Morgunblaðið - 11.03.1995, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Uppskrift vikunnar
Knödeluppskriftir
beint frá Prag
ÞRJÁR tegundir af knödel, súrkál, soðnar kartöflur, svfnakjöt og gúllas var nokkuð þungt í magann.
Fjölskyldan sem matreiddi er í megrun og borðar helst bara léttmeti með miklu grænmeti og salati.
„Tékkar borða ekki nógu hollan mat,“ sagði húsmóðirin.
vatninu og skerið strax í 2 cm
þykkar knödel-sneiðar.
TÉKKAR geta borðað ógrynni af
knödel, eða „knedlík“, eins og þeir
kalla þær. Það leið ekki sá dagur í
vikuferð um Bæheim í fylgd með
Tékkum að knödel væru ekki bomar
frarr. og ríflega skammtað á diskana.
Tékkneskar knödel eru soðnar
ger- eða kartöflubollur sem eru
notaðar sem meðlæti. Það eru líka
til „Leberknödel“ (lifrarbollur) og
sætar knödel sem eru yfirleitt fyllt-
ar með plómum eða kotasælu og
borðaðar í eftirrétt. Knödel eru vin-
sælar um allt gamla Habsborgara-
svæðið en hvergi er borðað eins
mikið af þeim og í Bæheimi.
Ávaxtaknödel úr kartöfludeigi eru
upprunnar þaðan.
Allar tékkneskar húsmæður
kunna að búa til knödel og lang-
flestar þeirra nota uppskrift
mömmu sinnar. Sumar uppskrift-
irnar ganga marga ættliði aftur í
tímann og það er farið með þær
eins og hernaðarleyndarmál. Fæst-
um kemur saman um hversu lengi
ber að sjóða bollurnar. Fimmtán
mínútur, 20, eða 27 og hálfa?
Eg var svo heppin að fjölskylda
sem bauð mérj mat í Prag og eld-
aði fjórar mismunandi tegundir af
knödel, vinkonum mínum til mikill-
ar mæðu, var reiðubúin að gefa
uppskriftirnar að ger- og kartöflu-
bollunum. Lifrarbollur voru bornar
fram í súpu í forrétt en hinar fyrr-
nefndu með svínakjöti, sósu, kart-
öflum, súrkáli og gúllasi. Bjór átti
ljómandi vel við þessa þungu máltíð.
GERKNÖDEL
500 g gróft malað hveiti
tsk. salt
1 tsk. ger
2 dl mjólk
gamalt brauá skoriá í teninga
_____________1 egg__________
Hnoðið öllu saman í deig og lát-
ið standa í klukkustund. Skiptið
þá deiginu niður í þrjár lengjur og
sjóðið þær í sjóðandi vatni í 15
mínútur. Takið lengjurnar úr vatn-
inu og skerið þær strax niður í 2
cm þykkar knödel-sneiðar.
KARTÖFLUKNÖDEL I
1 kg soánar kartöflur
500 g gróft malað hveiti
1 tsk. salt
____________1 egg_________
Stappið kartöflurnar. Blandið
hveitinu, saltinu og egginu saman
við þær og hrærið öllu saman í
deig. Rúllið í lengju og sjóðið í sjóð-
andi vatni í 15 mínútur. Takið úr
KARTÖFLUKNÖDEL
II
1 kg karöflur
750 g gróft malað hveiti
1 tsk. salt
1 egg
Rífið hráar kartöflurnar með rif-
járni. Blandið hveitinu, saltinu og
egginu saman við og hrærið sam-
an í deig. Búið til litlar bollur og
sjóðið þær í sjóðandi vatni í 5 mín-
útur.
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir.
GERKNÖDEL, kartöfluknödel I
og kartöfluknödel II.
í matreiðslubók um mat og
drykk í Bæheimi fann ég gamla
sveskjuknödeluppskrift. Deigið er
úr hveiti en ekki kartöflum og við
myndum kalla ávextina plómur en
ekki sveskjur. Það er líklega hægt
að nota sveskjur sem hafa legið í
vatni í þessa uppskrift.
SVESKJUKNÖDEL
Hrærið 4 heilum eggjum og 2
eggjarauðum vel saman við 70 g
af smjöri. Hellið 3 dl af mjólk út í
og bætið 140 g af súrmjólk saman
við. Saltið smávegis og hrærið
nógu miklu fínmöluðu hveiti saman
við til að úr verði mjúkt deig. Hnoð-
ið það vel og skiptið niður í bita.
Fletjið hvern bita út í langa ræmu
og raðið sveskjunum á hana.
Skerið deigið á milli ávaxtanna
og vefjið deiginu vel utan um þá
hvern fyrir sig. Þegar deigið hefur
verið notað upp eru bollurnar
soðnar í sjóðandi vatni. Hrærið í
vatninu svo að þær setjist ekki á
botninn og látið þær sjóða í nokkr-
ar mínútur eftir að þær hafa flotið
upp á yfirborðið. Látið drjúpa af
þeim og stráið kanilsykri eða
bráðnu smjöri yfir þær.
Með
allt
í hnút
SUMIR karlar eiga í mesta basli
með að hnýta bindið sitt eða
slaufuna sómasamlega. Með-
fylgjandi myndir af sígildum
hnútum og nýjustu afbrigðum
eru gagngert birtar til að auð-
velda þeim verkið, en sagt er
að margar konur líti fyrst og
fremst á bindis- eða slaufuhnút-
inn til marks um að karl sé
sannkallaður herramaður; fág-
aður, snyrtilegur og frambæri-
legur í alla staði.
►HNÚTURINN er nefndur eftir
hertoganum af Windsor. Hann vildi hafa
hnútinn þykkan, taldi slíkt fara betur við
sniðið á skyrtum sínum, sem yfirleitt voru
með opnum flibba. Silkibindi henta best í
Windsor-hnútinn.
1 2 3
Hálfur Windsor-hnútur
►HÁLFUR Windsor-hnútur er
fyrirferðarminni en Windsor-hnúturinn, en
engu að síður traustvekjandi og fer best á
silkibindum.
Hálsklútur
►HÁLSKLÚTAR þykja
eilítið töffaralegir, minna
jafnvel á Cary Grant í
kvikmyndinni „To Catch a
Thief“. Varla er hætta á
mistökum hafi menn hálsklút
með góðu sniði, þ.e.
jafnbreiða til beggja enda
og mjórri í miðjunni.
Fjögurra handbragða-hnútur
►SÍGILDUR og einfaldur hnútur, sem hentar
öllum efnisgerðum. Á nítjándu öld voru breskir
ökumenn hestvagna vanir að binda trefla sína á
þennan hátt til að hindra að þeir fykju út í
buskann.
Shelby-hnútur
►BYRJAÐ er að hnýta þennan smágerða og
nákvæma hnút með bindið úthverft. Ef vel tekst til
leggst breiðari hluti bindisins nákvæmlegafyrir
miðju. Rangan á mjórri hlutanum snýr út og á að
haldast vel fyrir aftan.
Slaufa
►HVORT sem slaufa er notuð við hátíðleg tækifæri
eða að degi til skal hnýta hana þannig að hún nái
ekki út fyrir sverustu hálslínu.