Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ I REBEKKA FRIÐ- BJARNARDÓTTIR + Rebekka Frið- bjarnardóttir fæddist að Sútra- búðum í Grunnavík- urhreppi í Norður- Isafjarðarsýslu hinn 17. júní 1911. Hún lést á Sjúkra- húsi Suðurnesja, Keflavík, 3. mars sl. Foreldrar Rebekku voru Friðbjörn Helgason, f. 5.10. 1883, d. 24.9. 1946, og Ragnheiður Vet- urliðadóttir, f. 11.12. 1881, d. 13.7.1915. Síðar kvæntist Frið- björn Sólveigu Pálsdóttur frá Hlíð. Systkini Rebekku voru Kristján, f. 29.6. 1906, d. 23.12. 1972, Petrína, f. 16.8. 1908, d. 5.2.1992, Indriði, f. 25.12. 1909, býr í Reykjavík, og Ragnheiður Margrét, f. 2.7. 1915, d. 25.4. 1986. Systkini Rebekku sam- feðra eru: Friðbjörn, f. 11.3. 1923, látinn, Páll, f. 16.4. 1924, látinn, Jón, f. 13.12. 1925, býr á Akureyri, Óskar, f. 5.11.1927, býr í Hnífsdal, Sveinn. f. 23.8. 1929, býr í Hnifsdal, Olafur, f. 22.6. 1931, býr í Hnífsdal, Hall- dór, f. 22.6. 1933, býr í Hnífs- dal, Kristinn, f. 22.6. 1936, lát- inn, Eiríkur, f. 19.10. 1937, býr í Reykjavík, og Kristján, f. 2.5. 1942, býr í Hnífsdal. Rebekka giftist 15.4. 1933 Jóni Guð- mundssyni frá Akrahóli í Mið- neshreppi, f. 2.2. 1912, d. 5.5. 1970. Foreldrar hans voru Guðmundur Þorsteinsson og Sigurbjörg Torfa- dóttir. Rebekka og Jón eignuðust sjö börn sem öll eru á lífi. Þau eru: 1) Sig- urður Guðbjörn, f. 18.6. 1932, var kvæntur Elínrós B. Eyjólfsdóttur, eign- uðust þau 3 börn. 2) Ragnar Frið- björn, f. 26.11. 1933, kvæntur Maríu Einars- dóttur. Eiga þau 3 börn. 3) Guðný Sigurbjörg, f. 9.6. 1935, var gift Olafi Thordersen sem er látinn. Eignuðust þau 3 börn. 4) Ólafur Ásbjörn, f. 4.1. 1937, kvæntur Emmu Hönnu Einars- dóttur og eiga þau 3 börn. 5) Sólveig Steinunn, f. 26.11.1939, gift Árna Júlíussyni og eiga þau 4 börn. 6) Erna Minný, f. 10.2. 1945, gift Kristjáni Valtýssyni og eiga þau 3 börn. 7) Gunnar Valbjöm, f. 27.1.1953, kvæntur Þórey Eyþórsdóttur og eiga þau 3 böra. Barnabörnin eru 21, barnabarnabörn eru 31 og barnabarnabarnabörn eru 2. Afkomendur era alls 61. Útför Rebekku fer fram laugardag- inn 11. mars frá Keflavíkur- kirkju og. hefst athöfnin kl. 14.00. ELSKU langamma, þú sem varst okkur svo góð. Lífskrafturinn þinn ^ var svo óskaplega mikill. Virðing - þín fyrir okkur litlu manneskjunum var svo rík, svo mikill kærieikur j ríkti í þínu hjarta og geislaði til \ okkar hvenær sem þú hittir okkur. j Kærieikur þinn var fólginn í viður- < kenningu og umburðarlyndi og skapaði hlýju og göfugu tilfinningar hjá okkur. Nú ert þú farin til Guðs og við söknum þín. Þegar við förum með bænimar, biðjum við Guð að faðma þig frá okkur. IVið þökkum þér fyrir samveru- stundimar. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt hafðu þar sess og sæti sipaði Jesú mætti \ (Höfundur ókunnur) Góða nótt. Þín langömmuböm, María Anna, Guðrún Harpa og Sigurður Vignir. Þetta em alltaf erfið tímamót. Það er með söknuði og trega að ég sest niður og skrifa um Bubbu vin- konu mína og tengdamömmu. Hún var sönn vinkona og vildi öllum vel, enda hjálpaði hún mörgum með góðvild sinni. Bubba var alltaf létt og kát og stutt í hláturinn. Hún var ein af þeim ljúfustu og þægilegustu kon- um sem ég hef þekkt. Alltaf voru allir velkomnir á heimilið, þótt húsrýmið væri ekki mikið. Þá var alltaf nóg pláss fyrir börn og bamaböm. Hún var sannarlega sameining- Ástkær eiginkona mín, ÞÓRDÍS ÓLAFSDÓTTIR ALMEIDA, lést í Landakotsspítala 10. mars. Fyrir hönd aðstandenda, Marcelo Almeida. Elskuleg móðir mfn, HALLDÓRA KRISTÍN STURLAUGSDÓTTIR, Hamarsholti, andaðist á Ljósheimum, Selfossi, að morgni 9. mars. Guðbjörg Kolbeinsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HREIÐAR STEFÁNSSON kennari og rithöfundur, andaðist á öldrunardeild Landspítalans þann 10. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Jenna Jensdóttir, Ástráður B. Hreiðarsson, Ásta B. Þorsteinsdóttir, Stefán J. Hreiðarsson, Margrét O. Magnúsdóttir og barnabörn hins látna. MINNINGAR artákn þessarar fjölskyldu, enda var aðdáunarvert að sjá hversu börn hennar reyndust henni vel alla tíð. Það hefur ekki verið að ástæðu- lausu, því hún hefur verið þeim góð fyrirmynd. Ég kveð tengdamóður mína og vinkonu með þakklæti fyrir þennan tíma sem við áttum saman og hversu góð og elskuleg hún var alltaf dætmm mínum. Ég veit að hún yfirgaf þennan heim, sátt við sjálfan sig og aðra. Takk fyrir samveruna. Þórey Eyjólfsdóttir. Þegar ég kom heim föstudags- kvöldið 3. mars eftir að hafa verið á körfuboltaleik í skólanum í Minne- sota, fékk ég þau skilaboð að pabbi hefði hringt og að ég ætti að hringja heim til Islands. Ég hafði strax á tilfinningunni að eitthvað hefði komið fyrir. Amma Bubba kom strax í huga minn, já, raunin var sú. Amma Bubba dáin. Átti ég mjög erfitt með að trúa því að hún myndi fara svona fljótt. Það var alltaf svo eðlilegt að hún myndi vera hjá okkur að eilífu. Hún amma hefur alltaf verið höfuð fjölskyldunnar og mun alltaf vera það í huga mínum. Ég veit að ég á eftir að sakna þess að geta ekki komið í heimsókn til ömmu á sunnudögum og fengið bestu pönnukökur í heimi. Ég vona að í framtíðinni muni fjölskyldu hennar takast að halda saman eins og ömmu tókst svo vel. Nú þegar amma er farin á ég erfitt með að sætta mig við það að ég mun aldrei sjá ömmu oftar. En núna veit ég að hún er að fá sína hvfld og þarf ekki að þjást lengur. Hún er hjá Guði og fær að vera með afa Jóni. Hún var orðin gömul og hefur átt góða ævi. Þar sem ég hef verið í Minnesota í sjö mánuði fékk ég ekki tækifæri til þess að kveðja hana og þakka henni fyrir allar þær ánægjustundir sem við höfum átt saman. Það mun enginn geta komið í staðinn fyrir hana ömmu Bubbu því hún var einstök amma. Bryndís Elfa Gunnarsdóttír. Látin er elskuleg amma mín. Amma kvaddi þennan heim í hárri elli, en síðustu dagar voru henni þungbærir sökum þess hve heilsu hennar hrakaði. Alltaf verður mér minnisstætt þegar við öll úr fjölskyldunni fórum alltaf saman í sunnudagskaffi til hennar. Þau voru ekki ófá skiptin sem amma bakaði pönnukökur. Líkami og sál ömmu voru vissu- lega búin og var hún því sátt við að kveðja þennan heim. Oft þegar það voru löngufrímín- úturnar í skólanum gat ég hlaupið heim í hlýjuna til ömmu og alltaf fengið eitthvað gott að borða. Hún amma var skemmtileg, fal- leg, virðuleg og ávallt glæsileg til fara. Elsku amma, minningarnar um þig geymi ég ávallt í hjarta mínu. Eva Björg Gunnarsdóttir. Ég átti alveg rosalega góða, fal- lega ömmu, en nú hef ég hana ekki lengur. Ég kom alltaf til hennar á mánudögum og föstudögum, þegar mamma var að vinna. Alltaf skreið ég undir heitu sængina hennar og knúsaði hana. Hún amma bjó til bestu aspassúpu í heimi og alltaf pantaði ég hana en núna fæ ég hana ekki oftar. Við fórum líka oftast að spila marga maríusa. Elsku góði guð, viltu passa hana ömmu mína, ég á aldrei eftir að gleyma henni ömmu minni. Hildur Gunnarsdóttir. í dag kveð ég ástkæra ömmu mína. Amma var alltaf mjög heilsu- hraust fram undir það síðasta. Þeg- ar heilsu hennar fór að hraka sýndu börnin hennar alveg einstaka um- hyggjusemi og nærgætni og vöktu yfír henni til skiptis allan sólar- hringinn síðustu 10 dagana. Þegar ég kom til hennar á sjúkrahúsið rétt áður en hún dó talaði hún um það hvað allir væru góðir við sig og vil ég þakka öllum og sérstak- lega starfsfólkinu á Sjúkrahúsi Suð- urnesja fyrir frábæra umönnun. Elsku amma, þú varst ávallt ung í anda, létt og kát, alltaf svo vel klædd og hvað þú varst dugleg að muna eftir öllum afmælisdögunum þó fjölskyldan væri farin að nálgast 100 manns. En það tók enginn eft- ir því að þú eltist, en nú setur að okkur söknuð, þú aldursforsetinn, elsti unglingurinn í okkar stóru fjöl- skyldu, hefur yfirgefið þennan heim. „Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóss- ins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfír líf- inu.“ (Ók. höf.) Við amma náðum mjög vel sam- an þó aldursmunurinn væri tölu- verður. Minningin um hana ömmu mína, þessa góðu, tryggu og hjarta- hlýju konu er mér dýrmætari en fátækleg orð mín fá nokkurn tíma lýst. Ég er þakklát fyrir samveru- stundirnar sem aldrei gleymast, en veita mér yl og gleði á meðan ég lifi. Guð geymi þig, elsku amma mín. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð bama þinna. Þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum - eins og þú. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Rebekka Jóna Ragnarsdóttir. Okkur systkinin langar með nokkrum fátæklegum orðum að kveðja elskulega ömmu okkar. Amma Bubba, eins og allur bamaskarinn kallaði hana alltaf, og afí Jón, sem Iést árið 1970, byij- uðu búskap sinn í Vinaminni í Keflavík en lengst af bjuggu þau á Heiðarvegi 21 í Keflavík. Þar ólu þau upp sjö böm sem öll komust á legg. Margar glaðar minningar eig- um við frá vem okkar hjá ömmu á Heiðarveginum. Eins og að líkum lætur var oft mikið flör þegar fjöl- mennur krakkaskarinn ærslaðist. Aldrei minnumst við þess þó að amma hafí skipt skapi við ærsla- ganginn. Alltaf var hún jafn glöð og kát og sátt við lífíð og tilver- una, sama á hveiju gekk. Amma lagði mikið upp úr frændrækni og ófáar hafa þær verið fjölskyldusam- komurnar hjá henni í gegnum árin. Á samkomunum var amma ætíð hrókur alls fagnaðar og ekki var laust við að maður sæi votta fyrir gleðitámm er hún leit yfir hópinn sinn. Amma vildi allt fyrir alla gera og alltaf gat maður leitað til henn- ar með vandamál sín. Alltaf fann maður sömu hlýjuna geisla frá henni. Sl. 2-3 ár hafði amma átt við veikindi að stríða. í veikindum sínum naut amma umhyggju bama sinna og ættingja sem umvöfðu hana umhyggju og hlýju. Nú hefur amma sofnað svefninum langa og erum við viss um að það verða gleði- fundir þegar hún hitti Jón afa aftur hinum megin. Elsku amma, við systkinin þökk- um þér samfylgdina og allt það góða sem þú hefur kennt okkur. Blessuð sé minning þín. Vigdís, Stefán og Óli. Með örfáum orðum langar mig að kveðja Rebekku Friðbjarnardótt- ur eða Bubbu eins og hún var allt- af kölluð. Kveðjuorðin verða þeim mun fátæklegri sem af fleiru er að taka. Með söknuði kveð ég þessa góðu vinkonu og frænku mína, en við vorum systradætur. Með okkur var alltaf kært. Bubba mín hafði alltaf svo mikið að gefa og miklu að miðla. Kærleikur, trú og ástúð voru svo sterk einkenni í fari henn- ar. Minningarnar streyma fram, um hana Bubbu væri svo margt hægt að segja. Ég held þó að öll sú ást og virðing sem hún sýndi samferða- fólki sínu, vinum og félögum, lýsi henni best og hvað hún naut þess að vera í návist þeirra, og gleðjast með afkomendum sínum sem öll báru hana á höndum sér. Fyrir mig er minningin með þeim á síðasta móti þeirra á nýársdag ógleyman- legur fjársjóður. Ég bið góðan Guð að blessa alla hennar afkomendur og fjölskyldur þeirra og vini hennar alla. Fyrir hönd bama minna og fjölskyldna þeirra færi ég þér svo, kæra vina, hinstu kveðju og hjart- ans þakkir fyrir samfylgdina. Geislar himins gæta þín Guð við sundið bíður, áfram rennur ævin þín og ævidagur líður. Ég lýk þessum orðum og kveð mína ástkæru vinkonu og frænku með orðum skáldsins: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Guðbjörg Halldórsdóttir. Núna er hún Bubba amma okkar dáin. Amma sem okkur þótti svo vænt um og munum sakna. Okkur er minnisstætt hvað amma var allt- af ung í anda, þó að líkaminn hafi verið farinn að gefa sig á síðustu mánuðum vom hugurinn og sálin alltaf jafn ung. Við systkinin mun- um það þegar amma var að fara út að dansa. Þá sögum við alltaf að við sæjum mömmu og pabba fara út að dansa á þessum aldri! Amma var alltaf mikið fyrir allar samkomur og núna fyrir jól þegar Nína lauk stúdentsprófunum sagði hun að hún ætlaði ekki að missa af „partýinu" eins og hún orðaði það. Hún hafði yndi af öllum Re- bekku-fjölskyldumótum sem haldin eru ár hvert, fór á þorrablót og lét sig ekki vanta neins staðar og var það mikið áfall fyrir hana þegar heilsan fór að gefa sig og hún gat ekki mætt eins vel og áður. En amma kvartaði aldrei. Við eigum svo sannarlega eftir að sakna þess að fara ekki á Aðal- götuna á sunnudögum, hitta fjöl- skylduna og fá pönnukökumar hennar ömmu og heitt súkkulaði, læra í íbúðinni hennar Ástu ömmu sem býr á móti og fara síðan yfir til Bubbu ömmu í smá pásu og fá eitthvað gott hjá henni. Það er svo margt hægt að segja um Bubbu ömmu, það væri efni í heila bok en maður kemur varla orðum að því. Við kveðjum ömmu með söknuði og við vitum að henni líður betur núna._ Ólafur Már, Nína Steinunn, Valtýr og fjölskylda. Ó, ljóssi.ns faðir, lof sé þér, að líf og heilsu gafstu mér og föður minn og móður, nú sest ég upp, því sólin skin þú sendir ljós þitt inn til mín. Ó, hvað þú, Guð, ert góður. (Matt. Jochumsson.) Okkur systkinin og fjölskyldur okkar langar í fáeinum orðum að kveðja okkar ástkæru ömmu. Elsku amma hefur nú kvatt þennan heim og fengið hvíldina. Það er erfítt að hugsa sér að eiga ekki eftir að koma til þín í heim- sókn og fá hjá þér kaffi og pönnu- kökur. Alltaf tókstu vel á móti öll- um. Alltaf varstu uppáklædd og glæsileg hvem dag, sama hvernig þér heilsaðist. Margs er að minnast og margt kemur upp í hugann á þessari stundu, oft var margt um manninn hjá þér og ýmislegt gekk á, en þú, elsku amma, varst alltaf jafn róleg. Elsku amma, við þökkum þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og hvemig þú hefur haldið fjölskyldunni saman og kennt okkur að vera góð hvert við annað. Við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.