Morgunblaðið - 11.03.1995, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 27
AÐSENDAR GREINAR
Óréttmætar ásakanir um
skattalagabrot Pósts o g síma
TALSVERT hefur verið fjallað
um póstþjónustu, einkarétt og
virðisaukaskatt á póst í fjölmiðlum
á síðastliðnum vikum. Sú umfjöll-
un kemur í kjölfar þess að einn
af þeim aðilum sem tekið hefur
að sér að dreifa utanáskriftarlaus-
um sendingum á höfuðborgar-
svæðinu hefur hvað eftir annað
leitað eftir áliti Samkeppnisstofn-
unar, ríkisskattstjóra og fleiri að-
ila á ýmsum atriðum. í greinar-
skrifum á vegum sama aðila hefur
Póstur og sími m.a. verið sakaður
um skattalagabrot, „með þeim
stærri í sögu þessarar þjóðar“, og
bókhaldsbrot.
Póstþjónusta er undanþegin
virðisaukaskatti
Innan Pósts og síma er það litið
mjög alvarlegum augum að fram
komi ásakanir um það að fyrirtæk-
ið greiði ekki þá skatta sem því
ber að greiða. Einn af samkeppnis-
aðilunum í póstdreifingunni virðist
telja að Pósti og síma beri að
greiða virðisaukaskatt af þeirri
Öll almenn póstþjón-
usta, nema burðargjöld
böggla, er undanþegin
virðisaukaskatti.
Hrefna Ingólfsdóttir
telur að ásakanir um
skattalagabrot Pósts og
síma eigi því ekki við
rök að styðjast.
póstþjónustu sem fellur utan
einkaleyfisins. Þar er m.a. átt við
opnar bréfapóstsendingar, póst-
kort og innrituð blöð og tímarit.
Póstur og sími hefur hins vegar
ekki brotið lögin um virðisauka-
skatt, vegna þess að í þeim er ein-
faldlega kveðið á um að ekki skuli
greiddur virðisaukaskattur af
póstþjónustu með þeirri undan-
tekningu þó að burðargjald fyrir
böggla er skattskylt. Fyrirtækið
hefur því farið að lögum. En vegna
þess að í sept. sl. gaf ríkisskatt-
stjóri það álit sitt, að með orðinu
póstþjónusta væri í lögunum ein-
ungis átt við þá þjónustu sem
Póstur og sími hefði einkaleyfi á,
þá skapaðist óvissa sem nauðsyn-
legt reyndist að eyða. Því breytti
Alþingi nýlega virðisaukaskatts-
lögunum á þann hátt að enginn
vafi getur leikið á um það að öll
almenn póstþjónusta, nema burð-
argjöld böggla, er undanþegin
virðisaukaskatti, hvort sem póst-
þjónustan fellur undir einkaleyfi
eða ekki. Ásakanir um skattalaga-
brot Pósts og síma eiga því ekki
við rök að styðjast.
Með nýju lögunum er áréttað
að öll póstþjónusta, þ.m.t. sú sem
aðrir aðilar en Póstur og sími inna
af hendi, er einnig undanþegin
virðisaukaskatti til að uppfylla
jafnræðisreglu, svo þar er ekki um
samkeppnislega mismunun að
ræða. Til fróðleiks má geta þess
’MSS'
- kjarni málsins!
að í löndum innan Evrópusam-
bandsins er þeirri stefnu almennt
fylgt að opinber póstþjónusta er
ekki virðisaukaskattsskyld.
Um úrskurð
ríkisskattsp' óra
Það sem vekur furðu í úrskurði
ríkisskattstjóra frá 21. september
1994 er að þar er orðið póstþjón-
usta túlkað svo þröngt að einung-
is sá hluti hennar sem bundinn er
einkaleyfi er talinn falla þar und-
ir. Ef sú túlkun er rétt, er einkenni-
legt að sérstaklega skyldi vera
tekið fram í lagatextanum að
burðargjald böggla sé skattskylt.
Það hlýtur að hafa verið gert
vegna þess að vilji löggjafans var
að öll önnur póstþjónusta en
bögglar væri undanþegin virðis-
aukaskatti. Þannig hafa lögin ver-
ið túlkuð og fram-
kvæmd af Pósti og
síma frá gildistöku
þeirra 1990.
Óréttmætar
ásakanir
Umræðan um þessi
mál í fjölmiðlum hefur
stjórnast af hæpnum
fullyrðingum eins af
samkeppnisaðilum
Pósts og síma sem m.a.
hefur haldið því fram
að vantalinn skattstofn
til álagningar virðis-
aukaskatts nemi um
1,2-1,8 milljörðum
króna. Þar er átt við
Hrefna
Ingólfsdóttir
burðargjald af óárituð-
um fjöldasendingum
og innrituðum blöðum
og tímaritum. Þessar
tölur _eru alveg út í
hött. Á árinu 1994 nam
þessi umræddi skatt-
stofn um 159 milljón-
um króna og er skýrt
aðgreindur í tekjubók-
haldi fyrirtækisins.
Bókhald Pósts og síma
er þannig í fullu sam-
ræmi við lög um virðis-
aukaskatt.
Höfundur er blaða- og
upplýsingafulltrúi
Pósts og síma.
to
8.-11. niars
síðasti daqur
WMsm
i i' 8SMB8M383BI8IWI
- ævintýralega góð kaup
í dag, laugardaginn 11. mars
- sídasta dag Kringlukastsins -
verða verslanir Kringlunnar opnar til
18.00
kynnir Kringlukast
11» m
.i5 já Kringlukastsblað gdi Morgunblaðinu í vikunni
yfir 2000 bílastæði
- öll ókeypis -