Morgunblaðið - 11.03.1995, Síða 22

Morgunblaðið - 11.03.1995, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 NORRÆN SAMVINNA MORGUNBLAÐIÐ „SÆMUNDUR á selnum“ fyrir framan Háskóla íslands er skírskotun í einhverja þekktustu frásögn af heimferð íslensks námsmanns erlendis frá. Nordplus - leið til Norðurlanda í slenskir námsmenn hafa alltaf sótt mikið til Norðurlanda í fram- haldsnám. Þær ferðir hafa skilað bæði vel menntuðu fólki og auknum tengslum við Norðurlöndin, að mati Helga Þorsteinssonar, sem telur að þessi mál hafi tekið nýja stefnu með tilkomu áætlunar um norræn náms- manna- og kennara- skipti: Nordplus. NORDPLUS er áætlun um námsmanna- og kennara- skipti á háskólastigi milli Norðurlandanna. Henni var hrundið í framkvæmd 1988 og hefur verið í örum vexti síðan. Nordplus styrk- ir nemendur og kennara til tíma- bundinnar dvalar á háskólastofnun- um á Norðurlöndum utan heima- lands þeirra. Á síðasta ári fengu um tvö þúsund nemendur og átta hundruð kennarar styrk á vegum áætlunarinnar til dvaiar í eina eða tvær annir og að auki tóku tvö þúsund nemendur og kennarar þátt í styttri norrænum námskeiðum á vegum Nordplus. Nordplus hefur ekki komið í staðinn fyrir hefbund- ið nám íslendinga á Norðurlöndum. Áætlunin er að miklu leyti viðbót við þau menntamálasamskipti sem fyrir voru og hefur orðið til að styrkja tengsl norrænna náms- manna og menntamanna. Nordplus lifir af í Evrópu í upphafi var Nordplusáætlunin eins konar andsvar gegn Erasmus, stúdentaskiptaáætlun Evrópu- bandalagsins. Markmiðið var ann- ars vegar að gefa norrænum há- skólanemendum og kennurum tækifæri til samskonar samskipta og starfsbræður þeirra innan Evr- ópubandalagsins nutu og hins vegar að búa þá undir að taka þátt í evr- ópsku samstarfi í framtíðinni. Nordplus var einnig hluti stærri áætlunar um sameiginlegan vinnu- markað á Norðurlöndum á svipaðan hátt og Erasmus átti að styrkja samevrópska vinnumarkaðinn. Með því að samræma nám í ólíkum lönd- um átti að gera menntafólki auð- veldara að starfa utan heimalands- ins að námi loknu. Aðstæður hafa töluvert breyst síðan 1988. Fljótlega urðu Norður- löndin þátttakendur í Erasmuskerf- inu og nú hafa Svíþjóð og Finnland bæst í hóp Evrópusambandsríkja. Norðurlöndin hafa engu að síður haldið ótrauð áfram að styrkja Nordplus. Ráðamenn á Norðurlönd- um telja flestir að þörf sé á að halda sémorrænni samvinnu áfram við hlið hinnar evrópsku. Norplus hefur auk þess ýmsa kosti fram yfir Erasmus. Fyrrnefnda áætlunin er sveigjanlegri og hraðvirkari. Auðveldara er að sækja um og svör berast fyrr. Nordplusáætlunin virð- ist því hafa kosti og sérstöðu sem gera henni kleift að lifa af í nýrri Evrópu. Fósturfjölskyldur á jólum Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins er tengiliður fyrir Nordplus á ís- landi. Hún vinnur í samstarfi við faglega tengiliði innan deilda Há- skóla íslands og við aðrar stofnanir á háskólastigi sem taka þátt í Nordplus, til dæmis Kennarahá- skólann og Myndlista- og handíða- skólann. Fagdeildimar á Norður- löndum mynda samstarfsnet og þar eru helstu ákvarðanir um stúdenta- skiptin teknar. Álþjóðaskrifstofan aðstoðar Nordplusstúdenta, sem til landsins koma, meðal annars við húsnæðis- leit. Á Norðurlöndum er Nordplus- stúdentum yfirleitt útveguð her- bergi á stúdentagörðum, en hér standa aðeins örfá herbergi til boða á Görðum. Því hefur alþjóðaskrif- stofan þurft að leita til ótal leigu- sala um allan bæ. Reynt er að útvega Norður- landabúunum íslenska samleigjend- ur til þess að þeir einangrist ekki. Jafnframt hafa verið gerðar ýmsar aðrar tilraunir til að koma á sam- skiptum milli Nordplusstúdentanna og íslendinga. Meðal annars hefur verið haft samstarf við Rotaryfélög- in um að útvega þeim Nordplus- stúdentum sem hér eru um jólin íslenskar gestgjafafjölskyldur til að dveljast hjá yfir hátíðirnar. Tungumálaerfiðleikar Norðurlandabúar hafa sóst mikið eftir að komast til íslands gegnum Nordplusáætlunina og hafa færri komist að en vildu. Flestir þeirra sem hingað hafa komið hafa stund- að nám í íslensku við Háskólann. Margir hafa einnig stundað mynd- listamám, enda er tungumálið minni þröskuldur þar en í öðrum námsgreinum. Tungumálaörðugleikar eru aðal- vandamál norrænna stúdenta sem hingað koma. Framan af voru eng- ar sérstakar ráðstafanir gerðar til að mæta þörfum þeirra sem komu til að stunda nám í öðrum greinum en íslensku fyrir erlenda stúdenta. Frá árinu 1993 hafa hins vegar verið haldin sérstök undirbúnings- námskeið í íslensku fyrir Nordplus- stúdenta. Auk þess hafa verið haldnir sérstakir fyrirlestrar um ólík efni tengd landi og þjóð nokkr- um sinnum á hverjum vetri. Rætt hefur verið um að kenna einhver námskeið á Norðurlandamálum eða ensku. Það gætu verið þverfagleg námskeið sem nýttust flestum Nordplusstúdentum sem hingað kæmu og öðrum erlendum nemend- um, til dæmis Erasmusstúdentum. Hingað til hafa þessar fyrirætlanir strandað á fjárskorti. Ný leið til Norðurlanda Þátttaka íslendinga í Nordplus- áætluninni er hluti nýrrar stefnu í menntamálasamskiptum við útlönd. Fyrr á árum voru tengsl Háskóla Islands við erlenda fiáskóla fyrst og fremst óformleg, oft til komin vegna námsdvalar íslendinga er- lendis. Á síðustu árum hefur Há- skólinn í auknum mæli tekið upp formlegra samstarf, annars vegar með tvíhliða samningum við ein- staka háskóla erlendis, og hins veg- ar með þátttöku í samstarfsneti margra háskóla á borð við Nord- plus- og Erasmusáætlanirnar. Nokkur atriði greina Nordplus frá fyrri samskiptum Islendinga við norrænar háskólastofnanir. í fyrsta lagi er námstíminn erlendis styttri, aðeins ein eða tvær annir. I öðru lagi er námið metið að fullu til ein- inga við háskólastofnun hér heima. Þannig á nemandi í bókmennta- fræði við Háskóla íslands sem fer til Lundar og lærir litteraturveten- skap í tvær annir ekki að tefjast neitt í náminu á íslandi. í þriðja lagi fara nemendur oftast fyrr út til Norðurlanda í nám en áður gerð- ist. Flestir nemendur sem fara út í Nordglus eru í grunnnámi í sinni grein. í fjórða lagi er það nýtt að samskiptin eru tvíhliða; Svíar, Dan- ir, Finnar og Norðmenn koma hing- að til lands að læra. Síðan en ekki síst eru veittir styrkir úr sameigin- legum sjóðum Norðurlanda til Nordplussamstarfsins. íslendingar í frændgarði Aðstæður til náms fyrir íslenska Nordplusnemendur á Norðurlönd- um eru sennilega að jafnaði betri en þær sem mæta Norðurlandabú- um sem hingað koma. Tungumála- erfiðleikar íslendinganna eru minni, nema þá helst í Finnlandi, enda fer aðeins lítill hluti íslendinga á vegum Nordplus til Norðurlanda til þess að sækja tungumálanám. Flestir fara til að bæta við sig í sömu grein og þeir eru að læra í skólanum heima. Reynsla starfsmanna Al- þjóðaskrifstofunnar er sú að íslend- ingar séu yfirleitt ánægðir með Nordplusdvöl á Norðurlöndum. Þeir aðlagast vel aðstæðum, því Norður- landabúar eru líkari okkur í hugsun og háttum en flestar aðrar þjóðir. íslendingum er líka vel tekið og oft eru heimamenn forvitnir um þá. Landkynning er því enn einn kost- urinn sem fylgir Nordplusáætlun- inni fyrir ísland. Það gildir það sama um Nordplus og flesta aðra þætti Norðurlandasamstarfsins að við íslendingar högnumst sennilega meira á því en nokkur hinna þjóð- anna. Höfundur stundar nám i hagnýtrí fjölmiðlun við Háskóla íslands. Vildi komast sem lengst Frá Ólafsvík til Árósa CHARLOTTA Landelius er myndlistamemi frá Stokk- hólmi. Hún sótti um að kom- ast til Islands, því lengra var ekki hægt að komast frá Sví- þjóð á Nordplus-styrk. Hún er ánægð með dvölina hér, þótt hún hafi ekki lært mikið í ís- lensku og þó að myndlistamá- mið uppfylli ekki ýtrustu væntingar. Ég kom til landsins í sept- ember í fyrra en fyrir þann tíma vissi ég ekki annað en að á Islandi væm eldfjöll, jö- klar og álfar en engin tré. í Svíþjóð var ég í keramíknámi við listaskóla í Stokkhólmi en hér er ég á myndlistarbraut í Myndlista- og handíðaskólan- um. Ég kann vel við mig í náminu en skólinn er ekki eins vel búinn og sá úti í Svíþjóð. Auk þess eru nemendur ekki eins vel undirbúnir undir námið eins og þar ogJ>ví em ekki gerðar eins miklar kröfur. I fyrstu bjó ég í herbergi á gistiheimili sem skólinn útvegaði. Mér þótti of lítið frjálsræði þar og flutti mig þess vegna ásamt tveimur vin- konum mínum, einni sænskri og einni danskri, í leiguíbúð á Grettisgötu. Þar kunnum við vel við okkur, stundum listina á virkum dögum og kráarlífið á Kaffi List um helgar. Ég hef ekki lært mikla ís- lensku ennþá. Á heimilinu tala ég auðvitað sænsku en bæði í skólanum og á kránni hefur enskan dugað best. Hluti kennslunnar fer fram á ensku, sérstaklega fyrir erlenda stúd- enta, og auk þess er náms- greinin þess eðlis að tungumál era lítil hindrun. Sem Nordpl- us-nemandi hef ég meira frjálsræði en aðrir nemendur. Til dæmis fæ ég að taka námskeið af mismunandi áram. Fjárhagslega hefur auðvitað líka munað miklu um Nordplus- styrkinn. Almennt get ég sagt það um Nordplus-kerfið að það er einfalt og virk- ar vel. GUÐBJÖRG Gylfadóttir ólst upp í Ólafsvík en stundar nú nám í sagnfræði við Háskóla íslands. Siðastliðinn vetur var hún við nám í Háskólanum í Árósum á vegum Nordplus. Auk Dananna kynntist hún þar fjölmörgum útlendingum sem voru í svipuðum erindagjörð- umog hún sjálf. Ég hafði aldrei komið til Danmerkur og langaði til að prófa eitthvað nýtt. Þess vegna sótti ég um Nordplus. Ég var tvær annir í skólanum, frá hausti til vors. Á vegum Nordplus var mér útvegað herbergi á stúdentagarði og boðið var upp á ýmsa félags- starfsemi fyrir útlendinga á vegum háskólans. Á stúdentagarðinum voru aðeins útlendingar. Þar kynntist ég því allra þjóða kvikindum, til dæmis Erasmus-stúdentum frá ýmsum löndum. Við þá talaði ég ensku, en dönsku í skólan- um, þannig að dvölin varð til að bæta bæði málin. Námið olli mér ekki neinum sérstökum erfiðleikum. Mér fannst reyndar danskir nem- endur oft betur lesnir og virk- ari i kennslustundum en ger- ist hér heima. Námskeiðin sem ég tók hafa öll verið metin inn i sagnfræðina við Háskóla íslands og ég tafðist því ekkert í námi. Reynslan að utan hefur dugað mér vel hér, ekki síst hefur það hjálp- að mér að vera orðin betri í dönsku og ensku. Það sem ég sé helst eftir er að hafa ekki farið á sérstakt dönskunám- skeið sem boðið var upp á fyrir útlenda stúdenta í Árós- um og að hafa ekki haft enn- þá meiri samskipti við Danina sjálfa til að verða betri í málinu. Nordplus dugði mér vel. Samtals fékk ég 210 þúsund krónur í styrk og auk þess var sérstakur umsjónarmaður áveg- um áætlunarinnar mér til aðstoðar í Árós- um. Án Nordplus hefði ég aldrei farið þessa ferð. Morgunblaðið/Emilía Charlotta Landelius Morgunblaðið/Kristinn Guðbjörg Gylfadóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.