Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 45 FÓLK í FRÉTTUM Austurlensk veisla í Stjörnubíói STJÖRNUBÍÓ sýnir þessa dagana tævönsku gamanmyndina Matur drykkur maður kona, Eat Drink Man Woman, en myndin er tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta er- lenda kvikmyndin þetta árið. Leik- stjóri myndarinnar er Ang Lee, sem einnig leikstýrði Brúðkaupsveisl- unni, The Wedding Banquet, sem sýnd var í Háskólabíói í fyrra, en sú mynd var einnig tilnefnd til ósk- arsverðlauna. Matur drykkur maður kona fjall- ar um hinn aldna herra Chu, sem er mestur matreiðslumanna í Tapei og faðir þriggja fullvaxta og upp- reisnargjarnra dætra. Herra Chu hefur verið ekkill árum saman og hefur hann sjálfur þurft að annast uppeldi þeirra Jia-Jen, pipraðrar kennslukonu sem virðist hænd að föður sínum, Jia-Chien, frama- gjarns framkvæmdastjóra sem þolir naumast návist föður síns og Jia- Ning, sem er yngst í röðinni og sú rómantískasta af þeim öllum. Tit sögunnar kemur svo frú Liang, nöldursöm ekkja sem flytur í næsta hús og allir í ijölskyldunni bíða þess í ofvæni hvort herra Chu ætli að fara að elda lostæti sitt ofan í hana. Sitthvað gerist þó í millitíð- inni og þannig verður ein ólétt, annarri er sagt upp og sú þriðja geispar golunni og sú íjórða finnur að lokum hina einu sönnu ást. En það kemur svo sannarlega á óvart hvaða örlög bíða hverrar af konun- um í lífi herra Chu. Ang Lee fæddist á Tævan árið 1954, en hann fluttist til Bandaríkj- anna árið 1978 þar sem hann lauk háskólaprófi í leikhúsfræðum frá Illinois-háskóla og síðar meistara- prófi í kvikmyndagerð frá New York-háskóla, en þar vann hann til verðlauna fyrir stuttmynd árið 1985. Fyrsta myndin sem Ang Lee BOLA- PRENTUN Sími: 568 0020 Fynr: Nettari og oflugri skemmtistaði ■ t. f diskotek HUomsveitir félagsheímíli ráðstefnusali Heimilistæki hf BÆTUNB 8ÍMIB6B1BOO gerði í fullri lengd heitir Pushing Hands og vann hún til verðlauna sem besta myndin á kvikmyndahá- tíð Asíu og Kyrrahafslanda árið 1992 og hún var sýnd á kvikmynda- hátíðinni i Berlín sama ár. Næsta mynd leikstjórans var svo Brúðkaupsveislan, sem auk þess að vera tilnefnd til Óskarsverðlauna í fyrra sem besta erlenda myndin hlaut Gullbjörninn á kvikmyndahá- tíðinni í Berlín árið áður og var til- nefnd til Golden Globe-verðlaun- anna sem besta erlenda mynd árs- ins 1994. Brúðkaupsveislan hefur verið sýnd við mikla aðsókn um allan heim og valdi Variety hana sem arðsömustu kvikmynd ársins 1993, en tekjur af myndinni voru margföld sú upphæð sem hún kost- aði í framleiðslu. Ang Lee segir að honum hafi alla tíð þótt það nokkuð kaldhæðið að þótt tilvist hverrar frjölskyldu megi rekja til kynlífs sé það einmitt það umræðuefni sem fjölskyldur eigi hvað erfíðast með að fjalla um. Þetta segir hann að hafí einatt vakið for- vitni hans og löngun til umíjöllunar. Hins vegar hafi hann ekki gert sér grein fyrir hver sagan yrði fyrr en kunningi hans í kvikmyndaiðnaðin- um sagði honum frá hugmynd sem hann hafði lengi gengið með um föður og fjórar dætur hans sem sí- fellt áttu í útistöðum. „Þá byrjaði ég að hugsa fjöl- skyldur og hvað er sagt og hvað er ekki sagt innan fjölskyldna. Það sem bömin þrá oftast mest að heyra er einmitt það sem foreldrarnir eiga erfiðast með að tjá sig um og öfugt. Þegar það svo skeður þá verður um einskonar helgisiði að ræða og það er einmitt það sem á sér stað í Matur drykkur maður kona. Sér- staklega á það við um máltíðirnar á sunnudögum, en gallinn er bara RÚMLEGA 100 girnilegir réttir eru bornir á borð í kvikmyndinni Matur drykkur maður kona. sá að enginn snertir við matnum hvað þá meira, en það er hið eina sem faðirinn getur boðið upp á. Hann veit ekki hvernig hann á að fara að því að ræða málin við dæt- ur sínar og það eina sem hann kann er að seðja eina af grundvallarþörf- um þeirra, nefnilega hungrið. Hann býr til margbrotnar og flóknar krás- ir, en í hvert sinn sem fjölskyldan kemur saman við matarborðið verð- ur eitthvað til þess að stía þeim öllum enn frekar í sundur. I lok myndarinnar hafa svo ijölskyldu- böndin brostið og hver um sig stofn- ar til sinnar eigin fjölskyldu. Þann- ig splundrast fjölskyldan en endur- fæðist á nýjan leik. Titill myndar- innar vísar til tveggja grundvallar- þarfa allra manna, matar og kyn- lífs, en maturinn heldur mann- skepnunni gangandi og kynlífið við- heldur mannkyninu." Maturinn gegnir stóru hlutverki í kvikmyndinni, ekki ólíkt og var í myndunum Babettes Gæstebud og Hot Water Like Chokolate. Ríflega 100 gimilegir réttir era bornir á borð í myndinni og var hver þeirra lagaður af Lin Huei-Yi, sem er tengdadóttir frægasta matreiðslu- meistarans í Kína, en hún leikur jafnframt smáhlutverk í myndinni. ÞAÐ eina sem herra Chu getur gert fyrir dætur sínar er að seðja hungur þeirra. Kynningarfundur _Dale . Camegie þjálfun® Fimmtudagskvöld kl. 20.30 að Sogavegi 69. Námskeiðið Konráð Adolphsson D.C. kennari ✓ Eykur hæfni og árangur einstaklingsins. ✓ Byggir upp leiðtogahæfileika. ✓ Bætir minni þitt og einbeitingarkraftinn. ✓ Skapar sjálfstraust og þor. ✓ Árangursríkari tjáning. ✓ Beislar streitu og óþarfa áhyggjur. ✓ Eykur eldmóðinn og gerir þig hæfari. Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma: 581 2411 WS4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.