Morgunblaðið - 05.03.1995, Side 31

Morgunblaðið - 05.03.1995, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995 31 FRÓÐIBJÖRNSSON + Fróði Björns- son, fyrrver- andi flugstjóri, var fæddur í Reykja- vík, 19. janúar 1938. Hann lést í Reykjavík hinn 27. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Björn Franz- son, f. 1906, d. 1974, og Ragna Þorvarðardóttir, f. 1904, d. 1991. Björn Franzson var sonur Franz Johanness- en, sem var maður norskrar ættar, og Guðrúnar Björnsdóttur frá Dalvík. Björn var mjög greindur maður. Hann var m.a. kennari, þing- skrifari og útvarpsmaður. Björn var vel lærður í tón- menntum, tungumálum, stærð- fræði og eðlisfræði. Rit hans, Efnisheimurinn, kom út árið 1938. Þorvarður faðir Rögnu, útgerðarmaður í Keflavík, var Þorvarðarson, Helgasonar beykis í Keflavík, en Helgi var m.a. prentari í Viðey. Mfóðir Þorvarðar var Guðrún Högna- LEIÐIR okkar Fróða lágu fyrst sam- an á golfvellinum. Það eru ekki nema u.þ.b. 10 ár síðan. Vorum því báðir komnir á þann aldur þegar við eign- umst flestir enn nýja kunningja - síður nýja vini. Þó átti ég eftir að telja Fróða í hópi þeirra, sem mér þótti mest um vert að hafa kynnst. Sem mér þótti vænt um að geta kailað vin. í fyrsta skipti sem við lékum sam- an mætti hann til leiks með Davíð Helga á móti okkur Emi. Hann var óaðfinnanlegur til fara, beinn í baki og heilsaði formlega. Virkaði dálítiö stífur og alvörugefinn. Ekki man ég lengur hvernig þessi fyrsti leikur okkar fór svo sennilega höfum við Örn tapað honum. En þær áttu eftir að verða fjölmargar, stundimar sem við áttum saman á golfvellinum. Bæði hér heima og erlendis. Skoðun mín á Fróða átti eftir að breytast mikið. Reyndar var hann alltaf dálítið formlegur. Það var hans eðli. En ég átti eftir að kynnast og læra að meta ýmsa kosti, sem hann bjó yfir, en hampaði þó ekki. Hann var, þrátt fyrir skrápinn, hlýr að eðlisfari. Fljúgandi greindur, gamansamur og afar orðfímur. Við lékum aldrei neitt iljastrokugolf, félagarnir. Það var til siðs að vera hæfilega stóryrtur. Láta ýmislegt flakka og stundum gátu þau skeyti orðið býsna skæð. í þeim leik stóð Fróði engum að baki. Eld- fljótur að hugsa, næmur á hið spaugilega, beinskeyttur og jafnvel harðskeyttur - en alltaf smekkvís. Fróði gerði á golfvellinum öll þessi hefðbundnu mistök okkar meðal- Jónanna. Hitti vel eða illa á víxl. Átti sína góðu daga og líka hina. En í einu var hann þó óskeikull. Agi hans og virðing gagnvart golfregl- unum voru einstök. Það var óhugs- andi að hann slakaði þar nokkru sinni á ýtrustu kröfum. Stytti sér leið eða færi á svig við hina smæstu reglu golfsins, skráða eða óskráða. Þannig hygg ég að Fróði hafi einnig verið í lífi sínu og öllu því, sem hann tók sér fyrir hendur. Hvik- aði ekki frá því sem hann taldi rétt. Ekki hársbreidd. Gerði miklar kröfur til þeirra sem hann umgekkst. Ýtrustu kröfur til sjálfs sín. Kannski gat hann því aldrei orðið að skapi allra. Hafði heldur ábyggilega engan áhuga á því. En með vinum sínum stóð hann eins og jarðfastur klettur. Drengskapur hans var óbrigðull. Við fréttum af því félagar Fróða í golfklúbbnum á jólaföstunni, að sjúkdómurinn hefði tekið sig upp á ný. Að nú myndi líklega ekki þurfa að spyija að leikslokum. Tókum okkur því saman nokkrir og litum í heimsókn á aðfangadag. Við stopp- uðum ekki lengi. Kraftar hans fóru þverrandi og við svo sem bara komn- ir til að kveðja. Ekki var rætt um það, sem öllum var þó efst í huga. dóttir úr Skorradal. Móðir Rögnu var Margrét Arinbjam- ardóttir frá Tjam- arkoti í Innri- Njarðvík. Ætt hennar er úr Njarð- víkum og Keflavík, úr Reykjavik, Kjal- arnesi og Kjós. Árið 1962 kvænt- ist Fróði Hólmfríði Kofoed-Hansen, f. 20. júní 1941. Þau skildu árið 1980. Börn þeirra era Hallveig, f. 1. júlí 1963, starfsmaður Búnaðarfé- lags íslands, Ragna, f. 30. sept- ember 1964, stundar nám í Samvinnuháskólanum í Bifröst, Björn, f. 13. maí 1966, starfs- maður í Prentsmiðjunni Odda hf. í Reykjavík og Hólmfríður, f. 26. febrúar 1975, nemandi í Brussel í Belgíu. Jóhannes Vig- gósson, lögregluþjónn og Ragna Fróðadóttir eiga tvö börn, Huldu Rún og Fróða. Útför Fróða fer fram frá Langholtskirkju á morgun og hefst athöfnin kl. 10.30. Við spjölluðum um golfið, utanferð- irnar og minningar gamlar og nýjar. Glæsileg högg og nýja golfsettið hans Sigga Sigfreðs. Nokkrar gam- ansögur látnar fjúka. Fyrir ókunn- ugan hefði þetta sjálfsagt getað ver- ið venjuleg kurteisisheimsókn að sjá. Nema kannski fyrir það að við erum víst ekki vanir að halda hver utan um ahnan þegar við kveðjumst, þess- ir gömlu skrápar, eða að þurfa að ræskja okkur á leiðinni út. Fyrir hönd okkar félaganna votta ég bömum Fróða, öðrum aðstand- endum hans og vinum öllum innilega hluttekningu. Georg H. Tryggvason. Frá því ég man eftir mér hef ég þekkt Fróða Björnsson. Við vomm nágrannar í bernsku og ég held að vinátta okkar hafi orðið til þess að vinátta tókst með foreldrum okkar. Hann var tápmikill drengur, hug- kvæmur, framkvæmdasamur og mikill prakkari, en aldrei ótugt. Per- sónutöfrar hans voru miklir og nýtt- ust okkur vel þegar við áttum skilið átölur og refsinga. Tíu ára gamall fluttist hann til Svíþjóðar með for- eldrum sínum og bjó þar í fimm ár. Eftir heimkomu þaðan tókum við aftur upp þráðinn og gættum þess upp frá því að hann slitnaði ekki. í Svíþjóð hafði hann sótt skóla þar sem afburðanemendur fengu notið hæfileika sinna og settist í 4. bekk MR í samræmi við kunnáttu sína. Líklega hefur það verið misráðið. Hann var tveimur árum yngri en bekkjarsystkinin, fann sig illa í hópnum og flosnaði upp frá námi, Eftir það settist hann í tónlistar- skóla og lærði á píanó, en ákvað síðan að læra flug. Hann varð fljótt flugmaður hjá Loftleiðum og fékk þar skjótan frama, var orðinn flug- stjóri þrítugur. Árið 1976 fékk hann hjartaáfall og missti þá flugstjórnar- réttindin. Hann tók því af karl- mennsku og hóf strax nám í öld- ungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð og lauk því með glsæi- brag á skömmum tíma og varð dúx á stúdentsprófi. Eftir það settist hann í lagadeild Háskólans og lauk þar öllum prófum fyrstu þijú árin. Þá hafði gripið hann mikill áhugi á tölvum og með sjálfsnámi hafði hann aflað sér slíkrar þekkingar að hann var ráðinn forstöðumaður tölvudeild- ar Radíóbúðarinnar hf. Hann sá því ekki lengur tilgang í að ljúka laga- prófi sem hann hefði vafalaust auð- veldlega gert hefði hann kosið. Eftir það starfaði hann við tölvur, nú sein- ast við að koma hæstaréttardómum í tölvutækt form. Fróði Björnsson var um margt einstakur maður. Hann var glæsi- menni, grannur og stæltur, Ijós yfir- litum og svipurinn bjartur. Mér hafa alltaf fundist þessar Ijóðlínur Gríms MINNINGAR Thomsen eiga fullkomlega við um Fróða: Skírt var yfírlitið bjarta, hið ytra þar hins innra naut. Kurteisi og prúðmennska voru honum eðlislæg og einkenndu alla framkomu hans. Hann var dulur og fáir ef nokkrir munu hafa þekkt hann til hlítar. Yfírburðagreind og skarpskyggni duldust þó engum sem þekkti hann. Hann var listelskur og þar skipaði tónlistin heiðurssess. Hann var óvenju geðfelldur maður og gaman að ræða við hann, óhemju víðlesinn og að því er virtist alls stað- ar heima. í lífi Fróða skiptust á skin og skúrir meira 'en gengur og gerist. Um tíma hló heimurinn við honum, en síðar dundu á honum áföll sem erfítt var að venjast. Fyrri rúmum tveimur árum þurfti hann að gang- ast undir hjartaaðgerð og þá uppgöt- vaðist illkynja mein sem kallaði á aðra erfiða skurðaðgerð. Veik von var þó um varanlegan bata, en hún brást á þessum vetri. Hann krafðist ávallt og fékk fullkomna vitneskju um stöðu sjúkdómsins. Vegna starfs míns hef ég oft kynnst og undrast hversu margir bregðast vel við vá- legum tíðindum. Viðbrögð Fróða ein- kenndust af hetjulund. Hann ræddi um sjúkdóm sinn af fullkomnu æðru- leysi, gerði sínar ráðstafanir og lét síðan hveijum degi nægja sína þján- ingu. Eitt af því síðasta sem við ræddum var hvað skipti máli í þessu lífi og vorum við sammála um að þar væri barnalán líklega efst á blaði. Það átti Fróði Bjömsson. Þau umvöfðu hann kærleika og fylgdu honum fast að landamærum líf og dauða. Láti Guð honum nú raun lofí betri. Tryggvi Ásmundsson. Minnast vil ég vinar míns síðan á unglingsárum, Fróða Bjömssonar, sem lést um aldur fram 27. febrúar sl. Margt spjölluðum við spaklegt á menntaskólaárunum, ræddum og deildum um vandamál lífs og dauða, þóttumst leysa sum. Og létt áttum við með síðustu samræðumar um daginn, sem jafnan, þótt okkur væri minna niðri fyrir en forðum daga. Þrátt fyrir veikindi Fróða og þverr- andi þrek, grunaði mig ekki að fjór- ir dagar væm eftir af liðlega fjög- urra áratuga kynnum okkar. Við höfðum mælt okkur mót við borðið undir glerlistarverki Leifs Breiðfjörðs, og þar sátum við að tali góða stund. Fróði hafði fundið í fómm sínum gamalt fjögurra blaðs- íðna bréf frá mér, veðurfræðinema í Ósló, sent honum til Englands þar sem hann stundaði flugnám. Við vorum um tvítugt og dæmt eftir þessu bréfi, frá þeim tíma er lífsgleð- in ríkti og óendanleg framtíðin blasti við, höfum við verið mjög andríkir, mælskir og fyndnir. Meira að segja var að sjá sem við hefðum breytt tímatalinu, „líklega yfír það hafnir" sagði Fróði um daginn. I lok skilnaðarstundar benti Fróði mér á málverk eftir Ásgrim Jónsson sem hékk á vegg í salnum. Við dáð- umst að landslaginu, vatni, fjalli, undirlendi og í fjarska virtist móta fyrir snævi þakinni Heklu sem við ætluðum einhvern tímann að ganga á saman. En framtíðin blasir ekki við með sama hætti og áður. í stað Heklugöngu slást með í för hugans minningar um góðan vin sem var samur og jafn hvort sem liðu vikur, mánuðir eða ár milli samfunda okk- ar. Fróði Björnsson ólst upp á menn- ingarheimili foreldra sinna, frú Rögnu og Björns Franzonar rithöf- undar. Björn var Iærður maður á mörgum sviðum, einkum náttúruvís- indum og tónfræðum. Hann var rit- stjóri merkrar alfræðibókar, sem nefnist „Undur veraldar“, var lengi tónlistargagnrýnandi og fékkst við margvísleg önnur ritstörf. í þá daga kunni Fróði ekki að meta þá tónlist sem faðir hans hlust- aði á og rannsakaði, en þeim mun meiri varð áhuginn þegar unaðs- heimar tónlistarinnar lukust upp fyr- ir honum rúmlega tvítugum. Hann lagði stund á tónlistamám um skeið, kunni vel á píanó og hlustaði alla tíð mikið á tónlist. Snemma tók hann ástfóstri við „B-in“ þrjú, Bach, Beet- hoven og Brahms, og hafði nýlega á orði að eiginlega hafí hann ekki komist lengra. Fróði var á menntaskólaaldri þeg- ar foreldrar hans fluttu heim frá Svíþjóð. í Reykjavík var þá einn skóli um hituna á menntaskólastigi og kennsla öll í fastari skorðum en nú tíðkast. Þótt Fróði kynni margt fyrir sér úr skóla sínum í Svíþjóð, kom honum það lítt að gagni ef það féll ekki að námskrá í eina mennta- skóla höfuðstaðarins. Óhugsandi var t.d. í þá daga að láta sænsku koma í stað dönsku. Fróði sagði síðar að hann hefði ef til vill átt að hefja nám hér heima einum bekk neðar, í hópi jafnaldra sinna, í stað þess að miðað var við menntunarstig hans í Sví- þjóð. Fróði venti kvæði sínu í kross og ákvað að stefna að flugnámi. Flugstjóm varð síðan hans starfí um áratugi, en löngu seinna er hann var hættur störfum við flugið tók hann stúdentspróf í öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð. Hálfnaður var hann með lögfræði þegar hann ákvað að byija í vinnu á ný. Hann réð sig til Radíóbúðarinn- ar. Var það um þær mundir sem Macintosh-tölvur frá „Apple“-fyrir- tækinu fóm sigurför um heiminn og voru kynntar fyrir Radíóbúðinni. Mun Fróði hafa unnið einna ötulleg- ast, framheijaár Macintosh-tölva hér á landi, að því að auka vinsæld- ir og útbreiðslu vélanna. Fróði var síðan nokkur ár framkvæmdastjóri Tölvustofunnar og að svo búnu vann hann enn um nokkurn tíma að tölv- um, þar til hann veiktist. Fróði undi hag sínum vel úti í guðs grænni náttúranni, stundaði löngum göngur, og fjallgöngur. Fáir trúi ég að hafí klifið Esju oftar en - hann. Hann var dýravinur og taldi þá tíma koma, að menn drepi ekki dýr. Eitt sinn gengum við á unglings- áram eftir hitaveitustokkunum frá Öskjuhlíð og þaðan sem leið lá yfír Elliðaárdal og upp í Ártúnsbrekku. Þetta þótti þá svo löng leið að eldri skólabróðir okkar einn sem kom þarna akandi með splunkunýtt öku- skírteini klínt upp að framrúðunni, spurði hvort við væram með öllum mjalla. Svo mælti hann, en við héld- um áfram göngu okkar og kapp- ræddum um alheiminn og skiptumst með mikilli orðfími á hlutverkum með eða móti Helga Pjeturss. Þann- ig minnist ég nú samvera okkar Fróða er við voram ungir og fóram fijálsum huga um alheiminn, en í ævistarfi létum við okkur nægja loft- hjúp jarðar, Fróði á flugi og ég í veðurfræðinni, sem kölluð hefur ver- ið þerna flugsins. Með þökk í huga minnist ég einnig samstarfs okkar í um það bil tvö ár á sviði tölvunotk- unar. Fyrir hönd fjölskyldu minnar votta ég dýpstu samúð börnum Fróða heitins, og öðrum vandamönn- um, í söknuði þeirra. Blessuð sé minning Fróða Bjömssonar. Þór Jakobsson. • Fleirí minningwgreinar um Fróða Björasson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. SIGRÍÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR + Sigríður Frið- riksdóttir fædd- ist í Ólafsfirði hinn 30. júní 1917. Hún lést á gjörgæslu- deild Borgarspítal- ans mánudaginn 27. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar Sig- ríðar vora Friðrik Jónsson, fæddur 6. janúar 1883, og Ingibjörg Sveins- dóttir, fædd 28. ág- úst 1893. Áttu þau saman 7 böra og eina uppeldisdóttur en af þeim Jifa nú Lísbet og Sigrún. Sigríður yfírgaf for- eldrahúsin ung að árum og réð sig í vist til Vestmannaeyja. Þar kynntist hún eiginmanni sínum, Guðjóni Ólafssyni, fæddur 30. janúar 1915 í Eyjum. Hann lést 4. maí 1992. Þau eignuðust þijú börn, Grétu, fædda 6. apríl 1938, Guðbjörgu Ósk, fædda 27. júlí 1943, dáin 23. desember 1950, og Friðrik Ólaf, fæddan 4. janúar 1948. Sigríður verður jarðsett frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á mánudag og hefst athöfnin kl. 13.30. MAÐUR gleymir oft í daglegu lífí að láta hugann reika um liðna tíð. Nú þegar kveðjustundin rann upp sóttu á mig margar yndislegar minningar um þig, elsku amma. Hvemig í ósköpunum hefði líf mitt orðið ef ekki hefðir verið þú? Það var svo gott að koma til þín á Hólagötuna úti í eyjum að ég gat varla látið daginn líða án þess að kíkja þar inn. Það var einhver ólýsanleg ró sem gat fengið mann til að gleyma öllu amstri dagsins. Ég ætla ekki að minnast á kaffíð, brauðið og kökumar sem allir þekktu, heldur hversu gott var að vera í ná- vist þinni. Við töluðum aldrei neitt mikið sam- an heldur þögðum yfir handavinnu og blöð- um, eflaust þurftum við engin orð. Okkur þótti bara svo vænt hvorri um aðra að okkur nægði «- bara að vera saman. Árin liðu og alltaf var best að koma til þín, amma. Mér finnst ég eiga svo bágt núna er ég hugsa til þess að þú sért far- in, lögst til langþráðrar hvíldar í örmum ástvina sem hafa beðið þín svo lengi. Ósköp getur maður verið eigingjam. Ég sem hélt í minni bamslegu trú að ég ætti þig ein til eilífðar. Eflaust hefur mér fundist þú gefa mér svo mikla ást og hlýju að ég gat ekki ímyndað mér að nokkuð kæmist þar á milli. Elsku besta amma, ég vil með þessum orðum mínum þakka þér af öllu hjarta fyrir þau ár sem við fengum að eiga saman. Ég ylja mér yfir minningum um yndisleg- ustu ömmu í heimi og sendi þér kveðjukoss. Vertu, Guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni. Hond þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. Þín Guðbjörg Ósk. Ástkær eiginmaður minn, faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, ISLEIFUR ARASON, Lindargötu 57, verður jarðsunginn frá Hóteigskirkju þriöjudaginn 7. mars kl. 13.30. Klara Karlsdóttir, Karl isleifsson, Steinunn Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.