Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 31 HUÓMSVEITAKEPPNI TÓNABÆJAR Gort GORT skipa Hugi Guðmundsson, sem leikur á gítar, Sveinn Áki Sveinsson sem leikur á bassa, Haraldur A. Leifsson sem leikur á trommur, Þóranna Dögg Björnsdóttir, sem leikur á óbó og syngur, og Hrafn- kell Pálsson, sem leikur á gítar og fiðlu. Gort er að mestu úr Garðabæ og leikur einhvemveginn rokk, en meðalaldur liðsmanna er tæp nítján ár. Gormar og geimfluga FRÁ Selfossi kemur hljómsveitin Gormar og geimfluga og leikur tónlist sem kalla má nýbylgjugrugg. Sveitma skipa Örn Gunnþórsson bassaleikari, Haraldur G. Ás- mundsson og Heimir Tómasson gítarleikarar, Haraldur B. Ólafsson trommuleikari og Sjöfn Gunnarsdóttir og Valur Arnarson sem sjá um sönginn. Meðalaldur sveit- armanna er rúm sautján ár. Krá-khan. ÞVÍ sérkennilega nafni Krá-khan heitir hljómsveit úr Reykjavik og Kópavogi. Liðsmenn em Magnús G. Magnússon söngvari, Bjöm L. Þórðarson og Kristinn Sigurpáll Sturluson gitarleikarar, Almar Halldórsson bassaleikari og Runólfur Einarsson trommuleikari. Krá-khan leikur rokkafbrigði, en meðalaldur liðs- manna er um tuttugu ár. MÚSÍKTILRAUNIR MÚSÍKTILRAUNIR, árleg hljómsveitakeppni félagsmið- stöðvarinnar Tónabæjar, hefjast annað kvöld, fimmtudags- kvöld. Þá leiða saman hesta sína bílskúrssveitir hvaðanæva af landinu og keppa um ýmisleg verðlaun, hljóðverstíma, plötuúttektir og tæki og tól sem gagnast í hljómsveita- stússi. Músíktilraunir 1995 eru þrettándu tilraunimar frá 1982 og margar hljómsveitir sem nú eru í sviðsljósinu komu fyrst fyrir almenningssjónir á sviðinu í Tónabæ. Músíktilraunir ganga þannig fyrir sig að hver hljóm- sveit flytur þijú fmmsamin lög og áheyrendur greiða síðan atkvæði um frammistöðu hennar. Til að tryggja að allir komist áfram sem eiga það skilið starfar sérstök dómnefnd sem grípur inní ef þörf krefur. Að þessu sinni keppa 32 hljómsveitir um sæti í úrslitum. Keppnin fer fram á fjórum kvöldum, annað kvöld, 16., 23., 24. og 30. mars. Síðan verður úrslitakvöldið 31. mars og þá keppa átta til tíu sveitir um sigurlaunin, en þá er vægi dómnefndar öllu meira, eða 70% á móti 30% úr sal. Hefðbundin verðlaun í Músíktilraunum eru hljóðvers- tímar og að þessu sinni eru fyrstu verðlaun 25 tímar í Sýrlandi, fullkomnasta hljóðveri landsins, sem Skífan gef- ur, 2. verðlaun eru 25 tímar í Gijótnámunni sem Spor gefur, 3. verðlaun eru einnig 20 hljóðverstímar, frá Hljóð- hamri, en einnig fær athyglisverðasta hljómsveitin 20 hljóð- verstíma frá Stúdíoi Stef. Að auki fær besti gítarleikari gítar frá Hljóðfæraverslun Steina, besti söngvarinn fær Shure hljóðnema frá Tónabúðinni Akureyri, besti bassaleik- ari vöruúttekt frá Skífunni í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur, besti trommuleikarinn fær vöruúttekt frá Samspili og Paul Bernburg og besti hljómborðsleikarinn verður einnig verð- launaður. Einnig gefur Japís geisladiska, en styrktaraðilar er einmitt Japís, Skífan, Hard Rock Café, Coca Cola, Pizza- húsið og Jón Bakan, að ógleymdu Hljóðkerfi Reykjavíkur, sem leggur til allan tækjabúnað. Músíktilraunir eru jafnan þverskurður af því sem helst er á seyði í bílskúrum landsins, eins og sannaðist eftirminni- lega í tilraununum 1992 þegar önnur hver sveit spilaði Læðurnar LÆÐURNAR, sem leika „týpíska tónlist", koma úr Reykjavík. Liðsmenn eru Freyr Bergsteinsson gítar- leikari, Sigurður P. Arnarson söngvari, Þórhallur Halldórsson túbuleikari og Svavar Knútur Kristinsson gítarleikari og söngvari. Meðalaldur sveitarmanna er tæp tuttugu ár. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Botnleðja BOTNLEÐJA er skipuð Hafnfirðingunum Haraldi Frey Gíslasyni, sem leikur á trommur, Ragnari Páli Sveins- syni, sem leikur á bassa, og Heiðari Erni Kristjáns- syni, sem leikur á gítar og syngur. Þeir félagar eru allir á tuttugasta og fyrsta árinu og segjast leika pönk- skotið nýbylgjurokk. dauðarokk. í síðustu tilraunum bar mjög á Seattle-rokki í anda Nirvana og líklega eimir enn eftir af því þó eflaust hafi pönkstraumar að vestan skilað sér að einhverju leyti og jafnvel breskt gítarpopp líka. Fyrstu Músíktilraunirnar voru haldnar 1982 og þá sigr- Splurge SPLURGE er Seattlerokksveit úr Þorlákshöfn. Sveitar- menn eru Ottó Freyr Jóhannsson og Ingvar G. Júlíus- son gítarleikarar, Jón Óskar Erlendsson bassaleikari, Olav Veigar Davíðsson trommuleikari og Þorbjöm Jónsson söngvari. Meðalaldur sveitarmanna er tæp nítján ár. aði Danshljómsveit Reykjavíkur og nágrennis, sem gjaman kallaðist DRON. Dúkkulísumar sigmðu 1983, 1984 féll keppnin niður vegna kennaraverkfalls, Gipsy sigraði 1985, og Greifarnir náðu mikilli hylli eftir að þeir sigruðu 1986. Sigursveitin 1987, Stuðkompaníið, náði nokkrum vinsæld- um, en sigursveitirnar 1988, Jójó, 1989, Laglausir, og 1990, Nabblastrengir, eru flestum gleymdar. 1991 sigraði Infusoria/Sororicide, sem sendi frá sér breiðskífu í kjölfar- ið og spilaði mikið um tíma. Kolrassa krókríðandi sigraði 1992 og er enn að, sendi til að mynda frá sér stuttskífu fyrir jólin 1992 og breiðskífu fyrir síðustu jól, Yukatan bar sigur úr býtum 1993, sendi frá sér breiðskífu í lqölfar- ið og hætti svo, og sigursveitin 1994, Maus, gaf einnig út afbragðs plötu fyrir síðustu jól og er til alls líkleg. Kolrassa og Maus leika reyndar einnig á þessum músíktil- raunum, en nú sem gestasveitir. Önnur „Músíktilrauna- sveit“, Strigaskór nr. 42, sem tóku þrívegis þátt í Músíktil- raununum og komust í úrslit í öll skiptin, leikur einnig sem gestasveit. Annars verður gestasveitum svo skipað á kvöld: Annað kvöld, 16., leikur Kolrassa Krókríðandi fyrir og eftir keppnina; hitar upp fyrir keppendur og leikur síðan á meðan atkvæði eru talin í lokin. 23. leika Strigaskór nr. 42 og Maus, 24. leika Ólympía og Curver og 30. leikur Unun, en trymbill Ununar barði einmitt Yukatan til sigurs á sínum tíma. Gestasveit úrslitakvöldið, 31. mars, verður svo Jet Black Joe, en sú sveit á nokkrar rætur í Músíktil- raunum og þannig var bassaleikari hennar í sigursveitinni 1990, Nabblastrengjum, og söngvarinn kom við sögu í hljómsveit sem hét því skemmtilega nafni Nirvana og tók þátt sama ár. , Rás 2 kynnir tilraunimar í útvarpi og líkt og mörg undan- farin ár sendir Rás 2 beint út frá úrslitakvöldinu 31. mars, en kynnir öll kvöldin verður Snorri Sturluson. Þess má og geta að Sjónvarpið hyggst senda út frá úrslitakvöldinu og einnig ætlar Stöð 2 að gera keppninni góð skil í þættinum Popp & kók. Árni Matthíasson tók saman Bee Spiders TVÆR rokksveitir koma úr Mosfellsbæ að þessu sinni og önnur þeirra er Bee Spiders. Sveitina skipa Jón Þór „Djonní Bí“ Birgisson gítarleikari og söngvari, Amar Ingi „Black Widow“ Hreiðarsson bassaleikari og Hall- grímur J. „Jimmy Spider" Hallgrímsson trommuleik- ari. Þeir félagar segjast leika Seattle Grunge-tónlist, en meðalaldur þeirra er slétt tuttugu ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.