Morgunblaðið - 09.03.1995, Síða 31

Morgunblaðið - 09.03.1995, Síða 31
30 FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. HREPPARÍGUR? ATVINNULÍF í Bolungarvík hefur verið í sárum, allt frá því Einar Guðfinnsson hf. varð gjaldþrota. Að undan- förnu hefur hins vegar ýmislegt bent til þess, að öflug fyrir- tæki í Hnífsdal væru tilbúin til að kaupa fyrirtækin, sem eiga helstu atvinnutæki staðarins og heQa þar umf^ngsmikinn rekstur á nýjan leik. Rækjuverksmiðjan Bakki hf. í Hnífsdal hafði lýst áhuga á að kaupa eignarhlut bæjarsjóðs Bolungarvíkur í Osvör hf. og jafnvel hlut í Þuríði hf. líka, en síðarnefnda fyrirtæki keypti á sínum tíma frystihús Einars Guðfinnssonar hf. Með þessum kaupum hefði orðið til öflugt sjávarútvegsfyrirtæki, með möguleika á mikilli sérhæfingu í fiskvinnslu og auknum um' svifum í veiðum og vinnslu í Bolungarvík, auk stóraukinna umsvifa í Bolungarvíkurhöfn. Augljóslega hefði slík skipan mála verið mikið framfaraspor fyrir Bolungarvík og gjör- breytt því bága ástandi sem þar hefur ríkt. Það er ekki vitnisburður um framsýni, þegar þröngur hóp- ur manna tekur sig til og bregður fæti fyrir viðskipti Bakka hf. og bæjarsjóðs Bolungarvíkur, án þess að hafa sjáanlega fjárhagslega burði til að geta staðið þannig að rekstri Ósvar- ar hf., að til heilla horfi fyrir byggðarlagið. Það er alls ekki hægt að líta þannig á, þegar fyrirtæki í næsta byggðarlagi á í hlut, eins og í þessu tilfelli Hnífsdæling- ar, að til hafi staðið að flytja atvinnu og fiskveiðiheimildir Bolvíkinga á brott úr bæjarfélaginu. Þvert á móti hafði komið fram í máli Aðalbjörns Jóakimsson- ar, aðaleiganda Bakka hf., að nýjum fjárhagslegum stoðum yrði rennt undir Ósvör hf. m.a. fyrir tilstilli Vestfjarðaaðstoð- ar og aflaheimildir Ósvarar yrðu auknar. Forsvarsmenn Bakka hf. lýstu því jafnframt yfir, að leitast yrði við að tryggja öfluga atvinnustarfsemi í Bolungarvík á næstu árum, með heimilisfesti Ósvarar og rekstri í Bolungar- vík, veiðiheimildir yrðu ekki seldar úr byggðarlaginu, löndun eigin skipa og viðskiptabáta Bakka hf. og Ósvarar yrði að jafnaði í Bolungarvík í framtíðinni og að með kaupum á frysti- húsi og fastafjármunum Þuríðar hf. yrði fiskvinnsla efld. Það er ekki hægt annað en lýsa yfir undrun á því, að fæti skuli brugðið fyrir þessi áform. Hvað tekur við í Bolungarvík? Það er langt gengið í hrepparíg, ef fólk og fyrirtæki í ná- grannasveitarfélögum geta ekki unnið saman. FISKVEIÐIDEILA VIÐ KANADA STJÓRNVÖLD í Kanada hafa ákveðið að banna grálúðuveið- ar utan kanadísku lögsögunnar í tvo mánuði og hóta því að beita valdi til að koma í veg fyrir veiðar spænskra og portúgalskra togara. Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðinefndin (NAFO) hafði áður ákveðið að grálúðukvóti ESB á þessu ári yrði 3.400 tonn af 27 þúsund tonna heildarkvóta. A síðasta ári veiddu togarar ESB, aðallega spænskir og portúgalskir, um 50 þúsund tonn af grálúðu á þessu svæði. ESB, sem hefur þegar veitt rúm- lega þann kvóta sem NAFO úthlutaði því, gerir kröfu til 18.630 tonna veiðiheimilda og héldu togarar þess áfram veiðum. Ákváðu þá Kanadamenn að lýsa yfir veiðibanni og hafa breytt lögum sínum þannig að kanadísku strandgæslunni er heimilt að taka fiskiskip utan landhelginnar til að koma í veg fyrir rányrkju. Evrópusambandið hefur harðlega mótmælt þeim áformum kanadískra stjórnvalda og telur þau engan rétt hafa til slíkra aðgerða. Sjávarútvegsráðherra Portúgals hefur skipað togur- um á svæðinu að halda áfram veiðum þrátt fyrir hótanir Kanadamanna. Þessi fiskveiðideila Kanada og Evrópusambandsins leiðir hugann óneitanlega að deilu íslendinga og Norðmanna um fiskveiðar í Barentshafi. Rétt eins og þar vill strandríkið tak- marka sóknina í fiskistofninn þó svo að hann gangi að hluta utan landhelgi. Úthafsveiðiríkið bendir hins vegar á að sam- kvæmt alþjóðalögum sé því frjálst að stunda veiðar á alþjóð- legu hafsvæði. Réttur Kanadamanna til að stöðva veiðar Evrópusambands- togara er álíka hæpinn og réttur Norðmanna til að takmarka veiðar íslendinga í Smugunni. Reiði Kanadamanna er aftur á móti vel skiljanleg. Fiski- stofnar þeirra hafa hrunið á undanförnum árum og má það ekki síst rekja til hömlulausra veiða Spánveija og Portúgala utan landhelgi. Ofveiði er eitt alvarlegasta umhverfisvandanjál heimsins í dag og þetta dæmi ásamt fleirum sýnir hversu aðkallandi það er, að fiskverndarsjónarmið nái út fyrir 200 mílna landhelgi strandríkja. Tilraunir til fiskveiðistjórnunar verða marklausar ella. FRÆÐSLUMÁL Morgunblaðið/Kristinn EFTIR að heyrnarlausir komu inn sögðu menn, gott og vel þeir fá inngöngu, en hvernig ætla þeir að útskrifast? ÞEGAR TÁKNIN TALA Stefnt er að því að gera Mennta- skólann við Hamrahlíð að kennslumiðstöð fyrir fatlaða, en í skólanum hefur verið unnið brautryðjendastarf í kennslu þeirra undanfarin ár. Ágústa U. Gunnarsdóttir hefur verið þar í fararbroddi og segir Krístínu Marju Baldursdóttur frá upp- hafí þess starfs og þróun. Brautryðjendastarf kostar baráttu, tíma og þrek. Á fjórum árum hefur fötluðum nemendum við Menntaskólann við Hamrahlíð fjölgað úr átta í fjörutíu og því óhætt segja að merkilegt starf hafí verið unnið við skólann. Af öðrum ólöstuðum hef- ur mest mætt á Ágústu U. Gunnars- dóttur námsráðgjafa. Hún hefur átt dijúgan þátt í því að nú hefur verið stofnuð námsbraut á framhaldsskóla- stigi fyrir heyrnarlausa og heymar- skerta við skólann, og að Menntaskól- inn við Hamrahlíð verði gerður að kennslumiðstöð fyrir fatlaða. í sam- tali við Morgunblaðið segir Ágústa frá þætti sínum í starfínu, hvert upphafið var og þróunin, og hverjir draumar brautryðjendanna eru. í fljótu bragði sýnist ekki fýsilegt að leggjast í dagdrauma í því hús- næði sem Ágústa og hinir fötluðu nemendur vinna í daglega. Tvö lítil herbergi í kjallara og gluggalaus kompa eru afdrep þeiira. I öðru her- berginu er skrifstofa Ágústu, sem er oftast eins og umferðarmiðstöð, og í herberginu við hliðina er vinnuaðstaða nemenda og snyrting. í gluggalausu kompunni gegnt þessum herbergjum vinnur blind stúlka við sérstakan tölv- uskjá. Gagntekin af starfinu Frá því að Menntaskólinn við Hamrahlíð var stofnaður árið 1966 hafa fatlaðir stundað þar nám með einum eða öðrum hætti, en á aðeins fjórum árum hefur fjöldi þeirra fímm- faldast, eins og áður er sagt. Ágústa hóf störf í MH sem dönsku- kennari árið 1987, með BA próf í dönsku og sagnfræði, og í uppeldis- og kennslufræðum, auk náms í náms- ráðgjöf. Afskipti hennar af fötluðum nemendum voru lítil í fyrstu en tóku síðan óvænta stefnu. „Samhliða kennslunni hafði ég umsjón með listgreinum og meðal valgreina var táknmál sem Berglind Stefánsdóttir táknmálskennari kenndi, og það vakti áhuga minn. Á þessum tíma hafði ég hvorki umgeng- ist né þekkti fatlaða manneskju. Árið 1990 bauðst mér staða náms- ráðgjafa og var ekki búin að vera í því starfi nema á annan mánuð þegar sálfræðingur sem hafði umsjón með fötluðum nemendum hætti. I kjölfar þess skapaðist óvissa í skólanum um málefni fatlaðra. Ég setti niður á blað vinnuáætlun varðandi kennslu og að- stoð við þá og í framhaldi af því var ég beðin um að taka að mér umsjón með kennslu þeirra. Þegar ég svo tók við þessum átta nemendum fékk ég eitt blað í hendum- ar, þar sem nöfn þeirra og fötlun var tilgreind og tóma skrifstofu hér í kjall- aranum til umráða. Ég áttaði mig ekki á því þá að starfíð ætti eftir að vinda svona upp á sig eins og raunin varð. Ég hætti að kenna dönskuna og varð gagntekin af þessu starfi. í raun mátti líkja þessu við að vera hent út á opið haf, maður reyndi eftir bestu getu að synda í land. Að mörgu leyti var það líka gott að fá engin fyrir- mæli um það hvernig gera ætti hlutina og geta því mótað þá eftir eigin höfði. “ Erfiður skóli Þegar fatlaður nemandi kemuFinn í skólann eru námsþarfír hans metnar. Athuga verður hver sérkennsluþörf hans er, hvort hann þurfí aðstoð hjúkr- unarfræðings, hvað fög skuli valin, hvaða námsefni hann getur nýtt sér og svo framvegis. „Það tekur oft langan tíma að fá hin réttu kennslugögn," segir Ágústa. „Fjölfatlaðir þurfa oft að fá bækur sínar á tölvutækt form og til dæmis verður féð sem safnaðist á tónleikum fyrir stuttu notað til að kaupa meðal annars „skanner“, tæki sem setur námsbækur á tölvudiska." Stuðningstímar eru mjög mikilvægir til að nemendur geti haldið í við hóp- inn í bekknum. „Sjónskertur nemandi getur verið mjög góður námsmaður, en hann sér ekki á töfluna. Því fær hann stuðningstíma með kennara sín- um þar sem farið er yfir námsefni næsta tíma, eða rifjað upp námsefnið. Að meðaltali eru það um 20 kennar- ar á hverri önn sem kenna fötluðum í stuðningstímum. Þess ber þó að geta að við erum að fá núna nemendur sem eiga ekki einungis við fötlun að stríða heldur líka námsörðugleika. Úrræðin þurfa því að vera fleiri. MH er erfíður bóknámsskóli og því reynist hann mjög erfíður þeim sem hafa ekki gott undirstöðunám. En þessir nemendur koma í Hamrahlíðina því að hér er vinsamlegt umhverfi og stuðningur, enda þótt þeir hafí ef til vill áhuga á námi sem aðrir skólar bjóða upp á. Þeir fá ekki alltaf inngöngu þar.“ Lánar hendur sínar Ágústa segir að kennsla fatlaðra bjóði upp á mikla þróunarvinnu. „Það sem er kannski mest spenn- andi er það hversu margir aðilar koma við sögu. Það sem við gerðum hér, og sem hefur vakið mikla athygli á öðrum Norðurlöndum til dæmis, var að þróa aðstoðarnemendakerfi. Mikið fatlaður nemandi fær þá aðstoðar- mann í hverri námsgrein sem tekur á móti honum, aðstoðar hann við að taka upp úr töskunni, raða á borðið, fletta bókum, gata blöð og Ijósrita. Aðstoðarnemandinn lánar hinum fatl- aða hendur sínar. Aðstoðamemendurnir vinna undir minni handleiðslu og þetta kerfi er nú orðið mjög öflugt. Með þessu móti verða hinir fötluðu líka betur settir félagslega og einangrast síður. Við reynum að hafa aðstoðarnemendurna marga þannig að þeir þreytist síður og að hinn fatlaði verði ekki um of háður einum tilteknum aðstoðarnem- anda. Þessir nemendur sem aðstoða eru flestir í sjálfboðavinnu og hafa mjög mikið að gera. Oftast eru þeir svo heillaðir af þessu starfí sínu að maður verður stundum að stoppa þá af. Það er mjög eftirsótt að vera aðstoðarnem- andi, þannig að þetta er virðingar- staða. Aðstoðamemandi þarf að vera mjög áreiðanlegur og stundvís, en hann þarf hins vegar alls ekki að vera betri námsmaður en hinn fatlaði. Oft og tíðum bæta þeir hvor annan upp í námi.“ Hvað er fiskur? Flestir hinna fötluðu nemenda í skólanum era heyrnarlausir eða heyrnarskertir. „Þeir eru um 25 tals- ins og munu víst vera fleiri en nemend- ur í Heyrnleysingjaskólanum,“ segir Ágústa. „Það er dálítið sérstakt því að Menntaskólinn við Hamrahlíð er ekki sérskóli og er ekki með skilgreint hlutverk sem slíkur, en hann hefur hins vegar tekið framhaldsskólalögin frá 1988 mjög alvarlega, þar sem seg- ir að allir nemendur sem hafi lokið grunnskólaprófi hafí rétt á framhalds- skólanámi. Þegar fjölfatlaður nemandi við skól- ann, Ásdís Jenna Ástráðsdóttir, út- skrifaðist úr skólanum um jólin 1992, var það öðrum fötluðum nemendum hvatning. Árinu áður hafði heyrnar- laus stúlka hafið nám hér og gengið vel, enda voram við þá komin með táknmálstúlk, og þegar fólk sá árang- ur þeirra beggja, má segja að skriðan hafí farið af stað. Eftir að heyrnarlausir komu inn í skólann heyrðust raddir sem sögðu gott og vel, þeir fá inngöngu, en hvernig ætla þeir að útskrifast? En það er nú þannig að hjólin fara fyrst að snúast þegar nemendur era komn- ir á staðinn. Fljótlega sáum við að þeir höfðu ekki nógu góðan grunn í íslensku og því síður í sínu eigin máli, sem er táknmálið. Heyrnarlausir hafa gengið í gegn- um ýmsar stefnur. Um tíma var bann- að að nota táknmálið, þeir urðu að lesa af vörum. Menn halda ef til vill að heyrnarlausir geti lært íslensku af bókum, en svo einfalt er það ekki. Þeir hafa ekki alist upp við það að heyra málið í kringum sig og höfðu margir engar málfyrirmyndir. Til að skýra vanda þeirra vil ég nefna dæmi. Nemanda er ef til vill sýnd mynd af bláum físki og það er sagt við hann ótal sinnum orðið fiskur. Hann reynir að herma eftir og segja fiskur, en hann veit ekki hvað er í raun fiskur. Er það blái liturinn, eru það uggarnir, hvað er fískur af þessu á myndinni? En þegar heyrnarlaus manneskja sýnir nemandanum á táknmáli hvað er fiskur, táknar fískinn, skilur hann það. Heyrnarlausir hafa sitt móðurmál, sem er táknmál, en heyrnarskertir era að hluta til heyrandi og að hluta til heyrnarlausir. Þeir eru því á milli tveggja heima og þeim hefur ekki verið sinnt í framhaldsskólakerfinu til þessa. Þeir hafa verið skikkaðir til þess í tímum að lesa af vörum kennar- ans sem er ákaflega erfitt og orsakar augnverki og strengi í líkamanum. Það urðu miklar framfarir þegar við fengum táknmálstúlka og rittúlka frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Táknmálstúlkarnir sitja með nemendum í tímum og þýða yfir á táknmál það sem kennarinn segir. Oft geta fleiri en einn nemandi nýtt sér aðstoð táknmálstúlksins. Rittúlkarnir aðstoða heyrnarskerta sem geta ekki nýtt sér táknmálið, og heyra ekki heldur hvað kennarinn segir. Þeir sitja við hlið nemandans, slá inn talað orð á tölvu og stækka það á skjánum. Mér finnst það vera skylda okkar að reyna að koma þannig til móts við þarfir fatlaðra nemenda að þeir geti Fatlaðir nemendur 1990 1991 1992 1993 1994 þeir að tákna rétt alveg eins og menn þurfa að tala íslenskuna rétt. Tákn- málið er þeirra móðurmál. Nýlega fengum við tækifæri til að kynna okkur kennsluaðferðir fyrir heymarlausa og heymarskerta. Ég hafði áður farið til Bandaríkjanna í þeim tilgangi, en nú fórum við, Sverr- ir Einarsson konrektor, og Berglind Stefánsdóttir táknmálskennari, til Svíþjóðar. Meðal annars hittum við Kristinu Svartholm sem er prófessor við Stokkhólmsháskóla í táknmáls- fræðum og hefur manna mest rann- sakað máltöku heyrnarlausra. Hún staðfesti að við væram á réttri leið í starfi okkar. Námsbraut heyrnarlausra og heyrnarskertra var stofnuð nú í jan- úar og þar kennum við íslenskt tákn- mál, íslensku og ensku fyrir heyrnar- lausa og heyrnarskerta. Við göngum út frá því að táknmálið sé móðurmál og kennum íslenskuna sem mál númer tvö eða eins og um fyrsta erlenda mál væri að ræða. Þegar nemendur hafa öðlast góðan lesskilning geta þeir farið að skrifa rétta íslensku. Til að undirbúa kennarana héldum við táknmálsnámskeið og nú era 30 af kennuram skólans búnir að ljúka fyrsta áfanga þess náms. Tveir ís- lenskukennarar og tveir enskukennar- ar fóru einnig utan til Svíþjóðar og komu til baka með námsgögn og nýj- ar hugmyndir. Stefnan er sú að kenn- ari sem kennir heyrnarlausum þurfí ekki að hafa táknmálstúlk í íslensku og ensku. I öðrum greinum verða nemendur hins vegar að nýta sér túlk.“ Kennslumiðstöð Á þessum fjórum árum hefur því átt sér stað mikil þróunarvinna í Menntaskólanum í Hamrahlíð en hún hefur ekki alltaf verið átakalaus. Ág- ústa segist hafa tekið það mjög nærri sér þegar neita þurfti fjórum fötluðum nemendum um skólavist nú fyrr í vet- ur. En staðreyndin væri sú að starf- semin væri að vaxa þeim yfir höfuð. „Við ráðum ekki við þetta nema að til komi stærra húsnæði og fleira OFT ER glatt á hjalla hjá aðstoðarnemendum og hinum fötluðu nemendum. Hrönn Sigríður Steinsdóttir aðstoðarnemandi er hér með Margréti Eddu Stefánsdóttur sem hlær dátt, og í anddyri skólans spjalla þeir saman Tumi Traustason aðstoðarnemandi og Ragnar Bjarnason skjólstæðingur hans. einbeitt sér að því fyrst og fremst að nema fræðin. Áð þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur af því hvort þeir fái túlk, stækkun, aðstoðarnemendur, Ijósritun eða annað.“ Á réttri leið Til að heymarlausir og heyrnar- skertir geti numið fræðin þurfa þeir fyrst og fremst að hafa fullkomið vald á táknmáli, og táknmálið þarf að hafa tákn yfír öll þau hugtök sem nemandi þarf að tileinka sér í náminu. „Þegar við áttuðum okkur á þessu fórum við út í samstarfsverkefni með Samskiptamiðstöðinni og sótt var um styrk til námsgagnagerðar til mennta- málaráðuneytisins. Svandís Svavars- dóttir málfræðingur og Berglind Stef- ánsdóttir táknmálskennari bjuggu síð- an til námsefni í íslensku táknmáli. Við byrjuðum að kenna þetta nýja námsefni árið 1993 og það er í fyrsta skipti sem íslenskt táknmál er kennt með formlegum hætti í skóla á íslandi. Þegar heyrnarlausir og heyrnar- skertir læra táknmálið fer þeim að ganga betur í öllu öðru námi og öðl- ast sjálfstraust. Og táknmálið þurfa starfsfólk. Það er ósk okkar að fá viðbótarálmu, hvort sem þessi starf- semi hér í kjallaranum fari þangað eða önnur starfsemi skólans." Menntamálaráðherra skipaði nefnd sem skyldi vinna að úrbótum í kennslu fatlaðra og í henni voru fulltrúar frá menntamáláráðuneytinu, Menntaskól- anum í Hamrahlíð, Iðnskólanum, Ör- yrkjabandalaginu og landssamtökun- um Þroskahjálp. Nefndin lagði til að þrír skólar á höfuðborgarsvæðinu verði kennslu- miðstöðvar fyrir fatlaða, Menntaskól- inn við Hamrahlíð og Iðnskólinn, en ekki hefur verið ákveðið hver þriðji skólinn verður. „Menntaskólinn við Hamrahlíð fær þá skilgreint hlutverk sem kennslu- og ráðgjafarmiðstöð,“ segir Ágústa. „Skólinn tæki þá að sér sérhæfingu á ákveðnu sviði í kennslu fatlaðra og hefði það hlutverk að miðla þekkingu og reynslu til annarra. Kennarar skólans eru margir hverj- ir orðnir mjög færir í að kenna nem- endum með ólíka fötlun og gæti því sú fagþekking sem hér er fyrir hendi nýst öðrum skólum." „Rauða ógnin“ í Eþíópíu UPPREISNARMENN aka skriðdrekum inn til Addis Ababa á síð- ustu dögum valdaskeiðs „Rauðu ógnarstjórnarinnar" í Eþíópíu. Leiðtogarnir sakaðir um þjóðarmorð Harare, Addis Ababa. Daily Telegraph, Reutcr. Illræmd herforingjastjóm var við völd í Eþíópíu — — ■ 1974-91. Agúst Asgeirsson segir frá umfangs- miklum stríðsglæparéttarhöldum sem hófust í gær í Addis Ababa yfír leiðtogum hennar. RÉTTARHÖLD hófust í gær í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, yfir Mengistu Ha- ile Mariam fyrrverandi leiðtoga, og 66 samverkamönnum hans, sem sakaðir eru um þjóðarr morð. Um er að ræða umfangsmestu stríðsglæparéttarhöld frá Núrnberg- réttarhöldunum í Þýskalandi eftir stríð þar sem leiðtogar nasista voru dæmdir fyrir stríðsglæpi. Reyndar hófust réttarhöldin í desember en var frestað um þijá mánuði á fyrsta degi eftir lestur ákæruskjalsins og varnar- ræðu lögfræðinga sakborninganna. Sérstakur stríðsglæpadómstóll réttar í máli Mengistu og samverka- manna hans. Ógnarstjórn hans, sem kenndi sig við marxisma og gekk manna á meðal undir nafninu „Rauða ógnin", var við völd á árunum 1977 til 1991. Er talið að hún hafi látið myrða milli 50 og 200 þúsund manns á þessum tíma. í ákæraskjali er nafngreindur 271 einstaklingur sem herforingjastjórnin er sögð hafa látið taka af lífi án dóms og laga. Þar á meðal er Haile Se- lassie fyrrverandi keisari, 60 ráðherr- ar hans og annað fyrirfólk. Mengistu komst til valda 1977 er hann varð ofan á í herforingjastjórn- inni sem steypti Haile Selassie keis- ara árið 1974. Réttað verður í málinu að honum fjarstöddum. Af 66 ákærð- um voru aðeins 47 mættir í réttarsafn- um í gær, hinir eru ýmist látnir, í útlegð eða hafa við í ítalska sendiráð- inu í Addis Ababa. Mengistu flýði til Zimbabwe þegar uppreisnarmenn steyptu stjórn hans í maí 1991. í fjögur ár hefur hann lifað í vellystingum praktuglega í úthverfí höfuðborgarinnar Harare undir vemd- arvæng Roberts Mugabe forseta. Ríkisborgari eða ekki? Það þótti skyggja á upphaf réttar- haldanna í gær, að fréttir bárast frá Zimbabwe þess eðlis, að Mengistu hefði verið veittur ríkisborgararéttur þar í landi. Blaðið Sunday Gazette í Harare sagði, að harðstjórinn fyrrverandi væri orðinn zimbabskur ríkisborgari. Birti blaðið skjöl, sem áttu að sanna að svo væri. Gífurleg reiði ríkti í Addis Ababa í gær vegna þessa. Gébre-Mariam Bok- an, fyrrverandi ríkissaksóknari sem sat átta ár í fangelsi á valdatíma Mengistu, sagði að ef rétt væri, jafn- gilti það því „að stjórnin í Zimbabwe hefði tekið djöfulinn í heilagra manna tölu“. í gær fullyrti loks Dumiso Dab- engwa' innanríkisráðherra Zimbabwe að frétt blaðsins frá því á sunnudag um ríkisborgararétt Mengistu og fjöl- skyldu hans væri röng. Hermenn og lífverðir eru á hveiju strái við hús Mengistu í Harare og^. ekkert fararsnið á honum. Stjómvöld í Addis Ababa hafa gert árangurs- lausar tilraunir til þess að fá hann framseldan svo hann geti svarað til saka. Lúxuslíf Menn, sem eru í innsta hring stjómvalda í Zimbabwe, segja að fjöl- skylda Mengistu búi við mikinn lúx- us. Lífverðir aka börnum hans í glæsi- bifreiðum til og frá einkaskóla þar sem þau eru skráð undir röngu nafni, kennurum og skólafólki til mikillar gremju. Gera verður ráð fyrir að Mengistu njóti hins ljúfa lífs í skjóli stjórnarinn- ar í Harare meðan hann nýtur stuðn- ings hennar og Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Mugabe forseti hefur hingað til skirrst við áskorunum um að fram- selja Mengistu og reyndar ekki viljað ræða mál hans við nokkurn mann þar til mjög nýlega. „Hvaða samfélag myndi hafna rétti einstaklings til þess að sækja um stöðu flóttamanns?" svaraði hann aðspurður á tröppum forsetabústaðarins. „Bandaríkjamenn óskuðu okkur til hamingju svo og mörg Evrópuríki þegar við tókum hann hingað og stuðluðum þannig að lýðræðislegum breytingum í Eþíópíu,“ bætti hann , við. Þjálfaði skæruliða Mengistu nýtur einnig stuðnings flestra þeirra 5.000 skæraliða í Zimbabwe sem hann þjálfaði og lét í té vopn til skæruhemaðar gegn hersveitum stjómar hvítra manna í Rhódesíu á áttunda áratugnum. Stendur Mugabe og stjóm hans að því Ieyti í þakkarskuld við fyrrverandi valdhafa í Eþíópíu. Háttsettir embættismenn í Addis Ababa gera ráð fyrir því, að verði Mengistu sekur fundinn um að hafa fyrirskipað aftökur á tugþúsundum manns, verði stjórn Zimbabwe beitt það miklum alþjóðlegum þrýstingi, að hún eigi ekki annarra kosta völ en framselja hann. Nánir samverkamenn Mugabe herma þó, að forsetinn muni því að- eins senda harðstjórann fyrrverandi til baka ef sýnt þykir, að hann noti skjól sitt í Zimbabwe sem stjórnstöð fyrir pólitíska starfsemi heima fyrir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.