Morgunblaðið - 09.03.1995, Page 20
HÓTEL AIEXANDRA AUGLÝSINGASTOFA
20 FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Hewlett-Packard
niaorentfirar
manaðarins
HP DeskJet1200C
- öflugur litaprentari
Hraðvirkur. Hágæða útprentun
í lit og svörtu. Fjórskipt blek-
sprautun. 2 MB minni (stækk-
anlegt). Upplausn í svörtu
300x600 dpi + RET*. Upplausn
i lit 300 dpi*. 7 síður á mínútu**.
Fjöldi leturgerða. Framtiðareign
fyrirkröfuharða.
134.900
stgr. m. vsk.
*dpi = punkta upplausn á tommu.
RET= HP upplausnaraukning.
**Hraði í litaprentun er mismunandi.
Kynnið ykkur fylgihluti og útskriftar-
möguleika HP litaprentara.
- á frábæru tilboðsverði í Tæknivali
HP DeskJet 560C litaprentarinn
Hentaröllum. Gæða-
útprentun I lit og svörtu.
Fjórskipt bleksprautun.
Upplausn i svörtu
300x600 dpi + RET*.
Upplausn I lit 300 dpi*.
3 síður á minútu**. Fjöldi leturgerða. Glæsilegur
litaprentari á enn betra verði.
59.900
Öll helstu greiðslukjör s.s. VISA raögreiðslur
124 mánuöi, EUROCARD raögreiðstur 136 mánuöi
og Staögreiöslusamningar Glitnis.
Veriö velkomin í Tæknivat.
Opiö á laugardögum frá kl. 10.00 til 14.00.
stgr. m. vsk.
Wi0:
ö L U K
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími 568-1665 - Fax 568-0664
8.-11. mars
ævintýralega góð kaup
Ath. laugardaginn 11. mars
- síðasta dag Kringlukastsins -
verða verslanir Kringlunnar opnar til
kl. 18.00
KRINGI4N
FRETTIR: EVROPA
Evrópusambandið og Rússland
Stirð samskipti
vegna Tsjetsjníju
Brussel. Reuter.
ALAIN Juppé, utanríkisráðherra
Frakka, hélt í gær til Rússlands
ásamt utanríkisráðherrum Þýska-
lands og Spánar. Munu þeir eiga
fund með rússneskum ráðamönnum
í dag. Er meginmarkmið ferðarinn-
ar að reyna að frá Rússa til að slaka
á klónni í Tsjetsníju með því að
beita þá þrýstingi á viðskiptasvið-
inu.
Ráðherraráð ESB samþykkti á
fundi á mánudag að ekki yrði geng-
ið endanlega frá mikilvægum við-
skiptasamningi við Rússa fyrr en
að þeir virtu mannréttindi í
Tsjetsníju. „Við viljum ekki ein-
angra Rússa, en verðum þó að gera
þeim skýra grein fyrir því, að þeir
verða að standa við skuldbindingar
sínar við ESB,“ sagði Juppé, en
Frakkar eru nú í forystu ráðherrar-
áðsins.
Sendinefndin er sú æðsta, sem
komið hefur til Moskvu, eftir að
átökin í Tsjetsjníju hófust.
Gagnrýna afskipti
Rússar hafa ekki brugðist vel við
afskiptum Vesturlanda af deilunni
og á þriðjudag sagði Nikolaj Afan-
asjevskí, aðstoðárutanríkisráð-
herra, að Vesturlönd hygðust nýta
sér Tsjetsjníju-deiluna til að vernda
efnahagslega hagsmuni sína. Ef
ekki væru nein átök í Tsjetsjníju
sagði ráðherrann að ESB hefði
fundið sér einhveija aðra tylliá-
stæðu til að undirrita ekki samning-
inn.
Samkvæmt heimildum innan
ESB búst menn þar við að anda
muni köldu á fundinum með Rúss-
um. „Rússar líta á samninginn sem
traustsyfirlýsingu og verða ekki
ánægðir með þessa niðurstöðu,"
sagði einn stjórnarerindreki.
Juppé átti upphaflega að afhenda
Rússum samninginn á fundinum í
Moskvu en samningaviðræðum lauk
í desember á síðasta ári.
Stjórnarerindrekar sögðu að að-
ildarríki ESB hefðu þó ekki treyst
sér til að ganga endanlega frá
samningnum nú þar sem ljóst var
að hann yrði ekki samþykktur á
öllum þjóðþingum þeirra vegna
Tsjetsjníju-deilunnar.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Reuter
ÞESSIR rússnesku búdda-
munkar lögðust flötum bein-
um á Rauða torginu í gær en
þeir tóku þátt í mótmælum
gegn hernaðinum í
Tjsetsjníju.
Þýskalands, sagði í viðtali við þýska
útvarpið að sendinefndin yrði ómyrk
í máli í viðræðunum við Rússa.
„Það nægir ekki að vera góðir vin-
ir og samstarfsaðilar þegar vel
gengur. Menn verða líka að láta
reyna á hlutina þegar á móti blæs
og það hyggjumst við gera nú,“
sagði Kinkel.
Grikkir vilja neyðar-
fund vegna Tyrkja
• GRIKKIR hafa krafist þess að
boðað verði til neyðarfundar
utanríkisráðherra ESB vegna
tollabandalagsins við Tyrki. Eru
Grikkir mjög ósáttir við ræðu
tyrkneska utanríkisráðherrans,
þar sem hann gagnrýndi Grikki
fyrir að styðja aðild Kýpur að
ESB. Alain Juppé, utanríkisráð-
herra Frakklands, vísar því á bug
að hætta sé á að Grikkir muni á
ný beita neitunarvaldi vegna
samningsins um tollabandalag.
• UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Þýskalands, Frakklands og Spán-
ar munu halda í opinbera heim-
sókn til Tyrklands dagana 23.-24.
mars og eiga viðræður við sljórn-
völd þar í landi í kjölfar samn-
ings um tollbandalags milli ESB
og Tyrklands, sem undirritaður
var á mánudag. Samanstendur
þrenning þessi af fulltrúum ríkj-
anna er voru, eru og verða í for-
ystu ráðherraráðs ESB. „Þrenn-
ingin mun ræða við tyrkneska
embættismenn um svæðisbundin'
mál og alþjóðamál og samskipti
Tyrkja við stofnanir Evrópu,“
sagði talsmaður tyrkneska utan-
ríkisráðuneytisins.
• SENDINEFND á vegum ESB
heldur í næsta mánuði til Úkra-
ínu til að þrýsta á um að Tsjernó-
býl-kjarnorkuverinu verði lokað.
• BLAÐIÐ International Herald
Tribune segir í leiðara í gær að
aðgerðir Vladimirs Meciars, for-
sætisráðherra Slóvakíu, til að
draga úr fijálsri fjölmiðlun I
landinu gætu útilokað aðild SIó-
vaka að Evrópusambandinu.
• EVRÓPUDÓMSTÓLLINN
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að bresk kona, búsett í Bret-
landi, geti farið í skaðabótamál
við franskt dagblað fyrir bresk-
um dómstólum. I grein í blaðinu
France Soir var því haldið fram
að konan hefði tengst peninga-
þvætti á eiturlyfjasöluhagnaði.
• SPÆNSKIR útgerðaraðilar
togara, sem skráður er í Bret-
landi, hafa verið dæmdir til að
greiða 311 þúsund punda sekt
vegna brota á fiskveiðireglum
ESB. Upp komst um brotið í sér-
stöku veiðieftirlitsátaki á vegum
sambandsins. Er þetta einhver
hæsta sejkt, sem útgerðarfyrir-
tæki hefur verið dæmt til að
greiða.