Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 56
MlCROSOFT. einar j. WlNDOWS. SKÚLASONHF MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAU GARDAGUR 11. MARZ 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Eir skilar lóðinni STJORN hjúkranarheimilisins Eirar sendi borgarstjórn bréf í gær þar sem því er lýst yfir að hún vilji ekki standa í vegi þess að aðrir byggðu hjúkrun- arheimili fyrir aldraða á lóð Eirar í Suður-Mjódd ef borgin vildi ekki eiga samvinnu við Eir um málið á fyrri forsendum. Lóðinni verður því skilað þegar borgin óskar. Séra S'gurður Helgi Guðmundsson, forstjóri Eirar, segir að jafnframt hafi stjómin óskað eftir því að borgar- stjóm svari bréfi Eirar þar sem stung- ið var upp á því að borgin minnkaði •fcinn hlut í framkvæmdunum í Suður- Mjódd. „Ef það er vilji borgaryfirvalda að byggja þarna sjálf eða í samvinnu við aðra fylgja því góðar óskir," sagði séra Sigurður í gær. Nýtist annars staðar Spurður um önnur áform stjómar Eirar sagði Sigurður að menn vildu gefa sér tíma til að hugsa sitt ráð. Hugmyndir vora uppi um að byggja upp í Suður-Mjódd í samvinnu við Kópavogskaupstað og hugsanlega Garðabæ en ljóst er að það er ekki lengur inni í myndinni. Spurður að ”því hvort til greina kæmi að byggja hjúkrunarheimili í Kópavogi sam- kvæmt fyrri áformum sagði Sigurður að fjögurra ára undirbúningsvinna fyrir heimilið í Suður-Mjódd gæti nýst annars staðar en vísaði á bæjar- yfirvöld í Kópavogi með þeirra hug- myndir. Ekki náðist í Gunnar I. Birg- isson, formann bæjarráðs Kópavogs, vegna þessa máls í gærkvöldi. Morgunblaðið/Sverrir Káttí Höllinni HÁTT í 60 ungmenni skemmtu sér hið besta í Sundhöll Rcykjavíkur í gærkvöldi en þar var opið til klukk- an 3 í nótt í tilraunaskyni. Gestim- ir busluðu í lauginni og nutu tónlist- ar úr hátalarakerfi við laugina. Næturopnunin verður í tilrauna- skyni á föstudagskvöldum í mars. Tímamót á Reykjavíkurfundi Sþ ^ - * Akveðið að hætta notkun PCB-efna SAMKOMULAG náðist í gærkvöldi á Reykjavíkurfundi Umhverfisstofn- unar Sameinuðu þjóðanna um þrá- virk, lífræn efni. Samkomulagið felur í sér að hafnar verða raunhæfar aðgerðir til að draga úr notkun þess- ara efna og þegar verður tekin ákvörðun um að hætta notkun PCB- efnisins. íslendingar hafa lagt mikla áherslu á þetta mál allt frá því fyrir umhverfisráðstefnuna í Ríó og segir Magnús Jóhannesson forseti fundar- ins að þetta sé tímamótaviðburður. Magnús segir að nokkur Evrópu- ríki hafi þegar bannað notkun PCB, þar á meðal Islendingar. Þess utan hefur notkun þess ekki verið bönnuð. „Jafnvel þótt um hundruð þrávirkra efna sé að ræða þá er þetta mjög mikilvægt skref. Með ákvörðun þess- ari er mikilli hindrun rutt úr vegi,“ segir Magnús. Finnst í þorski PCB hefur verið notað mikið í iðn- aði, meðal annars sem einangranar- efni í olíuspenna og í ýmiss konar rafvöru. Efnið er óniðurbijótanlegt í náttúranni og safnast þar upp. Það berst um allan heim í hafinu og kem- ur fram oft og tiðum langt frá upphafs- stað mengunar. Efnin mælast í þorski hér við land og í öðram tegundum. Magnús segir að samkomulagið breyti litlu hér á íslandi en það verði eflaust til þess að flýta fyrir því að það litla magn PCB-efna sem hér er verði tekið úr notkun. Þema ber tveimur kiðlingum ÞÓ ENN sé langt í sauðburð gerði geitin Þerna sér lítið fyrir og bar tveimur kiðlingum í Húsdýra- garðinum í Reykjavík í gær. Kið- lingarnir komust fljótlega að því að þeir gátu látið veikburða legg- ina bera sig eins og sjá má að ofan. Eflaust fá þeir svo fþ'ótlega félagsskap af öðru ungviði enda er vorið sá tími sem helst er von á fjölgun í garðinum. Húsdýra- garðurinn verður opinn um helg- ina frá kl. 10 til 18. Selum er gefið kl. 11, minkum ogrefum kl. 12, svínum hleypt út kl. 14 og að því loknu hefst spuni og þæfing í fjárhúsinu. Hestar eru teymdir um garðinn kl. 15, selum gefið kl. 16, kindur og geitur teknar inn kl. 16.30, svínum gefið kl. 17.10 og nyaltir eru kl. 17.15. Áhrif verkfalls Dæmi um að nemendur hættínámi HRÓLFUR Kjartansson, deild- arstjóri í menntamálaráðuneyt- inu, segir það áhyggjuefni ef nemendur í framhaldsskólunum séu að flosna upp úr námi vegna áhrifa kennaraverkfallsins. Hrólfur sagði að honum hefðu borist fregnir af því að einhverjir framhaldsskólanem- endur hefðu þegar ákveðið að hætta námi. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um tilhögun skólastarfs ef samningar takast í kennara- deilunni og verkfallinu lýkur. Hrólfur sagði að fólk væri í mikilli óvissu og ástandið versn- aði með hveijum deginum sem líði. Sagði hann að mest væri í húfi fyrir nemendur fram- haldsskólanna. Morgunblaðið/Sverrir Vann 18 milljónir KONA í Reykjavík vann 18 milljónir í Happdrætti Háskóla íslands í gærkvöldi. Aðalvinningurinn, 2 milljón- ir, var dreginn úr seldum mið- um og átti konan alla miðana með sama númeri auk trompmiða, svokallaða níu. Miðarnir voru seldir hjá Frí- manni í Hafnarhúsinu í Reykjavík. ■ Vinningaskrá/46 Bakki í Hníf sdal kaupir meirihluta í Ósvör í Bolungarvík 90 miUjónir í Vestfjarðaadstoð BÆJARSTJÓRN Bolungarvíkur samþykkti í gær endurnýjað kaup- tilboð rækjuverksmiðjunnar Bakka hf. í Hnífsdal í eignarhlut bæjarins í Ósvör hf. Nokkrir hluthafar í Ósvör gerðu eigendum Bakka sölu- tilboð í hlutabréf sín þannig að þeir gætu myndað meirihluta með kaupum á hlut bæjarins. Umsókn Bakka um aðstoð sam- kvæmt Vestfjarðaáætlun verður afgreidd eftir helgi og telur for- maður starfshópsins að hún full- nægi þeim skilyrðum sem sett hafa verið. Reiknað hefur verið með að fyrirtækið ætti kost á 80-90 millj- óna kr. aðstóð. Fjórir bæjarfulltrúar Sjálfstæð- isflokks samþykktu tilboðið á aukafundi bæjarstjórnar ásamt fulltrúa Alþýðuflokks en á móti voru fulltrúi Alþýðubandalags og fulltrúi Framsóknarflokks. „Treystir atvinnulífið“ „Það er mín skoðun að við séum ekki að gefa aflaheimildir úr byggðarlaginu, heldur einmitt að treysta stöðu atvinnulífsins í Bol- Staða atvinnulífs í bænum treyst, segir kaupandinn ungarvík og nýta okkur þann þrótt sem Aðalbjörn Jóakimsson kemur með,“ sagði Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri í samtali við Morgun- blaðið. „Samkvæmt kauptilboðinu sem ég verð að taka afstöðu út frá, það er það eina sem við höfum í hönd- unum, verða skuldir Ósvarar að öllum líkindum meiri eftir samein- ingu en fyrir. Það styrkir ekki stöðu fyrirtækisins, heldur veikir," sagði Kristinn H. Gunnarsson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins. „Það er auðvitað af hinu góða ef aðrir aðilar vilja koma til liðs við okkur. Ég býð Aðalbjöm velkom- inn til samstarfs en vil hann ekki sem minn herra,“ sagði Kristinn. Aðalbjöm Jóakimsson, aðaleig- andi Bakka hf., sagði að markmið fyrirtækisins með kaupunum væri að efla mjög veiðar og vinnslu í Bolungarvík. „Til þess þarf að gera Ósvör að öflugu fyrirtæki sem geti laðað að fleiri fjárfesta og með því eflist byggð í Bolungarvík og á Vestfjörðum," sagði Aðal- bjöm. Ósvör mun kaupa frystihús og tæki Þuríðar hf. og efla land- vinnslu. Bakki leggur aukið hlutafé og kvóta í fyrirtækið sem og fjár- festar sem hann segir að gangi til liðs við sig. Aðstoð afgreidd eftir helgi Eyjólfur Sveinsson, formaður starfshóps um Vestfjarðaáætlun, reiknar með að umsókn Bakka hf. verði tekin til afgreiðslu strax eft- ir helgi, aðeins hafi verið beðið eftir endanlegri niðurstöðu mála fyrir vestan. Segist Eyjólfur ekki sjá annað en sú útfærsla á sam- vinnu fyrirtækjanna sem nú er í burðarliðnum fullnægi skilyrðum laga og starfsreglna hópsins um sameiningu og hagræðingu og að hún verði afgreitt með jákvæðu hugarfari. ■ Þróttur í atvinnulífið/29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.