Morgunblaðið - 15.03.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1995 19
LISTIR
DANSKEPPIMI
Vortónleikar
Karlakórsins
Stefnis
V ORTÓNLEIKAR Karlakórsins
Stefnis verða haldnir í Langholts-
kirkju í dag, miðvikudag, kl. 20.30
og sunnudaginn 19. mars kl. 17.
Tónleikarnir eru haldnir fyrir
styrktarfélaga kórsins, en einnig
verða miðar seldir við inganginn.
Stjórnandi kórsins er eins og
undanfarin ár Lárus Sveinsson og
undirleikari er Sigurður Marteins-
son. Einsöngvari með kórnum er
að þessu sinni Elín Osk Óskarsdótt-
ir og mun hún meðal annars syngja
kafla úr óperunni Valdi örlaganna
eftir Verdi. Þá syngja einnig ein-
söng þrír kórfélagar, þeir Asgeir
Eiríksson, Böðvar Guðmundsson
og Björn Ó. Björgvinsson.
I kynningu segir: „A efnis-
skránni er að finna bæði erlend lög
og innlend, má þar nefna Fanga-
kórinn úr óperunni Fídelio eftir
Beethoven, svo og verður flutt þýsk
lagasyrpa, en undirleik þar annast
félagar úr Félagi harmonikkuunn-
enda í Reykjavík, en þetta er annað
árið sem samstarf hefur verið með
þeim og Karlakórnum Stefni.
í fyrra flutti Stefnir rússneska
syrpu, með undirleik harmonikku-
leikaranna. Hefur samvinna þessi
gefist vel og veitt bæði söngmönn-
um og áhreyendum ánægju og til-
breytni í annars hefðbundnu karla-
kórsstarfi. Fyrirhugaðir eru tón-
leikar í Hlégarði í Mosfellsbæ, en
dagsetning þeirra hefur ekki enn
verið ákveðin.“
Guðrún
Óskarsdóttir
Guðrún Oskars-
dóttir á Há-
skólatónleikum
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUNUM í
dag, 15.^ mars, kl. 12.30 leikur
Guðrún Óskarsdóttir semballeikari
verk eftir Jacques Champion de
Chambonniéres og György Ligeti.
Guðrún lauk píanókennaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
og voru aðalkennarar hennar þar
Margrét Eiríksdóttir og Anna Þor-
grímsdóttir.
Hún stundaði sembalnám hjá
Helgu Ingólfsdóttur hér á íslandi
og hjá Anneke Uittenbosch við
Sweelinck Conservatorium í Amst-
erdam og hjá Francoise Lengelle í
París. Hún lagði einnig stund á nám
í kammertónlist barrokktímans og
tölusettum bassa (basso continuo)
hjá Jesper Boge Christensen við
Scola Cantorum í Basel. Hún hefur
komið fram á tónleikum bæði hér
heima og erlendis.
Á tónleikunum mun Guðrún not-
ast við meðaltónstillingu á hljóð-
færi sitt, en sú stilling var notuð
á 17. öld og verkin sem hún leikur
á tónleikunum eru samin með þá
stillingu i huga. Áður en hún leikur
verkin mun hún flytja stutt erindi
um meðaltónstillinguna.
Aðgangseyrir er 300 krónur en
frítt fyrir handhafa stúdentaskír-
teinis.
Lottókeppni dans-
skóla Auðar Haralds
DANS
íþróttahúsiö
á Scltjarnarnesi
LOTTÓDANSKEPPNI
DANSSKÓLA
AUÐAR HARALDS
70 pör tóku þátt í Lottódanskeppni
dansskóla Auðar Haralds. Iþrótta-
húsinu á Sehjamamesi, sunnudag-
inn 5. mars.
Á SÍÐASTLIÐNUM árum hef-
ur danskeppnum verið að fjölga
til muna og er ekkert nema gott
um það að segja, því það sem
hefur staðið okkar beztu pörum
fyrir þrifum, á erlendum vett-
vangi, er lítil keppnisreynsla. Nú
á sunnudaginn fór fram í fyrsta
skipti Lottódanskeppnin, sem er
alveg ný af nálinni og verður hún
haldin einu sinni á ári héðan í
frá, að sögn Auðar Haraldsdóttur
danskennara. Keppnin skiptist í
rauninni í þrjá hluta. Keppni í
dönsum með grunnaðferð, keppni
í dansi með fijálsri aðferð og loks
liðakeppni, sem að þessu sinni var
þannig að liðin voru skipuð þrem-
ur pörum, einu pari 11 ára eða
yngri, einu 12-15 ára og loks einu
pari 16 ára eða eldri. I keppninni
með grunnaðferð var keppt í b/c-
riðlum og a-riðli og í a-riðlunum
var það sameiginlegur stigafjöldi
úr bæði standarddönsunum og
suður-amerísku dönsunum sem
réð úrslitum.
Það var svo Brynjar Þ. Valdi-
marsson, formaður Sambands ís-
lenskra áhugadansara, sem flutti
ávarpsorð og setti keppnina. Að
því loknu hófst keppni í dansi
yngstu krakkanna með grunnað-
ferð. Eitthvað virtist hljóðkerfið
vera að stríða fólkinu í upphafi,
en því var kippt í liðinn fyrr en
varði. Allir keppendur stóðu sig
mjög vel og vart er hægt að taka
einn hóp fram yfir annan. Þó
finnst mér vert að minnast á einn
hlut, sem er ef til vill einn sá
mikilvægasti í dansinum og það
er dansstaðan. Hana þarf að laga
á mörgum stöðum og fínnst mér
sérstaklega þurfa að líta á hóp
12-13 ára, þar var dansstaðan
alltof há hjá flestum pörunum,
að mínu mati, og skemmdi það
fyrir annars ágætum dansi.
Þá var komið að fijálsu pörun-
um. Þar hófst keppnin á flokki
14-15 ára, sem án efa er lang-
harðasti flokkurinn. Loftið var
svo sannarlega rafmagnað á með-
an þau voru að dansa. Mér fannst
reyndar flestir hóparnir í fijálsu
keppninni nokkuð jafnir og svo
dönsuðu líka flest pörin ákaflega
vel á sunnudaginn, áttu sem sagt
góðan dag.
Á eftir fijálsu keppninni var
komið að seinni hluta a-riðlanna
með grunnaðferðinni. Þar fannst
mér þau dansa af miklu meiri
krafti en í fyrri umferðinni, það
er eins og þau hafi verið orðin
heit í seinnihlutanum, þar er helst
að samban mætti dansast af
meiri mýkt, en að öðru leyti mjög
fallegur dans.
Rúsínan í pylsuendanum var
svo liðakeppnin, en eins og fyrr
segir var hvert lið skipað þremur
pörum. Sex lið tóku þátt í liða-
keppninni, lið frá Dansskóla Auð-
ar Haralds, Dansskóla Sigurðar
Hákonarsonar, Danssmiðjunni,
Dansskóla Jóns Péturs og Köru,
Dansskóla Heiðars Ástvaldsson-
ar, og loks frá Nýja dansskólan-
um. Liðakeppnin var skemmtileg
í flesta staði, þó get ég ekki neit-
3. Hjördís María Ólafsdóttir og
Ólöf Birna Björnsdóttir.
4. Ingi Björn Harðarson og María
Kristinsdóttir.
9 ára og yngri, a
1. Sigurður Á. Gunnarsson og
Tinna S. Miijevic.
2. Davíð Gill Jónsson og Halldóra
Sif Halldórsdóttir.
3. Gunnar Már Jónsson og Anna
Claessen.
10-11 ára, a
1. Haralduc Anton Skúlason og
Sigrún Ýr Magnúsdóttir.
2. Gunnar Hrafn Gunnarsson og
Ragnheiður E. Eiríksdóttir.
3. Isak Halldórsson og Halldóra
Ósk Reynisdóttir.
12-13 ára, a
1. Andri Guðmundsson og María
Bjöyk Guðmundsdóttir.
2. Ólafur Erling Ólafsson og Mar-
grét Guðmundsdóttir.
3. Sigurður Fannar Hjaltason og
Kristín María Tómasdóttir.
14-15 ára, a
að því að mér finnst það form sem
var á liðakeppninni daginn áður
mun skemmtilegra, en auðvitað
er það bara smekksatriði og einn-
ig spurningin um að venjast ein-
hveiju nýju.
Að keppni lokinni var komið
að verðlaunaafhendingu og er þá
komið að því að útskýra heiti
keppninnar. Þau pör sem komust
á verðlaunapall fengu öll páska-
egg frá Mónu, en sigurparið fékk
að draga miða úr hatti, og númer
miðans sagði til um verðlaunin,
sem voru mjög skemmtileg, t.d.
borðlampar og ýmislegt fleira.
Dómarar keppninnar voru Heiðar
Ástvaldsson forseti DÍ, Esther
Inga Níelsdóttir og Vilborg Sverr-
isdóttir og stóðu þau sig ágætlega
að mínu mati.
Dagurinn í heild sinni var
skemmtilegur og afslappaður,
ekkert stress og læti. Áhorfendur
sátu bara og fylgdust með falleg-
um og fáguðum dansi í ró og
næði.
Jóhann Gunnar Arnarsson
ÚRSLIT
9 ára og yngri, b/c
1. Jónatan Örlygsson og Bryndís
M. Björnsdóttir.
2. Stefán Claessen og Erna Hall-
dórsdóttir.
3. Ásgrímur Geir Logason og Ásta
Bjarnadóttir.
10-11 ára, b/c
1. Gunnar Örn Ingólfsson og Anna
Lísa Pétursdóttir.
2. Þorlákur Þór Guðmundsson og
Ingveldur Lárusdóttir.
3. Hilmir Jensson og Jóhanna
Berta Bernburg.
12-13 ára, b/c .
1.-2. Hrafnhildur Sigmarsdóttir
og Lilja Dagbjartsdóttir.
'1.-2. Ágúst Ingi Atlason og Ást-
hildur I. Ragnarsdóttir.
14-15 ára, b/c
1. Jóhann Óskarsson og Guðrún
Halla Hafsteinsdóttir.
2. Hrönn Magnúsdóttir og Laufey
Árnadóttir.
16 ára og eldri, a
1. Hlynur Rúnarsson og Elísabet
Guðrún Jónsdóttir.
12-13 ára með frjálsri aðferð
1. Benedikt Einarsson og Berglind
Ingvarsdóttir.
2. Hafsteinn Jónasson og Laufey
Karítas Einarsdóttir.
3. Eðvarð Þór Gíslason og Dóris
Ósk Guðjónsdóttir.
14-15 ára með frjálsri aðferð
1. Sigursteinn Stefánsson og El-
ísabet Sif Haraldsdóttir.
2. Þorvaldur S. Gunnarsson og
Jóhanna Ella Jónsdóttir.
3. Brynjar Örn Þorleifsson og
Sesselja Sigurðardóttir.
16 ára og eldri
með frjálsri aðferð
1. Gunnár Már Sverrisson og Anna
Björk Jónsdóttir.
2. Árni Þór Eyþórsson og Erla
Sóley Eyþórsdóttir.
3. Ólafur Hansson og Kolbrún Ýr
Jónsdóttir.
FRÁBÆRIR dansarar, þau Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Ragnheiður E. Eiríksdóttir.
MARGUR er knár ... þetta sanna þau ísak
Halldórsson og Halldóra Ósk Reynisdóttir.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞORVALDUR Gunnarsson og Jóhanna Ella Jónsdóttir áttu
góðan dag á sunnudaginn.
1. Snorri Júlíusson og Eva Her-
mannsdóttir.
2. Kristinn Sigurbergsson og Vé-
dís Sigurðardóttir.
3. Heiðar Logi Sigtryggsson og
Málfríður Lillý Einarsdóttir.