Morgunblaðið - 09.03.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
______________________FRÉTTIR_______________________
Samninganefnd ríkisins ræðir við BSRB og BHMR
Opnað á viðræður um
sérkjör félaganna
INDRIÐI H. Þorláksson, varafor-
maður samninganefndar ríkisins,
segir að ríkið sé tilbúið til að ræða
sérkröfur félaga opinberra starfs-
manna upp að vissu marki. Það
sé hins vegar stefna ríkisins að
semja ekki um meiri hækkanir við
opinberra starfsmenn en aðildarfé-
lög ASI sömdu um á dögunum.
Samninganefnd ríkisins ræddi
við forystumenn 18 félaga opin-
berra starfsmanna í gær. Nefndin
mun ræða áfram við þessi og önn-
ur félög opinberra starfsmanna á
næstu dögum. Indriði sagðist gera
sér vonir um að hægt yrði að
ganga frá samningum við félögin
á næstu vikum.
Indriði sagði að samninga-
nefndin væri til viðræðu um ólíkar
leiðir til að koma hækkunum til
skila til opinberra starfsmanna,
en sem kunnugt er sömdu ASÍ-
félögin ýmis um krónutöluhækkun
eða hlutfallshækkun. Hann sagði
að þó að ríkið væri til viðræðu um
sérmál einstakra félaga hefði það
takmarkað svigrúm til að koma á
móts við þau um sérkröfur.
Kennaraverkfall í Vestmannaeyjum
F oreldrafélög’in verða að
fresta barnaskemmtun
Vestmannaeyjum.Morgunblaðið.
VERKFALLSSTJÓRN Kennar-
afélags íslands og Hins íslenska
kennarafélags hefur hafnað beiðni
foreldrafélaga grunnskólabarna í
Eyjum um að fá leyfi til að halda
skemmtun ( á vegum foreldrafé-
lagsins í íþróttahúsinu í Eyjum.
Foreldrafélög Bamaskóla og
Hamarsskóla í Eyjum fengu í
haust styrk frá Starfsmannafélagi
Vestmannaeyjabæjar til að standa
fyrir einhverri _ uppákomu fyrir
börnin í vetur. Úr varð að ákveð-
ið var að fá Magnús Scheving til
að_ sj á um skemmtun fyrir börnin
í íþróttahúsinu og höfðu skóla-
stjórar beggja skólanna gefið eft-
ir tíma í íþróttahúsinu á kennslu-
tíma fyrir skemmtun þessa. í
beiðni foreldrafélaganna til verk-
fallsstjórnar kemur fram að uppá-
koma þessi sé eingöngu á vegum
félaganna en þar sem ekkert ann-
að hús í Eyjum en íþróttahúsið
geti rúmað þennan fjölda verði
að halda skemmtunina í íþrótta-
húsinu.
Kennarar hefðu fylgt
nemendum
Vísa foreldrafélögin til þess að
skemmtun þessi sé ekki ósvipuð
öskudagsskemmtunum sem
haldnar voru víðsvegar um land í
síðustu viku og eins benda þau á
að erfitt sé að fresta þessu þar
sem Magnús sé mjög upptekinn
og bókaður langt fram í tímann.
í svari verkfallsstjórnar kenn-
arafélaganna kemur fram að ekki
sé hægt að fallast á að skemmtun-
in verði haldin og mælst er til að
henni verði frestað þar til verk-
falli lýkur.
í svari kennarafélaganna er
bent á að ef skemmtunin hefði
verið haldin á skólatíma hefðu
kennarar fylgt nemendunum í
íþróttahúsið og ekki sé hægt að
líkja þessu við öskudagsskemmt-
anir því öskudagurinn sé frídagur
í skólum.
Þetta mál er e'kki það fyrsta sem
upp kemur og varðar grunnskóla-
nema í Eyjum því fyrir skömmu
var aflýst skíðaferðalagi 10.
bekkjar sem fyrirhugað var, þar
sem verkfallsstjórn kennara lagð-
ist hart gegn því að af ferðalaginu
yrði.
Morgunblaðið/Sverrir
SAMNINGANEFND ríkisins hitti samninganefnd iðju- og félags-
ráðgjafa sem hér sést undirbúa sig fyrir fundinn.
Upphaflegar kröfur flestra
BSRB-félaganna voru um að laun
þeirra yrðu hækkuð um 10 þúsund
krónur á mánuði. BHMR-félögin
hafa ekki sett fram kröfur um
beinar launahækkanir, en eru með
ítarlegar kröfur í sérmálum.
Samningafundur í kennaradeil-
unni hefst klukkan þijú í dag.
Tassilaq land-
aði rækju fyr-
ir 146 millj.
GRÆNLENZKI rækjutogarinn
Tassiilaq landaði rækju að verðmæti
146 milljónir króna nú í vikunni í
Hafnarfirði. Aflinn var alls 310 tonn
eftir tveggja mánaða veiði og voru
110 tonn aflans svokölluð Japans-
rækja, sem er stærst og verðmæt-
ust. Þetta er bezti túrinn hjá Tassi-
ilaq í langan tíma, en hann var á
veiðum beggja vegna Grænlands.
Togarinn hefur lengst af, frá því
hann hóf veiðar 1985, leitað eftir
löndunum og þjónustu hér á landi
og að mestu haldið sig við Hafnar-
fjörð. Jápansrækjan er flutt héðan í
gámum til Japans og iðanaðarrækjan
var seld til Danmerkur. Löndun af
þessu tagi skilur eftir hér á landi um
17 milljónir króna, sem fara í ýmis
gjöld og þjónustu. Mest njóta Eim-
skipafélagið og Olíufélagið viðskipt-
anna við Tassiilaq, Eimskip flytur
afurðirnar og olían er keypt hjá Olíu-
félaginu.
Tilsölu
Bakkahjalli 2,4 og 6 - Kópavogi
Falleg raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum
u.þ.b. 45 fm bílskúr. Húsin eru við lokaða götu á frábær-
um útsýnisstað og rétt ofan við útivistarsvæði dalsins.
Húsin skilast fokheld að innan en fullbúin og máluð að
utan með grófjafnaðri lóð eða lengra komin eftir sam-
komulagi. Teikningar á skrifstofu okkar. Eignarskipti
koma til greina. Verð 9,8 millj.
HUSAKAUP Suðurlandsbraut 52, Rvík, sími 68 28 00.
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 11
Brenndu þig
ekki á stað-
reyndum
Pakki af sígarettum kostar u.þ.b. 267 kr. Hjón
sem bæði reykja pakka á dag borga því um
195.000 kr. á ári í sígarettur.
En þau þurfa hins vegar að hafa um
336.000 kr. í viðbótartekjur á ári til þess
að greiða þá upphæð.
Skatturinn tekur sitt.
Fj ármálanámskeið
Búnaðarbankans
Vikan 6.-10. mars verður átaksvika í fjármálum
heimilanna. Af því tilefni verður opið hús í aðalbankanum,
Austurstræti 5, og öllum útibúum Búnaðarbankans, þar
sem þjónusturáðgjafar veita upplýsingar um útgjaldadreifingu,
áætlanagerð o.fl.
Handbókin „Fjárniál heimilisins" verður til sölu á sérstöku
tilboðsverði, kr. 900 þessa viku.
Þá verður að auki boðið upp á sérstök fjármálanámskeið,
þátttakendum að kostnaðarlausu, þar sem leiðbeint verður
um hvernig lækka má rekstrarkostnað heimilanna.
Fjallað verður um heimilisbókhald, áætlanagerð, lánamál og
leiðir til sparnaðar svo eitthvað sé nefnt.
Námskeiðin standa í 3 klst. og eru þau auglýst sérstaklega.
HEIMILISLÍ NAN
BÚNAÐARBANKINN
- Traustur banki