Morgunblaðið - 05.03.1995, Side 24
24 SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
eftir Elínu Pólmadóttur
Fólkið var enn að tala um
þessa afbragðs 40 ára
afmælisveislu fyrirtækis-
ins í Skíðaskálanum, þeg-
ar blaðamaður kom í þetta rúm-
góða þjarta hús í Skútuvogi 11, sem
byggt var yfir sameinaða starfsem-
ina eftir að Lystadúnshúsið brann
1987.
Það leiddi tal okkar Ögnu að
upphafinu, þegar Halldór Jónsson
stofnaði heildverslun með fatnað
frá Bandaríkjunum 1. febrúar 1955
í lítilli kytru uppi á lofti í Hafnar-
stræti 8. Halldór hafði verið full-
trúi hjá Tollstjóra, en hætti því
brátt, enda hafði hann fljótlega
lagt undir sig alla efri hæðina.
Reksturinn breyttist yfir í innflutn-
ing og sölu á snyrtivörum og hann
fékk umboð fyrir Wella-hársnyrti-
vörur. Á árinu 1961 hóf Halldór
viðskipti við danska fyrirtækið
Lystager, sem hófst með innflutn-
ingi á svampi fyrir íslenskan hús-
gagnaiðnað. Úr því varð Lystadúnn
hf.
Sem við göngum um húsakynnin
heilsar hver maður Ögnu með hlýju
og hún segir alltaf: Eg má til með
að kynna þig fyrir honum Frey
Magnússyni, honum Sævari Snæ-
bjömssyni, sem eru búnir að vera
hér í 28 ár. Og flestir virðast hafa
verið þar í 20-30 ár. Þarna eru enn
starfandi þrír starfsmenn yfír sjö-
tugt og síður en svo amast við
þeim. Þegar ein stúlkan kvaðst
hafa verið þar „stutt“, bætti hún
við: „En verð lengi“. Andrúmsloftið
er sérstaklega hlýlegt og mjög per-
sónulegt, enda segja þeir mér sem
lengst hafa verið að svo hafí alltaf
verið, frá því Halldór Jónsson var
við stjómvölinn. Enn fer allt starfs-
fólkið í ferðalög og gerir sér saman
dagamun. Agna kveðst vera svo
heppin að hafa alltaf haft þetta
afbragðs starfsfólk, sem stóð þétt
með henni eftir að Halldór dó og
eftir brunann í Lystadún og gegn-
um uppbygginguna. Hún þekki það
líka flest svo vel. „Mér fínnst þau
vera eins og börnin mín,“ segir
hún. Og þeir sem til heyra taka
undir það, að þeim fínnist það líka.
Arsveltan tvöfaldast
Nú er ársvelta Halldórs Jónsson-
ar hf. 260 milljónir kr. og Lysta-
dúns 115 milljónir og starfsmenn
eru 42. Veltuaukning þess fyrr-
nefnda segir Kristján framkvæmda-
stjóri að sé að tvöfaldast á þessu
ári í kjölfar tollabreytinganna.
Starfsemin hefur breyst. Meðan
tollamir voru 80-90% á snyrtivörun-
um og öðrum vamingi, var flutt inn
í plasttunnum og áfyllt eða jafnvel
framleitt. Eftir að fyrirtækið fékk
umboð fyrir hinar heimsþekktu
hársnyrtivörur Wella á árinu 1960,
fór það m.a. út í að framleiða eftir
efnauppskriftum frá Wella. Nú er
starfsemi á staðnum meira stoð-
deild, þar sem settar eru á íslensk-
ar merkingar, leiðarvísar o.fl. Enn-
þá er þó framleitt þama rakspíri,
baðfroða o.fl. Smám saman var
farið í að flytja inn og ganga frá
ýmsu sem þótti eiga heima með
þessum varningi, svo sem dömu-
bindi, pappírsservíettur, sokkar o.fl.
Og í hluta Lystadúns-Snælands er
framleiddur svampurinn, sem skor-
inn er eftir hendinni og saumuð
yfír áklæði.
Um Halldór Jónsson fertugan
Okkur langar að flytja lítinn brag
um Halldór Jónsson, fertugan
„Halldór, Halldór."
I Hafnarstræti hann óx úr grasi
strax var keyrt á fullu gasi.
Stanslaus vinna, stækka, dafna
um að gera sölumönnum safna
Fjöldi, þrengsli, breyting
allt var komið á þeyting
o.s.frv.
sungu starfsmennirnir í afmæl-
inu um daginn og léku undir á til-
sniðin og heimagerð svamphljóð-
færi. Agna minnist þessara fyrstu
ára, þegar hún stóð í 12 tíma á dag
í kjallaranum heima hjá sér með
tvær aðstoðarkonur og fyllti á glös
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
AGNA Jónsson fyrir framan hús fyrirtækjanna í Skútuvoginum.
BREYTING
ÞEYTING
msamiKPnsmSs
ÁSUNNUDEGI
► Agna Jónsson er stj órnarf ormaður og aðaleigandi
fyrirtækjanna Halldór Jónsson hf. og Lystadúns. Hún
tók við fyrirtækjunum eftir lát manns síns, Halldórs
Jónssonar, sem stofnaði það fyrrnefnda fyrir réttum
40 árum. Og þótt Agna sé nær áttræðu tekur hún enn
þátt í rekstrinum og kemur þar daglega. En fyrirtæk-
in eru alltaf að færa út kvíarnar, byggja upp, breyta
rekstri eftir aðstæðum, bæta við og tengjast fyrirtækj-
um.,1991 rann fyrirtækið Pétur Snæland saman við
Lystadún og 1. sept. sl. kom inn í Halldór Jónsson
hf. umboð bandaríska snyrtifyrirtækisins Sebastian
og fleiri umboð. „Agna fylgist með öllu, er aldrei
hemill á neitt, stendur 100% bak við okkur í öllum
nýjungum og því sem við erum að gera,“ segir fram-
kvæmdasíjórinn, Krislján S. Sigmundsson.
hárgreiðslu- og snyrtivörur, heima-
lagaða varaliti og naglalakk. Hall-
dór sá 'um reksturinn og hafði tvo
sölumenn. Freyr, sem er sölumaður
af guðs náð, eins og Agna segir,
er nú innkaupastjóri. Þá bjuggu
þau Halldór í Barðavogi 44 og
fluttu sig svo í hinn enda götunnar
þar sem Agna býr enn í einbýlishús-
inu þeirra.
Þegar fyrirtækið var stofnað
hafði Agna verið á íslandi frá
haustinu 1945. Hún er fædd og
uppalin í Danmörku, skammt frá
Ringköbing. Hún hafði ung farið
til Kaupmannahafnar og vah út-
skrifuð frá hinu fræga smurbrauðs-
fyrirtæki Oscar Davidsen. Síðan
var hún í mörg ár kokkur á hinu
þekkta veitingahúsi Frascatti í
Höfn. Þar kynntist hún íslenskum
vinnufélögum. „Ég var ung og
langaði til að sjá heiminn," segir
Agna. Og hún byrjaði á íslandi.
Hafði jafnvel gælt við þá hugmynd
að fara áfram til Bandaríkjanna
og hafði í bakhöndinni meðmæla-
bréf. Á íslandi vann hún á sumrin
á Hótel Garði, en að vetrinum tók
hún að sér veislur, með köldu borði
eða heitum réttum. Og á Garði hitti
hún Halldór Jónsson, sem borðaði
þar. Halldór hafði orðið stúdent
1941 og farið í lögfræði í Háskólan-
um. Þar með var tengingnum kast-
að. Þau giftu sig í janúar 1948.
Örlygur Sigurðsson lýsir svo
komum þeirra samstúdentanna í
hið nýstofnaða fyrirtæki skólabróð-
urins Halldórs, sem þekktur var
þá og síðar að elskulegum við-
brögðum: „Það var alltaf hlýtt og
notalegt að líta inn á skrifstofu
hans í hinu aldna húsi númer 18
við Hafnarstræti, sem er samsett
af þremur ævafornum hússkriflum,
þar af einum gömlum selstöðu-
hjalli allar götur sunnan úr Kefla-
vík, Jakobeusarhús, sem síðar hét
Nýhöfn. Þar andar hver biti og við-
arborð af liðinni tíð og gengnum
gaurum, faktorslykt. Þar marrar í
hverju þrepi, þegar genginn er stig-
inn upp á loft, eins og til að minna
okkur á fallvaltleikann á svikulum
og ótryggum tröppugangi lífsins.
Þar uppi á loftskörinni var jafnan
gamall og traustur fjallabóndi aust-
an af landi sem lagersveinn Hall-
dórs. Tvær og þrjár tiplandi tátur
úr Reykjavtk slógu á ritvélar og
samlagningamaskínur með ryth-
mískum jazzslætti. Og sjálfur
fuldmægtiginn Kristján Zoéga í
réttri umgjörð forfeðranna, dan-
skra og ítalskra kjöbmanna, sveitt-
ist við margvíslegar færslur með
koparstungu rithendi, eins og skrif-
arinn á Stapa.“
Veröld sem var, verður manni
að orði eins og Örlygi þegar geng-
ið er um stóra glæsihúsið í Skútu-
voginum, þar sem vítt er til veggja
og þægindi fyrir starfsfólk. Sölu-
og sýningarsalur fyrir Lystadún og
uppi stór kennslusalur, þar sem
haldin eru námskeið og sýnikennsla
fyrir notendur hárgreiðsluvaranna
og snyrtivörumerkja sem fyrirtæk-
ið flytur inn. Getur rúmað 100
manns. Útlendingar koma þar títt
til að kynna nýjungar og í við-
skiptaerindum. Og lengst af hefur
Agna tekið persónulega á móti
þeim á heimili sínu.
Toppurinn á
dönsku exporti
Um tilkomu Ögnu skrifaði
Örlygur: „Halldór er mikill gæða-
og greiðamaður og lánsmaður að
eignast aðra eins afbragðskonu og
Ögnu. Önnur eins matreiðslukona
er vandfundin. Danskar konur
þykja kvenna beztar um alla saðn-
ingu, matarlega og ástarlega. Þær
eru og hafa verið toppurinn á
dönsku exporti til íslands alla tíð...
Þær dönsku fluttu með sér meira
en matgerðarlist, þær fluttu með
sér hjartavarma til okkar ísakalda
lands, menning, þokka og „Hjemm-
ets Hygge“ og síðast en ekki síst
Húmör. Þar er frú Agna engin
undantekning. Þær eru það varan-
legasta og bezta, sem frá Dan-
mörku hefur komið, þegar þær
hafa setzt hér að á annað borð,
fyrir utan handritin."
Þetta geta allir sem kynnst hafa
Ögnu Jónsson tekið undir. Fram á
þennan dag hefur hún verið að
gefa af sér og leggja gott til mála
eins og ekkert væri sjálfsagðara,
eins og þau hjónin gerðu bæði
meðan Halldórs naut við. Hún hef-
ur starfað mikið í Sjálfstæðis-
flokknum, í Dansk kvindeklub og
í Thorvaldsensfélaginu, lengst af
afgreitt þar í sjálfboðavinnu á bas-
arnum einu sinni í viku. Hún er
vinmörg, kveðst í 20 ár hafa verið
í saumaklúbb með dönskum vin-
konum og skólasystkini Halldórs,
þessi skemmtilegi hópur, hefur
hana alltaf með, eins og hún orðar
það. Hún hefur því unað sér vel á
Islandi og datt ekki í hug að selja
og fara heim til Danmerkur og
hafa það gott meðal ættmenna
sinna þegar Halldór féll frá 1977,
eins og ýmsir töldu þó víst.
Byggt upp eftir brunann
„Eg kann svo vel við mig hér.
Ég var búin að standa í svo mikilli
vinnu við þetta fyrirtæki og gat
>
;
I
i
\
>
>
>
>
>
>
i
i
i
i