Morgunblaðið - 15.03.1995, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
ERLENT
Deilt um
dýraflutninga
París. Reuter.
FRAKKAR sögðu í gær að Evrópu-
sambandið myndi innan skamms
reyna að leysa deiluna um flutning
dýra til slátrunar, sem staðið hefur
undanfama tuttugu mánuði.
Dýravemdunarsinnar hafa harð-
lega mótmælt því að dýr séu oft
flutt landa á milli við mjög slæman
aðbúnað. Eru mjög deildar meining-
ar um þessa flutninga í norður- og
suðurhluta Evrópu.
Vilja ríki í norðurhluta Evrópu,
t.d. Svíþjóð og Þýskaland, að settar
verðir reglur um hámarksflutnings-
tíma og aðbúnað þeirra. ítalir telja
aftur á móti að síðasta málamiðlun-
artillaga Frakka, sem hafnað var í
febrúar, gangi of langt.
„Við munum ræða þetta mál á
næsta landbúnaðarráðherrafundi
og reyna að finna lausn,“ sagði
Jean Puech, landbúnaðarráðherra
Frakklands, að loknum þriggja
daga óformlegum fundi evrópska
landbúnaðarráðherra. Næsti fundur
ráðherranna verður haldinn 27.-28.
mars.
Embættismenn sögðu hins vegar
takmarkaðar líkur á því að lausn
fyndist þar sem Frakkar hygðust
ekki leggja fram neinar nýjar hug-
myndir.
Prófun á reglum
Schengen tókst illa
• FYRSTA „æfing“ Austur-
ríkismanna í að beita reglum
Schengen-samkomulagsins við
ytra landamæraeftirlit, tókst af-
leitlega. Hert eftirlit hafði í för
með sér umferðaröngþveiti og
allt að níu tíma bið ferðamanna
við landamærastöðina Nickels-
dorf, á landamærunum að Ung-
verjalandi.
• FORSÆTISRÁÐHERRA
Bæjaralands, íhaldsmaðurinn
Stoiber, vill að einkaréttur fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins á frumkvæði að laga-
setningu verði afnuminn. Stoib-
er vill að bæði ráðherraráð ESB
og svæðanefndin svokallaða, þar
sem sitja fulltrúar héraða og
sjálfstjórnarsvæða innan ESB-
ríkja, fái að leggja fram tillögur
um Evrópulöggjöf.
• WTO, Alþjóðaviðskiptastofn-
unin, hefur gefið út skýrslu þar
sem fram kemur að umbætur á
landbúnaðarkerfi ESB hafa
meðal annars skilað sér í minni
offramleiðslu og þar af leiðandi
minni útflutningi á nautakjöti.
Þetta er talið gefa öðruní ríkj-
um, til dæmis Austur-Evrópu-
löndum, meira svigrúm á heims-
markaðnum fyrir nautakjöt.
• SAMSKIPTIESB og ísraels
eru nú stirð vegna ásakana í
garð ísraela um að þeir hindri
að aðstoð Evrópuríkja, sem ætl-
uð er Palestínumönnum, fari
rétta leið. íraels stjórnvöld hafa
neitað ESB um leyfi til að opna
skrifstofu í Austur-Jerúsalem,
sem myndi fylgjast með fram-
kvæmd aðstoðar ESB við Palest-
ínumenn.
Myntbandalag
bönkum dýrt
Brussel. Reuter.
SAMBAND viðskiptabanka innan
Evrópusambandsins telur að upp-
taka sameiginlegs gjaldmiðils sam-
bandsins geti haft allt að 40 millj-
arða ecu (3.280 milljarða króna)
kostnað í för með sér fyrir banka-
kerfi aðildarríkjanna.
Þessi ályktun er dregin af könn-
un, sem sambandið gerði meðal
banka innan vébanda sinna. Fram-
kvæmdastjórn ESB hafa verið af-
hentar niðurstöðurnar.
Þar kemur einnig fram að það
muni taka viðskiptabanka þijú til
fjögur ár að undirbúa upptöku sam-
eiginlegrar myntar, eftir að ákvörð-
un um slíkt hafí verið tekin. Núver-
andi markmið Evrópusambandsins,
samkvæmt Maastricht-sáttmálan-
um, er að taka upp sameiginlega
mynt árið 1997, eða í síðasta lagi
árið 1999.
Samtök viðskiptabankanna telja
að tímaáætlun verði að liggja fyrir
áður en hægt verði að hefja undir-
búning að breytingunni. Þau álíta
að kostnaður geti numið um tveim-
ur prósentum af útgjöldum bank-
anna ár hvert fram að breyting-
unni. Kostnaðurinn yrði um 10
milljarðar ecu árlega, eða samtals
um 40 milljarðar á fjórum árum.
Forseti Kazakhstans leysir upp löggjafarsamkunduna
Nazarbajev í andstöðu
við þorra þingheims
Alma-Ata. Reuter.
MEIRIHLUTI fulltrúa á þingi
Kazakhstans hélt fund í gær og
mótmælti þar þeirri ákvörðun
Nursultans Nazarbajevs forseta á
laugardag að leysa upp þingið.
Forsetinn segir að stjómlagadóm-
stóll hafi komist að þeirri niður-
stöðu að kosningarnar í fyrra hafi
verið markaðar svikum og því
ólöglegar. Þingmenn segja á hinn
bóginn að aðeins hafi verið brögð
í tafli í einu kjördæmi og saka
Nazarbajev um einræðishneigð.
Þingmenn sögðu að þeim hefði
verið meinað að komast inn í skrif-
stofur sínar í þinghúsinu og síma-
línur þeirra hefðu verið rofnar.
Alls voru 130 af 177 þingmönn-
um á fundinum í gær þar sem
ákvörðun Nazarbajevs var mót-
mælt. Þeir gengu þó ekki svo langt
að segja forsetanum stríð á hendur
heldur lögðu áherslu á
að þeir vildu starfa
með honum. Helsti
andstæðingur forset-
ans, Olzhas Suleim-
enov, sagði forsetann
vilja losna við þing
sem væri honum ekki
nægilega leiðitamt,
Nazarbajev vildi
stjórna einn og með
tilskipunum.
Nazarbajev sagði á
mánudag að ekkert
lægi á að efna til nýrra
kosninga og talsmað-
ur hans sagði að þörf
væri á „tíma til að
íhuga málin“.
Umbætur og olíuiðnaður
Nazarbajev er 55 ára gamall,
fyrrverandi kommún-
istaleiðtogi og hefur
hann verið traustur í
sessi frá því að landið
hlaut sjálfstæði 1991
við hrun Sovétríkj-
anna. Hann hefur þótt
framfarasinnaður í
efnahagsmálum og
hefur leyft vestrænum
fyrirtækjum að fjár-
festa í olíu- og gasiðn-
aði landsins. Sögðu
vestrænir fjárfestar í
gær að ekki væri
ástæða til að hafa
áhyggjur ef forsetinn
yrði áfram við völd og
héldi áfram umbótum sínum.
Fjölmiðlar í Kazakstan gagn-
rýna sjaldan forsetann og virtust
tíðindin vekja þar litla athygli.
Nursultan
Nazarbajev
Reuter
Tapie hitnar í hamsi
FÚKYRÐI voru látin fjúka í gær
í réttarhöldunum yfir Bernard
Tapie, fyrrverandi ráðherra og
eiganda knattspyrnuliðsins
Marseille. Tapie kvaðst saklaus
af því að hafa staðið fyrir til-
raun til að múta andstæðingum
liðsins í mikilvægum knatt-
spyrnuleik í Frakklandi sex dög-
um áður en það sigraði í Evrópu-
keppni meistaraliða árið 1993.
„Haltu kjafti!" hrópaði Tapie að
Jean-Pierre Bernes, fyrrverandi
samstarfsmanni sínum, sem
kallaði hann „glæpamann“ og
hélt því fram að vinir Tapies
hefðu reynt að vernda hann
þegar mútumálið komst í há-
mæli. Myndin er af Tapie á leið
úr réttarsalnum.
Stríðið í
Tsjetsjníju
Hóta að
ráðast á
rússnesk-
ar borgir
Moskvu. Reuter.
DZHOKAR Dúdajev, leiðtogi
uppreisnarhéraðsins Tsjetsjn-
íju, sagði í blaðaviðtali í gær
að sjálfstæðisbarátta þess
myndi færast til Rússlands og
að saklausir borgarar kynnu
að bíða bana þegar tsjetsjensk-
ar sjálfsmorðssveitir hefðu
komið sér fyrir í rússneskum
borgum.
„Verið er að stofna sjálfs-
morðssveitir... í þeim eru
menn sem eru reiðubúnir að
láta lífið til að hefna feðra sinna
og barna sem biðu bana í
sprengjuárásum," sagði Dúda-
jev í viðtali við Komsomolskaya
Pravda.
„Þegar við þrengjum okkur
inn í rússneskar borgir, kunna
margir saklausir að þjást,“
sagði Dúdajev í viðtalinu sem
fullyrt er að hafi verið tekið í
tsjetsjensku þorpi. Hann sagði
sveitirnar hafa undir höndum
heimilisföng þeirra sem ábyrgir
væru fyrir morðum á almenn-
um borgurum í Tsjetsjníju. Fór
hann hörðum orðum um rúss-
neska herinn, sem hann sagði
verðlauna morðingja. I sovéska
hernum hefði þó verið til staðar
einhver skiiningur á því að
þyrma ætti óbreyttum borgur-
um.
Missir Balladur af lestinni?
París. Rcutcr.
ÞRATT fyrir að Edouard Balladur,
forsætisráðherra Frakklands, hafi í
sjónvarpsviðtali á sunnudag heitið
því að herða róðurinn í baráttunni
fyrir forsetakosningarnar í lok apríl
eru flestir fréttaskýrendur þeirrar
skoðunar að það sé of seint.
Allar skoðanakannanir benda nú
til að Jacques Chirac, fyrrum for-
sætisráðherra, muni vinna auðveld-
an sigur í kosningunum og að
hvorki Balladur né Lionel Jospin,
frambjóðandi sósíalista, nái að ógna
honum. Alain Duhamel, einn þekkt-
asti fréttaskýrandi Frakklands,
sagði að þrátt fyrir allt hefði Ballad-
ur staðið sig vel síðari hluta kosn-
ingabaráttunnar. „Til að snúa þró-
uninni við þyrfti eitthvað nýtt, veru-
lega krassandi, að gerast. Það gerð-
ist ekki [í sjónvarpsviðtalinu á
sunnudag],“ sagði Duhamel.
Aðrir fréttaskýrendur sögðu að
einungis alvarleg mistök í kosn-
ingabaráttunni, til dæmis í Evrópu-
málum, eða þá ef eitthvert stórt
hneykslismál kæmi upp, gæti nú
orðið Chirac að falli.
Balladur hafði örugga forystu í
skoðanakönnunum allt síðasta ár
en segir nú að reynsluleysi hans í
stjórnmálum valdi því að honum
gangi ekki betur en raun beri vitni.
Mitterrand Frakklandsforseti
lýsti í blaðaviðtali á mánudag yfir
stuðningi við Jospin en flestir
fréttaskýrendur sögðu máttleysi
einkenna þá stuðningsyfirlýsingu
og myndi hún litlu breyta.