Morgunblaðið - 09.03.1995, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 09.03.1995, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 2í AÐSEIMDAR GREIIMAR Hvað er að frétta? Hlutverk heilsugæslustöðva MÖRGUM er ekki ljóst hvers konar vinna fer fram á heilsu- gæslustöðvum. Jafnvel þeir sem koma þangað reglulega hafa ekki yfirsýn yfir alla starfsemi þeirra. Vegna þess að stöðvarnar hafa verið dregnar inn í umræðu um tilvísanir, oft af lítilli þekkingu og enn minni skilningi, er rétt að gefa nokkra hugmynd um starfsemi þeirra. Lög og reglur kveða nokkuð skýrt á um hvers konar starfsemi skuli fara þar fram en slíkt segir ekki nema hluta sögunnar. í umræðunni um tilvísanir hefur hvað eftir annað verið reynt að bera saman kostnað af samskipt- um við sérfræðinga annars vegar og heimilislækna hins vegar. Því miður hefur sú umræða verið að miklu leyti í skötulíki þar sem í fyrsta lagi er um ólík viðfangsefni að ræða og í öðru lagi er ekki hirt um að skilgreina í hveiju mismun- urinn liggur. Ég ætla að gefa hér örlitla hugmynd um umfang starf- seminnar en fer ekki í talnaleik með krónur og aura. Þjóðin bar gæfu til, seg- ir Lúðvík Qlafsson, að sameinast um heilsu- gæslustöðvar. Einkenni starfsins er mikil fjöl- breytni sjúkdóma, bæði bráðra og langvinnra og ekki síst, að við hverja komu er oft fjallað um fleiri en einn sjúkdóm. Af þeirri ástæðu einni er samanburður, eins og hann hefur verið stundaður, á villigöt- um. Viðfangsefni Heilsugæslustöðin er fyrst og fremst vinnustaður heimilislækna og hjúkrunarfræðinga. Viðfangs- efnin eru margvísleg og gefur upp- talningin hér að neðan frá Heilsu- gæslustöðinni í Efra-Breiðholti aðeins litla hugmynd um það sem þar fer fram. Viðfangsefnin ein- kennast nokkuð af því að fremur ungt fólk býr á starfssvæðinu og fólk eldra en 65 ára 'er hlutfalls- lega fátt. Árið 1994 komu 23354 sjúkling- ar á stöðina. Auk þess var farið í 2770 vitjanir frá stöðinni, þar með taldar vitjanir vegna heima- hjúkrunar. I þessum komum var ijallað um 33076 sjúkdóma. Það er að segja að ekki minna en 1,4 greiningar voru gerðar við hveija komu að meðaltali. Könnun sem gerð var á stöðinni 1993 leiddi í ljós að ef sérfræðingur hefði fjallað um málið hefði þurft tvo sérfræð- inga, hvorn úr sinni greininni, í 25% tilfella. Tilvísanir til sérfræðinga voru 683 eða 3% af komufjölda á stöð- ina. Af einstökum viðfangsefnum má nefna að 1157 manns komu vegna slysa á árinu en ágæt að- staða er til móttöku smáslysa. Vegna öndunarfærasjúkdóma voru komur 4206, rúmlega íjórð- ungur vegna kvefs, 736 með bronchitis og 306 með astma. Komur vegna hjarta- og æða- sjúkdóma voru 619, þar af 375 vegna hækkaðs blóðþrýstings og 52 vegna kransæðasjúkdóms. Komur vegna stoðkerfissjúk- dóma voru 2886, þar af 151 vegna bijósklosseinkenna frá baki og 508 vegna annarra mjóbaksverkja. Vegna liðagigtar komu 44 og 89 vegna slitgigtar. Vegna kvensjúkdóma komu 833 konur og þá er ótalinn sá fjöldi sem kom í krabbameinsskoðun eða vegna getnaðarvarna. Komur vegna geðsjúkdóma voru 866, þar af 314 vegna þunglyndis, 59 vegna geðklofa og 48 vegna fíkniefnaneyslu. Vegna húðsjúk- dóma komu 2031 sjúklingur, þar af 32 með psoriasis og vegna húðbreytinga 109. Auk þessa er ótalið allt ungbarnaeftirlit vegna Efra-Breið- holts, á annað þúsund koma vegna mæðra- eftirlits, skólaheilsu- Lúðvík Ólafsson vernd í tveimur fjöl- mennum grunnskól- um, Fellaskóla- og Hólabrekkuskóla. Svo má lengi telja. Markviss uppbygging Síðastliðin 20 ár hefur markvisst verið unnið að uppbyggingu heilsugæslustöðvanna í landinu og er enn nokkru verki ólokið á höfuðborgarsvæðinu. Þjóðin hefur borið gæfu til þess að sameinast um þessa stefnu en því miður hefur sama markvissa ekki ríkt um önn- ur stig heilbrigðiskerfisins og því eigum við í þeim vandræðum sem við er að glíma í dag bæði í sér- fræði- og sjúkrahúsaþjónustu. Heyrst hafa þær raddir sem segja að kerfi heilsugæslustöðva sé aðeins fyrir landsbyggðina, höfuðborgarsvæðinu henti eitthvað allt annað. Að tvennu leyti er þetta sjónarmið gagnrýnisvert. í fyrsta lagi hafa heilsugæslu- stöðvarnar sannað gildi sitt í þétt- býlinu svo ekki verður um villst og hafið heimilislækningar upp úr þeirri lægð, sem þær voru óneitan- lega komnar í. í öðru lagi og ekki síður mikil- vægu er traust heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu forsenda ör- uggrar og góðrar heilbrigðisþjón- ustu úti á landsbyggðinni. For- senda þess að menn mennti sig til heimilislæknis er að eiga mögu- leika á starfi á höfuðborgarsvæð- inu ekki síður en á landsbyggð- inni. í þessu ljósi furða ég mig á því tómlæti sem margir lands- byggðarþingmenn hafa sýnt upp- byggingu heilsugæslunnar í þétt- býli og þá ekki síst deilunni um tilvísanir. Samspil milli þéttbýlis og dreifbýlis er forsenda viðgangs beggja í þessu máli sem og mörg- um öðrum. *„Sérfræðingur“ er í þessari grein notað í merkingunni sérfræðingur í annarri grein en heimilislækningum. Höfundur er læknir. Fjármálanámskeið þérað kostnaðarlausu! J X/ié k -M, gmi- 0 'í'- ISEsBSm ..5= Gemm hreint í fjármálum fjölskyldunnar Námskeið fyrir þig sem öll fjölskyldan hagnast á! í tilefni átaksviku um fjármál fjölskyldunnar býöur Búnaðarbankinn upp á tíu fjármálanámskeið þar sem leiðbeint verður um hvernig lækka má rekstrarkostnað heimilanna. Á námskeiðunum verður fjallað um heimilisbókhald, áætlanagerð, lánamál og leiðir til sparnaðar svo eitthvað sé nefnt. Námskeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Handbókin „Fjármál heimilisins" verður á sérstöku tilboðsverði, 900 kr. þessa viku. Námskeiðin verða haldin á eftirtöldum stöðum: Reykjavik: Aðalbanki, fræðsludeild, Auslurstræti 9, skráning i síma 603286. Mánudagur 6. mars kl.17:00 - 20:00 Þriðjudagur 7. mars kl. 9:30-12:30 Þriöjudagur 7. mars kl.19:30 - 22:30 Miðvikudagur 8. mars kl.14:00 -17:00 Miðvikudagur 8. mars kl.19:30 - 22:30 Fimmtudagur 9. mars kl.19:30 - 22:30 Föstudagur 10. mars kl. 9:30-12:30 Hafnarfjörður: Veitingastaðurinn Boginn, Fjarðargötu 13-15, skráning ísima 655600. Fimmtudagur 9. mars kl.19:30 - 22:30 Selfoss: Hótel Selfoss, skráning i síma 98-22800. Miðvikudagur 8. mars kl.19:30 - 22:30 Akureyri: Sjaiiinn, skráning isima 96-27600 / 26566 Miðvikudagur 8. mars kl.19:30 - 22:30 HEIMILISLINAN BUNAÐARBANKINN - Traustur bunki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.