Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNNGAR MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 33 sævi sinni fór Björn nokkrum sinn- um til alllangra námsdvala erlendis, bæði vestan hafs og austan, til að viðhalda og auka þekkingu sína auk margra styttri náms- og kynnis- ferða. Ég kynntist Bimi ekki að ráði fyrr en hann fór að vinna á barna- deild Landspítalans í kringum 1960. Við tengdumst fljótt vináttuböndum, samstarfíð var óhjákvæmilega náið því við vomm í byijun einu sérfræð- ingarnir á deildinni auk Kristbjarnar Tryggvasonar yfírlæknis. Vinnan gat verið strembin, vaktbyrði mikil, því standa þurfti vakt annan hvern sólarhring allmörg fyrstu árin uns stöðuheimildum fjölgaði. Björn var verkfús, lá ekki á liði sínu ef grípa þurfti til hendi, ávallt reiðubúinn að hlaupa í skarðið í forföllum annarra. Hann var knár og röskur til vinnu, var ekki að tvínóna við hlutina. í þessu sambandi get ég ekki stillt mig um að láta þess getið að eftir svo langan og strangan vinnudag var Birni umbunað með 53 þús. króna mánaðarlegri greiðslu úr líf- eyrissjóði. Það var allt og sumt. í eðli sínu var Björn dulur, fremur ómannblendinn og tranaði sér ekki fram. Hann hafði samt ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og gat á stundum í hita augnabliks- ins verið skorinorður og ómyrkur í máli. Hann var glaður og reifur í góðra vina hópi, tók gamni og miðl- aði, unni tónlist og söng af krafti þegar svo bar undir. Hann var minn- ugur og fróður um margt utan síns fræðasviðs og hafði frá mörgu að segja sem fyrir hann hafði borið á ókunnum slóðum, heima og erlendis. Eftir að ég tók við forræði á Barn- aspítala Hrmgsins fyrir um 20 árum hefí ég við ýmis tækifæri notið að- stoðar Björns við stjórnun deildar- innar, framkvæmd breytinga eða nýjunga í rekstri og á sínum tíma fól ég honum daglega umsjón með læknanemum sem á deildinni eru á hveijum tíma í klínískri þjálfun. Er Bjöm lét af störfum, fyrir aldurs- sakir, í árslok 1991 fékk ég hann til að sinna í hlutastarfí sérverkefn- um sem hann hafði haft með höndum um nokkurt skeið. Var hann við- loðandi á deildinni þar til í mars 1993. Fyrir öll hans störf vil ég þakka að leiðariokum. Okkar samskipti voru ánægjuleg og Imnn var mér ávallt trúr og holl- ur. Ég kveð Bjöm með söknuði. Við Stefanía vottum Þómnni, börnum og venslaliði innilega hlut- tekningu. Víkingur H. Arnórsson. Bjöm Júlíusson læknir er látinn aðeins 73 ára gamall eftir stutta en erfíða sjúkdómslegu. Hann varð sér- fræðingur í barnalækningum árið 1961 en hóf störf á barnadeild Landspítalans árið áður og starfaði þar uns starfsævi lauk eða í tæp 33 ár. Við, sem nú störfum sem sérfræð- ingar á Barnaspítala Hringsins, höf- um allir fengið að starfa við hlið . Björns, vera nemendur hans og sam- starfsmenn á deild, vinnandi saman á vöktum eða sinnandi kennslu. Aldrei féll skuggi á þetta samstarf, alltaf var stutt í brosið og létta skap- ið hvernig sem okkur leið og hvað sem á dundi. Það var aldrei nein lognmolla í kringum Bjöm, ekkert hangs. Björn var fljótvirkur en samt mjög laginn við börn. Hann var far- sæll læknir. í sumra augum var hann dálítið „snöggur upp á lagið“ en við nánari kynni kom annað og meira í ljós. Björn var einlægur, bæði við sjúklinga og samstarfs- menn, hann var vandvirkur, sinnti sínu starfi af stakri samviskusemi og alúð þannig að þau verkefni sem honum voru falin vissum við að voru í góðum höndum. Frá stúdentsárum Bjöms lifir enn sagan af honum sem lýsir vel dugn- aði hans og atorku en sú saga er eitthvað á þessa leið: Meðal náms- efnis á fyrstu ámm í læknadeild urðu menn að lesa „Gray’s Ana- tomy“ sem er um það bil 1.600 blað- síðna doðrantur, þéttskrifaður á enskri tungu með einstaklega tyrl'n- A um stíl. Að loknum einum lestrar- degi spurði skólabróðir B. Júl. hann að því hve margar klukkustundir hann hefði lesið þann daginn. Sagð- ist Björn hafa setið við í tíu tíma. Þótti þetta slíkt afrek að mæliein- •ingin „bjúl“ varð til. Flestir náms- menn vom ánægðir með Vi eða í besta lagi % „bjúl“ á dag. í lok einn- ar sex „bjúla“ viku sagði hann: „Nú ætla ég virkilega að slá mér lausum í kvöld. Hvað er í bíó, strákar?" Dugnaður Björns kom ekki ein- göngu fram í námi heldur einnig starfí og sem mark um starfsþrek Björns er það að hann hætti ekki að sinna vöktum á Barnaspítalanum fyrr en á 61. aldursári. Eru þetta samt einna erfíðustu vaktir sem sér- fræðingar á Landspítalanum taka. Eftir að Björn varð sjötugur og fór á eftirlaun hélt hann áfram tryggð við barnadeildina og sinnti ýmsum sérverkefnum á hennar veg- um þar til fyrir réttum tveimur ámm. Það er stutt síðan Björn hætti „hjá okkur". Hann naut ekki lengi elliáranna en hann naut virðingar í starfi og hamingju í einkalífi sínu. Við félagamir á Barnaspítala Hringsins sendum honum hinstu' kveðju og vottum Þómnni og böm- um þeirra okkar dýpstu samúð. Læknar Barnaspítala Hringsins, Landspítalanum. Kveðja frá Félagi íslenskra barnalækna íslenskir barnalæknar sjá nú í annað sinn á tæpu ári að baki starfs- félaga sínum. Síðast liðið vor lést Baldur Jónsson, barnalæknir á Ak- ureyri, og í dag kveðjum við Björn Júlíusson, barnalækni í Reykjavík. Er söknuður í okkar hóp að sjá þann- ig á eftir tveimur af fmmkvöðlum íslenskra bamalækninga á skömm- um tíma. Björn starfaði í yfír þijá áratugi sem sérfræðingur á Barnaspítala Hringsins og kenndi barnasjúk- dómafræði við læknadeild Háskól- ans. Þeir eru því margir, sem nutu mannkosta hans og þekkingar, bæði sem nemendur og samstarfsmenn og sem sjúklingar hans og aðstand- endur. Hann var vel heima í fræðum sínum, skjótráður og raungóður og bjó að langri og góðri reynslu í fagi sínu, sem við „yngri mennimir" átt- um greiðan aðgang að. Að leiðarlokum kveðjum við Bjöm með þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast honum og starfa með honum og sendum aðstandendum hans hugheilar samúðarkveðjur. Stefán Hreiðarsson, formaður FÍBL. v. Kveðja frá „öldungadeild“ LI Enn kveðjum við einn úr hópnum. Um manninn Bjöm Júlíusson ætla ég ekki að fjölyrða. Það vissu allir sem þekktu hann hvern mann hann hafði að geyma og mannkostirnir komu fram í lækninum, sem best verður lýst með því sem sagt var um elsta lækni á Islandi, Hrafn Sveinbjarnarson: „Hann var læknir góður." Ég hef fáa menn þekkt, sem höfðu til að bera jafn marga eigin- leika, sem prýða mega góðan lækni. Hann var samviskusamur svo af bar og vinnusamur, dómgreind hans var með ágætum og staðgóðri þekkingu hélt hann við af kostgæfni. Þegar við þetta bættist nær takmarkalaus umhyggja fyrir sjúklingunum, er ljóst að hans rúm innan læknastétt- arinnar var vel skipað. Ég vil þakka fyrir áralanga sam- vinnu, sem aldrei bar skugga á, um leið og ég flyt Þórunni og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur mín- ar og hinna öldunganna. Árni Björnsson. Þegar einhver heltist úr lestinni eftir langa samfylgd, setur gjarna hljóðan trega að þeim sem halda áfram göngunni, þótt ekki sé nema um sinn, því að allar liggja leiðirnar að einum ósi. Slíkt er það lögmál er allt líf verður að lúta og allir þekkja sem komnir eru úr frum- bernsku. Sumir hverfa hægt og hljóðlega úr hópnum, jafnvel svo að fáir veita því athygli, meðan aðrir skilja eftir sig varanlegra tóm í huga þess sem eftir stendur. Kynni okkar og Bjöms Júlíusson- ar læknis og fjölskyldu hans hófust fyrir eitthvað um það bil hálfum fjórða áratug, þegar hún fluttist á næstu hæð við okkur í Drápuhlíð 48, þar sem hún bjó allmörg ár. Þó að okkur bæri nokkuð á milli við fyrstu samfundi, sem hvorugur okk- ar átti þó sök á, var því brátt kippt i liðinn, og tókst senn góður kunn- ingsskapur milli heimila okkar, sem snerist síðar í órofna vináttu. Ungur að ámm stundaði Björn sjómennsku að hætti Eyjapeyja, en hvarf síðar að langskólanámi, braust með hraðfylgi til mennta nokkuð fullorðinn og lauk stúdentsprófi 1947 og læknaprófí 1955. Að loknu framhaldsnámi erlendis hlaut hann viðurkenningu sem sérfræðingur í barnasjúkdómum árið 1961 ogstarf- aði síðan á bamadeild Landspítalans meðan aldur leyfði, en kenndi jafn- framt fræði sín við Háskóla íslands. Ég held að það hafí ekki verið hending, að Björn valdi barnasjúk- dóma að sérgrein. Hjálpsemi hans og hlýhugur til lítilmagnans var rík- ur þáttur í skaphöfn hans. Hann var hvarvetna boðinn og búinn að koma til hjálpar ef eitthvað bjátaði á og sparaði þá hvorki tlma né fyrirhöfn. Nærfærinn og mildur var hann hin- um ungu og óhörðnuðu sjúklingum sínum eins og raunar öllum sem til hans leituðu, en átti það líka til að vera nokkuð kröfuharður og ein- beittur ef ekki var fylgt settum regl- um og fullorðinn sjúklingur sýndi trassaskap og óhlýðni við settar regl- ur. Slíkt hið sama gilti um umsjár- menn sem leituðu til hans með böm á sínum vegum. Eftir er þá aðeins að þakka fýrir sig og kveðja, tjá konu hans, börnum og öðrum aðstandendum innilegustu samúð í missi ágæts manns. Eftir sitjum við, tvö gömul skör, með minningarnar um góðan vin og glað- ar stundir á heimilum okkar í Drápu- hlíð og ekki síður eftir að þau hjón fluttu þaðan, því að til góðra vina liggja alltaf gagnvegir. Hugþekkar minningar þaðan og frá Björnskoti, sumarbústað þeirra hjóna milli hrauns og hlíðar austur í Ólfusi, eiga vafalaust eftir að orna okkur á kom- andi árum. Sigrún og Haraldur. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, og fara að finna oft. (Hávamál) Þetta vísubrot er tekið úr litlu kveri, sem hann valdi handa vini. Þannig vinur var Björn Júlíusson. Vinur sem þú fórst að fínna oft. Alltaf komstu sælli í sálinni frá hon- um. Það hljómaði eins og hann hefði einmitt verið að bíða eftir þér. Auður hvers manns eru ástvinir hans. Nú er horfinn héðan kær ást- vinur okkar. Hin hliðin á vináttu og tryggð er missir og sorg. Það er nú efst í huga okkar, en þar mun líka ríkja gleðin yfír öllum góðu stundunum okkar saman. Við hjónin kynntumst Bjössa og Tótu árið 1953, þá ung og óreynd I lífsins ólgusjó. Frá þeirri stund hafa þau verið okkar vinir og verndarar, sýnt börn- um okkar og fjölskyldu einstaka samúð og umhyggju. Við þökkum allar þær mörgu ánægjustundir, sem við höfum átt með þeim og þeirra börnum. Sólveig og Árni. Mér brá illilega í brún, er ég frétti fyrir skömmu að vinur minn og gam- all skólafélagi, Bjössi Júl., eins og við kunningjarnir kölluðum hann, lægi þungt haldinn á sínum gamla vinnustað, Landspítalanum. Ég heimsótti hann næsta dag og spjöll- uðum við saman góða stund. Sá ég að honum var vel ljóst hvert stefndi. Að skilnaði tók hann þéttingsfast í hönd mína og hygg ég að á þessari kveðjustund höfum við báðir hugsað það sama. Að nokkrum dögum liðn- um var Björn allur. í huga mínum hafa Vestmanna- eyjar alltaf verið heimur út af fyrir sig. Að mörgu leyti lokað samfélag, ekki síst vegna einangrunarinnar, og einkum er skipaferðir voru einu samgöngurnar við Eyjar. Þó að Vest- mannaeyjabær væri enginn stórbær þá frekar en nú, er ekki þar með sagt að allir hafí þekkst. Að vísu ólumst við Bjöm báðir upp í austur- bænum en þá þekkti ég hann ekki enda var hann fáum árum eldri en ég og of gamall þá til þess að verða leikfélagi minn. Mínar fyrstu endur- minningar um Björn eru frá þeim tíma, þegar hann vann við af- greiðslustörf í versluninni Úrvali við Miðstræti, sem var nýleg herrafata- verslun. Það var aftur á móti haust- ið 1943, sem ég fyrst kynntist Birni, en þá settist ég í 3. bekk Verslunar- skóla íslands, en Björn hafði hafið þar nám á undan mér. Grunar mig að er hann valdi Verslunarskólann til framhaldsnáms hafí hann ekki haft læknisnám í huga heldur hafí fyrra starf hans sem verslunarmaður átt sinn þátt í því, en sem betur fer fyrir ómældan fjölda sjúklinga hans síðar meir klæddist hann hvíta sloppnum í stað þess að selja háls- bindi og sokka að námi loknu. Á þessum tíma var heimsstyijöldin í algleymingi og mikið umrót hér á landi í daglegu lífi manna. Við í Verslunarskólanum létum það ekki á okkur fá, en stunduðum námið af mismunandi kappi eins og gengur. Einn var það þó sem alltaf hélt sín- um „kúrs“ hvað sem á gekk, en það var Bjöm Júlíusson. Hann var af- burða nemandi og ávallt dux á öllum prófum. Veit ég að kennararnir höfðu á honum miklar mætur enda komu þeir aldrei að tómum kofunum er leitað var svara hjá Birni, þegar aðrir nemendur stóðu á gati. Á vordögum 1945 ríkti mikil gleði víða um heim er heimsstyrjöldinni lauk í Evrópu. Það var hress og kátur hópur, sem þá útskrifaðist úr 4. bekk Verslunarskólans og tilbúinn að takast á við alvöm lífsins. Ein- mitt þetta sama vor útskrifaðist fyrsti stúdentahópurinn frá Versl- unarskólanum. Tíu úr okkar hópi ákváðu að halda áfram námi og setj- ast í 5. bekk næsta haust og vorum við Björn þar á meðal. Fullyrða má að 5. og 6. bekkur þessa árgangs var enginn venjulegur skólabekkur. Nær væri að segja að um litla fjöl- skyldu hafi verið að ræða. Vegna fámennisins sköpuðust mjög sterk vináttu- og tilfínningatengsl á milli okkar. Það sem þá voru kallaðar skólastofur framhaldsdeildar voru frekar þokkaleg herbergi á fyrstu , hæð gamla skólahússins við Grund- arstíg enda þröngt setinn bekkurinn. Segja má að þetta hafi verið okkar annað heimili í tvo vetur og óeðlilega erfitt nám, einkum í 5. bekk, þar sem þá var ekki búið að samhæfa kennsluna í yngri bekkjum skólans þessu nýja hlutverki hans. Vart þarf þó að taka það fram, að Bjöm var áfram besti nemandinn í bekknum og auðvitað dux á stúdentsprófínu vorið 1947. í dag er það mjög í tísku að ný- stúdentar haldi suður í lönd eða austur til Asíu að loknu stúdents- prófi. Er við Björn og bekkjarfélagar okkar lukum stúdentsprófí þótti ág- ætt að fara I skólaferðalag til Akur- eyrar enda hélt hópurinn þangað að prófi loknu og alla leið að Mývatni. Var þetta hið skemmtilegasta ferða- lag, sem enn treysti vináttuböndin. Ferðalagið var fjármagnað með þeim hætti, að 6. bekkingar nutu þeirra forréttinda að reka „sjoppu" I skól- anum og skiptumst við á um af- greiðsluna. Trúlega var þetta í síð- asta sinn sem Bjöm stundaði af- greiðslustörf. Að loknu stúdentsprófi hófum við Björn báðir nám í Háskóla íslands. Hann I læknisfræði en ég I lög- fræði. Þá eins og nú var þröngt um stúdenta. Báðir fengum við vist á Nýja Garði og vomm vistaðir í sama herbergi. Enda þótt við Björn hefð- um þá verið skólafélagar í fjögur ár, kynntist ég honum betur sem herbergisfélaga og urðu mér mann- kostir hans enn ljósari. Iðulega ræddum við um landsins gagn og nauðsynjar er við höfðum lokað skruddunum og vorum ekki alltaf á sama máli. Pexuðum við kannski um hina fáránlegustu hluti enda báðir •fastir fyrir, en jafnan lauk þessum umræðum í sátt og samlyndi. Á miðjum vetri 1949 skildum við Björn að borði og sæng eins og við sögðum í gamni. Eg fékk mitt eigið herbergi innar á ganginum en samgangur okkar Björns hélt áfram. Stunduðum við sameiginlega tedrykkju á kvöldin þar sem mér hafði áskotnast forláta hraðsuðuketill en slíkt verkfæri átti hann ekki. Björn lauk síðan háskóla- námi sínu með góðri einkunn eins og hans var von og vísa og er hann fyrsti Verslunarskólalæknirinn. Eftir að námi lauk hittumst við Bjöm sjaldnar, einkum hin síðari ár, og hefði ég mátti rækta vináttusam- bandið betur. Hann var vinur vina sinna eins og gleggst kom í ljós ei* ég gekkst undir skurðaðgerð vetur- inn 1994. Björn var sá fyrsti er heim- sótti mig að lokinni aðgerð og hafði margsinnis samband við mig bæði áður og eftir að ég hafði verið á sjúkrahúsinu. Vil ég þakka honum þetta vinarbragð. Að lokum kveð ég gamlan vin og skólafélaga og þakka honum sam- fylgdina. Fyrir hönd skólasystkin- anna í árgangi 1945 frá Verslunar- skóla íslands og okkar fímm sam- stúdentanna sem eftir lifum votta ég Þórunni og fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð og bið Guð að blessa Björn Júlíusson. Theodór S. Georgsson. Bjöm Júlíusson, frændi og vinur, verður jarðsunginn í dag. Mér datt slíkt ekki í hug þegar við skildum að loknu afmæli og kvöldi saman í nóvember, frændurnir, Óli, Bjössi og undirritaður. En kallið kemur til okkar allra og alltaf jafn óvænt og óviðbúið. Við hjónin höfðum vonað að hittast aftur þegar við kvöddum Bjössa og Tótu á Landspítalanum áður en við fómm í frí, en svo verður ekki og - fátækleg orð okkar vérða að koma samúðarkveðjum til skila, og einnig þakklæti fyrir liðnar samverustund- ir. Allt frá uppeldisárunum í Vest- mannaeyjum, fyrir ómetanlega að- stoð við veikindi yngsta barns okkar á sínum tíma, sem við dveljum hjá í fríi okkar, og svo skemmtilegar samvemstundir í Björnskoti, á Litla- landi og við veiðar I Hrútafírðinum síðasta sumar. Bjöm og minningin um hann hefur yfir sér skýran og hreinan blæ, því að Bjöm var alltaf hreinn og ákveðinn og á næsta leiti við að vera hranalegur á stundum, en það var til að skyggja á einstak- lega ljúfan og tilfinningaríkan innri mann, sem vildi hjálpa öllum og* leysa vanda þeirra, en gerði um leið svo harðar kröfur til sjálfs sín um vandvirkni og bestu lausnir allra mála að tíminn skammtaði afköst, sem maðurinn Bjöm Júlíusson hefði viljað margföld. Við hjón þökkum allar samvemstundimar um leið og við sendum þér, Þómnn, og öllum ættingjum innilegustu samúðar- kveðjur. Egill Skúli Ingibergsson, Ólöf Davíðsdóttir og fjölskyldur. Vandaðir legsteinar Varanleg minning B AUTASTEINN Brautarholti 3, 105 R Sími 91-621393

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.