarkenndur. Almenningur
í Bandaríkjunum hefur löngum
kunnað að meta stjómmálamenn
sem tala mál alþýðunnar og geta
gert grín að sjálfum sér. Vinsældir
Ronalds Reagans forseta komu
ekki síst til sökum þessa; hin írska
kímnigáfa og sagnahefð nýttist
honum vel í embætti. („Sagt er að
mikil vinna hafi aldrei orðið manni
að fjörtjóni en mér finnst ástæðu-
laust að taka áhættuna," sagði
forsetinn einhverju sinni er hann
var spurður hvort rétt væri að hann
tæki sér oftar frí en fyrirrennarar
hans). Harry S. Truman var al-
þýðumaður, kom ætíð fram sem
slíkur í forsetatíð sinni og komst
upp með það og vinsældir Ross
Perots, milljónamæringsins sem
bauð sig fram í forsetakosningnum
1992, er ekki síst að rekja til
„Texacana“-mállýskunnar sem
hann beitir svo listilega.
Líkt og Perrot og Truman talar
Gramm oft í skemmtilegum mynd-
líkingum. Hann boðar að leggja
beri niður ráðuneyti menntunar,
viðskipta og atvinnumála og vill
að velferðarkerfið verði l_agt til hlið-
ar í núverandi mynd. „Ég ætla að
biðja alla þá fullhraustu menn og
konur, sem eru í vagninum, að
hoppa af og hjálpa okkur hinum
að draga hann,“ sagði hann ein-
hveiju sinni er hann ræddi um
misnotkun velferðarkerfisins með
sínum sérstaka suðum'kjahreim
sem á rætur að rekja til Texas og
Georgíu.
Rétthugsun og samúð
Gramm fæddist ekki með silfur-
skeið í munninum, öðru nær. Móð-
ir hans var hjúkrunarkona, líkt og
móðir Bill Clinton en stjúpfaðir
hans var í hemum og varð ungur
öryrki. Fjölskyldan dró fram lífið
við fátæktarmörk og lítið virðist
hafa farið fyrir „samúð“ og „um-
hyggju", þessum hugtökum sem
setja þarf í samhengi við kalvinis-
mann þegar meta ber ítök þeirra
í bandarísku þjóðarsálinni.
„Ég hef aldrei háð baráttu gegn
öðrum en ríkum andstæðingi, sem.
átti ríka foreldra og messaði yfír
mér um hlutskipti fátæka fólks-
ins,“ sagði Gramm í tímaritsviðtali
á dögunum. „Ég vil hjálpa fólkinu
sem fær aðstoð frá ríkinu. Það er
ekki ég sem vil skaða þetta fólk.
Ríkisvaldið hefur skaðað þetta fólk.
Ríkisstjórnin hefur svipt þetta fólk
öllu frumkvæði og skert frelsi þess.
Ríkisstjórnin hefur grafíð undan
siðferðisvitund þessa fólks, svipt
það drifkraftinum og stoltinu. Ég
vil hjálpa þessu fólki til að öðlast
á ný það sem það hefur glatað.“
A þessum tímum pólitískrar rétt-
hugsunar er athyglisvert að
Gramm skuli láta slíkar setningar
frá sér fara og komast upp með
það. Ef til vill er það vegna þess
að hann er suðurríkjamaður og er
mótaður af þeirri menningu sem
þar ríkir sem er víðs fjarri ríkjandi
viðhorfum á austurströndinni. A
kosningafundi einum tók Gramm
upp dagblað þar sem gat að líta
mynd af fjölskyldu sem var á at-
vinnuleysisbótum: „Sjáið þið þessa
mynd? Hérna er mynd af þessu
fólki sem er að reyna að sleppa við
að verða hungurvofunni að bráð
og allir eru feitir... Bandaríkin eru
Reuter
PHIL Gramm ávarpar „gesti“ sína við upphaf fjáröflunarkvöld-
verðar sem hann efndi til á dögunum í Dallas í Texas. Miðinn
kostaði um 65.000 krónur.
eina landið í heiminum þar sem
allt fátæka fólkið er feitt.“ Ein-
hveiju sinni ráðlagði Gramm aldr-
aðri svartri ekkju að finna sér nýj-
an mann þegar hún kvartaði undan
því að geta ekki dregið fram lífið
af ellilaununum.
Gramm boðar byltingu í banda-
rísku samfélagi og er óhræddur við
að skora viðteknar skoðanir á hólm.
Af þessum sökum hefur hann verið
borinn saman við Margaret Thatc-
her, fyrrum forsætisráðherra Bret-
lands. Sjálfur hefur hann sagt að
hann hafí verið íhaldsmaður áður
en það varð „smart“ að vera íhalds-
maður. Hann hefur heitið því að
ná fram jöfnuði í rekstri ríkissjóðs
á fjórum árum verði hann kosinn
næsti forseti Bandaríkjanna.
Víetnam og
föðurlandshyggjan
Kristnir hægrimenn, einn öflug-
asti hópurinn innan Repúblíkana-
flokksins, hafa tekið framboði
Gramms fagnandi. Frambjóðandinn
gerir sér ljóst að stuðningur þessa
fólks er mikilvægur og gætir þess
að höfða til þess í ræðum sínum.
Hann hefur lýst sig hlynntan dauða-
refsingum, hann vill tryggja á ný
„réttindi“ byssueigenda í Bandaríkj-
unum og hann hefur sagt ótækt að
skattborgarar skuli standa straum
af kostnaði við fóstureyðingar. Öll
eru þessi málefni ofarlega í huga
kristnu hægrihreyfíngarinnar.
Á þingi hefur Gramm hins vegar
kosið að halda sér til hlés þegar
þessir málaflokkar hafa komið til
umræðu. Hann hefur fyrst og
'fremst haft áhuga á efnahagsmál-
um en hann lauk doktorsprófi í
hagfræði á sjöunda áratugnum og
slapp þar með við að gegna herþjón-
ustu. Líkt og fram kom í kosninga-
baráttunni 1992 getur reynst erfitt
fyrir frambjóðendur í Bandaríkjun-
um að standa frammi fyrir þeirri
gagnrýni að þeir hafí ekki uppfyllt
skyldu sína við föðurlandið, frelsið
og lýðræðið. Gramm hefur sagt að
hermálayfírvöld hefðu aldrei sent
hann til Víetnam hefði hann verið
kallaður í herinn. Hann hefði þvert
á móti endað sem enn eitt hagfræði-
menntaða möppudýrið í skrifstofu-
bákni vamarmálaráðuneytisins.
Bill Clinton stóð af sér þá gagn-
rýni að hafa komið sér hjá herþjón-
ustu og verið andvígur stríðinu í
Víetnam. Gramm kann að gera það
sama og hann leggur áherslu á að
hann hafi verið „hugmyndafræði-
lega samþykkur" styijöldinni í VI-
etnam.
Repúblíkanar eru á hinn bóginn
ákafiega þjóðhollir í bandarískri
merkingu þess orðs og því kann
svo að fara að Bob Dole geti kom-
ið höggum á öldungadeildarþing-
manninn frá Texas vegna þessa
fari svo að þeir keppi um að hljóta
útnefningu Repúblíkanaflokksins.
Dole er 19 árum eldri en Gramm,
71 árs, og visin hægri hönd hans
er til marks um fórnir þær sem
kynslóð hans færði við að frelsa
Evrópu undan oki nasismans og
sigra Japani. „Vera kann að kyn-
slóð mín hafi, nú í síðasta sinn,
nokkuð fram að færa,“ sagði Bob
Dole er hann tilkynnti að hann
hefði hug á að sigra Bill Clinton
og flytja inn í Hvíta húsið við
Pennsylvania-breiðgötuna í Wash-
ington D.C.
Peningarnir besti vinurinn...
Þótt forsetakosningar fari ekki
fram fyrr en eftir rúma 20 mánuði
er tíminn engu að síður naumur.
Mikilvæg prófkjör fara fram í febr-
úar og mars á næsta ári og til
þess að eiga möguleika í þeim er
það almennt viðurkennd staðreynd
að hver frambjóðandi þurfi þá að
eiga 20 milljónir dollara inn á
bankareikningi sínum. Söfnunin er
því þegar hafin. Gramm fór af stað
með glæsibrag, 2.500 moldríkir
vinir og stuðningsmenn mættu til
fiáröflunarkvöldverðar í Dallas á
dögunum og inntu af hendi 4,1
milljón Bandaríkjadala. Leikarinn
brosmildi Charlton Heston, annað
eftirlæti bandarískra íhaldsmanna,
tók á móti veislugestum og skýrði
viðstöddum frá helstu eiginreikum
gestgjafans. Og menn tóku upp
veskin. Aldrei áður í stjórnmála-
sögu Bandaríkjanna hefur einstakl-
ingur tekið á móti viðlíka framlög-
um og Gramm gerði þetta kvöld.
„Reiðufé er traustasti vinurinn í
bandarískum stjórnmálum," sagði
Gramm við þetta tækifæri. Hermt
er að hann hafi þegar safnað tíu
milljónum dollara.
Gramm kann að virðast dæmi-
gerður bandarískur erki-íhalds-
maður en sú lýsing er eingöngu
réttmæt að ákveðnu leyti. Fjöl-
skyldumyndin er að minnsta kosti
ekki hefðbundin. Eiginkona hans,
Wendy Lee, er af kóreskum ættum
og þykir skarpgreind. Hún er hag-
fræðingur líkt og eiginmaðurinn
og ákafur talsmaður hins fijálsa
markaðar. Hún hefur náð árangri
í starfí og nýtur virðingar sem
fræðimaður. Og líkt og eiginmað-
urinn er hún af óbrotnu alþýðufólki
komin, afí hennar var innflytjandi
frá Kóreu og starfaði við syk-
urframleiðslu.
Kosningavélar Gramms, Dole og
fleirir bandarískra repúblíkana eru
teknar að snúast. Óvarlegt er að
spá fyrir um niðurstöðuna en
keppni milli þeirra Gramm og Dole
yrði óneitanlega athyglisverður
pólitískur viðburður; þungavigtar-
maðurinn þaulreyndi, Dole, hold-
tekja valdsins, sem fetar meðalveg-
inn innan flokksins, gegn ófríða
götustráknum, uppáhaldi hinna
trúuðu.
Repúblíkanar eru ákveðnir í að
flæma Bill Clinton á brott úr Hvíta
húsinu en áður en þeir geta lagt
til atlögu við forsetann munu þeir
þurfa að beijast innbyrðis. Engin
ástæða er til að ætla að sú barátta
fari fram í bróðerni.
Kosið í Grænlandi
Stjórnar-
flokkum
spáð sigri
Kaupmannahöfn. Reuter.
BÚIST var við að grænlenska
stjórnin héldi velli í kosningum, sem
fram fóru þar í landi í gær.
Siumut-flokkur Lars Emils Jo-
hansens, forsætisráðherra græn-
lensku heimastjórnarinnar, sem er
miðflokkur, hefur stjórnað í sam-
starfi við vinstriflokkinn Inuit-
Ataqatigiit frá kosningunum 1991
er þeir hlutu samstals 56,7% at-
kvæða.
Snjóleysi á austurströndinni hef-
ur torveldað kosningabaráttuna
mjög að þessu sinni.
Glóandi
geimrusl
Boston. Morjpinblaðiö.
BANDARISKIR vísindamenn
hafa komist að því að torkennileg
geimský, sem um árabil hafa vald-
ið miklum heilabrotum, eru í raun
samsett úr geislavirkum efnum,
sem hafa lekið úr kjarnaklúfum
sovéskra gervihnatta, að sögn
The New York Times.
Geimruslið gæti valdið tals-
verðum skemmdum á gervihnött-
um. Geislavirknin gerir það ekki
hættulegt, heldur hraði þess í
geimnum. Hver dropi efnisins er
ekki nema 0,6 til 2 cm í þvermál,
en hraði þeirra er 10 km á sek-
úndu. Geta þeir því valdið miklum
skemmdumlendi þeir á fyrir-
stöðu. Árekstur við einn dropa
gæti eyðilagt gervihnött lendi
hann á viðkvæmum hluta hans.
Örtröð í 1.000 km hæð
Vísindamenn segja að árekstr-
ar af þessu tagi komi af stað
keðjuverkun. Lítill hlutur geti
brotið stóran í þúsund mola og
þannig fjölgi litlum brotum
geimruslsins á braut umhverfis
jörðu jafnt og þétt.
Sovétmenn sendu 33 kjarn-
orkuknúna gervihnetti til ryósna
frá árinu 1967. Þeir eru í um
1.000 kílómetra hæð og líða
gagnslausir um himinhvolfin.
Sovésku gervitunglin eru á
fjölförnustu brautinni um jörðu.
I álíka hæð er örtröð hnatta, sem
notaðir eru til siglinga- og flug-
umferðarsljórnunar, eftirlits,
veðurathuguna og rannsókna á
náttúruauðlindum jarðar.
-----♦-» 4---
Norska
krónan
sterkust?
Ósló. Morgunblaðið.
NORSKA krónan gæti orðið öflug-
asti gjaldmiðill Vestur-Evrópu þeg-
ar á þessu ári, að sögn sérfræðinga
bandaríska stórbankans Bankers
Trust Company.
Sérfræðingar bankans segja, að
Norðmenn standi miklu betur að
vígi í samanburði við aðrar Evrópu-
þjóðir hvað varðar fjárhagsstöðu
ríkissjóðs, erlendar skuldir og utan-
ríkisverslun. Til viðbótar komi nýtt
endurmat á olíuforða í Norðursjó.
Sérfræðingar bankans spá því,
að svissneski frankinn og finnska
markið verði í öðru og þriðja sæti
yfír styrkustu gjaldmiðla Evrópu.