Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Virkjun hálendisvatna í GREIN Egils Egilssonar í Morgunblaðinu 7. marz sl. eru nokkrar missagnir og rangfærslur sem nauðsynlegt er að leiðrétta. 1. Egill segir: „Mengunarleysið felst í því samkvæmt Morgunpóst- inum að Dettifoss er mikið til þurrk- aður upp (nema e.t.v. sem buna eftir pöntun handa túristum eða þjóðhöfðingjum).“ Þetta segir Egill að sjáifsögðu gegn betri vitund því öllum er ljóst að „mengunarleysið" felst ekki í þessu heldur í hreinni orku; orku sem hvorki hefur í för með sér við vinnsluna brennisteins- eða köfnun- arefnissambönd, koltvísýring eða geislavirkni. í samþykktum Ríó- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1992, „Dagskrá 21“, eru þjóðir heims einmitt hvattar til að nýta slíkar orkulindir fremur en elds- neyti, m.a. vegna hættunnar af gróðurhúsaáhrifunum sem snertir alla jarðarbúa jafnt. Þannig er nú samhengið milli vatnsorkunnar og orkumála heimsins. Þá er það beinlínis rangt hjá Agli að Dettifoss verði „mikið til þurrkaður upp“. Allar áætlanir um virkjun gera ráð fyrir rennsli um fossinn að sumrinu, sem nemur rúmlega helmingi af venjulegu sum- arrennsli hans, eða 170 rúmmetrum á sekúndu. Meðfylgjandi mynd sýn- ir einmitt fossinn við það rennsli. Sökum þess að nauðsynlegt verður að skola út aur úr veitulóninu að sumri til verður meira grugg í foss- inum við þetta rennsli en myndin sýnir, þannig að hann heldur tröll- skap sínum í ríkari mæli en hún gefur til kynna. 2. Egill segir einnig: „Jökulsár- gljúfri, Miklagljúfri íslands, er fóm- að með því að áin er farin úr því.“ Einnig þetta er beinlínis rangt. Meðan á með 170 rúmmetrum á sekúndu rennur um gljúfrið fer því víðs fjarri að hún sé „farin úr því“. Slík á er líka langt frá því að vera smáspræna. Sogið er rúmlega 100 rúmmetrar á sekúndu. Jökulsá á Fjöllum yrði eftir virkjun ein af 10 stærstu ám landsins. 3. Þá segir Egill: „Hafra- hvammagljúfur upp af Jökuldal, annað Miklagljúfur íslands, ein- hver ferlegasta smíð náttúruaf- lanna, fara einnig." Þetta er sömuleiðis rangt. Ráðgerð stífla í Jökulsá á Brú er við efri enda gljúfranna þannig að þau fara ekki undir vatn. 4. Enn segir Egill: „Þingeyingar sem myndu missa mest sitja norðurfrá og myndu ekkert fá að gert gegn sameiginlegu veldi sér- fræðinga þeirra og fylgismönnum þeirra, Alþingi ..." Það er mikill plags- iður sumra að slengja fram órökstuddum fullyrðingum og sleggjudómum um alþingismenn. En minna má á að þjóðin fær þá alþingismenn sem hún sjálf kýs, þannig að slíkir sleggjudómar eru ekki einungis óvirðing við alþingis- menn heldur kjósendur almennt í landinu sem velja þá og þar með óvirðing við lýðræðisskipulagið. Það er einnig vert að minna á að það eru ekki sér- fræðingar sem hafa síðasta orðið um hvar skuli virkjað. Sérhvert raforkuver, 2 MW og stærra, þarf að sam- þykkjast af Alþingi, hinum kjörnu fulltrú- um almennings. 5. Egill segir enn- fremur: ,;Það er miðhá- lendi Islands sem stendur undir hinni sí- vaxandi ferða- mennsku. Það er ein- sýnt að það gerði það ekki ef menn þurfa að stikla þar á hæðar- drögum á milli jökullóna Lands- virkjunar." Þetta eru furðulegar öfgar og ýkjur. Miðlunarlón í tengslum við tífalt meiri raforkuvinnslu en nú fer fram í landinu yrðu samanlagt um 1000 ferkílómetrar. Hin stærstu þeirra yrðu innan við 80 ferkfló- metra, eða svipuð að stærð og stærri stöðuvötn landsins. Fjalla- Engin orkulind stenzt afskrifaðri vatnsafls- stöð snúning, segir Jak- ob Björnsson, þar sem 90% af tekjum eru um- fram tilkostnað. vötn hafa ekki til þessa þótt til óprýði í náttúrunni. 6. Egill segir: „Mér vitanlega hefur ekki verið borið saman hrein hagkvæmni þess að selja stórvötn landsins þar sem þau renna út af hálendisbrúninni útlendingum og hinu, að selja sérleik landsins óspilltan ferðamönnum í leit hins ósnortna og upprunalega." Egill stillir þessu tvennu upp sem andstæðum. Þetta eru alls ekki andstæður. 98% af flatarmáli lands- ins verða ósnert af tífaldri núver- andi raforkuvinnslu. Þau 98% munu geyma í ríkum mæli hið ósnortna Jakob Björnsson ;í| Dettifoss og upprunalega. Við munum geta gert hvort tveggja í senn: Nýtt or- kulindimar í stómm stíl og stórlega eflt ferðamennsku í landinu. Meira að segja greiða virkjunarfram- kvæmdir oft fyrir ferðaþjónustu. Við skulum minnast þess að mörg lönd sem rómuð em fyrir nátt- úrufegurð og ferðamennsku hafa virkjað vatnsorku í mun ríkari mæli nú þegar en við munum gera um næstu áratugi án þess að það hafi haft neikvæð áhrif á ferðaþjón- ustu þeirra. Mörg dæmi eru hins- vegar um hið gagnstæða. 7. Enn segir Egill: „Virkjana- áætlanir á við þær sem em á borð- um. ráðamanna og séfræðinga landsins enda í óbætanlegum skemmdum landsins komi þær til framkvæmda.“ Það er í rauninni sorglegt að kennari skuli ekki geta rætt mál af meira jafnvægi og stillingu en lýsir sér í þessum orðum. Þetta eru fáránlegar öfgar eins og ég tel mig hafa sýnt fram á hér að ofan. 8. Egill segir að endingu þar sem hann ræðir um samrunakjarnorku: „Ekki er nema beinlínis sennilegt að eftir allnokkra áratugi verði hin mengunarlitla eða mengunarlausa prka búin að gera öll vatnsorkuver íslands óarðbær." Hér vil ég fyrst minna á að vatns- orka er ekki aðeins mengunarlítil heldur alveg mengunarlaus eins og ég hef þegar rakið (þar fyrir er hún ekki án áhrifa á umhverfíð; engin orkulind er það). Að sjálfsögðu má Egill, mér algerlega. að meinalausu, hafa þessa bjartsýnu skoðun þótt ég deili henni ekki með honum. En gerði ég það myndi ég draga aðra ályktun af henni en hann gerir. „Allnokkrir áratugir" er að vísu nokkuð teygjanleg tímalengd en venjulegur afskriftartími vatnsafls- stöðva er fjórir áratugir. Mín álykt- un væri því þessi: Við skulum þá umfram allt flýta okkur að nýta vatnsorku okkar þannig að við höf- um náð að afskrifa stöðvarnar áður en samrunakjarnorkan ryður sé til rúms. Því að alls engin orkulind stenst afskrifaðri vatnsaflsstöð snúning, þar sem um og yfír 90% af tekjunum eru hreinar tekjur, umfram tilkostnað. Ég vil þó taka fram að ég tel ekki hættuna á sam- keppni frá samrunakjarnorku svo bráða að við þurfum að flýta okkur þess vegna. Höfundur er forstjóri Orkustofnunar. Aðgerðir g’egn skattsvikum EITT af forgangsverkefnum rík- isstjómar Davíðs Oddssonar hefur verið að vinna gegn skattsvikum með ýmsum ráðum. í þessari grein verður farið nokkrum orðum um helstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þessum efnum, en þær hafa þegar skilað verulegum árangri. í skýrslu nefndar sem ég skipaði um umfang skattsvika og skilaði áliti sínu í september 1993 voru gerðar allmargar tillögur um ráð- stafanir til þess að draga úr skatt- svikum. Nefndin gerði grein fyrir ýmsum leiðum sem hún taldi að fara mætti til þess að draga úr umfangi skattsvika. Hér á eftir verður drepið á nokkrar af þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til í því skyni að stemma stigu við skattsvikum. Hert skattaeftirlit — einfaldari skattframtöl Embætti skattrannsóknarstjóra hefur verið gert að sjálfstæðri stofnun, en hafði áður verið hluti af embætti ríkisskattstjóra. í kjöl- far aðskilnaðarins hefur skattrann- sóknarstjóri einbeitt sér að alvar- legri skattsvikamálum og hefur það starf skilað verulegum ár- angri. Samtímis var skattstjórum landsins falið að herða skatteftirlit og 20 nýir starfsmenn ráðnir í því skyni. Hjá embætti ríkisskattstjóra er unnið að því að staðla skattframtöl rekstraraðila. Það er gert í samráði við lög- gilta endurskoðendur og aðra sem koma að framtalsgerð. Vonandi verður einnig innan tíðar hægt að einfalda skattframtöl einstakl- inga. - Endurskoðun á bókhaldslögum og strangari viðurlög í ársbyijun 1993 var skipuð nefnd, sem samdi frumvarp til laga um bókhald og annað um árs- reikninga fyrirtækja. Þessi frum- vörp urðu að lögum í desember síðastliðnum. Viðurlagaákvæðum var bætt í lögin í síðasta mánuði. Þá varð að lögum frumvarp dóms- málaráðherra til breytinga á al- mennum hegningarlögum, þar sem stórfelld skattsvik eru gerð refsi- verð samkvæmt almennum hegn- ingarlögum. Nefndin um umfang skattsvika taldi koma til greina að lögfesta lágmarksrefsingar við skattsvikum þannig að refsivist kæmi til og lág- marksfésektum beitt við skattlagn- ingabrot. Nýlega voru sett lög sem gera ráð fyrir slíkum lágmarksr- efsingum. Setning allra þessara laga er hluti af heilsteyptu átaki gegn skattsvik- um og bókhaldsbrot- um. Átak gegn svartri atvinnustarfsemi í febrúar 1994 stóð fj ármálaráðuneytið fyrir því að komið var á fót hjá embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins sérstakri skrifstofu sem ein- göngu vinnur gegn svartri atvinnustarf- semi. Auk almennra rannsókna á skattsvikum í svartri atvinnustarf- semi hafa starfsmenn skrifstof- unnar og embættisins sótt fjölda funda hjá hagsmunaaðilum og öðr- um sem málið varða til þess að kynna stefnu íjármálaráðuneyt- isins í þessu efni. Þá hefur skatt- rannsóknarstjóri lagt fyrir ráðu- neytið tillögur um stefnumótun gegn svartri atvinnustarfsemi og hefur ráðuneytið þær tillögur nú til athugunar. Skýrar reglur um rekstrarkostnað Á síðasta ári var gefin út reglu- gerð um frádrátt frá tekjum til í þessari grein fjallar Friðrik Sophusson um heilsteypt átak gegn skattsvikum og bók- haldsbrotum. skatts af atvinnurekstri eða sjálf- stæðri atvinnustarfsemi. Þar er tek- inn af allur vafí um fjölmörg atriði er tengjast rekstrarkostnaði fyrir- tækja. Ætti nú að reyna mun minna á mat skattyfirvalda á ýmsum kostnaði fyrirtækja, svo sem starfs- tengdum kostnaði o.fl. Reglugerðin var unnin í samráði við löggilta endurskoðendur, en eldri reglugerð var að ýmsu leyti óljós og komin til ára sinna. Hugarfarsbreytingar er þörf Nefndin um umfang skattsvika taldi brýnt að vinna að breyttu við- horfi almennings til skattsvika. Þess vegna hefur fjármálaráðu- neytið haft til umfjöllunar tillögur um hvernig sé heppilegast að standa að fræðslu og áróðri gegn skattsvikum. Þegar hefur verið gefinn út bæklingur sem fylgdi öllum útsendum skattframtalsblöð- um og frekari aðgerða er að vænta. Ekki má gleyma í þessu sam- Friðrik Sophusson bandi að það er afar mikilvægt fyrir ríkisvaldið að sýna skattgreið- endum að reynt sé að ná eins mik- illi hagkvæmni í ríkisrekstri og kostur er. Hagkvæmur ríkisrekstur er ein árangursríkasta leiðin gegn skattsvikum. Auk þeirra aðgerða sem að framan hefur verið lýst starfar nú framkvæmdanefnd þriggja manna sem kannar möguleika á frekari aðgerðum. Er framkvæmdanefnd- inni ætiað að koma með sjálfstæð- ar tillögur og hrinda þeim í fram- kvæmd að fengnu samþykki ráð- herra. Skipun nefndar af þessu tagi er nýjung hérlendis og eru miklar vonir bundnar við störf hennar. Nefndin hefur þegar lokið fyrstu verkefnum sínum, sem var að vinna að útfærslu refsiákvæða við skattsvikum. Ný greinargerð nefndarinnar er væntanleg á næst- unni, þar verður m.a. gerð grein fyrir nýrri könnun á viðhorfi al- mennings til skattsvika. Sam- kvæmt þeirri könnun telja 80% aðspurðra að skattsvik séu alvar- legri þjóðfélagsvandamál. Allt það sem að framan er talið sýnir að ötullega hefur verið unnið að því að draga úr umfangi skatt- svika. Mikilvægt er að halda því starfi áfram. Til að ná árangri í baráttu gegn skattsvikum er nauð- synlegt að stjórnvöld sýni ráðdeild í meðferð opinbers fjár. Sé það gert verður auðveldara en ella að sameina þjóðina gegn skattsvikum. Höfundur er fjármálaráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.