Morgunblaðið - 09.03.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.03.1995, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C/D 57. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter STARFSMAÐUR banka í Tókýó breytir töflu yfir gengi Öanda- ríkjadollars, sem fór niður fyrir 90 jen í Asíu í gær. Mútumálið í Belgíu Fannst látinn á hóteli Brussel. Reuter. JACQUES Lefevre, fyrrverandi hersITöfðingi í flugher Belgíu, fannst látinn í hótelherbergi í gær- morgun. Hann er sagður hafa átt aðild að spillingarmálinu sem sett hefur Willy Claes, framkvæmda- stjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO), í vanda. Lefevre var hershöfðingi í flug- hernum seint á síðasta áratug þeg- ar ítalska fyrirtækið Agusta á að hafa greitt stjómmálamönnum í sósíalistaflokknum flæmska mútur til að tryggja samning um sölu á 46 þyrlum til hersins. Starfsmenn hótelsins fundu lík Lefevre eftir morgunverð í gær. Hann bjó nálægt hótelinu og hafði bókað herbergið í eina nótt. Sex litlar viskíflöskur voru við hlið líksins en ekkert benti til þess að til átaka hefði komið eða að Lefevre hefði verið skotinn. Lögmaður, sem var handtekinn vegna Agusta-málsins, sagði á þriðjudag að Lefevre hefði verið viðriðinn málið. Olga á peningamörkuðum vegna veikrar stöðu dollars Vaxtahækkanir ■ Bitnar á sænsku krónunni/ 22 Grikkland Forseti kjörinn Aþenu. Reuter. COSTIS Stephanopoulos var kjörinn forseti Grikklands í atkvæðagreiðslu á gríska þinginu í gær. Stephanopoulos er 68 ára og telst til miðju- eða hægri- manna. Hann naut stuðnings Sósíalistaflokksins, sem er með meirihluta á þinginu, og fékk 181 atkvæði. Hefði hann fengið tveim atkvæðum minna hefði þurft að boða til al- mennra forsetakosninga. Fráfarandi forseti er Const- antine Karamanlis, sem er 88 ára og hefur verið atkvæða- mikill í grískum stjórnmálum síðustu 60 árin. hjá seðlabönkum París, Brussel, Frankfurt. Reuter. GENGI Bandaríkjadollars hélt áfram að lækka á mörkuðum í Evrópu og Asíu í gær en tók að hækka aftur í New York eftir að bankamenn í Þýskalandi reyndu að styrkja stöðu hans með yfirlýsing- um sínum. Franski frankinn hefur aldrei verið jafn verðlítill gagnvart þýska markinu og franski seðla- bankinn greip til þess ráðs að hækka vexti. Ólgan á gjaldeyris- mörkuðum varð einnig til þess að hlutabréf lækkuðu verulega í verði í Þýskalandi. Franski seðlabankinn hætti að veita 5-10 daga neyðarlán, sem voru með 6,4% vexti, en efri mörk vaxta á fijálsum markaði hafa yfir- leitt verið miðuð við slík lán. Þess í stað bauð bankinn tveggja daga lán með 8% vöxtum og viðbúið er að þeir hækki í 10% á næstu dögum. Þessi ráðstöfun leiðir til þess að dýrara verður fyrir þá sem stunda spákaupmennsku að taka skamm- tímalán. Seðlabankar Danmerkur og Belgíu hækkuðu einnig vexti sína um eitt prósentustig til að fyrir- byggja spákaupmennsku. 2.000 milljarða dollarakaup Hlutabréf lækkuðu í verði í Þýskalandi og íjármálamenn þar höfðu áhyggjur af því að útflutning- ur Þjóðverja minnkaði vegna veikr- ar stöðu dollarans og dýrara marks. Talið er að japanski seðlabankinn hafi keypt dollara fyrir jafnvirði 2.000 milljarða króna til að styrkja stöðu hans. Þrátt fyrir þetta fór dollarinn niður í 88,75 jen í Asíu en hækkaði síðan í 89,65 jen. Gengi dollarans hækkaði hins vegar í 91,5 jen í New York. Fjjár- málamenn sögðu að þar hefðu ráð- ið mestu ummæli Hans-Jurgens Krupps, stjórnarmanns þýska seðla- bankans, sem sagði hugsanlegt að vextir yrðu lækkaðir í Þýskalandi. Hann kvað vangaveltur um hærri vexti vera „hlægilegar“. Simpson-spilið á Auburn. Reuter. KOMIÐ er á markað í Bandaríkj- unum O.J.-spilið og er það að sögn sérstaklega gert fyrir þá, sem óttast fráhvarfseinkenni þegar réttarhöldum í málinu gégn O.J. Simpson lýkur loksins. Það eru tveir laganemar í Alabama, sem hafa sett spilið saman, en það gengur út á að færa töflur í líki Ford Broncos eftir borðinu þar til kviðdómurinn kveður upp sinn úrskurð. Þátt- takendur lýsa yfir í byrjun hvort Á að sýna skrípa- leik réttar- haldanna þeir séu sekir eða saklausir og sigra ef kviðdómurinn er sam- mála þeim. Þátttakendur geta ýmist dottið í lukkupottinn eða lent í sektuip og eru atvikin eða ástæðurnar sóttar beint í málareksturinn markað gegn Simpson. Svakalegustu út- gjöldin eru „greiðslur til lögfræð- inga“, sem hækka að sjálfsögðu eftir því sem á leikinn líður. Höfundar spilsins, Sophia Ben- son og maður hennar, Steve, segjast viss um, að þeir, sem kaupi það, losi sig aldrei við það. „Fólk mun geyrna þetta spil til að gela sýnt börnum sínum og barnabörnum að hvers konar skrípaleik fjölmiðlarnir hafa gert þetta mál.“ Reutcr Kvenfrelsis krafist í Bangladesh ALÞJÓÐLEGI kvennadagur- inn var í gær og þúsundir kvenna efndu til mótmæla í Dhaka, höfuðborg Bangla- desh í tilefni hans. Konurnar voru skrúðbúnar og héldu á mótmælaspjöldum þar sem krafist var jafnréttis kynj- anna og kvenfrelsis. Réttað yfir Mengistu Addis Ababa. Reuter. UMFANGSMESTU striðsglæpa- réttarhöldin frá Niimberg-réttar- höldunum yfir þýskum nasistum eftir síðari heimsstyijöldina hófust í Eþíópíu í gær. Réttað er í máli Mengistus Haile Mariams, leiðtoga marxistastjórn- arinnar fyrrverandi, og 66 sam- verkamanna hans, sem eru sakaðir um þjóðarmorð. ■ Sakaðir um þjóðarmorð/ 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.