Morgunblaðið - 11.03.1995, Side 21

Morgunblaðið - 11.03.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 21 ERLENT Reuter DANSKUR blaðamaður gabbaði marga landsmenn sína í fyrra- dag er hann klæddist að hætti Fídels Kastrós Kúbuleiðtoga og gekk um götur Kaupmannahafnar i fylgd „lífvarða". Leiðtogafundur um félagslega þróun Snertir kjarnann í friðargæslu SÞ Kaupmannahöfn. Morgunbladið. GUNNAR Pálsson, sendiherra ís- lands, hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ) segir ástæðulaust að gera þvi skóna leiðtogafundurinn um félags- lega þróun í Kaupmannahöfn komi að engu gagni. Hafa beri í huga að flest átök, sem SÞ hafí afskipti af, spretti á einhvem hátt af félags- legum orsökum og því sé þarft að ræða félagslega þróun. Fundurinn mun samþykkja yfír- lýsingu, sem sett er upp sem boðorð og verða líklega tíu og svo fram- kvæmdaáætlun. Bæði þessi skjöl voru að mestu tilbúin, þegar fundur- inn hófst. Gunnar sagði að íslend- ingar hefðu tekið þátt í undirbún- ingnum. Þetta væm yfírgripsmikil skjöl, svo erfítt væri að segja til um niðurstöðumar í einstökum atriðum, en í heild væri hann sáttur við þær. Eitt helsta deilumálið hefur verið hvort samþykkja ætti svokallaða 20/20 reglu. Hún felur í sér að þróunarlöndin skuldbinda sig til að veija tuttugu prósentum þjóðar- tekna sinna til félagslegra málefna gegn því að tuttugu prósent af er- lendri þróunaraðstoð renni til sömu málefna í fátækustu löndunum. ESB-löndin em mjög ósammála um þetta atriði. Hvorki Bretland né Svíþjóð vill þessa reglu. Mótbár- ur Svía eru, að það njörvi þróun- araðstoðina um of niður og geri hana hugsanlega óhagstæðari ef slík skipting verði gerð að reglu. Gerir leiðtogafundurinn gagn? Spumingin um gagnsemi fundar- ins gengur eins og rauður þráður í gegnum fréttaflutning fjölmiðla. Gunnar sagðist ósammála því að fundurinn væri gagnslaus. Nú á fimmtugasta starfsári Sameinuðu þjóðanna færi vel á að halda fyrsta leiðtogafundinn um félagsleg efni. Flest átök, sem SÞ hefðu haft af- skipti af undanfarin ár, stöfuðu af innanlandsátökum, er ættu rætur að rekja til fátæktar, misréttis, umhverfisspjalla og öfgastefnu, en allt þetta félli undir félagsleg mál- efni. Viðfangsefni fundarins snerti því sjálfan kjarnann í friðargæslu- starfi samtakanna. Kanadamenn taka spænskan togara utan lögsögu sinnar Spánveijar senda herskip á miðin Madrid, Brussel. Reuter. SPÁNVERJAR sögðust í gær hafa sent herskip á umdeild mið utan fískveiðilögsögu Kanada eftir að Kanadamenn höfðu tekið spænskan togara sefn var þar að grálúðuveið- um. Luis Atienza, sjávarútvegsráð- herra Spánar, lýsti aðgerðum Kanadamanna sem „grófu sjóráni að yfírlögðu ráði“. Spánverjar kröfðust þess að Evrópusambandið, ESB, gripi til refsiaðgerða gegn Kanada. Kanadísk varðskip skutu íjórum viðvörunarskotum yfír stafn spænska togarans, Estai, eftir mik- inn eltingarleik á fimmtudag. Vopn- aðir varðskipsmenn réðust síðan um borð í Estai og handtóku skipstjór- ann. Varðskip hélt með Estai í togi áleiðis til St. Johns í Nýfundnalandi. Spænska utanríkisráðuneytið sagði aðgerðir Kanadamanna gróft brot á þjóðarétti og kvaðst hafa sent kanadísku stjórninni „kröftug mótmæli". Kanada verði refsað Carlos Basterreche, varafasta- fulltrúi Spánar hjá ESB, sagði að 18 spænskir togarar hefðu verið að veiðum utan 200 mílna fískveiði- lögsögunnar við Kanada og 10 eða 11 togarar frá Portúgal. Hann sagði að eftirlitsskip frá ESB væri á mið- unum til að tryggja að skipin veiddu ekki umfram kvóta sem sambandið hefur sett sér á svæðinu. Spænski togarinn er frá Galisíu í norðvesturhluta Spánar og sjáv- arútvegsráðherra fylkisins, Xoan Caamano, krafðist þess að Evrópu- sambandið gripi til refsiaðgerða gegn Kanada. „Það er ótrúlegt að ríki skuli leyfa sér að hleypa af vélbyssum að skipi sem er að veið- um á alþjóðlegu hafsvæði," sagði hann. Caamano sagði að spænska stjórnin ætti að krefjast svara frá kanadískum stjómarerindrekum í Niðurlægður BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti (t.h.) neyðir síðasta sovétleiðtog- ann, Míhaíl Gorbatsjov, til að lesa ályktun sem samþykkt hafði verið nokkrum dögum áður á fundi rússnesku ríkisstjórnarinn- ar. Myndin var tekin 23. ágúst 1991 þegar Gorbatsjov hafði snúið aftur heim til Moskvu eftir mislukkað valdarán harðlínu- kommúnista og taldi völd sín óskert. um. Þetta fólk hafði alist upp í sam- félagi þar sem aðeins var einn stjórnmálaflokkur og þar sem allt var í ríkiseigu.“ Ábyrgð Jeltsíns Aðspurður segir Gorbatsjov að aldrei hafí hvarflað að flokksforyst- ur.ni að sjálf Sovétríkin myndu lið- ast í sundur líkt og gerðist á haust- mánuðum 1991. Aðskilnaðarhreyf- ingar hafi fyrst látið til sín taka í Eystrasaltsríkjunum auk þess sem forystusveitinni hafi verið fullkunn- ugt um vaxandi spennu í samskipt- um þjóðarbrota. „Þeirri hugsun að Sovétíkin kynnu að hverfa skaut aldrei upp á meðal okkar. Enginn innan Sovétríkjanna hugleiddi nokkurn tíma þann möguleika að ríkjabandalagið kynni að hverfa. Það var óhugsandi." Sovétleiðtoginn fyrrverandi segir að hættan á allsheijarupplausn hafi fyrst orðið raunveruleg þegar „ákveðnir framgjamir menn“ kom- ust til valda í Rússlandi og á hann þar við Borís Jeltsín og undirsáta hans. „Þessir menn tóku að ræða um sjálfstæði og fullveldi Rúss- lands. Þann 12. júní 1990 var síðan birt sú fráleita yfírlýsing að Rúss- land væri sjálfstætt ríki. Það var þarna sem þessi neikvæða þróun hófst. Rússland var kjarninn í Sov- étveldinu. Og þegar kjarninn er hrifínn á brott hrynur allt saman. í miðri þessari atburðarás varð Jeltsín forseti Rússlands. Ég lá ekk- ert á þeirri skoðun minni að ég væri þessu algjörlega andvígur. Ég gerði mér ljóst að Jeltsín var ekki fær um að standa fyrir uppbygg- ingu. Hann er niðurrifsmaður. Hann nýtti sér rússnesk lög og gerði allt til að gera aðstæður enn verri. Sjónarmið mín voru hunds- uð.“ Stækkun NATO Gorbatsjov segir mikilvægt að ríki Vesturlanda myndi ekki eins konar víglínu gagnvart Rússlandi. Byggja þurfi Evrópu upp á jafnrétt- isdgrundvelli. Hann minnir á þá hugmynd sína að stofnað verði sér- takt evrópsk öryggisráð og varar af miklum þunga við stækkun Atl- antshafsbandalagsins (NATO) til austurs. „Vesturlönd mega ekki þröngva Rússum út í horn.“ Madrid við því hvort kanadísk yfir- völd hefðu tekið ákvörðun um að skjóta ætti að spænska togaranum eða hvort skipherra varðskipsins hefði ákveðið það sjálfur. Portúgalir mótmæla Portúgalir mótmæltu einnig að- gerðunum. „Fiskveiðiskipin eru fórnarlömb grófs virðingarleysis fyrir þjóðarétti og þeirri sátt sem ætti að ríkja um alþjóðleg haf- svæði,“ sagði Eduardo Azavedo Soares, sjávarútvegsráðherra Port- úgals. Kanadamenn réttlætu aðgerðim- ar utan fiskveiðilögsögu sinnar og sögðust vera að reyna að vernda grálúðustofninn, einn af síðustu nýtanlegu fískstofnunum á þessu svæði. Grálúðan flakkar milli mið- anna innan og utan 200 mílna físk- veiðilögsögunnar. Deilt um kvóta Kanadamenn gripu til þessara aðgerða eftir að Evrópusambandið ákvað að hafa kvótatillögur NAFO, Norðvestur-Atlantshafsfiskveiði- nefndarinnar, að engu. NAFO lagði til að heildargrálúðukvótinn yrði 27.000 tonn í ár, þar af fengi Evr- ópusambandið 3.400 tonn. Sam- kvæmt reglum NAFO hafði Evrópu- sambandið rétt til að mótmæla ákvörðuninni innan 60 daga og gerði það. Sambandið setti sér síðan rúmlega 18.000 tonna kvóta, en kvaðst sætta sig við heildarkvót- ann, 27.000 tonn. Spænsku og portúgölsku togar- arnir hafa þegar veitt meira en 3.400 tonn. í fyrra veiddu skip ESB-ríkjanna 40.000 tonn af grál- úðu á svæðinu. Kanadamenn veiddu aðeins 6.400 tonn af grálúðu í fyrra og samkvæmt tillögum NATO verður kvóti þeirra 16.300 tonn í ár. NAFO finni málamiðlunarlausn Evrópusambandið hefur hvatt til þess að NAFO efni til fundar ekki síðar en 20. mars til að freista þess að fínna málamiðlunarlausn á deil- unni. Sjávarútvegsráðherra Galisíu sagði að breyta þyrfti reglum um atkvæðisrétt aðildarþjóða NAFO. „Með þessu óþolandi hugarfari vilja Kanadamenn sýna, kröftuglega og með valdi, að þeir hafi NAFO í vasanum, án þess að virða réttindi annarra aðildarríkja þegar það hentar þeim,“ sagði Caamano. GRALUÐUSTRIÐ KANADA OG ESB GRALUÐAN Einn afsíðustu nýtanlegu fiskstofnunum á svæðinu. Stofninn hefurþó minnkað um 60% siðustu tíu árin Kínversk stjórnvöld ósátt við gagnrýni Segja Bandaríkjunum að líta í eigin barm Pcking. Reuter. QIAN Qichen, utanríkisráðherra Kína, sagði í gær að Bandaríkjamenn ættu að hætta að gagnrýna Kínveija fyrir mannréttindabrot og líta þess í stað í eigin barm. Á sama tíma gagnrýndu kínverskir ríkisfjölmiðlar Bandaríkjastjórn harðlega fyrir að skipta sér af mannréttindamálum í Kína. „Ég held að Bandaríkjamenn séu svo uppteknir við að leita af holum í löggjöf annarra ríkja að þeir gleymi að athuga eigin löggjöf. Ég vona að þeir einbeiti sér að eigin málum í auknum mæli í framtíðinni," sagði ráðherrann. Nefndi hann sem dæmi um gloppótta lagasetningu Banda- ríkjamanna að dauðarefsing væri leyfð í sumum ríkjum en ekki öðrum. Gramir Rússum Kínveijar eru Bandaríkjamönnum mjög reiðir fyrir að hafa lagt fram ályktun hjá Mannréttindanefnd SÞ í Genf þar sem kínversk mannrétt- indamál eru gagnrýnd. Kínveijar og stuðningsríki þeirra felldu ályktunina með eins atkvæðis mun í atkvæða- greiðslu á miðvikudag. Þetta er fímmta ályktunin af þessu tagi á jafn mörgum árum, sem Bandaríkjamenn leggja fram, en sú fyreta sem kemur til atkvæða. Eru Kínvetjar Rússum gramir fyrir að hafa stutt það að atkvæði voru greidd um tillöguna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.