Morgunblaðið - 09.03.1995, Síða 14

Morgunblaðið - 09.03.1995, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Framkvæmdaáætlun gatnagerðar og fráveitu samþykkt Verk fyrir 90 millj. unnin á árinu BÆJARSTJÓRN Akureyrar hef- ur samþykkt framkvæmdaáætlun gatnagerðar og fráveitu fyrir árið 1995. Alls verður varið 90 milljónum króna til gatnagerðar- og frá- veituframkvæmda á árinu, sem er nokkru minna fé en notað hef- ur verið á síðustu árum. Guðmundur Guðlaugsson yfír- verkfræðingur hjá Akureyrarbæ sagði að helstu framkvæmdir yrðu á sviði fráveitumála en alls verður 35 milljónum króna varið til þess verkefnis á árinu. Unnið verður að ýmsum verkefnum við dælu- stöðvar og lagnir, undirbúning og rannsóknir, en stærsta verkefnið er bygging dælustöðvar á Torfu- nefí og lagnir að henni. Það eru framkvæmdir upp á samtals 45 milljónir króna en þar sem svo mikið fé er ekki til ráðstöfunar Mest fer í frá- veitufram- kvæmdir færist hluti verksins yfír á næsta ári. Vonir standa til að sögn Guð- mundar að hægt verði að taka dælustöðina á Torfunefni í notkun á fyrrihluta næsta árs en í kjölfar- ið mun ástand Pollsins skána mjög. Hafnarstræti endurbyggt Unnið verður að ýmsum smærri verkefnum á sviði umferðarmála, settar upp hraðahindranir, lýsing- ar og fleira fyrir samtals 2,2 millj- ónir króna. Þá verður haldið áfram að endurbyggja Hafnarstræti að Aðalstræti og kostar það 11,5 milljónir króna. Til nýbygginga gatna verður varið tæpum 16,5 milljónum, en þar er einkum um að ræða tvær götur í Giljahverfí, Vætta- og Vesturgil, samtals um 300 metr- ar. Malbikað verður fyrir tæpar 5 milljónir og fer ríflega helmingur ijárins í að malbika Merkigil. Til gangstétta og stígagerðar verður varið tæpum 11 milljónum króna, Kaupvangsstræti verður lagað, haldið áfram með Strand- götu og þá verður lagður stígur um fjölbýlishúsahverfi í Lunda- hverfi. Rúmum 9 milljónum króna verður verið til ýmissa verkefna, m.a. vegna gatna í hesthúsahverfi í Lögmannshlíð, gangstéttar og graseyjar. Morgunblaðið/Rúnar Þór ELDRI kona slapp ótrúlega vel þegar hún lenti undir vörubíl við gatnamót Hamarsstígs og Ásvegar síðdegis í gær, en þar var verið að moka snjó. Eldri kona lenti undir vörubíl í snjómokstri Slapp ótrúlega vel MILDI þykir að ekki fór verr þegar gangandi vegfarandi, eldri kona, varð undir vörubíl á Hamarsstíg síðdegis í gær. Konan hafði gengið meðfram vörubílnum, sem er frambyggður, og fram fyrir hann þegar ökumaður hélt af stað án þess að verða kon- Snjómoksturspeningar búnir á Akureyri og Dalvík og lítið eftir á Ólafsfirði Hafa eytt 23 millj. í mokstur ALLT fé sem áætlað var að eyða í snjómokstur á Akureyri er upp- urið, sömu sögu er að segja frá Dalvík, en Ólafsfirðingar eiga enn eftir 1,5 milljónir af því-fé sem þeir hugðust nota til að moka snjó á árinu. Samtals hafa þessi sveitarfélög eytt um 23 milljónum króna í moksturinn á árinu. Tæpar 2 milljónir á viku Á Akureyri var áætlað að veija 14,1 milljón krónatil snjómokst- urs og er það fé nú búið og gott betur, en Guðmundur Guðlaugs- son yfirverkfræðingur bæjarins sagði að um það bil 7 milljónum króna hefði verið varið til snjóm- oksturs hvorn mánuð, janúar og febrúar. Áætlað væri að um 1.750 þúsund krónum væri eytt á viku í að moka snjó af götum bæjar- ins, enn bættist við og því næg verkefni eftir. Guðmundur sagði að aukin fjárþörf yrði eflaust leyst með aukafjárveitingu, en það yrði svo verkefni bæjarfulltrúa að finna út hvort slegið yrði lán eða klip- ið af öðrum framkvæmdum til að leysa málið. Peningamir búnir á Dalvík Dalvíkingar áætluðu að veija 5 milljónum króna til snjómokst- urs á árinu og að sögn Svein- bjarnar Steingrímssonar bæjar- tæknifræðings er það fé nú búið. Þó svo að hætti að snjóa nú, sem ekki væri útlit fyrir, ætti eftir að hreinsa upp snjó í bænum fyrir um eina milljón króna. Hann sagði meiri kröfur gerðar um góða þjónustu varðandi snjó- mokstur nú en áður fyrr, bílaeign væri meiri og fólk meira á ferð- inni. Utlit væri því fyrir áfram- hald á snjómokstri enn um sinn, þó svo að menn væru komnir fram úr áætlun, en vandanum yrði að vísa til endurskoðunar á fjárhagsáætlun bæjarins síðar á árinu. Ein milljón eftir í Ólafsfirði Hálfdán Kristjánsson bæjar- stjóri í Ólafsfirði sagði að alls hefði verið áætlað að eyða 6,5 milljónum í snjómokstur, 5,3 milljónum innanbæjar og 1,2 í sveitunum í kring. Enn væri eft- ir um ein milljón króna til nota við hreinsun innanbæjar, en eng- inn vafi væri á að það fé klárað- ist innan tiðar. Mönnum-hefði hugkvæmst að draga úr mokstrinum, en alltaf yrði að halda öllum aðalleiðum opnum. Morgunblaðið/Rúnar Þór HÚS BRJÁNS Guðjónssonar við Rauðumýri er bókstaflega að fara í kaf og segist hann ekki hafa séð annað eins í tuttugu ár. Þráinn sonur hans aðstoðaði hann í gær við að Iétta á þakinu. unnar var. Hún lenti undir bílnum, milli hjóla og ók bíllinn yfir hana. Konan kvartaði um verk í mjöðm og var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Árni Magnússon varðstjóri lögreglunnar sagði mildi, að ekki hefði farið verr, konan hefði sloppið ótrúlega vel miðað við aðstæður. Verið var að moka snjó í götunni þegar slysið varð og varð gröfumað- ur vitni að atburðinum, en sem fyrr segir vissi ökumaður vörubifreiðar- innar ekki af atvikinu fyrr en hann kom næst að sækja meiri snjó. Maður klemmdist milli vörubif- reiðar og vörulyftara á Oddeyrar- bryggju í gær. Maðurinn stóð á stigbretti bif- reiðarinnar þegar lyftarinn lenti á hlið hennar og klemmdist hann á milli. Að sögn varðstjóra lögregl- unnar fótbrotnaði maðurinn og var fluttur á slysadeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Þrír bílar skullu saman á Hjalt- eyrargötu í gær, ökumaður eins bílsins kvartaði um eymsl í hálsi eftir áreksturinn. Töluvert tjón varð á bifreiðunum. Sönghugleið- ing um kvala- fulla ást Á „HEITUM fimmtudegi" í Deigl- unni í kvöld, fimmtudagskvöldið 9. 'mars, flytur Þórarinn Hjartarson „Sönghugleiðingu um kvalafulla ást“. Á dagskránni eru söngvar frá 12. öld og fram til dagsins í dag sem eiga það sameiginlegt að fjalla um ástina kvalafullu, ævintýrin sem enda illa, elskendurna sem ekki fá að unnast. Söngvarnir eru bæði íslenskir og erlendir af ýmsum toga, dróttkvæði Kormáks Ögmundssonar, trúbador- kvæði Ventadorns og tregakvæði Stefáns í Vallanesi. Þórarinn Hjart- arson hefur stundað jöfnum höndum járnsmíðar, sagnfræði og söng. Tón- leikarnir hefíast kl. 20.30 og er að- gangseyrir 500 krónur. lé með sinnepshjúp handa sex í|‘; Penslið kjötið á báðum hliðum með sinnepi. Stráið svörtum pipar yfir og glóðarsteikið í 5-7 mínútur á hvorri hlið, eða þar til það er mátulega steikt, Skeriö kjötið í sneiðar og berið t.d. fram með kryddsmjöri, bökuðum kartöflum og léttsteiktu grænmeti. ' ■ ' •• .. .. 1-1,2 kg lambafilé 4-5 msk Dijon sinnep 2 tsk svartur grófmalaður pipar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.