Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Rúnar Þór ÞAÐ var þröng á þingi þegar tilboð í byggingu orlofshúsa við Kjarnaskóg voru opnuð í gær en alls bárust 19 tilboð. Orlofshús við Kjarnaskóg Nílján tilboð í smíðina bárust Tapi upp á 247 millj. kr. snúið í gróða Brúttóvelta KEA og dótturfyrirtækja nam 9.477 milljónum króna á liðnu ári NÍTJÁN tilboð bárast í smíði orlofs- húsa við Kjarnaskóg við Akureyri en þau voru opnuð I gær. Það eru Úrbótarmenn á Akureyri sem standa að framkvæmdum við orlofshúsa- hverfið en áætlað er að um 200 milljóna króna verkefni sé að ræða við hverfið allt. Fyrirhugað er að byggja í fyrsta áfanga 10 til 12 orlofshús á svæðinu og var misjafnt hversu mörg hús hvert fyrirtæki bauð að smíða, allt frá einu og upp í 12 hús. Kostnaðar- áætlun hljóðaði upp á 5,2 milljónir króna fyrir hvert hús. Lægsta tilboðið var frá Trésmiðj- unni Borg og fleirum á Sauðárkróki sem buðust til að smíða 10 hús hvert fyrir 4.359.230 krónur en það er 83,8% af áætluðum kostnaði. Hæsta tilboðið var frá Timburtaki sem bauðst til að byggja 5 hús hvert á 5.060.417 krónur, sem er 138,5% af kostnaðaráætlun. Aðrir sem buðu í verkið eru SJS- verktakar, Fjölnir, SS-byggir, Tré- smiðja Sigurðar og Fagverk, Ossi hf., Trésmiðjan Rein, Trésmiðja Fljótsdalshéraðs, Trésmiðjan Akur og Trésmiðjan Ösp en tilboð þessara fyrirtækja voru yfir kostnaðaráætl- un. Undir áætluðum kostnaði voru tilboð frá Tréverki, frávikstilboð frá Ossa hf., Trésmiðju Hilmars, Stefáni Jónssyni, Hyrnu hf., S.G. Einingar- húsum, Trénausti og Kötlu hf. Flest tilboðanna voru á bilinu 95-105% af áætluðum kostnaði ráðgjafa. Kaup staðfest á næstu dögum „Við munum nú skoða tilboðin og fara yfir þau en þeirri vinnu ætti að vera lokið upp úr næstu helgi og í framhaldi af því munum við ræða við menn,“ sagði Sveinn Heiðar Jónsson einn Úrbótarmanna. Um næstu mánaðamót verður jarðvegsvinna á svæðinu boðin út og í framhaldi af því grannar, lagn- ir og fleira. Orlofshúsin eiga að vera tilbúin um miðjan júlí næstkomandi en stefnt er að því að taka fyrstu húsin í notkun síðsumars. „Viðbrögðin hafa verið mjög góð, það hefur fjöldi fólks, fulltrúar verkalýðs- og starfsmannafélaga haft samband við okkur og við ger- um ráð fyrir að kaup verði staðfest á næstu dögum. Við erum mjög þakklátir því hversu margir hafa sýnt þessu framtaki áhuga," sagði Sveinn Heiðar. HAGNAÐUR af rekstri Kaupfé- lags Eyfirðinga og dótturfyrir- tækja þess var 16 milljónir króna á liðnu ári en árið þar áður var 247 milljóna króna tap af sam- stæðunni. Reikningar Kaupfélags Eyfirð- inga og fyrir samstæðuna KEA og dótturfyrirtæki fyrir árið 1994 liggja nú fyrir en aðalfundur fé- lagsins verður í næstu viku. Tekjur Kaupfélags Eyfirðinga voru 7.430 milljónir króna á liðnu ári og-jukust um 5% milli ára en rekstrargjöld voru 7.113 milljónir króna, jukust heldur minna en tekjur eða um 4% þannig að hagn- aður fyrir fjármagnsliði hækkaði milli ára og var á síðasta ári 317 milljónir króna samanborið við 269 milljónir árið á undan. Fjármagnskostnaður lækkaði Fjármagnskostnaður lækkaði mikið á árinu 1994 miðað við fyrra ár eða um 141 milljón króna. Hagnaður af reglulegri starfsemi var um 118 milljónir á liðnu ári samanborið við tap árið áður upp á 70 milljónir. Að teknu tilliti til óreglulegra gjalda og skatta var hagnaður af rekstri KEA um 95 milljónir en árið á undan var tap af rekstrinum upp á 51 milljón króna. Veltufé frá rekstri jókst veru- lega á síðasta ári og var 335 millj- ónir samanborið við 256 milljónir árið 1993. Eigið fé í árslok var 2.365 milljónir og hækkaði um 50 milljónir króna. Eigiðfjárhlutfall FÉLAGAR í björgunarsveitinni á Grenivík hafa aðstoðað eldri borgara við að komast milli húsa, á heiisugæslustöð og fleira í snjó- þyngslunum í vetur. Margt eldra fólk á erfitt með gang og hafa björgunarsveitarmenn dregið fólk milli húsa á sjúkraþotu sveit- arfélagsins. Fjölmörg hús á Grenivík eru á kafi í snjó og löng og djúp snjó- var um 33% í árslok, hækkaði um 1% milli ára. Brúttóvelta- Kaupfélags Eyfirð- inga var 8.053 milljónir króna á liðnu ári og jókst um 5% milli ára, brúttóvelta dótturfyrirtækja var um 1.424 milljónir króna og jókst um 1% milli ára. Brúttóvelta sam- stæðunnar, KEA og dótturfyrir- tækja, var því um 9.477 milljónir króna á árinu sem er 4% aukning frá árinu á undan. Hlutdeild í hagnaði og tapi Hlutdeild KEA í hagnaði og tapi dótturfyrirtækja var tap að upphæð 79 milljónir króna en samsvarandi tala fyrir árið 1993 var tap að upphæð 196 milljónir, þannig að rekstur dótturfyrir- tækja hefur batnað mikið milli ára, þó enn sé mikið tap á vatnsút- flutningi. Samstæðan í heild, KEA og dótturfyrirtæki, var rekin með 16 milljóna króna hagnaði á síðasta ári en tap varð árið á undan upp á 247 milljónir. Veltufé frá rekstri hjá samstæð- unni var 394 milljónir samanborið við 297 milljónir árið á undan, 1993. Greiddur 10% arður Aðalfundur KEA verður haldinn í næstu viku, 25. mars, og gerir stjórn félagsins tillögu um til aðal- fundar að greiddur verði 10% arð- ur af nafnverði hlutabréfa og að greiddir verði 4% vextir af stofn- sjóði félagsmanna. göng eru að heimahúsum. Götur hafa ekki verið ruddar, en ekið er ofan á snjónum í margra metra hæð víða eins og reyndar annars staðar á Norðurlandi. Snjóbíll Grýtubakkahrepps er notaður til að hirða sorp þorpsbúa, pokarnir eru settir út á hlað í veg fyrir bílinn og þeim síðan safnað saman í aftanívagn eins og sjá má á myndinni. Kvenna- listi og Þjóðvaki kynna sig MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit verður með opið hús í Safnað- arheimili Akureyrarkirkju í dag, miðvikudaginn 15. mars, milli kl. 15.00 og 18.00. Frambjóðendur stjórnmála- flokkanna eru nú að kynna stefnumál flokka sinna vegna væntanlegra þingkosninga. Að þessu sinni mæta Elín Antonsdóttir, Kvennalista, og Vilhjálmur Ingi Árnason, Þjóð- vaka. Munu þau ræða við þátt- takendur, m.a. um atvinnumál- in og svara fyrirspurnum þeiraa. Kaffi og brauð verður á borð- um að vanda og dagblöðin liggja frammi. Færeyskar bókmenntir kynntar BÓKMENNTADAGSKRÁ frá Færeyjum verður í Deiglunni annað kvöld, fimmtudagskvöld- ið 16. mars kl. 20.30. Rithöfundurinn Jens P'auli Heinesen les úr verkum sínum og bókmenntafræðingurinn Malan Marnarsdóttir Simonsen kynnir færeyskar bókmenntir. Jens Pauli Heinesen er einn fremsti rithöfundur Færeyinga og hlaut færeysku bókmennta- verðlaunin 1959, 1969 og 1973. Malan Simonsen hefur m.a. starfað sem bókmenntagagn- rýnandi til margra ára, gert dagskrár fyrir útvarp og sjón- varp og skrifað greinar um fær- eyskar kvennabókmenntir. Fjt- irlestur hennar heitir Kynmód- ernismi og póstmódernismi í færeyskum bókmenntum. Dagskráin verður að mestu flutt á dönsku. Aðgangur er ókeypis. Samvera eldri borgara SAMVERA eldra borgara verð- ur í Glerárkirkju á morgun, fimmtudaginn 16. mars frá kl. 15.00 til 17.00. Samveran hefst með stuttri helgistund 5 kirkjunni, síðan er gengið í safnaðarsalinn þar sem tækifæri gefst til að hlýða á söng, spjalla saman og fleira en fólk er hvatt til að taka með sér spil. Boðið er upp á veiting- ar gegn vægu verði. Flug fallið niður í færri daga en í fyrra EKKERT var hægt að fljúga til Akureyrar á sunnudaginn og var það íjórði heili dagurinn þa_r sem flug féll alveg niður. Á sama tíma I fyrra höfðu fallið niður sjö heilir dagar í flugi. Bergþór Erlingsson, umdæm- isstjóri Flugleiða á Akureyri, sagði að þó veturinn hefði verið harður hefði það ekki bitnað eins mikið á flugi og menn ef til vill héldu. „Þetta hefur líka einkum verið logndrífa og nánast ekkert um stói’hríðir þannig að flugið hefur gengið framar vonum mið- að við hversu harður veturinn er,“ sagði Bergþór. ' Hann sagði að fragtflutning- ar hefðu aukist það sem af er árinu og til dæmis næmi aukn- ingin 14% í febrúarmánuði mið- að við sama mánuð í fyrra. Skýringuna sagði Bergþór m.a. þá að oft hefði verið ófært land- leiðina þó hægt hefði verið að fljúga, en í fyrra hefði ófærð á landi og lofti meira haldist í hendur. Aðalfundur Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. Aðalfundur Hlutabréfasjóðs Norður- lands hf. fyrir rekstrarárið 1994, verður haldinn á Hótel KEA, miðvikudaginn 22. mars nk. kl. 16.00 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 12. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins ti| samræmis við ákvæði hlutafélagalaga nr.2/1995. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félags- ins munu liggja frammi á skrífstofu Kauþings Norðurlands hf., hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Stjórn Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. Morgunblaðið/Jónas Baldursson Eldri borgarar dregnir milli húsa á sjúkraþotu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.