Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yfir Þjórsá 'Nútalaráöaménn þjóöarinnar í líkingum og njóta Þjórsá sem elfuna á milli Evrópu og íslands. Davíö Oddsson lætur svo um mælt aö hugur Jóns Baldvins standi svo sterkt til aö róa yfir þessa elfu, aö hann sé þegar sestur upp í bátinn á Klambratúni í Reykjavík og sé farinn aö róa á þurru landi. i &HÚK&- Bíddu bara þangað til að atkvæðaflóðið hellist yfir, Davíð minn Morgunblaðiö/Halldór Sveinbjörnsson Nýtt skíðasvæði ísfirðinga opnað um helgina TUNGUDALUR, hið nýja skíðasvæði ísfirðinga, verður opnað formlega um næstu helgi. Myndin að ofan var tek- in í góðviðri á föstudag, þegar loks stytti upp. Þar sem fólkið er, er aðalbrekka skíðasvæð- isins. í fjarska og forsælunni sést gangamunninn í Tungu- dal. Isfirzk ungmenni kunna vel að meta svæðið og léku um helgina ýmsar listir í lang- þráðri blíðu. Hér er Birgir Órn Sigurjónsson að stökkva á skiðum fram af einni fjalls- brúninni. Rannsóknastyrkur í Bandaríkjunum Lítið vitað um orsakir astma Hákon Hákonarson HÁKON Hákonarson, læknir, sem hefur verið í framhalds- námi í Bandaríkjunum síð- ustu sex ár hefur fengið rúmlega 112 þúsunda Bandaríkjadala styrk úr þarlendum sjóði til að stunda rannsóknir á astma og orsökum hans á næstu þremur árum. Styrkupp- hæðin nemur rúmlega sjö milljónum íslenskra króna. - Hvaða rannsókna- styrkur er þetta sem þú hefur fengið? - Stofnunin sem veitir styrkinn heitir Parker B. Francis Foundation og starfar innan Öndunar- lækninga- og gjörgæslufé- lags sem hér er. Þessi stofnun var sett á laggirnar 1951 og hefur það hlutverk að styrkja sér í lagi unga lækna sem stunda lungna- og/eða gjör- gæslulækningar á bandarískum stofnunum til sérstaks rann- sóknanáms. Styrkirnir eru veittir til allt að þriggja ára og stýrk- tímabilið sem ég fékk hefst nú 1. júlí og er til þriggja ára. -/ hverju felast rannsóknir þínar? - Rannsóknirnar beinast aðal- lega að því að fá svar við því hvað það sé sem gerist í öndunar- vegi astmasjúklinga þegar þeir verða fyrir áreiti sem veldur auknum samdrætti og minni slökun. Rannsóknirnar eru á sviði frumu- og sameindalíffræði og beinast að því að skýra hvaða orsakir liggja til grundvallar þeim ofnæmisviðbrögðum sem verða hjá astmasjúklingi við til- tekin áreiti. Ofnæmisvakarnir geta verið vírusar eða einhver umhverfisáhrif og þau valda því að vöðvafruman dregur sig sam- an með auknum krafti og niður- staðan verður sú bólgusvörun sem á sér stað í öndunarvegi astmasjúklings. Það er afskap- lega lítið vitað um hvað það er nákvæmlega sem veldur þessari ofnæmissvörun og hver munur- inn er að þessu leyti á heilbrigð- um einstaklingi og ofnæmissjúkl- ingi. Eflauster um samspil erfða- og umhverfisþátta að ræða, en það sífellt að koma betur og bet- ur í Ijós að það eru ýmis efni og vakar sem frumurnar gefa frá sér sem skipta þarna afskaplega miklu máli og einn sá möguleiki sem er til rannsóknar er að það sé mismunandi framleiðsla ákveðinna efna í frumunum sem veldur því að sumir hafa sjúk- dóminn og aðrir ekki. - Ertu búinn að vinna lengi að þessum rannsóknum? - Ég byijaði á þessum grunn- rannsóknum á orsök- um astma þegar ég fluttist til Philadelp- hiu. Ég er búinn að vinna aðþeim síðan í tvö ár og er nú kom- inn með ákveðinn grunn til að byggja áframhald- andi rannsóknir á, en til þeirra er styrkurinn veittur. Rannsóknir í lífeðlisfræði og sameindalíf- fræði standa framarlega hér á barnaspítalanum miðað við það sem gengur og gerist og það er veitt háum styrkjum frá hinu opinbera til rannsókna á þessu sviði barnalækninga. - Er það misskilningur eða er ekki astmi sífellt að verða al- gengari og algengari? - Astmi er í dag algengasti ►Hákon Hákonarson er fæddur á Akureyri 9. desem- ber 1960 og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og stundaði síðan læknanám við Háskóla íslands. Hann útskrifaðist úr læknadeild vorið 1986 og starfaði síðan sem aðstoðarlæknir á Akur- eyri og á Landspítalanum og Landakoti, þar til hann hélt til framhaldsnáms í Banda- ríkjunum árið 1989. Hann nam fyrstu þijú árin almenn- ar barnalækningar við Uni- versity of Connecticut og síð- an hefur hann sérhæft sig í öndunarfærasjúkdómum barna við barnaspítala Uni- versity of Pennsylvania. Há- kon er kvæntur Maríu ívars- dóttur, grafískum hönnuði, og eiga þau þijú börn, 7 ára dreng, og tvær stúlkur, 5 ára og 2 ára. króníski sjúkdómurinn í börnum og ungu fólki fram undir þrí- tugt. Bæði hefur greiningar- tæknin batnað og gert það kleift að greina astma á mjög vægu stigi, sem ekki var kannski skil- greindur sem astmi á árum áður. Það er engin spurning að bæði fylgikvillum við astma og dauðs- föllum tengdum astma hefur ljölgað verulega í stórborgum hér í Bandaríkjunum, sérstaklega meðal þeirra sem búa í miðborg- unum. Það hlýtur að orsakast af einhveijum umhverfisþáttum, að minnsta kosti að hluta til, og þar er mengun sterkt inn í mynd- inni. Þó astmi sé sjúkdómur sem orsakast af samspili erfða- og umhverfisþátta, þá held ég að umhverfisþátturinn sé mjög ráð- andi. Við sjáum alveg ógrynni af börnum sem hafa mjög slæm- an astma og hér hafa börn á öllum aldri dáið úr þessum sjúkdómi áður en þau hafa kom- ist undir læknishend- ur. Segja má að 40-50% af börnum sýni einhvern tíma á fyrstu sex árum lífsins einhver merki um astma, en hjá flestum þeirra hverfa þessi einkenni þegar þau eldast. 5-7% barna fá hins vegar endurtekin astmaköst sem halda áfram og fylgja þeim fram á kynþroskaaldur og sumum fram á fullorðinsár. Hins vegar er astmi samkvæmt mínum upplýs- ingum ekki eins algengur á Is- landi og þessar tölur bera með sér og líklega má rekja það til hreina loftsins. Astmi algeng- asti króníski sjúkdómurinn í börnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.