Morgunblaðið - 15.03.1995, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Afskriftarframlög Búnaðarbankans í fyrra minnkuðu um tæpan helming
Hagnaður nam 212 milljónum
BÚNAÐARBANKINN:
Úr ársreikningi 1994
Upphæðir í milljónum króna 1993 1994
Fjármunatekjur, samtals 4.857,6 3.795,5
Fjármagnsgjöld, samtals 2.558,0 1.801,1
Fjármunatekjur - fjármagnsgjöld án verðbreytingarfærslu 2.299,5 1.994,4
Reiknuð gjöld vegna verðlagsbreytinga (13,9) (8,6)
Framlag á afskriftarreikning útlána (1.190,3) (651,4)
Hreinar fjármunatekjur eftir framlag í afskriftarreikning útlána 1.095,4 1.334,4
Aðrar rekstrartekjur, samtals 1.273,7 1.392,9
Önnur rekstrargjöld, samtals 2.320,1 2.478,2
Hagnaður án rekstrarafkomu hlutdeildarfélaga 49,0 249,1
Hagnaður af hlutdeildarfélögum 35,0 88,4
Hagnaður fyrir tekju- og eignarskatt 84,0 337,5
Tekju- og eignarskattur (34,9) (125,6)
Hagnaður ársins 49,1 211,9
Afskriftareikningur útlána 1990-94
1990 1991 1992 1993 1994
Framlög á afskriftareikning útlána Afskrifuð töpuð útlán 249 354 637 1.190 651
142 130 253 872 835
Afskriftareikningur útlána 447 672 1.056 1.374 1.190
- sem hlutfall af útlánum, áföllum vöxtum og veittum ábyrgðum 1,4% 1,8% 2,7% 3,3% 2,8%
Vaxtamunur dróst
saman um 320 milljónir
en ámóti komu 119
milljónir í auknar
þjónustutekjur
HAGNAÐUR Búnaðarbanka ís-
lands á sl. ári nam alls um 212
milljónum króna samanborið við 49
milljónir árið 1993. Þennan bata í
afkomu bankans má fyrst og fremst
rekja til minni framlaga í afskriftar-
reikning en þau námu 651 milljón
samanborið við 1.190 milljónir árið
1993. Á móti kom að vaxtamunur
dróst saman á árinu vegna lækk-
andi útlánsvaxta og mikillar aukn-
ingar innstæðna á nýjasta innláns-
reikningi bankans, Stjörnubók, sem
skilaði 4,86% raunávöxtun.
Jón Adolf Guðjónsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans, segir vaxta-
mun bankans hafa dregist saman
um 320 milljónir milli áranna 1993
og 1994. Reyndar háfi vaxtamunur-
inn verið óvenjumikill árið 1993 en
sveiflur hafi verið töluverðar und-
anfarin ár. Þannig hafi vaxtamunur
sem hlutfall af eignum verið 4,46%
árið 1990, 4,25% 1991, 3,95% 1992,
4,86% 1993 og 4,18% í fyrra. „Það
er ekki óeðlilegt að vaxtamunurinn
minnki því við ætlum okkur að draga
úr vægi hans en auka á móti tekjur
af þjónustugjöldum. Þær jukust um
tæplega 10% milli ára sem er í sam-
ræmi við okkar stefnu.“ Vaxtamun-
ur nam samtals 1.994 milljónum í
fyrra samanborið við 2.299 milljónir
árið áður. Á þessu ári er gert ráð
fyrir að vaxtamunurinn verði ennþá
minni og hefur það þegar komið í
ljós á þeim tíma sem liðinn er af
árinu.
Varðandi afskriftir útlána segir
Jón að bankinn sé kominn yfir erfið-
asta hjallann í þeim efnum. Þess sé
vænst að afskriftarframlögin geti
minnkað úr um 651 milljón í fyrra
í um 450 milljónir á þessu ári.
Minnkandi útlánaafskriftir megi
meðal annars rekja til þess að bank-
inn lauk við að afskrifa töpuð útlán
vegna Hótel íslands á sl. ári en þau
hafa íþyngt honum verulega á und-
anförnum árum. Hótelið var sem
kunnugt er selt Hótel Sögu á síð-
asta ári.
Stöðugildum fjölgaði um 14
Laun og launatengd gjöld Búnað-
arbankans námu alls 1.180 milljón-
um og jukust um 3,5% á árinu. Stöðu-
gildum fjölgaði um 14 á árinu sem
rekja má til nýs útibús bankans í
Hafnarfirði, fjölgunar í stoðdeildum
bankans og aukinna verkefna. „Við
höfum lagt mikla áherslu á að auka
fræðslu við okkar viðskiptavini sem
hefur krafist mikils framlags frá
starfsfólki okkar. Það verður haldið
áfram á þeirri braut enda hafa við-
tökur viðskiptavina verið afar góðar.
Heimilin virðast vera tilbúin að til-
einka sér þá fræðslu og aðstoð sem
bankinn býður fram.“ Þar að auki
lagði bankinn til hliðar um 37 milljón-
ir vegna lífeyrisskuldbindinga.
Annar rekstrarkostnaður bankans
hækkaði á sl. ári um 11% og segir
Jón Adolf að það eigi sér sérstakar
skýringar. „Kostnaður við rekstur
fasteigna hefur hækkað milli ára
vegna framkvæmda hér innanhúss
en að frátöldum þessum óreglulegu
gjöldum hækkar annar rekstrar-
kostnaður um 4,3%.
Hlutdeild bankans í hagnaði dótt-
urfélaga nam á sl. ári 88 milljónum
samanborið við 35 milljónir árið áð-
ur. Þetta er hlutdeild í hagnaði Lýs-
ingar, greiðslukortafyrirtækjanna og
Kaupþings. Þar að auki hagnaðist
hótelfélag bankans, Urður hf., um
35 milljónir. Þetta fyrirtæki yar á
sínum tíma stofnað um Hótel ísland
en var lagt niður á sl. ári í kjölfar
sölu hótelsins.
Hagnaður Búnaðarbankans fyrir
skatta nam alls 337 milljónum en
að teknu tilliti til 125 milljóna skatta
er lokaniðurstaðan 212 milljóna
hagnaður, sem fyrr segir. Jón Adolf
leggur áherslu á að bankinn hafi
greitt háar flárhæðir í tekju- og
eignaskatta undanfarin ár eða sam-
tals um 383 milljónir króna sl. fimm
ár.
HARÐNANDI samkeppni á íslenska
olíumarkaðnum og hugsanleg inn-
koma Irving Oil á markaðinn þýðir
að Skeljungi hf. er nauðsynlegt að
draga úr kostnaði á öllum sviðum í
rekstri fyrirtækisins, að því að Indr-
iði Pálsson, stjórnarformaður Skelj-
ungs sagði á aðalfundi fyrirtækisins
í gær. Hann sagði að nú væri unnið
að sparnaðaraðgerðum og hann væri
þess fullviss að þær myndu mæta
•skilningi starfsmanna.
Á fundinum var samþykkt að
greiða 10% arð af hlutafé til hlut-
hafa og að auka hlutafé um 10%
HEILSUBÓTAR-
DAGAR
REYKHÓLUM í
SUMAR
UPPLÝSINGASÍMI 554-4413
MILLI KL. 18-20 VIRKADAGA
SIGRÚN OLSEN OG I>ÓRIR BARÐDAL
Eigið fé bankans var í árslok 3.781
milljón og hafði aukist um 220 millj-
ónir á árinu. Var eiginfjárhlutfall
samkvæmt Bis-reglum 10,6% í árslok
samanborið við 9,8% árið áður. Er
það vel yfir tiiskildum 8%-mörkum
sem kveðið er á um í reglunum. Má
rekja hækkun hlutfallsins milli ára í
senn til hagnaðar á sl. ári og lækkun-
ar á niðurstöðutölu efnahagsreikn-
ings.
Innlán jukust um 4,7%
Innlán Búnaðarbankans að verð-
bréfaútgáfu undanskilinni voru 34,2
milljarðar í árslok og höfðu aukist
um 4,7%. Hlutdeild bankans í innlán-
um banka og sparisjóða jókst á árinu
úr 20,7% í 21,2%. Útlán námu 37,7
milljörðum um áramót og jukust um
1,2%. Hins vegar varð samdráttur í
vissum þáttum útlánastarfseminnar
því erlend endurlán lækkuðu um
1.050 milljónir og afurðalán til land-
búnaðar og sjávarútvegs minnkuðu
um rúmlega 800 milljónir.
Lausafjárstaða Búnaðarbankans
var góð allt síðastliðið ár og var
lausafjárhlutfall að meðaltali 16,4%
yfir árið eða 3,4 prósentustigum
hærra en árið áður. Lausafjárstaðan
var hæst í ágúst þegar hún fór í
20,3% en fór síðan lækkandi til ára-
móta.
Nauðsynlegt að standa vel að
„hlutafélagavæðingu"
Jón Adolf var að lokum spurður
um hver væru viðhorf stjórnenda
bankans til þess að breyta honum í
hlutafélag og jafnvel bjóða hlutabréf-
in til sölu á markaði. „Við erum nú
ekki ofsatrúarmenn á formið. Fyrir
mestu er að rekstur gangi vel. Verði
það niðurstaðan að breyta bankanum
í hlutafélag er gríðarlega mikið at-
riði að vel sé staðið að slíkum breyt-
ingum. Með góðum undirbúningi og
fullu samstarfi við viðskiptamenn og
starfsmenn þá finnst mér það koma
til greina að breyta bankanum í
hlutafélag.
Þegar að því kemur að selja hluta-
bréfin þá tel ég eðlilegt að viðskipta-
menn og starfsmenn hafi forkaups-
rétt að bréfunum. Ég tel að bankinn
hafi að fullu staðið við sínar skyldur
gagnvart eiganda sínum og ekki ver-
ið honum íþyngjandi heldur þvert á
móti. Bankinn hefur sjálfur tekið á
sig þau áföll sem hann hefur orðið
fyrir.“
með útgáfu jöfnunarhlutabréfa
þannig að hlutafé Skeljungs verður
að því loknu tæpar 568 milljónir
króna.
Indriði sagði árið 1994 hafa að
ýmsu leyti markað tímamót í olíuvið-
skiptum á íslandi: útboð í olíuvið-
skiptum hefðu aukist og fellt hefði
verið niður ákvæði sem skyldaði olíu-
félögin til að selja olíuvörur á sama
verði alls staðar á landinu. Ljóst
væri að stöðugleiki í afkomu og
markaðshlutdeild olíufélaganna væri
ekki eins sjálfgefinn og áður.
Þrátt fyrir hina harðnandi sam-
keppni var markaðshlutfall olíufélag-
anna í fyrra nánast óbreytt. Þannig
var hlutdeild Skeljungs í sölu bensíns
á bíla 32,3% árið 1993 en 32,1% í
fyrra. Nokkur samdráttur var í sölu
Skeljungs á gas- og svartolíu tii skipa
og munaði þar miklu um litla loðnu-
veiði sl. haust, en einnig sýndi Skelj-
ungur varkárni í sölu á eldsneyti til
úthafsveiðiskipa. Sala Skeljungs á
efnavörum, einkum plasthráefni og
leysiefni til iðnaðarframleiðslu, nam
425 milljónum í fyrra, sem var tvö-
földun frá fyrra ári. Mikil aukning
varð einnig í smávörusölu, eða um
13%.
Hlutabréfakaup
40 millj-
ónir í Flug-
leiðum
STÆRSTU hlutabréfaviðskipti
ársins voru skráð á Verðbréfa-
þingi íslands í gær. Þar var um
að ræða viðskipti með hlutabréf
í Flugleiðum hf. að nafnverði 23
milljónir króna á genginu 1,74.
Markaðsvirði viðskiptanna var
því rúmar 40 milljónir.
Viðskiptin með Ftugleiðabréfin
eru þau stærstu sem hafa verið
skráð á Verðbréfaþingi og Opna
tilboðsmarkaðnum þar sem af er
árs, að undanskildum viðskiptum
með hlutabréf í Lyijaverslun rík-
isins í kjölfar sölu ríkisins á þeim
bré/um.
Á genginu 1,74 er markaðs-
virði hlutabréfa í Flugleiðum
3.578 milljónir og viðskiptin sem
skráð voru í gær því um 1,1%
af heildarmarkaðsvirði félagsins.
Námskeið
um áhættu-
stjórnun
ÞORSTEINN. Þorsteinsson, for-
stöðumaður innlánasviðs Nor-
ræna ijárfestingabankans í Hels-
inki, heldur
námskeið á
vegum End-
urmenntun-
arstofnunar
Háskóla ís-
lands á morg-
un, fimmtu-
dag kl. 15-19.
Námskeið-
ið ber yfir-
skriftina „Erlendir fjármagns-
markaðir og áhættustjórnun" og
meðal efnis á því má nefna lýs-
ingu á alþjóðlegum ijármagns-
markaði og lántökum íjármála-
stofnana, helstu áhættuþáttum
við samræmingu inn- og útlána
og hvernig má, t.d. með framvirk-
um vaxta- og skuldaskiptasamn-
ingum forðast þá áhættu.
Einnig verður markaðsmati og
áhættuþáttum við slíka samninga
gerð skil. Áhersla verður lögð á
hagnýtingu framvirkra samninga
í rekstri en ekki verður farið í
stærðfræðilegar undirstöður.
Morgunblaðið/Þorkell
Indriði Pálsson
„Skýlaus mismunun"
hjálpar Irving Oil
Indriði vék að umsókn kanadíska
félagsins Irving Oil til starfsemi hér
á landi. „Umræðan á opinberum vett-
vangi og afgreiðsla stjórnvalda á
erindi þessa erlenda aðila, svo og
afstaða sumra Ijölmiðla sem um
málið hafa fjaliað hefur vakið furðu
þeirra sem fyrir eru á markaðnum,"
sagði hann. Aukin samkeppni væri
fagnaðarefni, en svo „skýlaus mis-
munun“ milli aðila sem feldist í af-
greiðslu borgaryfirvalda á erindi Ir-
ving Oil gæti skaðað eðlilega sam-
keppni.
Stjóm Skeljungs var endurkjörin
á fundinum, en hana skipa auk Indr-
iða Pálssonar þeir Björn Hallgríms-
son varaformaður, Jónatan Einars-
son, Hörður Sigurgestsson og Sig-
urður Einarsson.
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í 4. flokki 1992
Innlausnardagur 15. mars 1995.
4. flokkur 1992:
Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
5.987.308 kr.
1.197.462 kr.
119.746 kr.
11.975 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
ATH. Útdregin óinnleyst húsbréf bera hvorki vexti
né verðbætur frá innlausnardegi.
cSd HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00
Skeljungur hf. greiðir 10% arð
Aukin samkeppni
kallar á sparnað