Morgunblaðið - 05.03.1995, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995 9
FRETTIR
SKIÐASVÆÐIN
BLAFIOLL
Veðurhorfur:
Norðaustan kaldi eða stinnings-
kaldi. Bjart veður að mestu en ef
til vill dálítill skafrenningur framan
af degi. Frost 7-10 stig, heldur
harðnandi þegar líður á daginn.
Skíðafæri gott og nægur snjór. At-
hygli er vakin á því að lyfturnar í
Sólskinsbrekku, stólalyftan í Suður-
gili ásamt byrjendalyftu eru lokaðar
og einnig eru lyfturnar þrjár í Eld-
borgargili lokaðar vegna snjóflóða-
hættu. í Kóngsgili er stólalyftan
opin og einnig fjórar toglyftur sem
þar eru staðsettar.
Opið: Kl. 10-18 fös., laug. og sun.
Á þri., mið. og fim. er opið kl. 10-22.
Upplýsingar í síma 91-801111.
Skíðakennsla er allar helgar og
hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30,
15.00 og 16.30 og stendur í D/2
klst. í senn.
Ferðir: Sérleyfisferðir Guðmundar
Jónssonar sjá um daglegar áætlun-
arferöir þegar skíðasvæðin eru opin
með viðkomustöðum víða í borg-
inni. Uppl. eru gefnar í síma 683277
eða hjá BS( í sími 22300. Teitur
Jónasson hf. sór um ferðir frá Kópa-
vogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Upp-
lýsingar í síma 642030.
SKALAFELL
Veðurhorfur: Norðaustan stinn-
ingskaldi. Bjart veður að mestu en
líklega skafrenningur. Frost 7-10
stig, heldur harðnandi þegar líður á
daginn.
Skíðafæri ágætt, nægur snjór.
Opið: Kl. 10-18 fös., laug. og sun.
Á þri., mið. og fim. er opið kl. 10-22.
Upplýsingar: í síma 91-801111.
Skíðakennsla er allar helgar og
hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30,
15.00 og 16.30 og stendur í 116
klst. í senn.
Ferðir: Sjá Bláfjöll.
KOLVIOARHOLSSVÆÐI
Veðurhorfur: Norðaustan stinn-
ingskaldi. Bjart veður að mestu en
líklega skafrenningur. Frost 7-10
stig, heldur harðnandi þegar líður á
daginn.
Skíðafæri: Gott skíðafæri.
Opið: Kl. 10-18 fös., laug. og sun.
Á þri., mið. og fim. er opið kl. 10-22.
Upplýsingar í síma 91-801111.
Ferðir: Sjá Bláfjöll.
ISAFJORÐUR
Veðurhorfur: Norðaustan stinning-
skaldi og él fram eftir morgni en
heldur hægari og bjartara veður
þegar líður á daginn. Frost 6-9 stig.
Skíðafæri gott og nægur snjór.
Opið: Tvær skíðalyftur í Tungudal
eru opnar í dag laugardag frá kl.
13-17. Einnig er opið á sunnudag
kl. 10-17. Ath. gönguskíðabrautir
eru troðnar í Tungudal.
Upplýsingar: í síma 94-3125 (sím-
svari).
AKUREYRI
Veðurhorfur: Norðan stinningskaldi
eða allhvass og éljagangur, þó lík-
lega heldur hægari og minnkandi
él þegar líður á daginn. Frost 8-12
stig.
Skfðafæri gott og nægur snjór.
Opið: Virka daga kl. 13-18.45 og
laugar- og sunnudaga kl. 10-17.
Upplýsingar í síma 96-22930 (sím-
svari), 22280 og 23379.
Skíðakennsla: Um helgina frá kl.
12 og á klst. fresti eftir þátttöku.
Ferðir á svæðið á virkum dögum
kl. 13.30, 15.30 pg 16.30 og síðasta
ferð kl. 18.30. í þæinn er síöasta
ferð kl. 19.
Lögmaður Sophiu
á leið til Islands
HASÍP Kaplan, tyrkneskur lögmað-
ur Sophiu Hansen, kemur til íslands
á miðvikudagskvöld. Umgengnis-
réttur Sophiu og dætra hennar hef-
ur verið brotinn hátt í 50 sinnum.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá átakinu Börnin heim að þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir lögmanns-
ins til að fá tyrknesk stjórnvöld í
Ankara til að staðfesta málsskjöl
sem íslensk stjórnvöld hafa gefið
út og undirritað hafi honum ekki
tekist að koma því í kring.
„Staðfesting á þessum skjölum
ef hún fæst í Tyrklandi verður ekki
tilbúin fyrir réttarhöldin 16. mars
nk. Er nú ljóst að það verður ekki
hjá því komist að Hasíp Kaplan
komi til Islands til að fá ný skjöl
hjá íslenskum yfirvöldum, sem dóm-
arinn í Istanbúl tekur gild fyrir
dómi,“ segir í fréttatilkynningunni.
Lýkur fyrri hluta
einsöngsprófs
ERLA Berglind Einarsdóttir, lý-
rískur sópran, flytur Ljóðaljóð
Páls ísólfssonar, Kantötu eftir
Haydn og Konsertaríu eftir Moz-
art í Langholtskirkju klukkan 17
í dag. Tónleikarnir eru fyrrihluti
af einsöngvaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík.
Erla Berglind var nemandi
Valgerðar Gunnarsdóttur í Söng-
skólanum í Reykjavík. Síðar varð
hún nemandi Siglinde Kahmann
og hefur verið hjá henni allar
götur þar til hún er nú að ljúka
einsöngvaraprófi.
Síðari hluti einsöngvaraprófs-
ins fer fram með tónleikum í
Norræna húsinu 20. apríl í vor.
A þeim tónleikum verður ein-
göngu fluttur Ijóðasöngur.
Verslunarfólk á
Hornafirði felldi
Höfn. Morgunblaðið.
DEILD verslunar- og skrifstofufólks
í verkalýðsfélaginu Jökli á Höfn í
Hornafirði felldi samhljóða nýgerðan
kjarasamning við vinnuveitendur.
Deild iðnaðarmanna samþykkti hins
vegar samningana með 75 atkvæð-
Sögusvunta sýn-
ir „í húfu guðs“
BRÚÐULEIKHÚS Hallveigar
Thorlacius, Sögusvuntan, sýnir „í
húfu guðs“ á Frikirkjuvegi 11 kl.
15 í dag.
Sýningin höfðar best til barna á
aldrinum 3 til 8 ára.
um gégn 25, en áður hafði deild
verkafólks samþykkt samninginn
með 60 atkvæðum, tíu voru á móti
og 30 sátu hjá.
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, for-
maður Jökuls, sagðj að mjög góð
mæting hefði verið á fund deildar
verslunar- og skrifstofufólks og
samstaða verið um að fella samning-
ana. Hún sagði að komið hefði fram
mikil óánægja með hvað launakjörin
væru lág og að fólk vildi ná meiru
fram.
Hún sagði að það næsta sem
myndi gerast væri að óskað yrði
eftir viðræðum við vinnuveitendur
um kjarasamning í framhaldi af
þessari niðurstöðu.
Sirkusinn guðdómlegi
^SÍorska óperan °
Borgarleikhúsið 9. og 10. mars 1995 kl. 20:00
Frumfiutningur á nýrri uppfærslu óperunnar Sirkusinn guðdómlegi eftir danska
tónskáldið Per Nprgárd. Leikstjóri Per Fosser. Óperan segirfrá lifshlaupi Adolfs
Wölfli ( 1864-1930) sem í verkum sínum skapaði sér nýja persónu og nýja æsku til
að bæta sér upp ömurlegan og illbærilegan raunveruleikann.
Aðeins þessar tvær sýningar
Miðapantanir hjá Borgarleikhúsinu í síma 680 680
Norden i ísland
STEINAR WAAGE
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN ^
KRINGLAN 8-)2 SÍMI 6892)2 ^
SKOVERSLUN
EGILSGÖTU 3 SÍMI 18519