Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Gjaldeyrir á svörtum ísland í dag FYRIRSÖGN þessarar greinar kann að minna á jafnúreltan tíma og þegar íslendingar voru neyddir af Grænmetisverslun ríkisins til að kaupa skemmdar kartöflur. Eldri skipan gleymist undrafljótt þegar nýrri hefur verið komið á. Það gleymist hins vegar að ný skipan krefst framsýni og staðfestu þeirra sem vilja úrbætur og þrotlausa bar- áttu þeirra við úrtölumenn. Þannig var með nýskipan í gjaldeyrismálum. Hafa menn gleymt því að fyrir örfáum árum gátu amman og afinn hér á landi ekki glatt bamabörnin sín í útlöndum á hátíðar- stundu með lítilsháttar peningagjöfum án þess að þurfa að kijúpa fyrir einhveijum gjaldeyris- nefndum? Hafa menn gleymt því að það tók Islendinga, sem fluttust búferlum til útlanda, mörg ár að fá söluand- virði eigna sinna hér á landi yfirfært til nýrra heimkynna? Hafa menn gleymt því að ferða- mannagjaldeyrir var svo naumt skammtaður að íslend- ingar á leið í frí til útlanda keyptu gjaldeyri í stórum stíl á svörtum markaði? Hafa menn gleymt því að einstaklingar máttu ekki taka lán í útlöndum og leyfi stjórnvalda þurfti fyrir flestum langtímalántökum fyr- irtækja? Hver breytti þessu? Alþýðu- flokkurinn! Andstæðingur sérhagsmuna Alþýðuflokkurinn hefur ávallt verið boðberi fijálslyndra viðskipta- hátta. Hann hefur verið harður and- Alþýðuflokkurinn er málsvari opins og fijáls samfélags, segir Sig- hvatur Björgvinsson. Við erum ekki varð- hundar sérhagsmuna heldur málsvarar frjálsra viðskipta. stæðingur sérhagsmuna. Hann hef- ur barist fyrir afnámi hafta, boða og banna sem einungis bitna á hin- um smáu því stórfyrirtækin og aðil- ar með pólitísk sambönd virðast lúta sérreglum. Alþýðuflokkurinn hefur verið í fylkingarbrjósti þeirra sem hafa viljað efla markaðsöflin og tryggja raunhæfa samkeppni á sem flestum sviðum íslensks efnahagslífs neytendum til hagsbóta. Alþýðuflokkurinn tók við við- skiptaráðuneytinu 1988. Strax á næsta ári voru reglur um erlendar lántökur rýmkaðar sem og reglur um innflutning með greiðslufresti. Og 1990 var svo stigið mesta skref í fijálsræðisátt í gjaldeyrismálum frá 1960 þegar viðreisnarstjórn Alþýðu- flokks og Sjálfstæðisflokks gaf inn- flutning að verulegu leyti fijálsan. En breytingin árið 1990 gekk ekki þrautalaust fyrir sig. Þáverandi samstarfsflokkar Alþýðuflokksins í ríkisstjórn, Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag, flokkar, sem nú stæra sig af skilningi á þörfum at- vinnulífsins og guma af útflutnings- leiðinni, tóku tillögunum um breytta tíma í gjaldeyrismálum hikandi. Og Kvennalistinn, varðhundur stað- naðra tíma hér á landi, lét sitt ekki eftir liggja. í grein í Morgunblaðinu í ágúst 1990 reyndi Kristín Einars- dóttir, alþingismaður, að gera breyt- inguna tortryggilega með því að saka þáverandi viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, um að hafa farið út fyrir valdsvið sitt. Gjaldeyrishöft afnumin Árið 1990 var sú grundvallar- ákvörðun tekin að afnema gjaldeyr- ishöftin í áföngum. Þetta var gert tii að aðlögun að breyttum tímum yrði með eðlilegum hætti og dregið yrði úr líkum á því að efna- hagslegum stöðugleika væri stefnt í voða vegna of örra breytinga í gjaldeyrismálum. Sem dæmi um breytingar 1990 má nefna að þá voru reglur um ferða- mannagjaldeyri rýmk- aðar verulega og ákveðið hvenær allar hömlur á þessu sviði skyldu falla niður. Svip- að gilti um náms- mannagjaldeyri. Þá var íslendingum heimilað að fjárfesta í atvinnu- rekstri erlendis og kaupa fasteignir erlendis án sérstaks leyfis en innan ákveðinna fjárhæðar- marka. Sama gilti um kaup á erlend- um verðbréfum. Gjaldeyrisreglurnar voru síðan rýmkaðar smám saman í samræmi við fyrirfram ákveðna áfanga. Síð- ustu fjárhæðarmörk á fjárfestingum íslendinga í atvinnurekstri erlendis og kaupum á fasteignum féllu úr gildi í árslok 1992. Á sama tíma féllu niður síðustu hömlur á öllum erlendum lántökum að undanskild- um einum tilteknum flokki af skammtímalántökum. Um svipað leyti gengu í gildi ný gjaldeyrislög sem viðskiptaráðherra Alþýðu- flokksins beitti sér fyrir að sam- þykkt væru á Alþingi. Með þeim varð sú grundvallarbreyting að í stað fyrri reglu um að allt væri bannað sem ekki er sérstaklega leyft er nú allt leyft nema það sem er sérstak- lega bannað. Lokaáfanginn Síðustu fjárhæðarmörk á fjárfest- ingu í erlendum langtímaverðbréfum féllu úr gildi í árslok 1993. Lokaá- fanginn var svo stiginn nú um ára- mótin þegar síðustu fjárhæðartak- markanir á ýmiss konar skammtíma- viðskiptum í erlendum gjaldeyri féllu brott. Þar með voru gjaldeyrisvið- skipti orðin alfijáls. Gjaldeyrishöftin heyra loks sögunni til og þar með er íslenska krónan loksins orðin að alvörugjaldmiðli. Undir forystu AI- þýðuflokksins hefur hömlum og úr- eltum viðskiptaháttum á þessu sviði verið hent fyrir róða. Nýrri skipan hefur verið komið á, almenningi og fyrirtækjum í landinu til heilla. Svarti markaðurinn-í gjaldeyris- viðskiptum heyrir nú sögunni til. Sömuleiðis höftin, boðin og bönnin. Pólitískar leyfisveitingar í innflutn- ings- og gjaldeyrisviðskiptum eru liðin tíð. Alþýðuflokkurinn er málsvari op- ins og fijáls samfélags. Við erum ekki varðhundar sérhagsmuna held- ur málsvarar fijálsra viðskipta. Þess vegna eru það ráðherrar úr Alþýðu- flokknum sem brotið hafa blað í sögu gjaldeyris-, innflutnings- og útflutningsviðskipta á íslandi. Fýrst á viðreisnarárunum. Aftur núna. Á þessi þróun að fá að halda áfram? Eða á að renna jámrimlunum aftur fyrir gluggana? Vilja menn Svavar Gestsson aftur í viðskipta- ráðuneytið? Pál Pétursson? Eða vilja fijálslyndir og framfarasinnaðir kjósendur að Alþýðuflokkurinn fái að halda verkinu áfram? Höfundur er iðnaðar- og viðskiptaráðherra. FAGRA föstuijörð — klakabönd klædd. Kuldi og snjór — urð og gijót — upp í mót — niður í mót — launin lág — lífskjörin bág! ísland í dag: Á íslandi finnur þú fegursta landið — hreinasta loftið — tærasta vatnið — besta fiskinn en — engar gangbraut- ir, á þær féll fegursti snjórinn í haust og hann er „kominn til að yera“ all- an veturinn. ísland í dag — „sækjum það heim“. Fagra fóstuijörð — hví eru vegir þínir svo hálir — ekki aðeins í stjórn- málum — heldur undir fótum okkar dimma vetrardaga. Líf og heilsa eru í hættu. Erlendur mað- ur „sótti ísland heim“. Hann stóð ekki á fótun- um í hálkunni. Hann skreið inn í næsta hús og fékk að hringja þar á hjálp. Blessaður mað- urinn spurði hvort við keyrðum á bílunum inn í búðirnar. Ferða- mannastrauminn vilja flestir auka, hann gefur góðar tekjur í þjóðar- búið — gæti komið í staðinn fyrir fiskinn sem virðist á förum. En varasamt g'etur verið að „sækja Island heim“ um vetur ef ástand á vegum höfuðborgarinn- ar og annarra bæja verður ekki bætt. Það yrði slæmur vitnisburður um „fegursta landið" ef ferðalang- arnir færu frá því brotnir og bólgnir. Undanfarin ár hafa verið gerðar margvíslegar breytingar í heiibrigð- ismálum og enn er hæstvirtur heil- brigðisráðherra, Sighvatur Björg- vinsson, í breytingahugleiðingum. Það á að spara í heilbrigðismálum — íslendingar eiga að vera heilbrigðir — þá er hægt að loka öllum fínu sjúkrahúsunum, ekki bara fækka rúmum og loka deildum, fækka hjúkrunarfólki, sérfræðingum og sjúklingum. En hvernig væri að koma í veg fyrir slys? Gæti verið hagnaður af því? Hagfræðingar færu létt með að reikna út hvað föstudagurinn í fyrstu viku febrúar sl. kostaði skattgreiðendur, þegar 120 manns slösuðust í hálkunni. Hefur sá kostnaður verið kannaður? Það er hægt að koma í veg fyrir seklanefnd, ríkisskattanefnd og yfir- skattanefnd. Mál Bjöms Önundar- sonar og Stefáns Ólafs Bogasonar eru ekki sambærileg máli Júlíusar Valssonar fyrir það að þeir svöruðu ekki bréfum rannsókardeildar ríkis- skattstjóra, þar sem farið var fram á að deildinni yrðu látin í té bók- haldsgögn varðandi tekjuliði á skatt- framtölum. í maí 1994 óskaði Skúli Eggert mörg slík slys með því að sópa og moka snjó af gangbrautum, halda þeim hreinum allan veturinn, eins og gert er í flestum borgum á norð- urslóðum. Það er hægt. Það er gert — og það borgar sig. Miklu fé hefur verið varið til að gera fólki kleift að stunda heilbrigða líkamsrækt og hreyfa sig, ganga — skokka — hlaupa — klifra fjöll — elta handbolta — sparka fótbolta — synda og hamast í leikfimi. í þessa heilsurækt fara mörg „hestöfl" dag- lega. Hvernig væri að gera eitthvað gagnlegt með heilsuræktina? Það er hressandi að fara út í góða loftið og sópa nýfallinn snjó, þá er snjórinnJéttur og þarf ekki að nota þunga skóflu. Bömin fara út að leika sér í snjónum — þau hefðu gaman af að sópa frá dyrunum með litlum kústi eða moka með lítilli skóflu og fá lof fyrir hjá pabba og mömmu. Pabbi og mamma fara stundum sjálf í göngur sér til hressingar — það er líka hressandi að sópa snjóinn af tröppunum við innganginn. Tröppur með klaka á eru slysagildrur. Klak- ar á gangbrautum eru líka slysagildrur. Það ættu allir að halda tröppum og gangbrautum fyr- ir framan hýbýli sín hreinum ailan veturinn — líkt og fólk heldur lóðum sínum og görðum fallega hirtum yfir sumarið. Opinberar stofnanir og fyrirtæki ætti að skylda til að halda gangbrautum og tröppum við bygg- ingar snjó- og klakalausum. Fyrir- tæki og einstaklingar eru verðlaunuð á haustin fyrir snyrtilegar lóðir, fal- lega garða, fegurstu göturnar. Það mætti og ætti frekar að verðlauna þá sem koma í veg fyrir slys með því að halda tröppum og gangbraut- um snjólausum. Ræktið landið og haldið því hreinu sumar, vetur, vor og haust. Það er menningarleysi að hreinsa ekki frá dyrum sínum — þó ekki væri nema smá rönd til að ganga á — og ættu menn að vakna til meðvitundar um það sem fyrst. Það er kjörið tæki- færi fyrir hrausta fólkið í íþróttafé- máls gætt samræmis og hefur því gerst brotlegt við jafnræðisreglu stjórnsýslaga. Þá getur málshraði vart talist eðlilegur, því mál þetta kom upp í maí 1993 og ekkert tafði framgang þess. Þá var þess ekki gætt að fara ekki strangar í sakirn- ar en nauðsyn bar til og var því svonefnd meðalhófsregla hinna nýju stjórnsýslulaga brotin. Vegna bollalegginga í fjölmiðlum Sighvatur Björgvinsson Aðalheiður Guðmundsdóttir Ámælisverð málsmeðferð MEÐFERÐ embætt- is skattrannsóknar- stjóra í máli Júlíusar Valssonar tryggingayf- irlækis er einstæð. Þá er ekki annað að sjá en embættið hafi gerst brotlegt við stjórnsýslu- lög í málsmeðferð sinni. Það er einsdæmi að mál sem hefur að fullu verið upplýst fái þá meðferð að sæta opin- berri rannsókn. Þetta mál á sér því ekkert fordæmi. Mál trygg- ingayfirlæknis er á engan hátt frábrugðið þeim málum, sem ára- tugum saman hafa ver- ið vísað til sektarákvörðunar hjá telst því Guðmundur Benediktsson Þórðarson, skattrann- sóknarstjóri, eftir að annar aðili yrði settur í hans stað í þessu máli vegna persónu- legra tengsla hans við Júlíus Valsson. Honum finnst þó sæmandi að tjá sig nú með þeim hætti að tryggingayfi- ræknir sé ekki svara verður þegar hann bendir á ofangreinda staðreynd um þá óvenjulegu meðferð sem mál þetta hefur sætt, sbr. frétt í DV þann 7. mars sl. bls. 7. Embætti skattrann- sóknarstjóra ríkisins vart hafa við úrlausn þessa lögunum, skátana, gönguflokka og fl. að láta gott af sér leiða og hreyfa sig í snjómokstri þegar þörf krefur — taka sig saman í flokka og vinna þetta þarfa verk stund úr degi. Þá gætu bæjarfélög gefíð atvinnulaus- um kost á pessu holla starfi í stað þess að greiða atvinnuleysisbætur. Það tók langan tíma og þurfti mikinn áróður til að fá fólk til að græða landið og gróðursetja tijá- plöntur. Nú vinna margar hendur, smáar og stórar, að því á hveiju sumri. Það varð hugarfarsbreyting og nú vinna margar hendur létt verk á sumrin. Hví ekki á veturna? íslend- ingar eru því svo vanir að klöngrast um í hálku og snjó, að þeim dettur ekki í hug að hægt sé að breyta því frekar en það hvarflaði að mönnum hér áður fyrr að gróðursetja tijá- plöntur á beru og köldu Islandi. Það nægir ekki að ryðja snjóinn af akbrautum fyrir bílaumferð — fólk þarf að komast til vinnu og Varasamt getur verið að sækja ísland heim um vetur, segir Aðal- heiður Guðmunds- dóttir, ef ástand á vegum höfuðborgar- innar og annarra bæja verður ekki bætt. börnin í skólann — en hvar á það að ganga? Þennan umrædda dag í febrúar sendi RÚV út tilkynningu til „eldri borgara" um að halda sig innandyra. Þess þurfti ekki með því að flestir „eldri borgarar" komast ekki út undir beran himinn mánuð- um saman fyrir hálku. Þeir heppn- ustu geta horft á fegurð himinsins og tign fjallanna úr gluggum sínum en fá ekki fremur en aðrir notið hreina loftsins. Það má vera að fag- urgalinn um fegursta landið, hrein- asta loftið, tærasta vatnið og besta fiskinn hitti ekki allstaðar í mark. Olíufélögin keppast við að gefa sem mest til landgræðslu — allir vilja nú græða landið — það er stór átak. Nú þarf að koma stórátak fyr- ir sjálft fólkið í landinu svo það geti gengið um það (á því). Höfundur er húsmóðir. Embætti skattrann- sóknarstjóra rfkisins telst vart hafa gætt samræmis, segir Guð- mundur Benedikts- son, og hefur því gerst brotlegt við jafnræðis- reglu stjómsýslulaga. um hvaða áhrif þetta skattalagabrot hafi á starfhæfni tryggingayfirækn- is bendi ég einungis á þá staðreynd að þetta skattalagbrot var framið áður en tryggingayfirlæknir sótti um embættið vorið 1994. Var trygging- aráði kunnugt um það að hann hafði sætt rannsókn hjá skattyfirvöldum og að niðurstaða þeirrar rannsóknar lægi fyrir. Sú einstæða ákvörðun skattrannsóknarstjóra og senda síð- ar málið fullrannsakað til Rannsókn- arlögreglu ríkisins er nokkuð sem ekki var hægt að sjá fyrir, enda eins og áður segir í engu samræmi við venjulega málsmeðferð skattamála. Afgreiðsla þessa máls á sér enga hliðsætðu eins og áður segir. Gera verður þá kröfu til embættis skattrannsóknarstjóraað það átti sig á mistökum sínum og læri af þeim og fylgi ekki eftir afgreiðslum sínum með óviðeigandi og ómálefnalegum fyirlýsingum. Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.