Morgunblaðið - 15.03.1995, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 11
Listi Þjóð-
vakaá
Vesturlandi
FRAMBOÐSLISTI Þjóð-
vaka á Vesturlandi fyrir al-
þingiskosningarnar er eftir-
farandi:
1. Runólfur Ágústsson,
lögfræðingur, Borgarheppi,
2. Margrét Ingimundarsdótt-
ir, húsmóðir, Snæfellsbæ, 3.
Sveinn G. Hálfdánarson, inn-
heimtustjóri, Borgarbyggð,
4. Margrét Jónasdóttir,
gjaldkeri, Snæfellsbæ, 5.
Sigrún Clausen, fiskvinnslu-
kona, Akranesi, 6. Eva Eð-
varðsdóttir, framkvæmda-
stjóri, Borgarbyggð, 7. Páley
Geirdal, fiskvinnslukona,
Akranesi, 8. Ingibjörg
Björnsdóttir, kennari, Leirár-
og Melasveit, 9. Þorbjörg
Gísladóttir, húsmóðir, Snæ-
fellsbæ, 10. Gunnar A. Aðal-
steinsson, fyrrverandi slátur-
hússtjóri, Borgarbyggð.
Drög að kosningayfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins
Skoðað hvort tilvísanir
leiði til spamaðar
Morgunblaðið/Kristinn
LÁRA Margrét Ragnarsdóttir kveðst telja að Sjálfstæðisflokkur-
inn muni beita sér gegn tilvísanakerfinu, eftir að forsendur
þess hafi verið skoðaðar.
í DRÖGUM að kosningayfirlýsingu
Sjálfstæðisflokksins segir að „skoða
ber sérstaklega hvort tilvísanakerf-
ið leiðir til þess sparnaðar sem að
er stefnt og hvort að það vinni gegn
eðlilegri samkeppni ólíkra rekstrar-
forma í heilbrigðiskerfinu."
Þetta kom fram á fundi Láru
Margrétar Ragnarsdóttir þing-
manns Sjálfstæðisfíokksins á fundi
um tilvísanakerfið í kosningamið-
stöð Sjálfstæðisflokksins á Lækjar-
torgi í gær.
Lára kvaðst telja óyggjandi að
slík könnun leiði í ljós að tilvísana-
kerfið leiði ekki til sparnaðar. Því
muni Sjálfstæðisflokkurinn beita
sér fyrir því, verði hann ekki í
stjórnarandstöðu, að tilvísanakerfið
verði lagt niður sem allra fyrst,
komist það einhvern tímann á.
„Meirihluti mótfallinn"
Lára Margrét minnti á seinustu
landsfundarsamþykkt flokksins í
þessu sambandi, þar sem lýst er
yfir andstöðu við upptöku tilvísana-
kerfis, enda hafi ekki verið sýnt
fram á að það lækki útgjöld til
heilbrigðismála. Óhapp hafi átt sér
stað fyrir tveimur árum þegar
meirihluti Alþingis veitti heilbrigð-
isráðherra heimild til að setja reglu-
gerð um tilvísanaskyldu.
Hún sagði að innan Sjálfstæðis-
flokksins hafi tilvísanaskyldan verið
rædd mjög mikið á undanförnum
mánuðum og málið oft tekið upp á
þingflokksfundum Sjálfstæðis-
flokksins.
„Ég tel að menn séu almennt á
því máli að skoða þurfi gaumgæfi-
lega þær aðgerðir sem nú eru í
gangi, með tilliti til þess að tilvís-
anakerfið auki miðstýringu, skerði
samkeppnisfrelsi og leiði ekki til
nokkurs sparnaðar. Ég tel að mik-
ill meirihluti Sjálfstæðisflokksins
telji að leggja eigi af tilvísanakerfið
áður en það komi til framkvæmda,"
sagði Lára Margrét.
Kostnaður eykst
Hún gagnrýndi tilvísanakerfið
harðlega á fundinum og kvaðst
m.a. telja að verið væri að tak-
marka lækningaleyfi sérfræðinga
samkvæmt lögum með tilkomu
þess. Kerfið veiti einum hópi lækna
yfirburðaaðstöðu umfram aðra,
skerði valfrelsi sjúklinga, leggi
hömlur á viðskiptafrelsi og stuðli
að einokun, auk þess sem skrifræði
aukist. Ekki hafi verið sýnt fram á
sparnað.
„Heilbrigðisráðuneytið lét vinna
í fyrrasumar ákveðið reiknilíkan til
að finna út hver sparnaður gæti
orðið af tilvísanakerfinu. Það hefur
verið mjög mikið deilt um forsendur
sem fallið hafa inn í þetta reiknilík-
an og það virðist vera sem forsend-
urnar hafi nánast verið gefnar eftir
ákveðinni hentisemi," sagði Lára
Margrét.
„Forsendumar hafa t.d. breyst
úr því að aukning á heimsóknum til
heimilislækna nemi 70 þúsund með
tilkomu tilvísanakerfísins upp í að
vera 102 þúsund heimsóknir með
tilkomu þessa kerfís. Þannig hafa
forsendur þessa reiknilíkans sveifl-
ast fram og til baka og enn hefur
ekkert komið fram sem getur að
mínu mati sannað að útreikningar
og tölur heilbrigðisráðueytisins sýni
fram á spamað tilvísanakerfisins.
Þvert á móti veit ég að í bígerð
er að byggja fimm heilsugæslu-
stöðvar hér á Reykavíkursvæðinu
til að koma til móts við þessa aukn-
ingu til heimilislækna, fyrir utan
það að fastur kostnaður mun auk-
ast og krafa verður gerð um að
fjölga starfsfólki á heilsugæslu-
stöðvum mjög mikið.“
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Afmælisterta á
kvennalistadeginum
Selfossi. Morgunblaðið.
KVENNALISTAKONUR á Suð-
urlandi gerðu sér dagamun á
mánudag 13. márs og minntust
þess að tólf ár eru liðin frá
stofnun listans.
Þær buðu fólki sem átti leið
um Vöruhús KÁ upp á sneið
af afmælistertu. Á myndinni
eru Drífa Kristjánsdóttir, Guð
rún Vignisdóttir og Sigríður
Matthíasdóttir með afmælist-
ertuna.
Ungir jafnaðarmenn
Stj órnmálafundur um
lífskjör til framtíðar
UNGIR jafnaðarmenn boða til opins
stjórnmálafundar í kvöld kl. 21 á
Sóloni íslandusi. Umræðuefni fund-
arins, sem er öllum opinn, er Lífs-
kjör til framtíðar.
Framsögumenn verða Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráðherra
og formaður Alþýðuflokksins -
jafnarmannaflokks íslands, Jón Þór
Sturluson hagfræðingur og formað-
ur Sambands ungra jafnaðarmanna
og Guðmundur Andri Thorsson rit-
höfundur.
HEIMSFERÐIR
Fyrstu brottfarírnar að seljast upp
í Karíbahafínu
Austurstræti 17*101 Reykjavík • Sími 562 4600 • Fax 562 4601
Beint flug Heimsferða til Cancun i
Mexikó hefur sannarlega slegið í gegn
og eru fyrstu brottfarirnar að seljast upp.
Þúsundir íslendinga hafa nú kannað
þessar heillandi slóðir, enda sameinar
Cancun bestu strendur Karíbahafsins
og fegurstu staði í Mexíkó. Gististaðir
Heimsferða eru glæsilegir
og aldrei hefur verið
ódýrara að lifa i
Mexíkó en
einmitt
núna.
Verð kr. 65.665.-
M.v. hjón með eittbam, 17. júlí2, vikur.
Verð kr. 73.650.-
M.v.2 íherbergi, Posada Laguna, 17. júlí, 2 vikur.
Innifalið í verði: Flug, gisting, ferðir tii
og frá flugv., fararstjórn og skattar.
Costa Real
Nýtt og stórglæsilegt íbúðarhótel
með öllum þægindum.