Morgunblaðið - 05.03.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLA.ÐIÐ
MINNIIMGAR
tekst á við samtíðina á vettvangi
hins þjóðfélagslega veruleika.
Áhrifa þessarar guðfræðitúlkunar
Þóris hefur gætt langt út fyrir veggi
háskólans, enda fékk hann einatt
mikla áheyrn er hann kvaddi sér
hljóðs í ræðu og riti. Segja má að
Þórir hafi með fjölbreyttum störfum
í samfélagsins þágu vitnað um þær
áherslur sem einkenndu guðfræði-
túlkun hans hvað mest. Þar er af
mörgu að taka, en hér verður að-
eins vikið að einum en jafnframt
ákaflega merkum þætti á starfs-
ferli Þóris. Um er að ræða umfangs-
mikið starf sem hann vann í þágu
samborgara sinna í Reykjavík við
mótun nýrrar stefnu í félagslegri
þjónustu á vegum borgarinnar, en
einnig kom þar við sögu nýskipan
á velferðarmálum aldraðra.
Þórir átti sæti í borgarstjórn
Reykjavíkur tvö kjörtímabil,
1962-70, og gegndi embætti fyrsta
varaforseta borgarstjórnar. Hann
sat í ýmsum nefndum og ráðum
borgarinnar, m.a fræðsluráði,
barnavemdarnefnd og félagsmála-
ráði.
Það er margs að minnast þegar
prófessor Þórir er kvaddur hinstu
kveðju. En efst í huga er djúp virð-
ing og þakklæti fyrir trausta vin-
áttu og blessunarríka samfylgd.
Fjölþætt og góð samskipti okkar
leiddu til þess að fljótt komust á
einlæg vináttutengsl milli fjöl-
skyldna okkar. Jakobína, hún Bíbí
okkar, hefur reynst manni sínum
traust og góð eiginkona. Hún hefur
stutt hann og styrkt í hvívetna og
átt ríkan þátt í lífsláni hans og far-
sælum æviferli. Þau hjón voru mjög
samhent, enda Bíbí þeim kostum
gædd að geta orðið Þóri sálufélagi
í öllum hans fjölbreyttu störfum og
áhugamálum. Það fór heldur ekki
leynt hversu þakklátur Þórir var
henni fyrir allt hið góða sem hann
átti henni upp að unna. í veikindum
hans annaðist hún hann af stakri
kostgæfni. Böm hennar, stjúpbörn
Þóris, tengdabörn og barnabörn,
sem Þórir tók miklu ástfóstri við,
lögðu sig fram við að aðstoða og
styrkja þau hjónin í erfiðum veik-
indum Þóris.
Náin vinátta okkar hjóna og Bíb-
íar og Þóris varð til þess að við
byggðum saman tvíbýlishús að Ara-
götu 4. Sú ákvörðun hefur fært
okkur fjölskyldunni ómældar
ánægjustundir. Samskiptin hafa
einkennst af slíkri hlýju og sam-
kennd að oft er eins og um eina
fjölskyldu sé að ræða.
Við hjónin og börn okkar, Sigurð-
ur og Ingibjörg, söknum sárt hjart-
kærs vinar. Við vottum Bíbí og
ástvinum öllum innilega samúð og
biðjum þeim blessunar Guðs.
Björn Björnsson,
Svanhildur Sigurðardóttir.
Áður en ég hóf nám við guðfræði-
deild Háskóla íslands höfðu mér
borist spurnir af ýmsum kennurum
við deildina í gegnum kunningja sem
höfðu stundað nám við deildina. Ég
hafði til dæmis heyrt sagt frá því
að stúdentum væri gerð grein fyrir
því strax í upphafi að Guð væri
ekki að finna í guðfræðideildinni!
Það var því með blendnum huga að
ég hóf námið, hrædd um að trú mín
á Guð myndi spillast í rýni fræð-
anna. Mér leið strax vel í guðfræði-
deildinni. Strax á fyrsta misseri
sóttum við nýnemar námskeið hjá
prófessor Þóri Kr. Þórðarsyni. Hann
kenndi okkur um sögu og bók-
menntir Hebrea, námskeið sem fjall-
aði um uppruna og tilurð Gamla
testamentisins. Þóri tókst vel að
vekja þessar eldfomu bókmenntir
til lífsins, hann sýndi okkur inn í
heim sem var svo fjarlægur í tíma
og rúmi, en samt svo nálægur í
mennsku sinni, við skynjuðum hvað
við áttum margt sameiginlegt með
hinum fornu Hebreum, 'öll vorum
við manneskjur sem vorum að tak-
ast á við tilveruna í þessum heimi.
Misserið leið, ég naut námsins,
sérstaklega fannst mér námskeið
Þóris Kr. spennandi. Ég hafði alveg
gleymt sögunum um það að Guð
væri ekki að finna í guðfræðideild-
inni. En svo gerði það einn daginn
að ég mætti skólabróður mínum á
förnum vegi. Ég hafði ekki verið í
tíma hjá Þóri Kr. þann daginn og
spurði því þennan skólabróður minn
hvað hefði farið fram í tímanum.
Hann varð mjög alvarlegur á svip-
inn, næstum sleginn, og sagði.
„Veistu það Arna, Þórir Kr. sagði
það næstum hreint út að Guð væri
ekki til!“ Ég tók þessu nú ekki mjög
alvarlega, sagði við skólabróður
minn að hann hlyti að hafa misskil-
ið eitthvað. Við ræddum þetta svolit-
ið en skildum svo. Þegar ég fér að
hugsa málið áttaði ég mig auðvitað
á að þarna var komin fullyrðingin
góða sem ég hafði heyrt á skotspón-
um áður en ég byq'aði í deildinni.
Og ég áttaði mig líka á því í hvaða
samhengi hún hafði verið sögð þeg-
ar ég vissi hver sagði hana. Þórir
Kr. hafði nefnilega sérstaklega
gaman af því að ögra stúdentum
með fullyrðingum sem stönguðust á
við þann hugsunarhátt sem er eðli-
legur við fyrstu sýn. Ég hefði þess
vegna getað trúað honum til að
halda því blákalt fram að Guð væri
ekki til, í þeim tilgangi að hrista
upp í stúdentum og vekja upp um-
ræður. En Þórir Kr. var ekki ein-
göngu að ögra stúdentum. Hann var
einnig að benda þeim á að í guð-
fræðideild lærir maður fræðin um
Guð en sækist maður eftir persónu-
legu sambandi við Hann verður
maður að leita í gegnum bænina
og trúarlífið.
Þetta þekkti prófessor Þórir af
eigin raun. Hann hafði fundið Guð,
ekki í gegnum fræðimennsku sína,
heldur átti hann persónulegt sam-
band við hann. Þetta kom þó aldrei
í veg fyrir fræðilega áherslu og
vinnubrögð. Hann kom með nýja
strauma inn í Gamla testamentis-
fræðin hér á landi á sínum tíma og
gjörbylti í raun allri umræðu um
þau mál.
Þórir Kr. Þórðarson var ekki að-
eins prófessor að atvinnu, heldur
var það lífsstíll hans. Hann hafði
yfirbragð heldri manns, fas og
klæðaburður gaf til kynna að þarna
fór maður sem víða hafði farið og
margt séð. Hann var sjálfsöruggur
og viss í sinni sök, en tókst þó oft
að slá á mannlega og næma strengi
í kennslu sinni, sérstaklega þegar
hann var að fjalla um einhvetja
ákveðna persónu í Gamla testa-
mentinu og reynslu hennar. Þá sást
að hann átti auðvelt með að setja
sig í spor annarra og heimfæra al-
dagamla mannlega reynslu upp á
nútímann.
Þegar ég frétti um andlát Þóris
Kr. Þórðarsonar kom mér í hug
sagan í Gamla testamentinu af Jak-
obsglimunni. Hún segir frá því þeg-
ar Jakob, sem er á heimleið úr út-
Iegð, glímir heila nótt við engil
Guðs á árbakka. Undir morgun bið-
ur engillinn Jakob að sleppa sér, en
Jakob neitar því nema engillinn
blessi hann. Hann verður við því og
segir: „Eigi skalt þú lengur Jakob
heita, heldur ísrael, því að þú hefir
glímt við Guð og menn og fengið
sigur“ (Gen. 32:22-32).
í gegnum tíðina háði prófessor
Þórir Kr. margar glímur, örugglega
bæði við Guð og menn. Á síðustu
misserum var sú glíma löng og
ströng en ég er þess fullviss að
Þórir Kr. gafst ekki upp fyrr en Guð
hafði blessað hann og gefíð honum
sigurnafn eins og Jakob. Meðal
stúdenta lifir minning um mikilhæf-
an kennara, sterkan persónuleika,
og mann sem þekkti lífíð af eigin
raun. Eiginkonu og ástvinum vil ég
að lokum votta samúð mína og
minna á orð spámannsins Jesaja:
„Hinir endurkeyptu Drottins skulu
aftur hverfa og koma með fögnuði
til Síonar, og eilíf gleði skal leika
yfir höfði þeim. Fögnuður og gleði
skal fylgja þeim en hryggð og and-
varpan flýja.“
Arna Ýrr Sigurðardóttir,
formaður Félags
guðfræðinema.
• Mikill fjöldi minningargreina
um Þórí Kr. Þórðarson bíða birt-
ingar ogmunu birtast í blaðinu
næstu daga.
Frostaskjól - 4ra herb.
Vorum að fá í sölu 4ra herb. íb. á 1. hæð (jarðh.) í þríb.
á mjög góðum stað í vesturb. íb. skiptist í stofu og 3
svefnherb. m.m. Ný innr. í eldhúsi. Ný gólfefni í stofu,
holi og eldhúsi. Góð sér suðurverönd. Sérinng. Sérhiti.
Sérbílastæði. Vönduð eign.
EIGNASALAN, Ingólfsstræti 12, s. 19540 og 19191.
ENSKA ER OKKAR MAL
SÉRMENNTAÐIR ENSKIR KENNARAR - LIFANDI NÁMSKEIÐ
FJÖLBREYTT NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN, UNGLINGA OG FULLORÐNA
V.R. OG FLEIRI VERKALÝÐSFÉLÖG TAKA ÞÁTT í NÁMSKEIÐSKOSTNAÐI
■ Áhersla á talmál
■ 10 kunnáttu stig
■ Hámark 10 nem. í bekk
Julie
Samuel Victoria
Julia
Lorcan
Enskuskólinn
TÚNGATA 5 - SÍMI 25330
SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995 35
\
Þjónustuíbúð - Bólstaðarhlíð 45
3ja herb. 85 fm falleg íbúð á 1. hæð. Vandaðar innrétt-
ingar. Þvottaherbergi og geymsla innan íbúðar.
Laus strax. Verð 8,9 millj. (2610)
Ásbyrgi fasteignasala,
Suðurlandsbraut 54, s. 682444.
Efni í fermingarfötin
Snið frá Burda, New Look og Kwick
Sew, auk sníðablaða frá Burda, Knip
o.fl. Allt til sauma.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 10-18, á
laugardögum frá 1. sept. til 1. júní kl. 10—14.
9
VIRKA
MÖRKINNI 3, SÍMI 687477
(við Suðurlandsbraut).
Strandgata - Hfj.
skrifstofuhúsnæði
Nýkomið í sölu bjart og skemmtilegt skrifstofuhúsn., tvær
hæðir, 400 fm hvor hæð. Möguleiki á lyftu. Sérinngangur á
jarðhæð. Næg bílastæði. Góð staðs. í hjarta Hafnarfjarðar.
Laust fljótlega. Verð tilboð.
Hraunbrún - Hf., einb.
Nýkomið mjög fallegt tvíl.
steinh. 156 fm auk 30 fm bílsk.
4 svefnh. Góð staðs. Fallegur
garður. Verð 12,2 millj.
Suðurbær - Hf., sérh.
Nýkomin mjög falleg 125 fm
efri sérh. í góðu þríb. 2 rúmg.
svefnh., stofa, borðstofa o.ft.
Sérinng. Útsýni yfir höfnina.
Góður 28 fm bílsk. Verð 9,3
millj.
Hraunhamar, fasteignasala,
Bæjarhrauni 22, sími 654511.
BÚSETI HSF., HÁVALLAGÖTU 24, 101 REYKJAVÍK,
SÍMI 25788, FAX 25749.
ÍBÚÐIR TIL SÖLU í MARS
Staður-. Stærð: m2 Til afhend.
Suðurhvammur 13,220 Hafnarfirði 4ra herb. 103 fljótlega
Garðhús 2-8,112 Reykjavík 4ro herb. 115 fljótlega
Trönuhjalli 13-17, 200 Kópavogi 4ra herb. 96 samkomulag
Frostafold 18-20,112 Reykjavík 4ra herb. 88 samkomulag
Trönuhjalli 13, 200 Kópavogi 3ja herb. 85 ógúst
Skólavörðustígur 20,101 Reykjavík 3ja herb. 78 fljótlega
Garðhús 8,112 Reykjavík 3ja herb. 80 fljótlega
Birkihlíð 2b, 220 Hafnarfirði 3ja herb. 75 samkomulag
Miðholt 5,220 Hafnarfirði 2ja herb. 77 strax
Laugavegur 146,101 Reykjavík 2ja herb. 59 fljótlega
Berjarimi 1-7,112 Reykjavík 2ja herb. 62 strax
Birkihlíð 2a, 220 Hafnarfirði 2ja herb. 67 fljóllega
Hvernig sótt er um íbúð:
Umsóknir um (búðirnar verða að hafa borist skrifstofu Búseta
fyrir kl 15 fimmtudaginn 16. mars á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig.
Upplýsingar um skoðunardaga íbúða og teikningar fást á skrif-
stofu Búseta.
Ath! Þeirfélagsmenn, sem eru með breytt heimilisföng, vinsam-
legast látið vita.
BUSETI
Homíagofðum, Hóvallagötu 24, lOl Reykjavik, simi 25788.