Morgunblaðið - 11.03.1995, Page 16
16 LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995
LAIMDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Rauði krossinn af-
hendir neyðarbún-
að til sjúkraflugs
Vestmannaeyjum - Sérhannaður
neyðarbúnaður til notkunar í
sjúkraflugi, sem gefinn er af Rauða
krossinum, var afhentur Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja og Flugfélagi Vest-
mannaeyja hf. í vikunni. Búnaður-
inn hefur að geyma sérstaka grind
sem búin er tækjum ásamt sjúkra-
flutningarúmi og veldur byltingu í
öryggi þeirra sem flytja þarf.
Rauða kross-deildirnar í Vest-
mannaeyjum, Kirkjubæjarklaustri,
Vík í Mýrdal, Rangárvallarsýslu,
Árnessýslu, Hveragerði, Grindavík,
Suðurnesjum, Bessastöðum og
Garðabæ eru gefendur búnaðarins.
Búnaðurinn samanstendur af
grind sem í er súrefniskútur, og
skáp sem inniheldur hjartarafsjá,
hjartastuðtæki, gangráð, súrefnis-
skömmtunartæki, öndunarvél og
sogtæki, ásamt sjúkraflutninga-
rúmi. Sérstakar festingar eru bæði
á sjúkrarúminu og kassanum þann-
ig að hægt er að festa búnaðinn í
sætisfestingar flugvélar. Sigrún
Árnadóttir framkvæmdastjóri RKÍ
sagði að búnaðurinn hefði kostað
eina og hálfa milljón og hefði verið
fjármagnaður í sérverkefnasjóði.
Flugstellið
Hún sagði að fullkomin neyðar-
búnaður væri kominn í alla 60
sjúkrabíla sem eru í eigu Rauða
krossins og lengi hefði verið um-
hugsunarefni með hvaða hætti
mætti bæta þær frumstæðu að-
stæður sem sjúkraflugið hefði búið
við. Nauðsyn hafi þótt á að hafa
samskonar öryggisbúnað í flugvél-
um sem sinntu sjúkraflugi eins og
í sjúkrabílunum til að reyna að
tryggja öryggi sjúklinga sem best.
Rauði krossinn hafi því fengið
Kristján Ámason, flugvélaverk-
fræðing, til að útfæra hugmyndir
og hanna smíði á „flugstellinu“ eins
og þessi búnaður er nefndur og
hafi sá búnaður sem afhentur var
í Eyjum verið útkoman úr starfi
Kristjáns. Sigrún sagði að samskon-
ar búnaður væri nú þegar til staðar
á ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum
og í Reykjavík og hefði þegar feng-
ist góð reynsla af notkun hans.
Morgunblaðið/Sigvrgeir Jðnasson
FLUGMENNIRNIR Valur Andersen, lengst til vinstri, og Pétur
Jónsson ásamt Karli Björnssyni, lækni, við tækjabúnaðinn.
Síldin gaf tvær milljón-
ir í Súðavíkursöfnunina
Vestmannaeyjum - Guðjón Hjör-
leifsson, þæjarstjóri, hefur afhent
Sigrúnu Árnadóttur, framkvæmda-
stjóra RKÍ, tveggja milljóna króna
framlag til Súðavíkursöfnunarinnar,
sem er afrakstur síldarsölu sem
Vestmannaeyjabær í samvinnu við
fyrirtæki og einstaklinga í Eyjum
stóð fyrir.
Guðjón sagði við þetta tækifæri, að
sala síldarinnar hefði gengið mjög
vel en allt söluandvirði rann í söfnun-
ina því Vestmannaeyjabær bar þann
kostnað sem af framleiðslu síldarinn-
ar og sölu hennar hlaust.
Sigrún þakkaði gjöfina og af-
henti Guðjóni að gjöf frá Rauða
krossinum nýtt myndband sem búið
er að gera og ber nafnið Á réttan
kjöl, en það fjallar um starf Rauða
krossins í eldgosinu í Vestmannaeyj-.
um 1973.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
BÚNINGARNIR voru margvíslegir á Hressó þetta kvöld, en það var ekkert gefið
eftir í líkamsræktinni fyrir það.
Allir á náttföt-
unum í leikfimi
Vestmannaeyjum - Hálfgert líkamsræktaræði hefur
gengið i Vestmannaeyjum frá því um miðjan janúar
er likamsræktarstöðin Hressó var opnuð. Um helgina
var slegið á létta strengi á Hressó og haldið „nátt-
fatapartí" iðkenda i líkamsræktinni.
Líkamsræktarstöðin Hressó, sem er i eigu systr-
anna Önnu Dóru og Jóhönnu Jóhannsdætra og fjöl-
skyldna þeirra, var opnuð 11. janúar síðastliðinn.
Síðan þá hefur verið mikið um að vera í líkamsrækt-
arstöðinni og segja þær systur að starfsemin hafi
gengið vonum framar. Hressó er á annarri hæð á
Strandvegi 63 en þar var áður veiðarfærahús. Hús-
næðið, sem er 370 fermetrar að flatarmáli, er smekk-
lega innréttað. Þar er rúmgóður leikfimisalur, vel
búinn tækjasalur og Ijósalampar auk búningsklefa,
barnahorns og afgreiðslu, en Júlía Andersen, arki-
tekt, sá um hönnun á staðnum i samráði við þær
systur.
Anna Dóra sagði að frá því þær opnuðu hefði
verið mikið að gera og um 200 manns verið í reglu-
bundnum æfingum í stöðinni. Sjö leiðbeinendur sjá
um að stjórna æfingum en auk þess hafa gestakenn-
arar heimsótt Hressó. Opið er allan daginn á Hressó
og mismunandi tímar skipulagðir. Anna Dóra sagði
að margir þátttakendur hefðu náð ótrúlegum ár-
angri í líkamsræktinni á stuttum tíma. Hún sagði
að þær væru með sérstaka fitubrennslutíma í gangi
og nefndi sem dæmi um árangurinn að þar hefðu
þátttakendur misst yfir tíu kíló.
Jóhanna og Anna Dóra sögðu að þær væru bjart-
sýnar á framhaidið og teldu að þessi góða aðsókn,
sem verið hefði, væri ekki einhver nýjungagirni
Eyjamanna. Reynslan annars staðar sýndi að fólk
nýtti sér vel svona líkamsræktarstöðvar og þeir sem
byijuðu að þjálfa líkamann fyndu muninn á líðan
sinni og gætu ekki án hreyfingar verið. Þær sögðu
að dæmi væru um að fyrirtæki hefðu fengið tíma I
líkamsræktinni fyrir starfsfólk sitt.
Náttfatapairtí
90 manns tóku þátt í „náttfatapartíinu" á Hressó
um helgina og var greinilegt að allir höfðu gaman
af. Flestir voru í náttfötum og með hárkollur eða
einhver höfuðföt og leiðbeinendurnir sljórnuðu leik-
fiminni undir dúndrandi tónlist. „Þrír, tveir, einn,
til hægri. Taka nú vel á,“ hrópuðu sljómendurnir
og allur salurinn fylgdi með. Síðan var marserað,
tjúttað og teygt og svitinn bogaði af öllum sem hristu
sig og teygðu með bros á vör, en að lokinni leikfi-
minni og léttri skemmtidagskrá var snæddur kvöld-
verður, pasta- og pizzuhlaðborð frá Pizza 67.
ÞÆR sjá um að stjórna leikfiminni og fitu-
brennslunni á Hressó. Standandi, frá vinstri:
Jóhanna Jóhannsdóttir, Ólöf Aðalheiður Elías-
dóttir, Hafdís Kristjánsdóttir og Gyða Arnórs-
dóttir. Fyrir framan eru Erna Jóhannesdóttir
og Linda Björk Ólafsdóttir.
ÞESSIR hressu peyjar, Gunnar Þór Guðjónsson,
til vinstri, og Björn Matthíasson, not.uðu skraut-
legan fatnað sem leikfimibúning.
SIGURFINNUR Sigurfinnsson sýnir stelpunum
hvers hann er megnugur í tækjasalnum.
NORRÆN HÖGGMYNDASÝNING
frá prímitívisma til póstmódernisma
- Bror Hjorth
- Sigurjón Ólafsson
- Mauno Hartman
- Bjorn Norgaard
- Gunnar Torvund
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar og Hafnarborg
25. febrúar til 20. mars.
Opið daglega kl. 12-18. Lokað á þriðjudögum
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Slökkvilið Keflavíkurflug-
vallar fær viðurkenningu
ÍSLENSK stjórnvöld veittu slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli við-
urkenningu fyrir vel unnin störf við athöfn á vellinum s.l. miðviku-
dagsmorgun. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, af-
henti Haraldi Stefánssyni, slökkviliðsstjóra á Keflavíkurflugvelli,
viðurkenningarskjal af hálfu íslenskra stjórnvalda fyrir frábær
störf slökkviliðsins á liðnum árum, en það er eingögnu skipað
íslenskum starfsmönnum. ítarlegri frétt uin afhendinguna birtist
í Morgunblaðinu í gær en þá urðu þau mistök að myndin sein
birtist með fréttinni var röng.