Morgunblaðið - 09.03.1995, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 35
Þversögnin
um fákeppni
AF umræðu sl. vik-
ur um fákeppni má
skilja að fákeppni sé
óæskileg, óheilbrigð
og beinlínis hættuleg
og geti stuðlað að
óheilbrigðum við-
skiptaháttum. Um-
ijöllun Steingríms J.
Sigfússonar í grein í
Mbl. 11. febrúar sl.
endurspeglar þetta
viðhorf, þegar hann
ijallar um mörg ein-
kenni „hættulegrar
fákeppni" með sér-
stakri tilvísun til
tryggingaviðskipta,
olíuviðskipta,* banka-
viðskipta, samgangna, flutninga og
ferðaþjónustu. Þessi umræða er að
mínu mati komin langt út á tún
og nauðsynlegt að draga hana nær
mölinni í sögulegu samhengi.
Steingrímur drepur aðeins á þá
grundvallarstaðreynd „að íslenski
markaðurinn sé auðvitað smár og
fámennur, en annarri nothæfari
viðmiðun sé ekki fyrir að fara en
þeirri hversu stór hlutfallslega fyr-
irtækin eru á hinum íslenska mark-
aði, meðan sú staða vari að þau
búi ekki við erlenda samkeppni eða
aðhald með öðrum hætti“. Eðli og
starfsemi þessara fyrirtækja, sem
Steingrímur vísar í, er nothæfari
viðmiðun að mínu mati. Þessi fyrir-
tæki eiga það sameiginlegt að
rekstrarforsenda þeirra er háð hag-
kvæmni stærðar, þau þurfa að vera
stór og sterk til að geta staðið
undir fjárfestingartækjum (sam-
göngur og flutningar) og áhættu
(bankar og tryggingafélög). Það
er því blátt áfram veruleikafirring
að halda því fram að hér geti þrif-
ist tryggingafélög, bankar, skipafé-
lög og flugfélög í tveggja stafa tölu.
Nær mölinni í
sögulegu samhengi
Nokkur þessara fyrirtækja voru
stofnuð á meðan ísland var ófull-
valda sambandsríki Danaveldis, þar
á meðal Eimskipafélagið og Sjóvá.
Þeim framsýnu athafnamönnum,
sem stóðu að stofnun þessara fyrir-
tækja, hefur örugglega ekki komið
til hugar að 80 árum síðar væri
tilvist þeirra og styrkur talið vera
hættulegt íslensku viðskiptalífi.
Með tilvísun til
tryggingamarkaðarins
Um miðjan níunda áratuginn
voru ekki færri en 11 tryggingafé-
lög starfandi, þar af nokkur sem
störfuðu í skjóli sérlaga og einokun-
ar á ákveðnum tryggingagreinum.
Einokun á brunatryggingum fast-
eigna var fyrst aflétt um síðustu
áramót. Á þessum áratug var mik-
il og sterk umræða um nauðsyn
hagkvæmari rekstar. Þessi um-
ræða beindist ekki síst að trygg-
ingafélögum og bönkum. Rætt var
um að sameining fyrirtækja myndi
hafa í för með sér meiri hag-
kvæmni í rekstri og þar með betri
samkeppnishæfni bæði gagnvart
innlendri og erlendri samkeppni.
Fólk var nefnilega það framsýnt
að telja að hindranir gagnvart er-
lendri samkeppni myndu ekki vara
að eilífu.
Skriður komst á sameinungar-
viðræður vorið 1988 í kjölfar um-
talsverðra hækkana á bifreiða-
tryggingaiðgjöldum. Hækkanir
þessar hrintu af stað mikilli um-
ræðu í fjölmiðlumf og jafnvel á
Alþingi, þar sem álitið var að stærri
rekstrareiningar myndu skila sér í
lægri iðgjöldum. Áður en tíundi
áratugurinn gekk í garð var sam-
eining tryggingafélaga orðin að
veruleika og í dag starfa nú 6 félög
í öllum tryggingagreinum, þar af
eitt með óljósri erlendri eignaraðild.
Hvort ávinningur af
sameiningu hafí skilað
sér í lægri iðgjöldum
til viðskiptavina eða til
eflingu eigin trygg-
ingasjóða félaganna
skal ósagt látið, en víst
er að á þessum mark-
aði ríkir lífleg sam-
keppni.
Ekki gefst færi á
hér að ræða mikið um
bankamarkaðinn en
ljóst er að helsta mein-
ið á þeim markaði er
ekki hversu fáar þess-
ar stofnanir eru heldur
hversu fjárhagslega
veikar þær eru og með
lítilli áhættudreifíngu. Útlánatöp
þessara stofnana hafa verið færð
beint út í vaxtastigið, þrátt fyrir
Fákeppni getur verið
hagkvæm, segir Jenný
Stefanía Jensdóttir,
sem hér svarar
grein Steingríms J.
Sigfússonar.
umtalsverða innspýtingu frá eig-
endum sumra í formi (ó)fijálsra
framlaga. Hátt vaxtastig undanf-
arin ár endurspeglar þannig veika
stöðu banka- og lánstofnanakerfis-
ins, þannig að þau fyrirtæki sem
eftir lifa halda vart höfði undan
vaxtaokrinu og neyðast til að líta
út fyrir innlenda markaðinn.
Hvernig hafa t.d. ný þjónustugjöld
bankanna fyrir hvers kyns viðvik
til viðskiptavina í formi upplýsinga
um stöðu og ljósrit svo dæmi sé
tekið, sem í öðrum greinum eru
talin sjálfsögð, eðlileg og ókeypis,
skilaði sér í minni vaxtamun eða
lækkun vaxta? Spyr sá sem aðeins
fínnur fyrir sívaxandi kostnaði
vegna nauðsynlegra samskipta við
banka.
Þversögnin um fákeppni
Fákeppni í ýmsum greinum at-
vinnulífsins er því þjóðhagslega
hagkvæm og nauðsynleg, það
hljóta allir að sjá. í mörgum ofan-
greindum greinum má jafnvel ná
enn meiri hagkvæmni með frekari
sameiningu. I þjóðfélagi sem telur
um 90 þúsund heimili og 260 þús-
und einstaklinga er þó aðdáunar-
vert að sjá hversu atvinnuflóran
er fjölbreytt. Hvergi situr einn að
kökunni, nema í skjóli umdeildra
einokunarlaga og opinbers rekst-
urs. Hin raunverulegu hættulegu
einkenni fákeppni eru hins vegar
samráð um verð og misnotkun
markaðsyfirráða. Bankamir kom-
ast upp með verðsamráð í formi
færslugjalda tékka og debetkort-
færslna. Olíufélögum hefur um
langt skeið verið brigslað um verð-
samráð og hvað gerist? Erlent risa-
olíufélag finnur smugu og freistar
inngöngu, boðuð hefur verið stofn-
un nýs félags, sem ætlar að selja
bensín umtalsvert ódýrara en hin
félögin. Þegar tæknilegum og land-
fræðilegum viðskiptahindrunum
verður rutt úr vegi þurfum við litl-
ar áhyggjur að hafa. Lögmál
markaðarins virkar. Að lokum, all-
ar hugmyndir um kvóta á híuta-
bréfaviðskipti hljóta að vera hugar-
órar úr fornöld og til þess eins falln-
ar að ýta undir spillingu og svarta-
markaðsbrask. Á hinn bóginn er
ég algjörlega sammála mati Stein-
gríms um meint mannahallæri í
viðskiptaheiminum. Það er ekkert
hallæri.
Höfundur er framkvæmdastjóri
iðnfyrirtækis.
Jenný Stefanía
Jensdóttir.
Leíkið á reiknilíkan
Athugasemd við athugasemd vegna tilvísana
ÞAKKIR eiga skildar
þeir Ari Amalds og
Guðni Ingólfsson fyrir
að birta athugasemdir
við grein mína í Mor-
bunblaðið h. 21. febr-
úar, þar sem ég gagn-
rýndi hvemig reiknilík-
an þeirra hefur verið
notað til að sanna fjár-
hagslega hagkvæmni
tilvísanaskyldu. Stað-
festa þeir ýmsa veik-
leika líkansins í grein
sinni, væntanlega þó
óafvitandi.
Vankantar
staðfestir
Reiknilíkanið var fyrst kynnt
læknum í janúar sl. Næsta útgáfa
líkansins, dagsett 8. febrúar, var
notuð af ráðherra til að kynna spam-
að með reglugerð um tilvísanaskyldu,
sem undirrituð var 9. febrúar. Þá
útgáfu fékk ég í hendur 10. febrúar.
Seinna sama dag mun síðasta útgáfa
reiknilíkansins hafa fæðst. Á tveimur
dögum hafði veigamiklum forsendum
verið breytt, m.a. hafði flæðiaukning
til heilsugæslu aukist um rúm 40%,
eins hafði meðalgreiðsla ríkissjóðs
vegna komu til sérfræðings aukist
um rúm 20% og reikniaðferð í öðmm
meginþættinum verið breytt. Þetta
staðfestir þá gagnrýni mína, að með
því að hringla fram og til baka með
ýmsa þætti líkansins, þá mætti fá
fram breytilegar niðurstöður. Þar
hættir líkanið að vera fræðileg að-
ferð og fellur í gryíju pólitísks lodda-
raskapar. Hér er ekki við höfunda
reiknilíkansins að sakast, enda dreg
ég ekki í efa að þeir hafi unnið sitt
verk af fræðilegum heilindum.
Bruðlað í heilsugæslu
„Spamaður" ráðherra byggir m.a.
á þeirri fjarstæðukenndu ósk, að
auka megi afköst lækna og starfsliðs
þeirra í heilsugæslu um 20%, án
þess að kostnaður aukist um eina
krónu, ef undan er skilin taxta-
greiðsla til læknis fyrir hvert unnið
verk. Með öðmm orðum þá kosta
102.000 nýjar komur ekkert í aðstoð
hjúkmnarfræðinga, í móttöku- og
ritaravinnu, ræstingu, síma- og frí-
merkjakostnaði, svo fátt eitt sé talið.
Ef satt er, þá liggur beinast við að
álykta, að þama hafi verið vannýtt
vinnuafl á fullum launum; aðhald í
rekstri hafi ekki fylgt samdrætti síð-
ustu þijú árin. Með ítrasta aðhaldi
hefði mátt spara 50 milljónir á ári í
heilsugæslunni á samdráttarámnum.
Og mætti þá enn, að óbreyttu
ástandi.
Nær sanni
Ekki ber ég sama vantraust til
stjómenda heilsugæslustöðva og ráð-
herra og tel að ofangreind aukning
muni leiða til hærri rekstrarkostnað-
ar, enda hefur ráðherra sagt (reynd-
ar stuttu fyrir kosningar), að bæta
þyrfti við nokkmm heilsugæslustöðv-
um í kjölfar tilvísanaskyldu. Þar yrði
kostnaður á hvert læknisverk svipað-
ur landsmeðaltali, þ.e. kr. 1.425
(1992), en ekki kr. 708, eins og líkan-
ið gerir ráð fyrir. Kostnaður myndi
■ FYRRVERANDI og núverandi
nemendur Tjarnarskóla munu
iialda upp á 10 ára afmæli skólans
nú á vorönn. Fyrsti þátturinn í af-
mælishaldinu verður leikhúsferð.
Leikhúsferðir hafa alltaf verið stór
þáttur í skólastarfinu og þess vegna
varð leikhúsferð fyrir valinu. Fyrr-
verandi og núverandi nemendum,
ásamt fjölskyldum, gefst kostur á
að koma í Borgarleikhúsið og sjá
Kabarett. Leikhúsferðin verður
farin fímmtudaginn 23. mars en
panta verður miða á skrifstofu skól-
ans fyrir miðvikudaginn 15. mars.
Til að gera endurfundina enn
skemmtilegri er fyrirhugað að hitt-
ast í leikhúsinu um það bil hálftíma
fyrir sýningu og gefst þá tækifæri
til smá spjalls.
væntanlega liggja þama
einhvers staðar á milli.
Þetta lækkar „spamað-
inn“ um 37 milljónir fyr-
ir utan stofnkostnað
nýrra stöðva.
í villum
Þeir félagar taka und-
ir þá ábendingu mína,
að dýrari sérfræðiverk
verði unnin áfram af
sérfræðingum, og að
það verði sjúklingar með
„ódýra kvilla“, sem fari
til sérfræðings án tilvís-
unar. Leiðrétta þeir út-
reikninga í samræmi við
þetta, og draga 23 millj-
ónir frá „spamaði" ríkissjóðs. En
þeir gleyma því að það sama gildir
um þá sem fá fullnaðarafgreiðslu í
heilsugæslu. Dragast þar enn frá 56
milljónir.
Eg tel að þeir félagar noti hér of
lágar tölur og taki ekki tillit til áhrifa
breytinga á afsláttarkerfi. Að teknu
tilliti til þess, þá myndi ég lækka
tölur þeirra um helming og aðeins
reikna ríkissjóði 39 milljóna viðbót,
en ekki 79 milljóna.
Einnig gleyma þeir þeirri einföldu
staðreynd að við þessar lagfæringar
hækkar meðalkostnaður ríkissjóðs á
hveija komu tii sérfræðings verulega
og verður kr. 2.348, en ekki kr.
1.688. Þetta minnkar spamað ríkis-
sjóðs um 101 milljón. Og er hér mjög
varlega reiknað.
Fælingarmáttur tilvísana
Gert er ráð fyrir því í forsendum
líkansins, að 4,5 % þeirra, sem leit-
uðu sérfræðings í fyrra, muni bregða
svo illa við nýja kerfinu, að þeir
munu ekki leita læknis á árinu.
Hvorki til heimilislæknis né sérfræð-
inga! Þetta á að spara ríkinu 12,7
milljónir. Og líkanið gerir ráð fyrir,
að það sparist um 60 milljónir vegna
þeirra, sem sleppa því að sælq'a tilvís-
un og taka á sig allan sérfræðikostn-
aðinn sjálfir.
Sparnaður eða
peningatilfærslur?
Peningaflæði mun aukast til heil-
sugæslu og munu sjúklingar bera
Væri því ekki ráð, spyr
Högni Óskarsson, að
heilbrigðisráðherra sett-
ist niður með reyndum
læknum og sínum ráð-
gjöfum til að ræða af
alvöru um betri nýtingu
fjármuna í heilbrigðis-
þjónustunni?
dijúgan kostnað þess, eða 48 millj-
ónir. 60 milljónir taka tilvísanalausir
sjúklingar á sig. Samkvæmt líkaninu
eiga sjúklingar svo á móti að spara
sér um 106 milljónir hjá sérfræðing-
um. Sú tala fær ekki staðist vegna
þess, að reiknilíkanið tekur ekki með
í dæmið að kostnaður við sérfræði-
verk er frá kr. 1.600 upp í tugi þús-
unda, sem hefur flókin áhrif á af-
sláttarkerfí. Einföld meðaltöl gefa
því rangar upplýsingar. Niðurstaðan
yrði um 6 milljónir. Aukaálag á sjúkl-
inga gæti því orðið um 102 milljón-
ir. Og á ríkissjóð 57 milljónir.
Lokaorð
Eflaust má deila endalaust um
þessar tölur og sömuleiðis veikleika
í grunnforsendu reiknilíkansins, þ.e.
spána um 32% minni aðsókn til sér-
fræðinga. Samkvæmt reynslu minni
og fjölmargra annarra er sú spá full-
komlega út í hött og bersýnilega til-
búningur þeirra sem ekki hafa kom-
ið nærri lækningum svo neinu nemi
á sínum starfsferli.
Þegar upp er staðið, þá ætlar ráð-
herra að hleypa af stokkunum kerfí
sem sannanlega verður öllum dýrara
og óþægilegra en það sem við nú
búum við og auk þess óvinsælt með
afbrigðum. Væri því ekki ráð að
heilbrigðisráðherra settist niður með
reyndum læknum og sínum ráðgjöf-
um til að ræða af alvöru um betri
nýtingu fjármuna í heilbrigðisþjón-
ustunni?
Höfundur starfar sem geðlæknir
í Reykjavík.
Síðustu sœtiit til
Benidonn um páskana
Jrá kr. 47.830
Við höfiim nú fengið viðbótar-
sæti til Benidorm um páskana
og örfáar viðbótaríbúðir á hinu
vinsæla E1 Faro íbúðarhóteli.
Hér nýtur þú hins besta í
fríinu, móttaka, veitingastaðir,
sjónvarp og sími í íbúðum,
líkamsrækt, gufubað o.s.ffv.
Bókaðu strax og tryggðu þér
síðustu sætin í sólina um páskana.
\érð frá kr. 47X30
m.v. hjón með 2 böm, EL Faro
V»ð írá kr. 58560
m.v. 2 í íbúð, E1 Faro, 11. apríl.
Innifalið í verði:
Flug, gisting, ferðir
til og frá flugvelli á
Spáni, fararstjórn,
skattar og
forfallagjald.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti
SSSP
M 1
æð. Simi 624600.
Högui
Óskarsson