Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 21 AÐSENDAR GREINAR Það er kominn tími til að tengja - aðgerðir við orð I UPPSKRIFT af góðri hátíðarræðu er að finna vissan skammt af orða- leppum eins og: * Fjölskyldan er horn- steinn þjóðfélagsins; * efla þarf menntun í landinu; * leggja þarf rækt við íslenska tungu og menningararf; * efla verður verk- menntun og svo fram- vegis. Hvernig er þetta hægt þegar grunn- menntun í landinu er í molum? Ef við lítum í kringum okkur sjáum við að þeim þjóðum gengur best sem byggt hafa upp góða menntastefnu. Ekki er hægt að nýta auðlindir nema með kunnáttu, annars verða þjóðir bara hráefnaframleiðendur fyrir aðra. Eða er kannski nú komið svo fyrir okkur að við höfum ekki efni á að reka grunn- og framhaldsskóla af því að „húsið er byggt á sandi?“ Verkfall er vísbending Nú þegar þetta er skrifað eru liðn- ar rúmlega þijár vikur af verkfalli kennara. Það vekur furðu hve þjóðin er róleg yfir þessu, jafnt ráðamenn, foreldrar og nemendur. Kannski er þetta stærsta vísbendingin um hve menntamál á íslandi eru í alvarlegri hættu. Þeir foreldrar sem helst hefur heyrst í eru foreldrar fatlaðra barna, barna sem þurfa mikla aðhlynningu og stuðning. Aðeins hefur heyrst af Heidi Kristiansen áhyggjum vegna stúd- entsefnanna og þeirra sem eru að ljúka sam- ræmdum prófum. En málið er ekki síður al- varlegt fyrir alla aðra nemendur. Þessi vandi er sýnilegur og þess vegna skilur fólk hann. Verkfallið kemur að vísu mismunandi mikið niður á aldursstigunum en þetta er einnig mjög einstaklingsbundið. Verst kemur þó verk- fallið niður á þeim sem veikastir eru fyrir, sama á hvaða aldri nemendur eru. Þetta er eins og henda ósyndum krökkum út í djúpu laugina og segja: „Syndiði nú sjálf.“ Aðgerðarleysið ýtir undir rótleysi, eirðarleysi, kæruleysi og ábyrgðar- leysi. Eg hef áður fylgsf með börnum verða að búa við verkföll 1984, ’87 og ’89 svo ég þekki afleiðingarnar. Sinnuleysi stjórnvalda Sinnuleysi stjórnvalda gefur okk- ur enga von um að verkfallið leysist á næstunni. Kannski leysist það ekki fyrr en í haust og þá tekur við lög- bundið sumarfrí kennara. Ef til vill væri kannski best að láta verkfallið bara standa fram í febrúar á nsta ári og byija þá þar sem frá var horfið í vetur. Þá fengju börnin kannski greiddar skaðabætur frá ríkinu fyrir tapað ár. Hægt yrði að greiða þær með þeim launa- greiðslum sem sparast í verkfallinu. Verkfallið er alvarlegt brot á rétti barna, segir Heidi Kristiansen, sem spyr: „Hvað segir um- boðsmaður barna um þetta mál?“ Ef verkfallið leysist fyrr er mín tillaga sú að tímafjöldanum sem tap- ast hefur verið bætt á stundaskrá næsta vetrar til viðbótar við annað kennslumagn. Vinnufriður í kosningabaráttu? Til lengri tíma litið er miklu dýr- ara fyrir þjóðfélagið að hafa skóla- málin í ólestri heldur en að leggja rækt við skólann núna. Það er okkar allra hagur og ekki bara kennara. Verkfallið er alvarlegt brot á rétti barna. Ef foreldrar senda ekki börn sín í skóla grípa yfirvöld í taumana? Hvað segir umboðsmaður barna um þetta mál? Er ekki kominn tími til að leysa málin? Er þessi þögn kannski til þess að stjórnmálaflokkamir geti fengið vinnufrið í kosningabarátt- unni, svo að fólk gleymi því að verk- fall stendur yfir þegar gengið er að kjörborðinu? Ekki getur verið að ís- lendingum sé sama um skólana sína. Höfundur er móðir grunnskólabarna ogáhugakona um bætt skólastarf. Upp rúlhistigann . ÞAKKA þér, Gísli Árnason, fyrir að minnast á rúllustigar- öflið í mér í Morgun- blaðinu 14.3. Það gef- ur mér tækifæri til að hripa niður nokkur orð um Hafnarfjörð og samræmi hans við söngleikinn ykkar í Flensborg. Bæjarstæðið í Hafnarfirði er eins og lófi Guðs. Á þessum fagra, umlukta stað sést betur en annars- staðar á landinu við hvaða kjör þjóðin hef- ur búið á þessari öld og hvernig fegurðarskyn hennar og gildismat hefur breyst. Það sést í húsum. í Hafnarfirði eru fjölmörg lítil, gömul hús, reist af vanefnum. Þau eru víst hálfgerð hreysi. Það er ekki hægt að fara á klósettið í þeim án þess að reka sig uppundir. Samt eru þau með því fegursta sem við íslendingar eigum í húsagerð- arlist. Þau eru hófsöm í forminu, tilgerðarlaus og full virðingar fyrir því nytsamlega. Þau eru reist af Guðbrandur Gíslason fólki sem vissi hvers virði hlutirnir voru. Þegar brakar í þessum húsum eru það stunur kynslóða sem skildu alúð sína eftir í viðn- um. Einnig hún skapar fegurð. Á meginlandi Evr- ópu varðveita menn svona hús og heilu svæðin kring um þau því þeir skynja rætur sínar í gegn um lúið timbrið. Þeir vita að umhverfið mótar manninn. í Hafnarfirði hefur sem betur fer mikið verið byggt í og sennilega alltaf af en áður fyrr. Það er Athugasemd við leik- dóm verður Guðbrandi Gíslasyni tilefni til að bera fagurt bæjarstæði Hafnarfjarðar með litl- um, gömlum og falleg- um húsum saman við uppsetningu Flensborg- arnema á söngleiknum Mænustungu. seinni tíð betri efnum ánægjulegt. Það er einnig ánægju- legt að sjá að í flestum tilvikum falla þessi hús að umhverfi sínu, prýða það jafnvel. Háhýsin í mið- bænum gera það ekki. Þau stinga í stúf. Þau splundra samlyndi bæj- arins við sjálfan sig í lófa Guðs. Þess vegna er fagurfræði þeirra röng þrátt fyrir góðan ásetning. Það sama gildir um söngleikinn Mænustungu, þrátt fyrir góðan Höfundur er leiklistargagnrýnandi. Umtalsverðar launahækkanir fyrir kennara KARL Jensson skrifar lesendabréf 2. mars sl. þar sem hann átelur stjórnvöld fyrir að bjóða kennurum launahækkanir sem þýði aðeins fleiri vinnudaga kennara og lengri viðveru í skól- um. Stjórnvöld hafa komið með tillögu til lausnar kjaradeilunni og þær felast m.a. í skipulagsbreytingum, en það er fráleitt að þessar hækkanir þýði einungis meiri vinnu fyrir kennara. Tillög- Friðrik Sophusson um stjórnvalda má skipta í tvennt. 1. Gert er ráð fyrir að kennarar fái þær hækkanir sem aðrir hafa þegar fengið bæði grunnkaups- hækkanir og hækkanir samkvæmt sérkjarasamningum og nema 5-6%. 2. Þá er lagt til að kennarar fái um 10% launahækkun vegna m.a. skipulagsbreytinga í skólum. í til- lögunum felst að virkum skóladög- Tillögur stjórnvalda miða að því, segir Frið- rik Sophusson, að styrkja skólastarfíð og hækka laun kennara. um nemenda og kennara er fjölg- að. Lengingin næðist með því að færa starfsdaga í grunnskólum að hluta til út fyrir kennslutímabilið og nýta t.d. 1. desember, öskudag og þriðjudag eftir páska til slíkra starfa. Alls yrðu um átta dagar nýttir með þessum hætti. Það sjá allir að þessi aukna vinna kennara getur ekki svarað til 10% launa- hækkunar, enda væri þá um að ræða 22 vinnudaga á ári. Rangt er hjá Karli að í tillögum Samninganefndar ríkisins felist breyting á próftíma, það er ekki samningsatriði. Samninganefndin hefur ekki heldur gert tillögu um lengri viðveru kennara í skólum. Tillögur stjórnvalda miða að því ásetning þeirra sem að flutningi hans stóðu og umtalsverða og aug- ljósa hæfileika. Klámfengið út- lenskt bull um ungt fólk sem kem- ur hvergi niður rótum í steinsteypu stórborganna verður annarlegt og framandi í meðförum ungra Flens- borgara sem eru örugglega flestir orðnir skrambi góðir fagurfræðing- ar af því að hlusta á gömul hús. Sjábu hlutina í víbara samhengi! - kjarni málsins! Access FRAMHALD 12 klukkustundir Námskeiðið hefst21.mars Námskeiö fyrir þá sem vilja setja upp gagnakerfi í Access. 569 7769 - 569 7770 ‘J-(eimi(isiðnaðarsí<ó[inn aufjtýsir Kfnnsíajyrír ungíinaa, 13 árn oa eídri Fatasaumur Útskurður Myndvefnaður 22. mars-10. apríl, 23. mars-11.apríl, 1. apríl-13. maí, mán. og mið. þri -fim. laugardaga. kl. 16-17.30. kl. 16-17.30. kl. 14-15.30. Slímenn námsfceið Bútasaumur 27. mars-1. maí, mán. kl. 19.30. Prjón og peysuhönnun 28. mars-25. apríl, þri. kl. 20.00. Útskurður 29. mars-26. apríl, mið. kl. 19.30. Fatasaumur 30. mars-11. maí, fim. kl. 19.30. Skráning og allar upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 17800. að styrkja skólastarfið og hækka laun kenn- ara. Með breytingum á starfsdögum næst betri nýting á skóla- tíma og dregið er úr óþægindum útivinn- andi foreldra þar sem flestir eru í vinnu þeg- ar nemendur fá frí vegna starfsdaga kennara. Á þetta hafa foreldrasamtök meðal annars bent og að flestra mati er um æskilega breytingu að ræða. Þegar rætt er um samningamál kennara, er ástæða til að rifja upp, að árið 1989 gerðu kennarar (HIK) kjarasamning við ríkisstjórn Steingríms Hermanns- sonar um 4% launahækkun umfram aðra. Ári síðar var sú hækkun tek- in aftur með bráðabirgðalögum eins og flestir muna. Sú saga má ekki endurtaka sig. Tillögur stjórnvalda munu styrkja skólastarfið og bæta kjör kennara. Það er almennur vilji fyr- ir því í þjóðfélaginu að fjárfesta í menntun og tilboð stjórnvalda end- urspeglar þann vaxandi áhuga sem er á því að setja menntun í önd- vegi. Ég fékk nýlega bréf frá nokkrum nemendum Menntaskól- ans á Akureyri þar sem þau skýra mér m.a. frá því að nemendur hafi hætt námi vegna verkfallsins. Við erum að sóa kröftum unga fólksins í þessu landi hvern einasta dag sem verkfallið stendur yfir. Því ófremdarástandi sem ríkir í skólum landsins verður að linna. Það er von mín að samningsaðilar nái saman eins fljótt og kostur er um lausn, sem kemur til móts við eðli- legar kröfur kennara og allir eru tilbúnir til að virða. Höfundur er fjármálaráðherra. >' í í í1 í S i—n ■imm'smisBm . , ■*: .> Festu Mófinn a myjid Eftirlitskerfi ffá PHILIPSOg SANYO TiME-LAPSE myndbandstækl meðallt að 960 klst. upptöku. Sjónvarpsmyndavélar og sjónvarpsskjáir. S1 «.15 mm t mmmmm ■> ■■ n ■■ Yt ■■íV ■•UL( TÆKNI- OG TOLVUDEILD © Heimilistæki hf. SÆTUNI 8 • 105 REYKJAVÍK SlMI 69 15 00 • BEINN SÍMI 69 14 00 • FAX 69 15 55

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.