Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 39 FRÉTTIR Ný stjórn í Blóðgjafa- félagi Islands BJÖRN Harðarson afhenti Rúnari Sveinssyni viðurkenningu fyrir 100. blóðgjöfina. AÐALFUNDUR Blóðgjafafé- lags íslands var haldinn 2. mars sl. á Hótel Lind. Meginefni fund- arins var þríþætt venjuleg aðal- fundarstörf, blóðgjöfum veittar viðurkenningar og flutt voru fræðsluerindi. Kosin var ný stjórn og formaður endurkosinn, Björn Harðarson, deildarstjóri í Blóðbankanum. Frá: farandi stjórn var endurkosin. í skýrslu stjórnar kom fram að blóð- gjafafélagið hafði á síðasta ári styrkt hjúkrunarfræðing í Blóð- bankanum, Sonju Guðjónsdóttur, til þjálfunar í nýrri blóðhluta- vinnslu og til að kynna sér hluti sem snúa að blóðgjafanum og blóðtökunni sjálfri. Þjálfun þessi fór fram í blóðbankanum á há- skólasjúkrahúsinu í Uppsölum, Svíþjóð. Þar kom fram að margir hlutir eru til skoðunar og má þar nefna ýmsar reglur sem snúa að blóð- gjafanum, innköllun og öflun blóð- gjafa og þá sér í lagi nýrra, vinnu- aðferðir og ferli blóðgjafans við blóðgjöf svo eitthvað sé nefnt. Einnig kom fram að öðrum hlutum hefur þegar verið breytt, s.s. opn- unartíma Blóðbankans, skráningu blóðgjafans við blóðgjöf og að hafin er rannsókn á járnbirgðum blóðgjafans. Ætlunin er að vera með viðhorfskannanir meðal blóð- gjafa, þannig að rödd þeirra heyr- ist, en þar gæti reynt á samstarf Blóðbankans, Blóðgjafafélags ís- lands, Rauða kross íslands og fl. aðila. Blóðgjöfum voru veittar viður- kenningar fyrir að gefa blóð 50, 75 og 100 sinnum á árinu 1994. Sérstök viðurkenning var veitt Rúnari Sveinssyni en hann náði 100 gjafa markinu á síðasta ári. Á síðasta ári voru um 14 þúsund blóðgjafir gefnar í Blóðbankann en það er um 15% aukning frá árinu á undan. Jón Sigurðsson, sérfræðingur í svæfíngalækningum, hélt erindi um nauðsyn blóðgjafastarfsemi í nútíma læknisfræði. Þar kom fram að góð blóðgjafasveit, eins og þjóð- in á, er lífsnauðsynlegur hlekkur í heilbrigðiskerfi nútímans. Morgunblaðið/Bemhard Jóhannesson HJALTI Lúðvíksson, Jón Magnússon og Kristján Benediktsson í nýju húsnæði fyrirtækisins Frjó hf. Frjó hf. flytur starfsemi sína NÝLEGA flutti Fijó hf. starfsemi sína af Fosshálsi 13 til 15 að Stór- höfða 35. Nýja húsnæðið er mun stærra og bjartara og öll aðkoma mun rýmri sem er til þæginda fyrir viðskiptavini. Fijó hf. var stofnað fyrir rúmum þremur árum og er hlutafélag, eigendur eru rúmlega þijátíu, einkum garðyrkjubændur, auk þriggja starfsmanna sem einnig eru aðaleigendur. Fastir starfsmenn eru þrír sem allir hafa reynslu hver á sínu sviði. Hjalti Lúðvíksson sem hefur há- skólamenntun í garðyrkjutækni- fræði og vann áður í fimmtán ár hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, Jón Magnússon sem hefur allan sinn starfsferil unnið við versl- unarstörf, meðal annars hjá Sölu- félagi garðyrkjumanna, og Krist- ján Benediktsson sem rekið hefur garðyrkjustöð í tuttugu ár og hef- ur góða reynslu í stjórnunarstörf- um. I fyrstu var Fijó hf. eingöngu heildsala sem sérhæfði sig í rekstr- arvörum fyrir garðyrkjubændur og skógræktarstöðvar. Með nýju og rúmbetra húsnæði hefur verið opnuð smásöluverslun með fjöl- breyttu úrvali af hverskonar vör- um til garðyrkju, aðal áherslan hefur verið lögð á að sinna þörfum allra þeirra sem hafa hverskonar ræktun að áhugamáli. Fijó hf. mun leitast við að hafa fagmennsku og lágt verð að leiðar- ljósi. Verslunin er opin frá kl. 8 til 18 alla virka daga og opnunar- tíminn mun lengjast þegar nær dregur vorinu. ------♦ ♦ ♦------ ■ FRÆÐSL UFUND UR um lestrarörðugleika verður haldinn í Norræna húsinu miðvikudaginn 15. mars kl. 20.30. Á fundinum mun Jónas Halldórsson sálfræð- ingur ræða um: Hveijir fá grein- ingu á greiningarstofu; og Artur Morthens sérkennslufulltrúi mun ræða um: Hvað gerir skólakerfíð eftir að greining er fengin. Fyrir- spurnir og umræður á eftir. Stolinn bíll og ann- ar klesstur LÖGREGLAN í Reykjavík leitar upplýsinga um bíl sem stolið var aðfaranótt 23. febrúar sl. og annan bíl sem ekið var á aðfaranótt 12. mars sl. Bílnum var stolið frá bílastæði við Torfufell 50 aðfaranótt fimmtudagsins 23. mars. Þetta er tvennra dyra, hvítur Daihatsu Charade, árgerð 1991, með skrán- ingarnúmer UH 291. Þegar honum var stolið vantaði hjólkopp á hægra framhjól, hann var eineygður og barnabílstóll var í aftursæti. Þeir sem hafa séð til ferða bíls- iris eða vita hvar hann er niður kominn eru vinsamlegast beðnir um að láta rannsóknardeild lög- reglunnar í Reykjavík vita. Ekið var á svartan Audi fyrir utan Hótel ísland aðfaranótt sunnudagsins 12. mars sl. Bíllinn er talsvert skemmdur að aftan og á öðru afturhorni og mjög líklegt að bíllinn, sem ekið var á Audi-bíl- inn, hafi einnig skemmst eitthvað. Sá sem valdur var að þessari ákeyrslu er vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram við rannsókn- ardeild lögreglunnar í Reykjavík. -----♦ ♦ ♦---- Gengið á milli fjarða HAFNAGÖNGUHÓPURINN fer í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20 frá Hafnarhúsinu í gönguferð úr Vesturhöfninni yfir Landakots- hæðina suður í Skeijafjörð. Síðan verður gengið úr Kapla- skjóli með ströndinni að Lambhóli og til baka um háskólahverfið og Tjarnarsvæðið niður á höfn. Boðið verður einnig upp á styttri göngu- leið. Við upphaf ferðar verður litið um borð í skemmtiferðaskipið Ár- nes sem liggur við Ægisgarð. Karpov einn efstur í Linares SKAK Stðrniót í Linarcs 1.-18. mars ANATÓLÍ Karpov, FIDE-heims- meistari, sigraði unga Búlgar- ann Veselin Topalov í tíundu umferð Linares- mótsins í fyrra- kvöld. Þar með komst Karpov í fyrsta skipti einn í efsta sætið á mót- inu. Þijár umferðir eru ótefldar og allt bendir nú til þess að Karpov sigri annað árið í röð. Ukraínumaðurinn sterki, Vasilí ívan- tsjúk, er í öðru sæti. Þeir Karpov mætt- ust í níundu umferð og lauk skákinni með jafntefli eftir mikla baráttu. Mót- inu lýkur á laugar- daginn. Úrslit 9. umferðar: Karpov-ívantsjúk V2, Shirov- Lautier V2, Tivjakov-I. Sok- olov V2, Drejev-Khalifman 1-0, Ljubojevic-Topalov V2, Akopj- an-Short V2, Beljavskí-Illescas V2 Úrslit 10. umferðar: Topalov-Karpov 0-1, Illescas- Short 1-0, Lautier-Drejev 1-0, Ívantsjúk-Shirov V2, I. Sokolov- Akopjan V2, Beljavskí-Ljubojevic V2, Khalifman-Tivjakov V2. Stað- an eftir 10 umferðir: 1. Karpov TVi v. 2. ívantsjúk 7 v. 3. Topalov 6'/i v. 4. Shirov 6 v. 5. -6. Bejjavskí og Khalifman 5V* v. 7. -9. Illescas, Tiyjakov og Drejev 5 v. 10.-13. Short, I. Sokolov, Lautier og Ljuhojevic , 3% v. 14. Akopjan 3 v. Stjarna Englendingsins Nig- els Short hefur lækkað stöðugt síðan hann tapaði heimsmeist- araeinvíginu fyrir Gary Kasp- arov haustið 1993. Það er miður því Short hefur bráðskemmtileg- an skákstíl. Þegar honum tekst að brjótast út úr viðjum þungrar stöðubaráttu Rússanna þá er hann til alls vís eins og stysta vinningsskákin á Linares-mót- inu sýnir. Andstæðingur hans, Aleksei Drejev, hefur verið sig- ursæll í vetur, en í 12. leik gefur hann höggstað á sér: Hvítt: Aleksei Drejev Svart: Nigel Short Drottningarbragð 1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 - d5 4. Rc3 - Be7 5. Bf4 - 0-0 6. e3 - c5 7. dxc5 - Bxc5 8. a3 - Rc6 9. Hcl I níundu umferð Linares- mótsins, tveimur dögum síðar,- lék Drejev 9. Be2 gegn Khalif- man. Eftir 9. - Re4?! 10. Rxe4 - dxe4 11. Re5 stóð hann betur að vígi og vann í 40 leikjum. 9. - a6 10. cxd5 - exd5 11. Bg5 - d4!? Miklu hvassara en 11. - Be7 12. Be2 og hvítur stendur betur, en þannig tefldist skákin Ham- ann-Filip, Ólympíumótinu í Lug- ano 1968. Nú hefði Drejev átt að leika 12. Bxf6 sem svartur verður að svara með 12. - gxf6. I staðinn leikur hann af sér. 12. Rb5? - dxe3! 13. Dxd8 Svo virðist sem Drejev hafi einfaldlega yfirsést að 13. Hxc5? gengur ekki vegna 13. — exf2+. 13. - exf2+ 14. Ke2 - Hxd8 15. Bxf6 - He8+! 16. Kdl - gxf6 17. Hxc5 17. Rc7 mætti bæði svara með 17. - Hd8+ 18. Ke2 - Rd4+ 19. Kxf2 - Ba7! og 17. - Bg4 18. Rxe8 - Hd8+ 19. Kc2 - Hxe8 í báðum tilvikum með betri stöðu á svart. Nú virðist þvingað á svart að taka manninn til baka og leika 17. - axb5 18. Bxb5 - Bg4, en þá stendur hvítur síst lakar eftir 19. Bxc6 - bxc6 20. Hc2! En Short finnur stór- kostlegan vinnings- leik og teflir með manni minna: Sjá stöðumynd 17. - Bg4!! 18. Rc3 Vanmetur næsta sleggjuleik Shorts, en 18. Rc7 - Had8+ 19. Hd5 - Bxf3+ 20. gxf3 - Hel+ 21. Kd2 - Hc8! er einnig unnið á 18. - Rd4! 19. Bc4 - Rxf3 20. Kc2 - Bf5+! 21. Kb3 - Rd2+ 22. Ka2 - Be6 og Drejev gafst upp. Jafnt hjá Anand og Kamsky Fjórðu einvígisskák þeirra Anands og Kamskys í Las Palm- as lauk með jafntefli eftir 58 leiki. Kamsky hafði hvítt og tefldi byrjunina, opið afbrigði spánska leiksins fremur óná- kvæmt. Anand jafnaði tafiið, en tefldi framhaldið slaklega og varð að láta peð af hendi. Hann varðist þó vel í endatafli og Kamsky tókst ekki að færa sér liðsmuninn í nyt. Staðan er því 2-2. Það er komið í ljós að Án- and stendur mun betur að vígi hvað fræðilegan undirbúning snertir. Helgarskákmót hjá TR Taflfélag Reykjavíkur stendur fyrir helgarskákmóti um næstu helgi og hefst það á fimmtudags- kvöld. Tefldar verða sjö umferð- ir eftir Monrad-kerfi. Fyrstu þrjár umferðirnar verða með 30 mínútna umhugsunartíma á skákina, en þær fjórar síðari með einni og hálfri klukkustund á 30 leiki og síðan 30 mínútur til viðbótar til að ljúka skákinni. Teflt er fimmtudag 16. mars frá kl. 19-22, föstudaginn 17. mars frá kl. 19-23, laugardaginn 18. mars frá kl. 17-21, sunnu- daginn 19. mars frá kl. 10.30 til 14.30 og aftur frá kl. 17-21. Verðlaun eru 20 þús., 12 þús. og 8 þús. Öllum er heimil þátt- taka í helgarskákmótinu og fer það fram í félagsheimilinu í Faxafeni 12. Helgarskákmót með svipuðu sniði hafa notið mikilla vinsælda að undanförnu og hafa verið haldin mörg slík mót í vetur með þátttöku margra sterkustu skákmanna landsins. Margeir Pétursson Nigel Short teflir líf- legar en Rússarnir. svart.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.